Morgunblaðið - 26.11.2009, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
122,0
203,9
115,84
24,623
21,778
17,686
121,44
1,3885
196,13
183,25
Gengisskráning 25. nóvember 2009
122,29
204,4
116,18
24,695
21,842
17,738
121,78
1,3926
196,71
183,76
235,8811
MiðKaup Sala
122,58
204,9
116,52
24,767
21,906
17,79
122,12
1,3967
197,29
184,27
Heitast 2°C | Kaldast -7°C
NA 8-15 m/s. All-
hvöss norðanátt aust-
ast. Stöku él fyrir
norðan. Dálítil slydda
sunnan til í kvöld. »10
Evudætur deila með
okkur hlýju og
hugulsemi á sinn
dularfulla hátt á
sýningu í Listasafni
Akureyrar. »35
MYNDLIST»
Hlýja og
hugulsemi
FÓLK»
Gengur hún upp að
altarinu í desember? »41
Dagur Gunnarsson
er alltaf að fá æði
fyrir einhverju og er
nú með æði fyrir
hljóðbókum og
skeggvaxi. »39
AF LISTUM»
Hljóðbækur
og skeggvax
MYNDLIST»
Enginn hefur litið við
honum sem módeli. »36
TÓNLIST»
Friðrik og Jógvan seljast
enn vel. »38
Menning
VEÐUR»
1. Andlát: Guðmundur Pétursson
2. 100 Íslendingar á leið í sólina
3. Tilkynnt um vopnaðan mann …
4. Yfirlýsing frá Ágústi Sindra …
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Knattspyrnu-
maðurinn Gunnar
Heiðar Þorvalds-
son sló í gegn hjá
enska liðinu Read-
ing í gær er hann
skoraði tvö mörk í
æfingaleik. Gunnar
hefur undanfarið leikið með Esbjerg
í Danmörku en lítið fengið að
spreyta sig. „Mig hefur lengi dreymt
um að spila í Englandi og það er
vissulega möguleiki á að sá draumur
verði að veruleika,“ segir Gunnar
Heiðar. Ekki er ólíklegt að hann
verði lánaður frá Danmörku til
Reading í Englandi.
KNATTSPYRNA
Draumur Gunnars gæti
orðið að veruleika
Þeir Helgi Pét-
ursson, Ólafur
Þórðarson og
Ágúst Atlason
sem skipa tríóið
Ríó tríó hafa nú
sent frá sér jóla-
plötu. Platan heit-
ir Gamlir englar – Sígildir á jólum
og á henni er að finna öll eldri
jólalög Ríó tríós ásamt fimm nýj-
um sem hljóðrituð voru nýlega,
þar af þrjú eftir þá sjálfa. Sá
draumur hafði lengið blundað í
þeim félögum að gefa út heila
plötu eingöngu með jólalögum og
nú hefur hann ræst.
TÓNLIST
Félagarnir í Ríó tríó eru
gamlir en sígildir á jólum
Bandaríski
konsertpíanistinn
og upptökustjórinn
Denver Oldham
verður með tón-
leika í kvöld í Bíó-
sal Duushúsa í
Reykjanesbæ. Old-
ham hlaut menntun sína í Julliard
tónlistarskólanum og hefur hlotið
fjöldann allan af alþjóðlegum við-
urkenningum fyrir píanóleik sinn.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
meðal verka á efnisskrá hans eru
Fantasía í c-moll e. Mozart, Norna-
dansinn e. Edward MacDowell og
Rapsódía nr. 11 í a-moll e. Liszt.
TÓNLIST
Konsertpíanistinn Oldham
í Duushúsum í kvöld
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
ÞÆR eru fjarska flottar kven-
félagskonurnar í Biskupstungum
sem tóku sig til og sátu fremur létt-
klæddar fyrir á ljósmyndum sem nú
eru orðnar að dagatali sem þær
ætla að selja til fjáröflunar.
„Þetta hefur verið mjög gaman.
