Morgunblaðið - 08.12.2009, Síða 4
„ÉG hef aldrei gert þetta áður en þetta var gam-
an. Hamar lék svæðisvörn til þess að byrja með
og liðsfélagar mínir voru duglegir að gefa á
mig í opnum færum. Ég hefði ekki getað gert
þetta einn,“ sagði Sean Burton í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann hefur smátt og
smátt náð að laga sig betur að ís-
lenskum körfubolta. Burton lék
sinn fyrsta leik með Snæ-
fellsliðinu í byrjun nóv-
ember en hann er 22 ára
gamall leikstjórnandi og
1,75 m. á hæð.
Hann útskrifaðist úr
háskóla s.l. vor og at-
vinnumannaferill
hans hófst í byrj-
un nóvember í
Stykkishólmi. Margt hefur komið
honum á óvart hér á Íslandi en
Burton segir að gæðin í ís-
lenskum körfubolta séu meiri
en hann hafi búist við.
Morgunæfingar
„Ég átti reyndar ekki von á
því að Stykkishólmur væri
svona lítill bær. Mér líður
samt sem áður mjög vel og
kann vel við rólegheitin
hérna. Ég æfi á morgnana
með þjálfaranum og er þá að
skjóta og í styrktaræfingum. Yf-
ir daginn, fram að kvöldæfing-
unni, reyni ég að drepa tímann
með ýmsum hætti. Mér líður
vel hjá þessu liði og liðsfélagarnir eru frábærir.
Vonandi get ég hjálpað Snæfellsliðinu að landa
titli á þessu tímabili.“
Fór rólega af stað
Burton fór rólega af stað með Snæfellsliðinu og
hann skoraði 13, 15, 12 og 18 stig í fyrstu fjórum
leikjum sínum. Hann skoraði síðan 41 stig gegn
Njarðvík þann 3. desember s.l. í Iceland Express
deildinni og var það persónulegt met hjá Burton –
þar til eftir leikinn gegn Hamri. „Ég er að komast
betur inn í íslenska körfuboltann og leikstíllinn
sem er notaður hér er allt öðruvísi en ég er vanur.
Hraðinn er meiri og frjálsræðið í sóknarleiknum
er mun meira. Ég kann ákaflega vel við svona
körfubolta og um leið og ég fer að þekkja betur inn
á samherja mína og þeir fara að þekkja mig betur
þá fara hlutirnir að gerast,“ sagði Sean Burton.
„Átti ekki von á því að Stykk-
ishólmur væri svona lítill bær“
Sean Burton leikmaður Snæfells skoraði 16 þriggja stiga körfur gegn Hamri
Bakvörðurinn hefur skorað 96 stig í síðustu tveimur leikjum Frábær skytta
„ÉG gætti Franc Bookers um tíma í þessum leik en
ég dekkaði hann ekki alltaf eins og margir halda,“
sagði Teitur Örlygsson, fyrrum leikmaður Njarðvík-
inga, en hann mætti Franc Booker í fyrsta leik bandaríska
bakvarðarins á Íslandi þann 8. janúar 1991. „Við höfðum heyrt að ÍR-ingarnir voru rosa-
lega ánægðir með nýja leikmanninn og að hann væri rosaleg skytta. Booker byrjaði leikinn á
því að hitta ekki úr þremur eða fjórum fyrstu skotunum sínum og við vorum eiginlega farnir að
hlæja að þessum nýja leikmanni. Töldum að hann gæti ekki neitt. Síðan byrjaði sýningin hjá hon-
um og hann skoraði 15 þriggja stiga körfur úr 22 tilraunum og alls 52 stig. Ég þekkti ekki Booker
persónulega en hann var gríðarleg skytta og gat skotið af lengra færi en menn voru vanir hér á landi. Í
þessum fyrsta leik hans þá man ég eftir því að hann var úti við hliðarlínuna og mun nær miðlínu en
þriggja stiga línunni. Ég taldi mig vera alveg með hann og var nánast búinn að verja skotið frá honum,
ég stökk upp en við enduðum báðir uppi í stúku en boltinn fór í háum boga beint ofaní körfuna. Booker
er einn af eftirminnilegustu leikmönnum sem hafa leikið hér á Íslandi,“ sagði Teitur Örlygsson.
John Johnson sem lék með Framog ÍA á sínum tíma hefur skorað
mest allra í einum leik í úrvalsdeild-
inni frá upphafi eða 71 stig gegn ÍS
árið 1979. Næstur kemur Joe
Wright sem skoraði 67 stig fyrir
Breiðablik í sigurleik gegn Njarðvík
árið 1993.
Valur Ingi-mundarson
er sá íslenski leik-
maður sem skor-
að hefur mest í
einum leik í deild-
inni frá upphafi,
54 með liði Tinda-
stóls gegn Hauk-
um 1988. Valur
bætti þar með metið sem hann átti
reyndar sjálfur frá árinu 1985 er
hann skoraði 53 stig þá sem leik-
maður Njarðvíkur gegn ÍR. Marvin
Valdimarsson skoraði 51 stig fyrir
Hamar gegn liði FSu 17. okt. sl.
Næstir komaKeflvíking-
arnir Guðjón
Skúlason sem
skoraði 49 stig
gegn KR árið
1989 og Kristinn
Geir Friðriksson,
sem setti 49 stig
fyrir Þór Ak-
ureyri gegn ÍA 1995.
