Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 2
 Hermann Hreiðarsson verður í eldlínunni með Portsmouth í dag  Leikur gegn meisturum Man- chester United  Langur meiðslakafli að baki „Það er geggjað að vera kominn í baráttuna aftur og fá tækifæri til að reyna gera eitthvað í málunum inni á vellinum í stað þess að geta ekki gert neitt,“ sagði Hermann Hreiðarsson fyrirliði ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður enska úrvals- deildarliðsins Portsmouth við Morgunblaðið í gær. 2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009 Eftir Skúla Sigurðsson skuli@mbl.is LIÐ Njarðvíkur og Snæfells mættust í gær í botn- slag Iceland Express deildarinnar. Fyrirfram var búist við hörkuviðureign þessara liða. En raunin varð sú að Njarðvíkurstúlkur voru töluvert grimm- ari og unnu verðskuldaðan stórsigur 74:52 „Við erum búin að vinna í okkar hugarfarslegu málum að undanförnu, efla liðsandann, og það er að skila sér. Allar lögðu sitt af mörkum hér í kvöld. Þrátt fyrir að Kaninn hafi verið í stóru hlutverki voru hinar ýmist að leggja upp fyrir hana eða í öðr- um mikilvægum hlutverkum. Við erum nýliðar í þessari deild og það er ekkert alltaf auðvelt en sjálfstraustið í liðinu er að aukast og við hlökkum bara til framhaldsins,“ sagði Unndór Sigurðsson þjálfari Njarðvíkur mjög sáttur með sitt lið. Ingi Þór Steinþórsson sem þjálfar bæði karla- og kvennalið Snæfells hefur nú komið í Reykjanesbæ með lið sín þrisvar og öll skiptin snúið til baka í Hólminn með ósigur. Fyrsta spurning var því hvort einhver Reykjanesbæjargrýla væri í liði Snæfells. „Nei, nei, alls ekki, við hófum nú tímabilið á að vinna Reykjanes Cup þannig að það er ekkert svoleiðis. Í kvöld spiluðum við bara eins og ungt og óreynt lið og mistökin voru mörg. Kristen var sú eina sem var mætt til leiks í fyrri hálfleik og það er bara ekki nóg. Við vorum bara sjálfum okkur verst í fyrri hálfleik, vorum strax komin 20 stigum undir. Við náðum að halda þessu jöfnu í seinni hálfleik þannig að það var sá fyrri sem fór með okkur,“ sagði Ingi Þór. „Sjálfstraustið í liðinu er að aukast“ Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is HERMANN er mættur til leiks á nýjan leik eftir langa fjarveru vegna meiðsla en Eyjamaðurinn spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu um síðustu helgi þeg- ar Portsmouth tapaði fyrir Stoke. Í dag verða Hermann og félagar í eldlín- unni á heimavelli sínum, Fratton Park, en þá fá þeir sjálfa Englandsmeistara Manchester United í heimsókn. Vonandi búinn að taka út minn skammt ,,Ég var í heildina bara mjög sáttur við eigin frammistöðu í leiknum á móti Stoke. Ég fann ekki fyrir neinum meiðslum og nú vona ég bara að ég sé búinn að taka út minn skammt hvað meiðslin varðar,“ sagði Her- mann, en þetta er í fyrsta sinn á ferlinum sem hann er svo lengi frá vegna meiðsla. Stjóraskipti urðu hjá Portsmo- uth í vikunni. Paul Hart var lát- inn taka poka sinn og Ísr- aelsmaðurinn Avram Grant ráðinn í hans stað en Grant, sem var við stjórnvölinn hjá Chelsea tímabilið 2008 var í síðasta mánuði ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Portsmouth. Grant ætti að geta lokkað leikmenn til okkar ,,Mann grunaði að á ein- hverjum tímapunkti tæki Grant við liðinu. Mér líst bara ágæt- lega á að fá hann. Hann er með mikla reynslu, er nokkuð stórt nafn í þessum bransa og hann ætti að geta lokkað einhverja leikmenn til