Einherji - 10.05.1935, Side 3
EINHERJI
3
Lindarpennar,
mikíð úrval, cnnfremur lindar-
perinasett i mjög smekklegum
umbúðum.
Hannes Jónasson.
hverjir ekki aðstöðutil þessaðkoma
á land annarstaðar en hér. Peir
verða því að prynda sér ákveðna
skoðun um menningu landsins út
t'rá þessum eina stað og mér leikur
grunur á því, að ýmsir útlendingar
skapi sér fáránlegar skoðanir um
félagslíf og menningu isiensku þjóð-
arinnar einmitt út frá þessum eina
stað.
H. K. H.
ATHS.
Ritstj. er ek’.i greinarhöfundinum
samþykkur i ýmsum atriðum, en
fann þó ekki ástæðu til að neita
um upptöku greinarinnar i blaðið.
Nær og fjær
Tíðin h'efir verið ákjdsanlega góð
siðan sumarið byrjaði. Jörð er
tekin að grænká og komi ekki
kuldakast má búast við, að snemma
komi upp mikill gróður.
Hvanneyrarprestakall heíir verið
auglýst til umsóknar. Ekkert
ábyggilegt hefir heyrst um það
hverjir prestar muni sækja um
prestakallið. Kosning mun fara
fram snemma i júní.
Pórður Gunnarsson frá Höfða
við Eyafjörð, andaðist 7. þ. m. að
heimili Pengils sonar síns á Akur-
eyri. Hann var 79 ára gamall.
Pórður sál. var höfðinglegur
maður i sjón með höfðingslund.
Var heimili hans í Höfða víð-
kunnugt fyrir gestrisni og mynd-
arbrag.
Dúi Benediktsson, lögregluþjónn,
andaðist 4. þ. m. á Akureyri, 73
ára að aldri. Dúi sál. var lengi
verzlunarmaður en gengdi síðan
lögregluþjónsstörfum í fjöldamorg
ár. Var hann vel iiðinn í því
starf i.
Aflalaust er nú með öllu fyrir
Norðurlandi.
Skóverzl. Andrésar Hafliðasonar
hefir íengið mjög fjölbreytt úrval af allskonar skó-
fatnaði, herra, kvenna og barna.
Gæðin og verðið alþekkt.
Mt inið að hið bezta er ódýrast.
Borð vaxdúkur* C a ^ ^ ^ .
& U X l (l !
sérlega ódýr er nýkominn. nýkomnir.
Hannes Jónasson. Hannes Jónasson.
A 11 s k o n a r
þ v o 11 a e f n i
og handsápur, seljum við
með miög lágu verði.
Halidór & Sveinn.
Ferðatöskur
margar stærðir.
Iiannes Jónasson.
Bátar þeir héðan, er haldið hafa
út frá Isafirði. eru nýkomnir heim.
Láta þeir mjög ilia yfir vertíðinni
og telja mikið tap á úlgerðinni.
Með Dr. Alexandrine kom heim
i'rá Danmörku ungfrú Nanna Por-
móðs. Hefir hún nýfega lokið
kennarapróti í danslist og plastik.
Var herini veht silfurmedalía að
verðlaunum fyrir framúrskarandi
góða frammistöðu. Nanna hefir
einnig stundað ieikfimisnám' í
Ollerup við skóla Niels
Bukh’s. Hún hefir þegar auglýst
kennslu í danslist fyrir börn og
fullorðna.
Með sama skipi kom Steindór
Hannesson frá Kaupmannahöfn,
hefir hann dvalið þnr í vetur og
lært kökugerð og ýmislegt annað
er að bakaraiðn lýtur.
Pá kom meðskipinu mikill fjöldi
af námsfólki frá ýmsum skólum.
Rakvélablöð
mjög góð.
Hannes Jónasson.
Hannes Porsteinsson
þjóðskjalavörður, í Reykjavík, and-
aðist 10. þ. m. Með honum er
fallinn í valinn einn þeirra manna
er bezt kunni skil á íslenzkri sögu
og fornum fræðum. L:ggur eftir
hann allmikið af ritverkum, svo
sem Annálar 1400—1800, safnritið
Blanda. Biskupasögur Jóns Hall-
dórssonar II, Guðfræðingatal og
margt fleira. Auk þess átti hann
mikinn þátt í Sýslumannæfum.
Hannes Porsteinssori lauk guð-
fræðiprófi við prestaskólann, en tók
aldrei vígslu. Hann keypti blaðið
Pjóðólf og var ritsljóri þess frá 1892
til 1910. Á þingi sat hann sem þing-
maður Árnesinga 1901 til 1911 og
var forseti neðri deildar 1909 og
1911. Aðstoðarskjalavörur við Pjóð-
skjalsafnið og var hann skipaður
1911, en þjóðskjalavörður eftir lát
Jóns Porkellssonar 1924 og gegndi
hann því starfi til dauðadags.
Sem ættfræðingur mun Hannes
sem ættfræðingur hafa verið
fremstur samtíðarmanna sinna og
hjálpaði honum þar framúrskarandi
gott minní.
Með Hannesi Porsteinssyni ertil
moldar genginn einn af merkustu
mönnum þjóðarinnar.