Einherji - 11.02.1932, Page 4
4
EINHERJI
Hraustir sjómenn! Hugsið vel um
hverja þarfa uppfyndiné-
GARGOYLE-OLIA á öllum vélum
er hin besla líftrygging.
Vélin enga vitund slitnar
vætli GARGOYLE-SMU RNING á,
úr sér bræðir eða hitnar
ekki nokkur lega þá.
Mobiloil
Umboðsmaður fyrir
GARGOYLE MOBIL
OIL COMPANY
á Siglufirði er
Olíuverzlun íslands
Andrés Hafliðason.
Útvegsmenn á tvísýnt tefla
trauðla munu um farnað sinn.
GARGOYLE MOBIL OLÍUR efla
ákaflega sparnaðinn.
er viðurkennd ogheimskunn
sem bezta smurningsolían
á allar vélar svo sem:
gufuvélar, olíuvél-
ar, bifreiðavélar,
frystivélar, raf-
magnsvélar. skil-
vindur o. m. fl.
GARGOYLE’S
gír-feiti, öxulfeiti
og grænclíur bera
af öllum öðrum.
Nægar byrgðir ávalt fyrirliggjandi.
„Dr. Alexandrine“ kom hingað
á mánudagskvöldið var frá Akureyri
á leið tii Reykjavíkur og útlanda.
harþegar frá Akureyri voru Böðvar
Bjarkan málafl.m. og Anton Jónsson
forstjóri hingað, hæjarstjóri Jón
Sveinsson á leið til Reykjavíkur og
Ingvar Guðjónsson á leið til útlanda.
Kvöldræður i Kennaraskólanum,
hin mjög svo ágæta ból> síra Magn-
úsar Helgasonnr fyrv. kennaraskóla-
stjóra er komin út fyrir nokkru.
Hennar verður nánar getið
síðar hér í blaðinu.
7 unnusmiðin. Tunnuverksmiðjan
er nú tekin til starfa. Vinna þar
45 rnenn. Er unnið allan sólar-
hringinn í þrískiftum vökum. Á-
ætla tunnugerðarmenn, aðsmtðaðar
verði 360—390 tn. á sólarhring þeg-
ar allt er komið í fullan gang.
Slys. Porkell Svarfdal, formaður
slasaðist síðastliðna þriðjudagsnótt.
Var hann að vinna í lunnugerðinni.
Lenti hanní vélasöginni með vinstri
hendina og sagaðist upp í mitt
handarbak milli græðifingurs og
löngutangar. Liggur hann nú á
sjúkrahúsinu og líður eftir vonum.
Skemtun hélt kvennfélagið „Von“
í húsi sínu í gærkvöld. Var þar
leikinn „Apakötturinn", og öslcu-
pokauppboð og dans á eftir. Skemt-
unin var vel sótt og verður endur-
tekin aftur í kvöld.
Merktur }ugI. Jón Sigurðsson frá
Eyri skaut straumönd (anas histrio-
Styðjið íslenskan iðnað.
Hjá ungmey vaka er yndæli
og yfrum taka fríðkvendi
i bifreið aka í blíðviðri
og borða AKRA-SMJÖRLÍKI.
Eitt er víst að AKRA-SMJÖR
allra manna bætir kjör,
eykur hreysti, afl o£ fjör
enda er það á hvers manns vör.
Notið Akra-smjölíki.
AÐALFUNDUR
Sjúkrasamlags Siglufjarðar verður haldinn sunnud. 21. febr. n.
k. kl. 4 síðd. á „Hótel Siglufjörður“.
D A G S K R Á :
1. Reikningur samlagsins fyrir síðastliðið ár.
2. Kosning 4 manna í stjórn oj> 1 til vara.
3. Kosning 1 endurskoðenda og varamanns.
4. Fjársöfnun.
5. Önnur mál.
Siglufirði, 6. febr. 1932.
Guðm. Skarphjeðinsson.
nica) á mánudnginn hér útí í firð- Eigendur og abyrgðarm.:
inum. Var hún merkt P. Skovgaard Kristján P. Jakobsson.
V. 7349. Sig. Björgólfsson.