Morgunblaðið - 08.12.2009, Síða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
KNATTSPYRNA
England
1. deild:
Watford – QPR......................................... 3:1
Heiðar Helguson mátti ekki leika með
Watford gegn QPR, enda í láni þaðan.
Staða efstu liða:
Newcastle 19 13 3 3 31:10 42
WBA 19 11 5 3 41:17 38
Nott. Forest 19 8 8 3 28:18 32
Leicester 19 8 7 4 22:20 31
Cardiff 19 9 3 7 35:22 30
Watford 20 8 6 6 30:32 30
Middlesbro 19 8 5 6 30:21 29
Danmörk
AGF – Esbjerg ......................................... 1:1
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í
leikmannahópi Esbjerg.
Staðan:
OB 18 11 5 2 29:17 38
København 18 11 4 3 31:11 37
Esbjerg 18 9 6 3 31:21 33
Silkeborg 18 8 5 5 30:20 29
Brøndby 18 8 3 7 35:32 27
AGF 18 7 6 5 24:23 27
AaB 18 7 4 7 20:15 25
Nordsjælland 18 7 2 9 21:24 23
SønderjyskE 18 6 4 8 15:18 22
Midtjylland 18 6 3 9 22:31 21
Randers 18 1 5 12 13:33 8
Køge 18 1 5 12 15:41 8
Komið er vetrarfrí í Danmörku og ekki
verður leikið aftur fyrr en 6. mars.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA
Úrslit í fyrrinótt:
New York – New Jersey.....................106:97
Milwaukee – Cleveland.......................86:101
Detroit – Washington ...........................98:94
Sacramento – Miami .........................102:115
LA Lakers – Phoenix..........................88:108
HANDKNATTLEIKUR
HM kvenna í Kína
A-riðill:
Danmörk – Kongó .................................37:24
Þýskaland – Brasilía .............................32:20
Frakkland – Svíþjóð..............................23:21
Staðan:
Danmörk 3 3 0 0 88:66 6
Þýskaland 3 2 0 1 94:80 4
Svíþjóð 3 2 0 1 75:65 4
Brasilía 3 1 0 2 75:78 2
Frakkland 3 1 0 2 59:67 2
Kongó 3 0 0 3 66:101 0
B-riðill:
Úkraína – Taíland .................................41:13
Austurríki – Angóla ..............................28:21
Rússland – Ástralía.................................48:8
Staðan:
Rússland 3 3 0 0 120:34 6
Austurríki 3 3 0 0 125:42 0
Angóla 3 2 0 1 88:57 4
Úkraína 3 1 0 2 79:68 2
Ástralía 3 0 0 3 27:132 0
Taíland 3 0 0 3 32:138 0
C-riðill:
Noregur – Chile.....................................44:15
Rúmenía – Ungverjaland .....................31:25
Japan –Túnis .........................................31:31
Staðan:
Noregur 3 3 0 0 114:59 6
Rúmenía 3 3 0 0 119:70 6
Ungverjal. 3 2 0 1 106:70 4
Túnis 3 0 1 2 81:100 1
Japan 3 0 1 2 78:102 1
Chile 3 0 0 3 46:143 0
D-riðill:
Fílabeinsströndin – Argentína.............19:19
Spánn – Kasakstan................................30:12
Suður-Kórea – Kína ..............................33:25
Staðan:
Spánn 3 3 0 0 92:45 6
Suður-Kórea 3 3 0 0 107:72 6
Kína 3 2 0 1 76:61 4
Fílabeinsstr. 3 0 1 2 63:83 1
Argentína 3 0 1 2 49:78 1
Kasakstan 3 0 0 3 46:94 0
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Kaplakriki: FH – Fylkir ...................... 19.30
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
SELTIRNINGAR gerðu lítið annað
fram í miðjan fyrri hálfleik en fylgjast
með Víkingum í ham, sérstaklega
Sveini Þorgeirssyni sem negldi hverju
skotinu á fætur öðru í mark Gróttu og
Víkingar náðu 9:2 forystu þrátt fyrir að
klúðra víti og tveimur hraðaupp-
hlaupum. Þá loks kom líf í gestina sem
byrjuðu á að taka Svein úr umferð og
hann sætti sig við það möglunarlaust
og sást lítið síðan. Þegar svo Magnús
Sigmundsson tölti í mark Gróttu byrj-
uðu gestirnir að saxa niður forskotið og
komust yfir í byrjun síðari hálfleiks. Þá
hrökk Björn Viðar Björnsson, mark-
vörður Víkinga, í gang og eftir fimm
varin skot komst Víkingur aftur yfir.
Þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir
hafði Víkingur 24:22 forystu en uggði
ekki að sér, það örlaði á kæruleysi í
sókninni svo að Grótta náði að jafna
24:24 og framlengja varð leikinn.
