Einherji


Einherji - 11.02.1932, Blaðsíða 3

Einherji - 11.02.1932, Blaðsíða 3
EINHERJI 3 Eruð þér svo efnalega sicálfstæðir, að þér þurfið ekki að brunatryggja eigur yðar? Brunatryg^ið í Sjövátryggingarfélagi ís- lands, sem er eina alíslenzka f élagið og býð- ur lægzt iðgiöld. Umboðsmaður fyrir Sigluijörð: Pormóður Eyólfsson. Allt með íslenzkum skipum. PÓSTBÁ TURINN verður hér næstkomandi mánudagskvöld á vesturleið. Afgreiðslan. Úr bænum. „Frjálsar ástir“ heitir bæklingur sem seldur hefir 'verið á götum bæj- srins undanfarna daga. Er það fyr- irlesti r, sem frk. Katrín Thoroddsen læknir í Reykjavík flutti í Utvarpið í fyrra, en A. S. V. gefur út. Ræð- ir þar um takmörkun barneigna og önnur feimnismál svokölluð, og er höf. hreinskilinn og bersögull. — Marga mun fýsa að lesa pésann. Styðjið islenzkan iðnað. Klæðskeri frá saumastofu klæðaverksm. „Gefj- un“ á Akureyri hefir verið hér und- anfarið og tekið mál af mönnum og pantanir fata eftir efnasýnis- hornum er hann var með. Eru efni þau, er verksmiðjan býrtil, að mestu úr íslenzkri ull og mörg hin smekk- legustu, enda hefir sú raun á orðið í Reykjavík í vetur, að saumastofa Gefjunar þar hefir haft mesta að- sókn allra saumavinnustofa. Hér voru pantaðir á skömmum tíma hátt á annað hundrað klæðnaða og er gott til þess að vita er íslenzkur iðnaður og íslenzk vinna er þannig að verðungu stutt óg skilið. Mun þess væntanlega ekki langt að bíða, að vér verðum um klæðagerð allflesta sjálfum oss nógir, Islend- ingar, og mur. við það mikið fé ávinnast og þó meir manndómur og sómi. Er þetta einn liður hinn- ar miklu þjóðræknisstarfsemi, sem nú er hafin í Reykjavík og víðar sbr. „Islenzka vikan", og mun þetta blað fylgjast með öllu sem gerist í því máli og stuðla éftir getu að framgangi og góðum árangr.i þess. En jafnframt því, að vér gleðj- umst yfir góðum skilningi Siglfirð- inga á því að stuðla að notkun ís- lenzkra efna, viljum vér benda á það, að í þessu sambandi fer mikil vinna og mikið fé út úr bænum að óþörfu, vegna þess að engin sauma- stofa er hér á staðnum er saumi klæðnaði bæjarbúa. Væri vel ef þetta breyttist til batnaðar sem fyrst, því af því leiddi aukin þægindi fyrir þá sem klæði þnrfa að fá vel sniðin og saumuð og jafnframt myndaðist hér atvinnugrein mörgum til hagsbóta, bæði karli og konu. En að því ber að keppa, að sem mest sé hér í bænum unnið af öllu því er bæjarbúar þarfnast og að Sigl- firðingar verði heldur veitandi en þiggjandi um iðnaðarvörur. Talið bér býsku, heitir mynd sú sem Gamla-Bíó í Reykjavík sýndi INNLENT Ljóma-smjörlíki er rjóma-smjörs í gildi. Fœst hjá Dalmar. INNLENT á jólunum s.l. og eru Litli og Stóri aðalleikendurnir. Myndin er tekin af þýsku fiim félagi og mjög til hennar vandað, enda er sagt að þetta sé skemmtilegasta myndin sem Litli og Stóra leika í og er þá mik- ið sagt, því þeir eru meðal hinna vinsælustu gamanleikara í heimi. Efni myndarinnar er það, að alþjóða- fíökkumanna-þing er háð í Berlín og þar mæta hinir frægu flækingar Litli og Stóri vitanlega. Aðaí um- ræðu- og viðfangsefni þingsins er að fá ráðna bót á hinni miklu og háskalegu umferð á öllum þjóðveg- um, sem öllum flökkulýð er til mik- ils trafala. Litli ogStóri eru eftir þjark nokkurt kosnir til þess að bera fram umbótakröfur stéttarinnar. þótt sá Ijóður sé á þeirra ráði að þeir kunna ekki þýsku. Síðan fá þeir sér kennara í málinu, en það er auðvitað ástleitin piparkerling sem ólm vill klófesta Litla-karl. Hann lætur samt ekki „plata“ sig, sá stutti, heldur stinga báðir félagarnir af, INN LENT LJÓMA-SMJÖRLÍKI ber nafn með rentu—Pað er ljómandi gott. Fœst hjá Dalmar. INNLENT lenda síðan hjá öðrum kvenmanni — yndislegri stúlku — og þá er nú ekki um að spyrja — þar lenda þeir í ýmsum skringilegum æfintýrum ... Nýja-Bió hér hefir nú fengið myndina og mun hún verða sýnd bráðlega. Mun margan fýsa að sjá. Sf> ectator. Karlakórinn „ Visir“ æfir nú af kappi. Hefir verið farið þess á leit við kórinn af hálfu Ríkisútvarpsins, að hann syngi nokkur lög á grammó- fónplötur fyrir félagið. Er kórnum þetta mikill sómi. Má vænta þess, að brátt hefjist samningar milli Rík- isútvarpsins og karlakórsins um þessi mál. Átia menn fóru upp á Strákhyrn- una i gær til að skyggnast um eftir hátis. Skyggni var allgott og varð hvergi eygður ís svo langt er sá. íslenzkir dúkar eru haldbeztir. Siglufjarðarprentsmiðja.

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.