Morgunblaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009 Landsliðs-markvörð- urinn í hand- knattleik Hreiðar Levy Guðmunds- son átti stórleik um helgina þegar lið hans, Ems- detten, vann VfL Potsdam, 27:22, á heimavelli í norðurriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik. Hreið- ar Levy varði 18 skot, þar af eitt vítakast og þótti skara fram úr í liði Emsdetten. Með sigrinum komst Emsdetten upp í annað sæti riðils- ins og er fimm stigum á eftir Hamm sem er efst.    Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraðifjögur mörk og var einnig vísað í þrígang af leikvelli í tvær mínútur þegar Sönderjyske og Tönder skildu jöfn, 28:28, í næstefstu deild danska handknattleiksins um helgina. Sönderjyske er í 8. sæti deildarinnar. Einar Logi Frið- jónsson gerði þrjú marka Ribe- Esbjerg HH í stórsigri liðsins á Ik- ast, 35:23, í sömu deild. Ribe- Esbjerg HH er í 11. sæti af 14 lið- um í deildinni.    Auður Jónsdóttir átti fínan leikog skoraði fimm mörk þegar lið hennar, Ringköbing vann AGF, 31:20, á heimavelli í næstefstu deild danska kvennahandboltans á sunnudag. Ringköbing er í 3. sæti deildarinn með 18 stig eftir 11 leiki, aðeins þremur stigum á eftir Silke- borg sem trónir á toppnum.    Andri StefanGuðrún- arson skoraði þrjú marka meistaraliðsins Fyllingen þegar það vann Elver- um, 27:25, í norsku úrvals- deildinni í hand- knattleik. Sigurður Ari Stefánsson skoraði aðeins eitt mark fyrir El- verum.    Drengjalandsliðið í knattspyrnu,U17 ára, undir stjórn Gunn- ars Guðmundssonar, leikur á heimavelli í undankeppni Evr- ópumótsins næsta haust. Dregið var í riðla í gær og Ísland mætir Tyrklandi, Tékklandi og Armeníu hér á landi.    Unglingalandslið karla, U19 ára,undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar, fer hinsvegar til Wales í undankeppni EM. Þar leikur það í riðli með heimamönnum, Tyrklandi og Kasakstan.    Ryan Giggs var í gær útnefnduríþróttamaður ársins í Wales af BBC. Hann hefur einu sinni áður hlotið þessa viðurkenningu, árið 1996. Fólk folk@mbl.is ÞEIR sem áttu von á jöfnum bikarslag á Hlíðarenda í gærkvöldi urðu fyrir vonbrigðum. Vissulega voru líkurnar á Valssigri meiri en minni fyrir leikinn en vonir einhverra stóðu þó til þess að leikmenn Fram myndu reka af sér slyðruorðið í bikarleik. Sú varð ekki raunin. Jafnt var á með liðunum fram- an af en síðan fór framliggjandi vörn Valsmanna að bíta fastar í sóknarleik Fram-liðsins. Hvert hraðaupphlaupið rak annað hjá heimamönnum sem á skömmum tíma breyttu stöðunni úr 7:7 í 13:8. Þá var eins og Framarar misstu vonina. Engin breyting var á leik Fram í byrjun síðari hálfleiks. Valsarar héldu áfram að halda uppi hraðanum í sókn- inni en fyrst og fremst léku þeir áfram framliggjandi góða vörn með Hlyn Morthens vel á verði í markinu. Fram- arar lögðu árar í bát og leyfðu yngri leikmönnum, og um leið efnilegum að eiga sviðið að mestum hluta í síðari hálfleik, nóg virðist félagið eiga af þeim. Sama var upp á teningnum hjá Val áð- ur en yfir lauk, yngri leikmenn fengu tækifæri til þess að láta ljós sitt skína. Því miður var leikurinn í gær í heild- ina ekkert skemmtilegur eftir að leiðir liðanna skildu í fyrri hálfleik. Til þess voru yfirburðir Valsmanna og miklir. Framarar lögðu árar í bát eins og fyrr segir og virðast vera farnir að þrá það hlé sem gert verður á keppni á Íslands- móti og bikarkeppni frá miðjum þess- um mánuði og fram í byrjun febrúar. Stór skörð hafa verið höggvin í leik- mannahópinn og ljóst menn þurfa tíma til eða sleikja sárin og leggja á ráðin upp á nýtt eftir að skipt var um þjálfara fyrir skömmu. Bjuggum okkur vel undir leikinn „Það var rétt í byrjun sem Framarar voru með í leiknum. Eftir að 3/2/1 vörn- in okkar fór að virka almennilega þá skildu leiðir,“ sagði Heimir Ríkarðsson, aðstoðarþjálfari Vals. „Við bjuggum okkur vel undir leik- inn og lögðum mikið upp úr að stöðva Stefán Baldvin Stefánsson og koma í veg fyrir að hann næði sér á strik eins gegn Gróttu í síðustu viku. Ég tel það hafa tekist vel. Síðan hjálpaði það okkur mikið að Magnús [Erlendsson], mark- vörður Fram, sem varið hefur vel í síð- ustu leikjum náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik,“ sagði Heimir ennfremur. Gáfumst snemma upp „Það sem pirrar mig einna mest er hversu snemma við gáfumst upp í leikn- um. Þegar við lentum undir hættu menn bara að berjast og það er ekki viðunandi. Við gátum vel haldið áfram að berjast í leiknum þótt staðan væri ekki góð,“ sagði Halldór Jóhann Sigfús- son, fyrirliði Fram, í samtali við Morg- unblaðið eftir leikinn. „Ungu strákarnir fengu tækifæri að þessu sinni og það er jákvætt,“ sagði Halldór