Morgunblaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2009 íþróttir Yfirburðir Lionel Messi fékk yfirburðakosningu í kjöri knattspyrnumanns Evrópu. Argentínumað- urinn var efstur hjá 90 af 96 íþróttafréttamönnum. Þrír stórtitlar hjá Barcelona og 38 mörk 3 Íþróttir mbl.is Reuters Á skotskónum Írski landsliðsmaðurinn Daron Gibson skaut Manchester United í undanúrslit ensku deildabikarkeppninnar í gærkvöld með því að skora bæði mörkin í sigri á Tottenham á Old Trafford. Hér er Gibson að skora fyrra mark United án þess að varnarmenn Tottenham komi vörnum við. ÞAÐ er viðbúið að Veigar Páll Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, bíði með óþreyju eft- ir því að 14. mars árið 2010 renni upp. Þann dag hefst keppni í norsku úrvalsdeildinni og þá verður liðið nákvæmlega heilt ár frá því Veigar spilaði síðast deildaleik á ferlinum. Veigar sneri sem kunnugt er aft- ur til Stabæk á mánudaginn eftir tæplega eins árs dvöl hjá Nancy í Frakklandi. Veigar fékk aðeins tækifæri í fimm deildaleikjum með Nancy og sá síðasti var einmitt þann 14. mars 2009, gegn Sochaux, en þá kom hann inná sem varamað- ur og spilaði í 11 mínútur. Frá þeim tíma hefur Veigar spil- að einn bikarleik með Nancy og svo fjóra leiki með landsliði Íslands þar sem hann skoraði tvö mörk, gegn Georgíu og Suður-Afríku. Daniel Nannskog, framherji Sta- bæk, fagnar mjög endurkomu Veig- ars en þeir náðu ákaflega vel saman og voru eitt skæðasta sóknarparið í norsku deildinni. ,,Við getum spilað saman í svefni,“ sagði Nannskog eftir æfingu Stabæk-liðsins í gær þar sem Veigar var mættur til leiks á nýjan leik. vs@mbl.is Heilt ár á milli leikja hjá Veigari Veigar Páll Gunnarsson FJÓRIR leik- menn úr N1-deild karla í hand- knattleik voru úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í gær. Lárus Jónsson og Andri Berg Haralds- son, báðir úr Fram, fengu úti- lokun eftir leik FH og Fram í Kaplakrika vegna grófrar óíþrótta- mannslegrar framkomu og fara í eins leiks bann. Freyr Brynjarsson, Haukum, fékk útilokun vegna brots á síðustu sekúndum í viðureign Vals og Hauka um síðustu helgi og tekur út eins leiks bann. Í þeim leik fékk Valsmaðurinn Ingvar Árnason einnig útilokun vegna óíþrótta- mannslegrar framkomu en nið- urstaða aganefndar var sú að dóm- arar hefðu farið mannavillt. Ingvar fær því enga refsingu en í staðinn tekur félagi hans, Fannar Þór Frið- geirsson, út eins leiks bann en í beinni útsendingu RÚV frá leiknum kom í ljós að Fannar var sá brotlegi. gummih@mbl.is Fannar í eins leiks bann Fannar Þór Friðgeirsson Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is ÁSTA Árnadóttir, landsliðskona í knattspyrnu, ætlar að ganga til liðs við Íslandsmeistara Vals á nýjan leik. Það er þó ekki öruggt að hún spili með þeim næsta sumar. Möguleiki er á að hún fari aftur til liðs við sænska félagið Tyresö eða annað lið erlendis með vorinu. Ásta fór frá Val til Tyresö síðasta vetur og tók þátt í mikilli sigurgöngu sænska liðsins. Tyresö vann norður- riðil 1. deildarinnar með miklum yf- irburðum, tapaði ekki leik, og leikur í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti á kom- andi ári. „Ég ætla að skipta í Val og spila allavega með