Við skemmtum okkur konunglega í
myndatökunni og dagatalið heitir
Tvær úr Tungunum,“ segir Svava
Theodorsdóttir, gjaldkeri Kven-
félags Biskupstungna. „Við létum
loksins verða af því að framkvæma
þessa hugmynd en hún hafði fyrst
komið upp fyrir mörgum árum.
Okkur fannst full ástæða til að gera
eitthvað skemmtilegt í kreppunni
og láta gott af okkur leiða en ágóð-
ann af sölu dagatalsins ætlum við
að nota til að bæta aðstöðuna hér í
sveitinni til heilsueflingar og einnig
ætlum við að leggja fé til kaupa á
sónar-skoðunarbekk á fæðingar-
deildina á Selfossi.“
Konurnar eru á öllum aldri en
Svava segir að vissulega hafi ekki
allar konur kvenfélagsins viljað
sitja fyrir. „Hverri konu var frjálst
að vera með eða ekki, en sú elsta er
á níræðisaldri og við dáumst að
henni að hafa tekið þátt í þessu. Við
fengum líka tvær fyrirsætur utan
félagsins; prinsessa Rósa sat kvik-
nakin fyrir á þremur myndum en
hún er kind og mjög gæf enda
heimalningur. Hundurinn Kol-
grímur lagði okkur einnig lið.“
Dagatalið mun fást í Bjarnabúð í
Biskupstungum, á Sunnlenska
bókakaffinu á Selfossi, í búðinni á
Geysi og á netinu á www.garn.is.
Tungnakonur fækka fötum
Dagatal með
sveitamyndum
til fjáröflunar
Ljósmynd/Íris Jóhannsdóttir
Við störfin Sigga Jóna fær sér mjólkursopa í fjósinu og Heiða bakar köku en Ellisif tekur úr ofninum.
„VIÐ áttum að vinna leikinn,“
sagði Íris Björk Símonar-
dóttir, markvörður Fram, eft-
ir að Reykjavíkurliðin Valur
og Fram skildu jöfn, 21:21, í
N1-deild kvenna í handknatt-
leik á heimavelli Vals í gær-
kvöldi.
Íris Björk átti stórleik í
marki Fram og varði 22 skot
og skyggði á samherja sinn í
íslenska landsliðinu, Berglindi
Írisi Hansdóttur, markvörð Vals.
Valur er áfram eina taplausa liðið í deildinni
eftir átta leiki og hefur 14 stig í öðru sæti.
Stjarnan er efst með 15 stig að loknum níu leikj-
um. Fram er með 13 stig. | Íþróttir
Stórleikur Írisar
dugði ekki til
Íris Björk
Símonardóttir
VERÐI fyrirhuguð lækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingar-
orlofssjóði að veruleika hefur hámarkið lækkað um 44% á
rúmlega einu ári. Leó Örn Þorleifsson, forstöðumaður Fæð-
ingarorlofssjóðs, kveðst hafa miklar áhyggjur af þessari þró-
un. Forstöðumenn félagasamtaka á vinnumarkaði taka í
sama streng og segja skref stigið aftur á bak í jafnréttis-
málum.
Starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs verður í vaxandi mæli vart
við að feður fresti töku fæðingarorlofs, þar sem þeir þori
ekki eða hafi ekki efni á því að hverfa af vinnumarkaði til að
sinna ungviðinu. Sparnaður ríkisins með lækkun á hámarks-
greiðslum vegna fæðingarorlofsins úr 536 í 350 þús. kr. er
enn ekki kominn nema að litlu leyti fram þar sem foreldrar
geta tekið orlofið í allt að 36 mánuði eftir fæðingu barns. | 8
Fresta fæðingarorlofinu
Feður hafa ekki efni á að hverfa af vinnumarkaði
Hámarkið lækkað um 44% Vinnumarkaðurinn mótmælir
Morgunblaðið/Jim Smart
Ungviði Hámarksgreiðslur úr Fæðing-
arorlofssjóði verða skertar á næstunni.