Einherji


Einherji - 10.05.1935, Page 1

Einherji - 10.05.1935, Page 1
IV. árg. Siglufirði, Föstudaginn 10. maí 1935 7. tbl. 11 Jónas Jónsson frá Hriflu, varð fimmtu^ur 1. máí. Varla mun um það deilt að hann sé athafnamesti og frjóvasti sfjórn- 'málamaður. sem ísland hefir borið síðan Jón Sigurðsson leið, mesti hugsjónámaðurinn og öruggast bar- dagamaðuririn. Idann hefir jafnan staðið í fylkingarbrjósti, fiar sem orustan hefir verið hörðust. Að honum hefir verið s’tefnt fleiri og eitraori örvum, eti nokkrum öðrum núlifandi manni. og hann hefir allra manna hraðhendastur verið að grípa örvarnar á lofti, gera [iær óskaðlég- ar, eða kasta þeim til baka. Aldrei hefir hann kpnnað að hræðast, né hikað við að kasta sér á milli, tii þess að bera lagið afsamherjunum, þegar höggi hefir verið að þeim stefnt. Enginn flokksforingi, íslensk- ur. er jafnmikið dáður og engum jafnalment treyst af flokksmönnum. Engan hata andstaeðingarnir eins mikið og epgan óttast þeir eins og hann. Jónas Jónsson er manna bjart- sýnastur. Hatir. hefir óbilandi trú á framtíð landsins. Hann trúir á dug og dáð íslensku þjóðarinnar. En vökumannsstarfið fyrir liana eigi nýju skójarnir fyrst og fremst að inna af hendi. Fráþeim muni koma hraustur, glaður, framsækinn æsku- lýður, félagslega þroskaður og sam- vinnufús. Æskulýður, sem hafi drengskap, karlmenaku og fórnfýsi til þess að líta meira á þjóðarheild- ina. en einstaklingshagiun. Jónas Jónsson erfæddur á Hriflu i Suður-Pingeyjarsýslu. Bjuggju for- eldrar hans þar við fremur lítil efni en voru vel metin. — FaðirJónas- ar var talinn mesti dugnaðarmaður, en lét lítið á sér bera. Þd kann eg eina sanna sögu, sem lýsir honum furðu glöggt. Bóndi einn austan úr Reykja- hverfi, var að flytja skyldulið sitt til L Jónas Jónsson, form. Framsóknarfiokksins. Akureyrar um vortíma. 1 hópnum voru 6 — 7 manns með eina 10 hesta. Kuldatíð var, og víðast orðið hey- lítið og hafði bóndipn þessvegna nokkrar áhyggjur af, h var bera skyldi niður til gistingar. Hann afréð þó að leita fyrir sér í Hriflu. Var hann þar þó lítt kunnugur áður. Jón bóndi var úti þegar hann kom í hlaðið. Heilsaði hann honum og baðst gistingar. „Eitthvað verður til með fó!kið“, svaraði Jón, „en all lakara verður með hestana, því litl- ar eru nú orðnar fóðurbirgðirnar. Pó skal séð fyrir þeim eftir föngum", Gestirnir voru leiddir til bað- stofu og veittur góður beini, en hestunum raðað í skjóli við húsvegg og borið til þeirra störeflis hnippi af grænni töðu. En þegar gengið skyldi tíl hvílu um kvöidið, veitti aðkomumaður því eftirtekt, að Jón tók hettu sína og vetlinga og gekk út. Engjateigur er fyrir utan og neðan bæinn, Yflr hann hafði læk- ur seitlað og var því farið að grænka í lautunum. Fangað fór Jón með gestahestana og stóð yfir þeim í nepjunni alla nóttina. Hann leitaði upp handa þeim grænu tottana og leiddi þá að þeim hvern aföðrum, enda voru hestarnir kviðfullir og vel haldnir um morguninn. — Eng- in laun voru tekin fyrir nætur- greiðann. Pað hefir löngum verið talið, að Jónas hafi erft afburða gáfur frá móður sinni, en hann virðist engu síður hat'a erft fórnfýsi föður síns. — Aldrei hefir hann hlíft sér við vökum, þó aðrir hafi sofið; aldrei hikað við að standa í nepjunni, þegar hann hefir verið að vinna fyrir land sitt og þjóð, aldrei hirt um að auðga sjálfan sig. Oeigingjarnari og ósérh'ífnari son hefir ísland aldrei átt. Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá. ATHS. Einherji átti að koma út 1. maí og grein þessi að birtast þá. en sökum veikinda prentaranna hefir þessi dráttur orðið á útkomu blaðsins. S a m s æ t i var Jónasi Jónssvni, alþingismanni og skólastjóra, haldið að Hdtel Borg þann 1. þ. m. er hann varð fimmtugur. Samsætið sátu um 300 manns. Forsætisráðherra Hermann Jónasson mælti fyrir minni Jónas- ar og beiddist um leið, fyrir hönd vina Jónasar, að hann leyfði að af bonum yrði mótað brjóstlíkneski er síðar yrði steypt úr málmi, skyldi líkneskið vera eign Jónasar meðan hann lifði en verða eign al- þingishússins eftir hans dag. Rík- arður Jónsson skildi móta líkneskið. Fyrir minni konu Jónasar mælti prófessor Sigurður Nordal og fyrir minni dætra Jónasár, forstjórí Guð- brandur Magnússon. Pá flutti Jón-

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.