liðinu í vetur, í Reykjavík- urmótinu og deildabik- arnum. Ég þurfti að koma aftur heim til þess að ljúka verklega þættinum í mínu námi, sjúkraþjálfuninni, og það verður komið fram í byrjun maí þegar því lýkur,“ sagði Ásta við Morgunblaðið í gær. Hún útilokar ekki að fara aftur til Tyresö, enda þótt hún telji það frek- ar ólíklegt. „Mér var boðinn nýr samningur en gat ekki tekið honum vegna námsins. Við ákváðum hins vegar að halda þessu opnu en það verður búinn mán- uður af tímabilinu í Svíþjóð þegar ég get farið út á ný svo það eru frekar litlar líkur á að af því verði. Mig lang- ar hins vegar afskaplega mikið til að spila áfram erlendis,“ sagði Ásta. Frábært félag og gífurlegur metnaður Hún kvaðst afar ánægð með dvöl- ina hjá Tyresö sem er frá sam- nefndum 40 þúsund manna bæ rétt hjá Stokkhólmi. „Já, þetta var geysilega gaman og ég sé ekki eftir því að hafa farið til Tyresö. Þetta er frábært félag og þar er gífurlegur metnaður. Félagið ætl- ar sér ekki að standa í neinni botn- baráttu í úrvalsdeildinni á næsta ári og er þegar búið að fá umtalsverðan liðstyrk,“ sagði Ásta en Tyresö hefur nú þegar krækt í sjö nýja leikmenn. Þar á meðal eru landsliðskonur frá Svíþjóð og Hollandi. Ásta er 26 ára gömul og er frá Ak- ureyri. Hún lék þar fram að tvítugu en síðan með Val frá 2004 til 2008 og vann þar fjóra Íslandsmeistaratitla áður en hún hélt til Svíþjóðar. Ásta hefur spilað 37 A-landsleiki, þar af sex á þessu ári. Ásta fer aftur til Valsara  Útilokar ekki að fara aftur til Tyresö í vor  Langar að spila áfram erlendis Ásta Árnadóttir Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is DAVÍÐ Þór Viðarsson, fyrirliði Íslandsmeist- ara FH í knattspyrnu, hélt í morgun til Svíþjóð- ar en sænska liðið Öster hefur gert honum til- boð og mun Davíð ásamt unnustu sinni skoða aðstæður hjá félaginu næstu tvo daga. ,,Ég er mjög ánægður með það tilboð sem Öster hefur gert mér. Það vill semja við mig til þriggja ára og ef mér líst vel á aðstæður hjá því þá reikna ég með því að gangast undir lækn- isskoðun og í kjölfarið skrifa undir samning,“ sagði Davíð Þór Viðarsson við Morgunblaðið í gærkvöld. Sænska liðið Norrköping hefur einn- ig verið á höttunum eftir Davíð Þór og gerði honum tilboð en miðjumanninum sterka líst töluvert betur á tilboð Öster. Öster leikur í næstefstu deild en liðið vann sér sæti í þeirri deild og að sögn Davíðs er mik- ill hugur hjá forráðamönnum þess. ,,Það stendur vel peningalega og ætlar að styrkja sig töluvert fyrir næstu leiktíð. Mér er ætlað stórt hlutverk með liðinu og ég tel lík- legra en ekki að ég fari til Öster þó svo að það sé ekkert öruggt í þessum bransa,“ sagði Davíð Þór. Öster hefur fjórum sinnum hampað sænska meistaratitlinum, 1968, 1978, 1980 og 1981 en Teitur Þórðason var í gullliði Öster síðustu þrjú árin. Fleiri Íslendingar hafa leikið með Öster og má þar nefna Stefán Þór Þórðarson og Helga Val Daníelsson. Það verður mikil blóðtaka fyrir FH-inga að missa Davíð Þór en hann hefur verið lykilmaður í afar sigursælu liði FH undanfarin ár. Davíð Þór á leiðinni til Öster  Fyrirliði FH ánægður með tilboð sænska liðsins  Hélt utan í morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.