Spenna var gríðarleg en bæði lið
héldu haus. Óttar Filipp Pétursson var
síðan hetja Víkinga þegar hann jafnaði
29:29 með lúmsku skoti svo aftur var
framlengt. Þar náði Grótta forskoti en
Anton Rúnarsson nánast gerði út um
leikinn með þrumuskoti í lokin og kom
Gróttu í 35:33 því Víkingur náði aðeins
að minnka muninn í eitt mark.
„Þetta gat dottið niður hvorum meg-
in sem var en Gróttumenn voru sterk-
ari en við á lokamínútunum, seigir og
reynslumiklir en við áttum að gera út
um leikinn fyrr,“ sagði Björn Viðar,
sem átti stórleik milli stanganna hjá
Víkingum. „Þetta var sennilega besti
leikur okkar í vetur og frammistaðan í
kvöld kveikir í okkur. Við eigum topp-
baráttuleik við Selfoss á föstudaginn,
þar komum við tvíefldir því nú er það
bara deildin.“ Miðað við frammistöðu
Víkinga er liðið til alls líklegt. Sveinn
átti öflugan en of stuttan sprett en Ótt-
ar, Sigurður Örn Karlsson, Hjálmar
Þór Arnarson, Hreiðar Haraldsson og
Þröstur Þráinsson voru mjög góðir.
Magnús í marki Gróttu var einnig
góður og þegar hann byrjaði að verja
kom sjálfstraust í hans menn. Hins-
vegar náði liðið sér ekki alveg á strik,
Atli Rúnar Steinþórsson var þó seigur
og Anton skilaði sínu en bestur var
Finnur Ingi Stefánsson, sem sagði þó
að honum hefði ekki litist á blikuna.
„Við komum illa undirbúnir og lentum
mikið undir svo við vorum að elta þá all-
an leikinn. Ég hélt jafnvel að þetta væri
búið undir lokin en við náðum okkur á
strik, ströggluðum í framlengingunni
og unnum á ótrúlegan hátt. Það eru
nokkrir eldri hjá okkur og það gæti
verið þungt hjá þeim í næsta leik á
fimmtudaginn en ég held að þeir bjargi
því,“ sagði Finnur.
Þetta var
okkar besti
leikur í vetur
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeittur Víkingurinn Guðmundur Freyr Hermannsson með augun á bolt-
anum í bikarslagnum í gærkvöld. Víkingar voru nálægt undanúrslitunum.
Fyrstudeildarlið Víkinga velgdi úrvals-
deildarliði Gróttu rækilega undir ugg-
um þegar liðin mættust í 8 liða úrslit-
um bikarkeppninnar í Víkinni í
gærkvöldi. Víkingar náðu 9:2 forystu
en misstu niður þriggja marka forskot í
lokin og urðu síðan að játa sig sigraða
34:35 eftir tvær framlengingar. Þrátt
fyrir tapið ættu Víkingar að átta sig á
eigin getu enda barátta um sæti í efstu
deild framundan.
Víkingar skammt frá undanúrslitum
Tvíframlengt en Grótta vann
SJÖ þjóðir eru með fullt hús stiga að loknum þremur leik-
dögum á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik þar sem
fátt hefur verið um óvænt úrslit og margir leikir verið mjög
ójafnir. Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Noregs, sá lið
sitt vinna í þriðja sinn fyrirhafnarlítinn sigur í gær þegar það
lagði Chile, 44:15, í C-riðli. Þar hafa Rúmenar einnig sex stig
að loknum þremur leikjum eftir sigur á Ungverjum, 31:25, í
gær. Florentina Stanciu markvörður Stjörnunnar, leikur
með rúmenska liðinu í keppninni. Hún kom lítið við sögu í
gær, lék í stuttan tíma og fékk á sig fjögur skot og varði tvö
þeirra. Hún lék talsvert í tveimur fyrstu leikjum Rúmena.
Svíar, sem unnu tvo fyrstu leiki sína, fóru illa að ráði sínu
gegn Frökkum í gær. Sænska liðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13:9, og
þremur mörkum yfir þegar 10 mínútur voru eftir, 20:17, töpuðu með tveimur
mörkum, 23:21. Danir, Rússar, Spánn, Suður-Kórea og Austurríki, sem íslenska
landsliðið vann í haust í undankeppni EM, hafa ekki tapað stigi. iben@mbl.is
Sjö þjóðir með fullt hús stiga
Þórir
Hergeirsson
MJÖG mikil lækkun launa er framundan hjá danska hand-
knattleiksliðinu GOG Svendborg, sem Guðmundur Þórður
Guðmundsson þjálfar og Ásgeir Örn Hallgrímsson leikur
með. Eftir því sem Fyns Amts Avis greinir frá um helgina
er gert ráð fyrir að laun hvers leikmanns lækki um 29% frá
þeim samningum sem hafa nú.