og viðurkenndi að of marga sterka leikmenn hefði vantað í Fram- liðið að þessu sinni til þess að úr gæti orðið jafn leikur. Framarar gáfust snemma upp á Hlíðarenda gegn Val Morgunblaðið/Kristinn Öflugur Arnór Þór Gunnarsson skoraði 10 mörk og er hér sloppinn framhjá Framaranum Andra Berg Haraldssyni. Bikarmeistarar Vals voru ekki í vandræðum með að komast í undanúrslitin og unnu ellefu marka sigur á Fram. Það tók Valsmenn aðeins um tuttugu mínútur að gera út um viðureign sína við Fram og tryggja sér sæti í undan- úrslitum bikarkeppni karla í hand- knattleik, Eimskipsbikarnum, á heima- velli í gærkvöldi. Framarar héldu aðeins í við gestgjafa sína á fyrsta þriðjungi leiksins og varla það. Loka- tölur, 35:24, fyrir Val sem var sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is  Síst of lítill sigur Valsmanna  Margir ungir leikmenn Fram létu ljós sitt skína MIKILL munur er á bestu og lökustu liðunum sem taka þátt í heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem hófst í Kína á laugardaginn. Þetta hefur komið fram í mjög stórum sigrum svo að jafnvel hefur mun- að nokkrum tugum mark á liðunum í leikslok. Þegar skoðuð eru tíu stærstu sigrar í leikjum HM kvenna frá upphafi sést að tveir þeirra stærstu hafa unnist á mótinu núna þótt enn sé ekki nema rétt rúmlega hálfnuð riðlakeppnin. Austurríki vann Taí- land, með 41 marks mun, 52:11, í fyrstu umferð á laugardaginn. Í gær unnu Rússar lið Ástralíu með 40 marka mun, 48:8, eftir að hafa verið 24 mörkum yfir í hálfleik, 27:3. Stærsti sigur í sögu HM kvenna varð fyrir fjórum árum þegar Ungverjar skelltu Áströlum, 57:9. iben@mbl.is Mikill munur á HM MARKO Pavlov, knattspyrnumaður frá Makedóníu sem er með íslenskt vegabréf, er þessa dagana til reynslu hjá sænska liðinu Mjällby sem tryggði sér sæti í sænsku úrvalsdeildinni í haust. ,,Þetta er virkilega áhugaverður leikmaður,“ segir Jörgen Martinsson yf- irmaður knattspyrnumála í viðtali við sænska blaðið Blekinge Läns Tidning. Marko, sem er 21 árs gamall, fluttist til Íslands 10 ára gamall. Hann bjó fyrst á Djúpavogi og Egilsstöðum en síðan í Garðabæ þar sem hann lék með yngri flokkum Stjörnunnar. Í mars fyrir tveimur árum samdi hann við spænska 1. deildarliðið Real Betis en hefur ekki fengið tækifæri með liðinu nema þá með varaliði félagsins, sem leikur í 3. deild. Áður hafði Marko spil- að með San Francisco á spænsku eyjunni Mallorca, en það lið er tengt 1. deildarliði Real Mallorca, og þá var hann í eitt ár hjá franska liðinu Caen þar sem hann spilað með unglingaliðinu. Marko hefur spilað 11 leiki með U19 ára landsliði Íslands og 6 með U17 ára liðinu en hann valdi síðan að spila með U21 ára liði Makedóníu þegar Makedóníumenn leituðu til hans. gummih@mbl.is Marko til reynslu í Mjällby HERMANN Hreiðarsson fær góða dóma fyrir frammistöðu sína með Portsmouth í sigrinum á Burnley í ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi. Hermann opnaði þar markareikning sinn með suðurstrandarliðinu á leiktíðinni þeg- ar hann skoraði fyrra mark liðsins í 2:0 sigri en Eyjamaðurinn ,,fiskaði“ einnig vítaspyrnu sem félagi hans náði ekki að skora úr. Hermann var valinn í lið vikunnar hjá á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, netmiðlinum soccernet.com og einnig hjá Eurosport- sjónvarpsstöðinni sem byggir val sitt á ein- kunnagjöf sex dagblaða á Englandi, sex dagblaða á Englandi, The Sun, Daily Star, Daily Mirror, Daily Mail, The Times og Gu- ardian. Meðaleinkunn Hermanns hjá þessum blöðum var 7,3. gummih@mbl.is Hermann valinn víða Hermann Hreiðarsson Vodafonehöllin að Hlíðarenda, bikar- keppni karla, Eimskipsbikarinn, 8-liða úrslit, mánudag 7. des. 2009. Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 7:6, 7:7, 13:8, 18:12, 23:14, 27:21, 32:22, 35:24. Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson 10/2, Elvar Friðriksson 9, Fannar Þór Friðgeirsson 5, Orri Freyr Gíslason 4, Gunnar Ingi Jóhannsson 3, Atli Már Báruson 2, Gunnar Harðarson 1, Ingv- ar Árnason 1. Varin skot: Hlynur Morthens 10, Ingv- ar Guðmundsson 2 (þar af 1 til mót- herja). Utan vallar: 8 mínútur, þar af fékk Ingvar Árnason rautt spjald við þriðju brottvísun á 30. mínútu. Mörk Fram: Arnar Birkir Hálfdánsson 6/3, Haraldur Þorvarðarson 5, Matt- hías Daðason 4, Stefán Baldvin Stef- ánsson 3, Andri Berg Haraldsson 2, Halldór Jóhann Sigfússon 2, Atli Steinar Siggeirsson 1, Jóhann Karl Reynisson 1. Varin skot: Magnús Erlendsson 10 (þar af 4 til mótherja). Sigurður Örn Arnarsson 2 (þar af 1 til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Péturson. Áhorfendur: 250. Valur – Fram 35:24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.