Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1960, Blaðsíða 19

Skólablaðið - 01.11.1960, Blaðsíða 19
51 - manni, er var gení, eins og þu, og hafði þá nýtega lært franskan fótaburð. Þa lærðirðu hvernig hugsandi verur með "talent" bera sig yfir foldina. Að vísu ertu ekki ennþá fullnuma, stundum gleymirðu þér, og skálmar við staf meðalmennskunnar, sem hver annar plebeji. En einnig þar ertu vænlegur til afreka. Ég veit.að þú áfellist mig ekki fyrir tilskrifið, til þess er ég of algengt fyr- irbrigði. Þegar þú lest þennan afkára- skap, hristirðu ef til vill höfuðið þitt, sem geymir öll nöfnin, og gleymir síðan, að til er enn folk, sem les eina bók á ári, kann engin fróðleg nöfn, og hefur göngulag eins og nautkálfur í keldu. Gleymir, að til sé neitt utan eitt rauð- hært gení og þúsund bækur. Með kveðju frá mér og mínum ííkum. Böðvar Guðmundsson. ( Ritnefnd áskilinn réttur til að breyta staf og merkjasetningu. ) B. G. ÆRI vinur ! Éj» vil byrja á því að færa þer mínar beztu þakkir fyrir bréfið, og enn meiri þakkir ( ef það er mögulegt ) fyrir að hafa gef- ið mér tækifæri til að svara því þegar í stað. Hvort tveggja ber vitni um rétt- sýni þína og gáfur, að ekki sé minnst á góðvild. Ég verð að segja það þér til hróss, Böðvar minn, að ég hef sjaldan eða aldrei séð eitt vesælt manntetur jafn rækilega í sundur rifið og kastað fyrir lyðinn og gert er við mína auvirðilegu persónu í fyrrnefndu bréfi. Hef ég ekki verið samur maður síðan ég las bréfið, eins og þeir, sem þekkja mig, hljóta að hafa tekið eftir. Hvílík örlög ! Hvílxk smán! Hvílík vonbrigði að sja margra ára starf rifið til grunna á einum degi. Frá því ég fyrst kom í þennan skóla hef éj* unnið að því nótt og dag að skapa mer álit meðbræðra minna. Ég hef tranað mér fram í félagslífinu. Ég hef lesið 730 enskar bækur og logið til um 270. Ég hef kallað mig sjenl og ort skrípisleg ljóð mér ,til framdráttar, slegið um mig með fínum. nöfnum og pipið á meðal- mennskuna.. Þannig kemur þér glæpur minn fyrir augu, ^amli vinur. Og nú stend eg hér, einn míns liðs og allsnakinn frammi fyrir lýðnum, af- hjúpaður sem yfirborðskenndur falsspá- maður og hypókrít. Það er kannske rangt af mér, en ég get ekki setið á mér að gera hér af veikum mætti tilraun til að breiða yfir minn nakta líkama örfáar pokadruslur, sem ef til vill gætu veitt mér eilítið skjól. I. Fyrirbærið Böðvar Guðmundsson Þú, minn elskulegi vinur og kamm- erat, ert einn af þeim mönnum, sem vart verða flokkaðir með venjulegum mönnum og venjulegum ovenjulegum mönnum og kallast því fyrirbæri ( phenomena á erlendum málum ). Þú hefur sagt mér það sjálfur, í votta viðurvist, að stærsta kompliment, sem nokkur maður hefði gefið þér, hefði verið þegar ólafur, vinur okkar, R. kall- aði þig andlegt afsprengi Islenzkrar bændamenningar. Þessu trúi ég mætavel, enda stend- ur þu föstum rótum i þinni afdala - menningu, alinn upp á einu af höfuðból- um Borgarfjarðar og sonur eins af okkar

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.