Flest fráköst leikmanns í einumleik eru 35 og það met á Ron-
dey Robinson sem hann setti í leik
með Njarðvík gegn Haukum 1990.
Íslensku leikmennirnir Guðmundur
L. Bragason og Helgi Rafnsson eiga
sameiginlega frákastsmet innlendra
manna, 29 fráköst í leik. Guðmundur
með Grindavík gegn ÍS 1988 og
Helgi með Njarðvík gegn Keflavík
1989.
Þrír leikmennBarcelona
eru í hópi þeirra
fimm sem í gær
voru tilnefndir í
kjöri FIFA á knatt-
spyrnumanni ársins í heiminum
árið 2009. Það eru Argent-
ínumaðurinn Lionel Messi og
Spánverjarnir Xavi og Andrés
Iniesta. Hinir tveir eru Cristiano
Ronaldo og Kaká, leikmenn Real
Madrid, sem léku fyrri hluta ársins
með Manchester United og AC Mil-
an.
Hjá konunumvoru þær
Marta og
Cristinae, sam-
herjar Þór-
unnar Helgu
Jónsdóttur
hjá Santos í
Brasilíu, til-
nefndar
ásamt þýsku Evrópumeist-
urunum Inku Grings og Birgit
Prinz, og enska framherj-
anum Kelly Smith. Það eru
landsliðsþjálfarar og lands-
liðsfyrirliðar sem greiða at-
kvæði í þessari kosningu.
Sigurvegarar í kjörinu í fyrra
voru Cristiano Ronaldo og
Marta. Úrslit í kjörinu verða
kynnt á mikilli hátíð í Zürich í
Sviss mánudagskvöldið 21. desem-
ber.
Ashley Cole, bakvörður Chelsea,
hefur verið útnefndur knatt-
spyrnumaður ársins 2009 í London
af BBC. Þetta er sjötta árið í röð
sem leikmaður Chelsea fær þessa
viðurkenningu. Frank Lampard
hlaut titilinn 2004, John Terry 2005,
Joe Cole 2006, Didier Drogba 2007,
Lampard aftur 2008 og nú er það
Ashley Cole fyrir árið 2009.
Fólk sport@mbl.is
Bandaríski bakvörðurinn Franc Booker skoraði tvívegis 15
þriggja stiga körfur fyrir ÍR Bæði skiptin í janúar 1991
Nær Burton að bæta
metið hjá Booker?
1991. Met Bookers í úrvalsdeildinni stendur en hann
skoraði 54 stig í sínum fyrsta leik með ÍR gegn Njarð-
vík í 106:99 tapleik og þar af skoraði hann 15 þriggja
stiga körfur. Booker hélt skotsýningunni áfram í næsta
leik þar sem hann skoraði 15 þriggja stiga körfur í
93:88 tapleik gegn Snæfelli úr Stykkishólmi hinn 17.
janúar 1991. Alls skoraði Booker 60 stig í umræddum
leik. Booker kom eins og þruma úr heiðskýru lofti inn í
íslensku úrvalsdeildina í janúar 1991. Í fyrstu sex leikj-
um sínum í deildinni skoraði hann að meðaltali 54 stig
og að meðaltali 11 þriggja stiga körfur. Hann lék 12
leiki með ÍR þetta tímabil og skoraði að meðaltali
43,2 stig og skoraði 8 þriggja stiga körfur að
meðaltali í leik. Reyndar þurfti hann að
taka 20 þriggja stiga skot að meðaltali í
hverjum leik til að ná því en skotnýt-
ingin var góð, rétt um 40%.
Booker lék eins og áður segir með ÍR
vorið 1991. Hann gekk síðan í raðir Vals
haustið 1991 og lék með liðinu í þrjú
tímabil þar sem hann skoraði að meðal-
tali 31,5, 24,3 og 31,1 stig. Veturinn
1994–1995 var Booker hjá Grindvíkingum
og skoraði 15,5 stig að meðaltali.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
MARGIR muna eflaust eftir hinum brosmilda Franc
Booker sem kom til ÍR vorið 1991 en hann vakti mikla
athygli í fyrstu leikjum sínum með ÍR þar sem hann
skoraði tvívegis 15 þriggja stiga körfur í leik í janúar
Skyttur Franc Booker lét
að sér kveða með ÍR og
Val á árunum 1991-1994.
Sean Burton leikmaður
Snæfells skoraði 16 þriggja
stiga körfur gegn Hamri í
bikarkeppninni.
Sean Burton leikmaður Snæfells úr Stykkishólmi skráði
nafn sitt í sögubækurnar á sunnudaginn þegar hann skor-
aði 16 þriggja stiga körfur gegn Hamri í 16-liða úrslitum
Subwaybikarkeppni karla í körfuknattleik. Bandaríski leik-
stjórnandinn þurfti aðeins 20 tilraunir til þess að ná þess-
um árangri og alls skoraði hann 55 stig af alls 130 stigum
Snæfells í 130:75 sigri liðsins. Tölfræðispekingar Körfu-
knattleikssambandsins voru ekki vissir um hvort þetta væri
met hjá Burton en hann mun að sjálfsögðu fá að njóta vaf-
ans þar til annað kemur í ljós.
„Booker var
rosaleg skytta“
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009