liðsins. Við fáum liðsstyrk í janúar og vonandi verðum við heppnir með þá leikmenn sem við fáum,“ sagði Hermann. Það er ekki of sögum sagt að Ísraels- maðurinn tekur við erfiðu búi hjá suður- strandarliðinu. Portsmouth situr á botni úrvalsdeildarinnar með aðeins 7 stig af 39 mögulegum og margir eru farnir að finna mikill fallfnyk af liðinu. ,,Vissulega er staðan hjá okkur erfið en það hafa verið mikil batamerki á liðinu í síðustu leikjum. Í þessum tíu leikjum sem við höfum tapað er kannski einn leikur sem við áttum ekki möguleika í, leikurinn á móti Arsenal. Aðrir leikir hafa verið í járn- um og það var ákaflega svekkjandi að fá ekkert út úr leiknum á móti Stoke um síð- ustu helgi. En þetta snýst víst um að skora mörk og það hefur ekki gengið sem skildi hjá okkur.“ Verðum að gera heimavöllinn að algjörri gryfju Það verður sannkallaður stórleikur á Fratton Park í dag þegar Englandsmeist- arar Manchester United mæta á svæðið og ef að líkur lætur verður Hermann í vinstri bakvarðarstöðunni og kemur þá líklega til með að kljást við Antonio Valencia. ,,Það sýndi sig í Meistaradeildinni í vik- unni að United er skíthrætt við að mæta okkur þar sem liðið hvíldi marga lyk- ilmenn,“ sagði Hermann og hló við. ,,Lyk- ilatriði fyrir okkur til að eiga möguleika á að hanga í deildinni er að gera heimavöll- inn okkar að algjörri gryfju og taka stig í hverjum leik, hver sem mótherjinn er,“ sagði Hermann. Aldrei í sigurliði gegn United í deildarleik Hermann segist aldrei hafa verið í sig- urliði gegn Manchester United í deild- arleik en Hermann var í liði Portsmouth sem sló United út í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í mars 2008 og endaði það tímabil með því að hampa bikarmeist- aratitlinum. ,,Eigum við ekki að segja að það sé kom- inn tími til vinna Manchester United í úr- valsdeildinni. Það er ekki seinna vænna. Við verðum bara að taka hraustlega á móti þeim og gefa þeim ekki neinn frið til að spila sinn leik. Ef það tekst er aldrei að vita hvað gerist. Ég veit svo sem ekkert hvar ég stend gagnvart nýja stjóranum en ég vona svo sannarlega að hann fari ekki að gera neina vitleysu með því að velja mig ekki í liðið,“ sagði Hermann. Ánægður Her- mann Hreiðarsson segir að það sé „geggjað“ að vera kominn aftur í slaginn með Portsmouth. „United er skít- hrætt við okkur“ Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is „ÞAÐ kom í raun ekkert annað til greina en að s undir nýjan samning við Reading,“ sagði Gylfi Þ Sigurðsson, knattspyrnumaður, sem í gær samdi nýju við enska 1. deildarfélagið til hálfs þriðja á eða vorsins 2012. Gylfi, sem er tvítugur miðjumaður, hefur verið röðum Reading frá 15 ára aldri og kom inní aðal félagsins í byrjun þessa tímabils. Hann hefur unn sér fast sæti í liðinu og skorað tvö mörk í 1. deild „Mér hefur liðið mjög vel allan tímann hjá Rea ing, og þar hefur hjálpað til að hafa þá Ívar Ingi marsson og Brynjar Björn Gunnarsson hjá félag ásamt því að Viktor Unnar Illugason spilaði með „Mér líður mjög velKÖRFUKNATTLEIKURNjarðvík – Snæfell 74:52 Njarðvík, úrvalsdeild kvenna, Iceland Ex- press deildin, föstudaginn 27. nóvember. 2009. Gangur leiksins: 26:15, 45:25, 60: 41, 74:52. Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 30, Ólöf Helga Pálsdóttir 15, Auður Jónsdóttir 9, Helga Jónasdóttir 4, Heiða Valdimarsdótt- ir 4, Anna María Ævarsdóttir 3, Sigurlaug Guðmundsdóttir 3, Ína Einarsdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 2, Jóna Áslaugs- dóttir 2. Fráköst: 29 í vörn – 20 í sókn. Stig Snæfells: Kristen Green 29, Unnur Ásgeirsdóttir 10, Hrafnhildur Sævarsdótt- ir 4, Björg Einarsdóttir 3, Erna Kristjáns- dóttir 2, Sara Andrésdóttir 2, Gunnhildur Gunnarsdóttir 2. Fráköst: 25 í vörn – 10 í sókn. Villur: Njarðvík 16 – Snæfell 14. Áhorfendur: 70. Staðan: KR 8 8 0 591:399 16 Hamar 8 5 3 568:556 10 Grindavík 8 5 3 549:519 10 Keflavík 8 4 4 540:532 8 Njarðvík 9 3 6 604:653 6 Haukar 8 3 5 582:573 6 Snæfell 9 3 6 526:630 6 Valur 8 2 6 457:555 4 1. deild karla Ármann – Haukar ................................ 68:81 ÍA – KFÍ ............................................... 73:83 Þór Þ. – Valur ....................................... 81:87 Staðan: KFÍ 8 7 1 695:585 14 Haukar 8 7 1 653:518 14 Skallagrímur 7 6 1 562:512 12 Þór Þ. 8 5 3 659:645 10 Valur 7 4 3 531:504 8 Höttur 9 3 6 676:755 6 Ármann 7 3 4 547:516 6 Þór A. 8 2 6 607:685 4 ÍA 7 1 6 527:614 2 Hrunamenn 7 0 7 524:647 0 NBA Atlanta – Orlando..................................76:93 Utah – Chicago ....................................105:86 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla Selfoss – Fjölnir.................................... 36:17 Staðan: Selfoss 7 6 0 1 207:150 12 Afturelding 6 5 1 0 166:132 11 Víkingur R. 6 3 1 2 160:131 7 ÍR 6 3 0 3 166:166 6 ÍBV 5 2 0 3 140:136 4 Fjölnir 7 1 0 6 130:220 2 Þróttur 5 0 0 5 108:142 0 ÞÝSKALAND Grosswallstadt – Magdeburg.............. 32:30 Staða efstu liða: Kiel 11 10 1 0 384:284 21 Hamburg 11 10 0 1 384:298 20 R.N. Löwen 12 8 1 3 363:320 17 Göppingen 12 8 1 3 357:360 17 Gummersbach 11 7 2 2 325:291 16 Flensburg 12 8 0 4 366:346 16 Lemgo 11 7 1 3 312:303 15 Grosswallstadt 12 6 2 4 320:322 14 Wetzlar 11 6 0 5 304:313 12 Füchse Berlin 12 6 0 6 334:340 12 Magdeburg 12 5 0 7 351:354 10 N-Lübbecke 11 3 2 6 311:323 8 um helgina HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV – AftureldingL13.30 Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin: Safamýri: Fram – KA/Þór ......................L15 Digranes: HK – Víkingur .......................L16 Ásvellir: Haukar – Fylkir .......................L16 Vodafonehöllin: Valur –KA/Þór .............S14 Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Vodafonehöllin:Valur – Haukar .............S16 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin: Grindavík – Keflavík ...............................L16 Vodafonehöllin: Valur – Hamar .............L18 Ásvellir: Haukar – KR........................S19.15 Úrvalsdeild karla, IE-deildin: Sauðárkrókur: Tindastóll – FSu........S19.15 Grindavík: Grindavík – Snæfell .........S19.15 Kennaraháskóli: ÍR – Fjölnir ............S19.15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla: Akureyri: SA –Björninn ....................L17.30 FIMLEIKAR Íslandsmót í almennum fimleikum, 3.-6. þrep, fer fram á Selfossi. Keppni hefst kl. 12.40 í dag og lýkur 16.35. Á morgun hefst keppni 10.50 og mótslok eru áætluð 13.50. SKYLMINGAR Reykjavík Cup, alþjóðlegt mót ungmenna U17 ára í Evrópumótaröðinni, fer fram í Baldurshaga í Laugardal. Keppni hefst kl. 10 í dag og mótslok áætluð 16.30. Á morgun hefst keppni 9.45 og mótslok eru áætluð 14. SUND Íslandsmót fatlaðra í 25 m laug fer fram í Laugardalslaug í dag frá kl. 15 og á morgun frá kl. 10.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.