Miklir fjárhagserfiðleikar hafa herjað á GOG allt þetta ár
og þrátt fyrir niðurskurð á flestum sviðum og sölu leik-
manna hefur ekki tekist að rétta skútuna við. Meðal annars
tóku leikmenn á sig allt að 20% tímabundna launalækkun í
vor. Launakostnaður félagsins eru um 85% af útgjöldum
þess í hverjum mánuði.
Viðræður standa yfir við leikmenn um launalækkun og er stefnt á að niður-
staða verði fengin í þær viðræður fyrir stjórnarfund eftir miðjan þennan mán-
uð.
Samningur Ásgeirs Arnar við GOG rennur út í vor. iben@mbl.is
Nærri þriðjungs launalækkun
Ásgeir Örn
Hallgrímsson
Víkin, bikarkeppni karla, Eimskipsbik-
arinn, 8 liða úrslit, mánudag 7. desem-
ber 2009.
Gangur leiksins: 0:1, 1:2, 9:2, 10:4,
10:7, 12:7, 12:11, 12:13, 13:14, 15:14,
16:17, 19:17, 20:19, 22:19, 23:21, 24:21,
24:24, 25:24, 25:26, 26:26, 28:26,
28:29, 29:29, 30:29, 30:31, 31:32,
31:33, 33:34, 33:35, 34:35.
Mörk Víkings: Hreiðar Haraldsson 8,
Óttar Filipp Pétursson 7, Sveinn Þor-
geirsson 6, Þröstur Þráinsson 5,
Hjálmar Þór Arnarson 4, Guðmundur
Hermannsson 3/1, Davíð Georgsson 1.
Varin skot: Björn Viðar Björnsson
25/2 (þar af 9 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Gróttu: Finnur Ingi Stefánsson
10, Anton Rúnarsson 8/2, Jón Karl
Björnsson 5/4, Hjalti Þór Pálmason 4,
Halldór Ingólfsson 3, Atli Rúnar Stein-
þórsson 3, Páll Þórólfsson 2.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
18/1 (þar af 6 til mótherja), Einar Rafn
Sigmundsson 2/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Anton
Gylfi Pálsson. Áhorfendur: Um 330.
Víkingur – Grótta 34:35
RIÐLAKEPPNI Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu lýkur annað kvöld og þá verður
ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið
verður til sextán liða úrslitanna þann 18. þessa
mánaðar.
Átta lið hafa tryggt sér sæti í 16-liða úrslit-
inum en það eru: Bordeaux, Manchester Unit-
ed, Porto, Chelsea, Lyon, Fiorentina, Sevilla
og Arsenal.
Í kvöld lýkur keppni í riðlum A, B, C og D.
Juventus eða Bayern
Í A-riðlinum hefur Bordeaux tryggt sér sig-
ur en slagurinn um að fylgja franska liðinu
stendur á milli Juventus og Bayern München.
Liðin eigast við í Tórínó í kvöld þar sem Ju-
ventus nægir jafntefli. Juventus hefur tvívegis
hampað Evrópumeistaratitlinum, 1985 og 1996
en Bayern hefur fjórum sinnum unnið Evr-
ópukeppni meistaraliða, 1974, 1975, 1976 og
2001.
Tekur Wolfsburg efsta sætið?
Í B-riðlinum er Manchester United öruggt
áfram en Wolfsburg og CSKA Moskva berjast
um að fara áfram með Englandsmeisturunum.
Wolfsburg tekur á móti United í Þýskalandi í
kvöld og með sigri kemst Wolfsburg áfram og
það sem meira er, liðið vinnur riðilinn. Fyrir
lokaumferðina er United með 10 stig en Wolf-
burg og CSKA hafa 7. CSKA sækir Besiktas
heim og fari svo að Wolfsburg og CSKA endi
með jafnmörg stig fer Wolfsburg áfram þar
sem liðið stendur betur í innbyrðisvið-
ureignum.
Real Madrid er ekki öruggt
Mikil spenna er í C-riðlinum en þrjú lið
slást um tvö efstu sætin. Real Madrid er efst
með 10 stig, AC Milan 8 og Marseille 7. Í
lokaumferðinni tekur Zürich á móti AC Milan
og Marseille og Real Madrid eigast við í
Frakklandi. Til þess að Real Madrid fari ekki
áfram þarf liðið að tapa 3:0 eða stærra og AC
Milan að leggja Zürich. AC Milan er öruggt
áfram takist liðinu að sigra Zürich en til að
Marseille komist áfram þarf það að leggja
Real Madrid að velli og stóla á að Milan vinni
ekki. Mílanóliðið vinnur hins vegar riðilinn ef
það leggur Zürich að velli og Real Madrid geri
jafntefli.
Í D-riðlinum eru úrslitin ljós. Chelsea
tryggði sér efsta sætið með sigrinum á Porto í
síðustu umferð en bæði liðin eru komin áfram
í sextán liða úrslitin.
gummih@mbl.is
Átta lið berjast um að komast áfram