Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
íþróttir
Á toppnum Íslandsmeistaralið KR tyllti sér á toppinn með 97:91 sigri gegn Snæfelli. Tommy
Johnson skoraði 39 stig fyrir KR. Ævintýraferð til Kína er næst á dagskrá KR. 3
Íþróttir
mbl.is
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÞEIR voru eitthvað að spá í mig en
eftir þreifingar er ljóst að ekkert
verður úr því að ég fari til Lemgo,“
sagði Róbert Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik og fyrirliði
þýska handknattleiksliðsins Gumm-
ersbach, við Morgunblaðið í gær um
vangaveltur staðarblaðs í Lemgo
þess efnis að Lemgo hafi áhuga á að
fá hann til liðs við sig fyrir næsta
keppnistímabil.
Samkvæmt blaðinu, Lippische
Wochenschau, renna samningar
Lemgo við línumennina Vigni Svav-
arsson og Sebastian Preiss út í júní á
næsta ári. Volker Zerbe, íþrótta-
stjóri félagsins, mun vera að hug-
leiða hvort hann endurnýi samninga
við annan hvorn eða jafnvel hvor-
ugan, en talsverðar breytingar munu
vera í aðsigi á liði Lemgo fyrir næsta
keppnistímabil gangi hugmyndir
Zerbe eftir. Liðið hefur ekki staðið
undir væntingum á yfirstandandi
keppnistímabili. Róbert var einn
þeirra leikmanna sem Zerbe hefur í
sigtinu eftir því sem blaðið greinir
frá.
Róbert er samningsbundinn
Gummersbach fram á mitt árið 2011.
Hann mun eiga útgönguleið frá
samningnum ef aðrir möguleikar
bjóðast.
Vignir í lausu lofti
„Samningurinn minn rennur út í
vor og sem stendur er ég í lausu lofti
hvað framhaldið varðar að honum
loknum. Það hafa einhverjar þreif-
ingar verið á milli félagsins og um-
boðsmannsins en ekkert sem orð er á
gerandi,“ sagði Vignir Svavarsson
spurður um framhaldið hjá honum
þegar samningur hans við Lemgo
rennur út um mitt næsta ár. „Ég er
alveg rólegur og get beðið eftir að
hlutirnir skýrist. Ég er ekki með fjöl-
skyldu og get flutt með skömmum
fyrirvara sé því að skipta,“ sagði
Vignir ennfremur en hann hefur leik-
ið miklu meira með Lemgo á þessu
keppnistímabili en því síðasta, ekki
síst vegna þess að Preiss hefur glímt
við meiðsli nær allt keppnistímabilið.
Af þeim sökum gefur hann m.a. ekki
kost á sér í þýska landsliðið þegar
það hefur um áramótin undirbúning
fyrir Evrópumeistaramótið sem
hefst í Austurríki 19. janúar.
Róbert orðað-
ur við Lemgo
Samningur línumannsins Vignis
Svavarssonar við Lemgo rennur út í vor
ÞÓRIR Hergeirsson, þjálfari
norska kvennalandsliðsins í
handknattleik, hefur eflaust
lesið hressilega yfir leik-
mönnum sínum í hálfleik þegar
Norðmenn mættu Spánverjum
á heimsmeistaramótinu í Kína
í gær. Sæti í undanúrslitum
var í húfi og eftir að hafa verið
sex mörkum undir í hálfleik,
14:8, sneru þær norsku blaðinu
við í seinni hálfleik og unnu
frækinn sigur, 27:24.
Noregur mætir heimsmeist-
urum Rússa í undanúrslit-
unum á föstudaginn en í hinni
undanúrslitaviðureigninni
mætast Frakkland og Spánn.
Sex mörk eru
engin forysta
„Þetta var ótrúlega flott hjá
stúlkunum og munurinn á hálf-
leikjunum var gríðarlegur.
Okkur tókst að fá þær til að
brosa á ný og njóta þess að
spila handbolta. Sex mörk eru
engin forysta í handboltaleik,“
sagði Selfyssingurinn
Þórir Hergeirsson við
norsku sjónvarps-
stöðina TV2 eftir leik-
inn.
Það var jafnræði
með liðunum til að
byrja með en í stöð-
unni 6:6 hrökk allt í
baklás hjá norska lið-
inu og á síðustu 15
mínútunum tókst því
aðeins að skora tvö mörk gegn
átta mörkum Spánverja. Norð-
menn skoruðu þrjú
fyrstu mörkin í seinni
hálfleik og náðu smátt
og smátt að sauma að
spænska liðinu. Eftir
16 mínútna leik í
seinni hálfleik var
staðan orðin jöfn,
16:16, og fjórum mín-
útum síðar náðu þær
norsku forystu, 21:20,
og á lokakaflanum dró
enn í sundur með liðunum en
Spánverjar höfðu fyrir leikinn
tryggt sér farseðilinn í undan-
úrslitin.
Þórir Hergeirsson tók við
þjálfun norska landsliðsins í
apríl af Marit Breivik en Þórir
hafði verið aðstoðarmaður
hennar í átta ár.
„Þetta var frábær sigur hjá
liðinu og ég var virkilega hrifin
af leik þess í seinni hálfleik.
Það sýndi gífurlegan karakt-
er,“ sagði Breivik eftir leikinn.
Heimsmeistararar Rússa
lögðu Dani, 30:25, og þar með
er ljóst að Danir leika um
fimmta sætið á mótinu gegn
Suður-Kóreu en Rússar, sem
hafa hampað heimsmeist-
aratitlinum á síðustu tveimur
mótum, etja kappi við Noreg í
undanúrslitunum en Norð-
menn eru Evrópu- og ólympíu-
meistarar. Noregur og Rússar
áttust við í úrslitaleik Ólympíu-
leikanna í Peking síðastliðið
sumar þar sem Norðmenn
höfðu betur, 34:27.
gummih@mbl.is
Þórir
Hergeirsson
Þórir stýrði Norðmönnum í undanúrslitin
,,ÉG stóðst læknisskoðunina eins og
ég vissi og nú á bara eftir að ganga
frá nokkrum smáatriðum. Það er
ekkert sem á að geta komið í veg
fyrir að ég fari til liðsins og vonandi
verður þetta klárað á morgun (í
dag),“ sagði knattspyrnumaðurinn
Gunnar Heiðar Þorvaldsson við
Morgunblaðið í gærkvöld en hann
var þá staddur í smá jólapartíi hjá
enska 1. deildarliðinu Reading eftir
að hafa staðist læknisskoðun hjá
liðinu nokkru áður.
Danska liðið Esbjerg, sem Gunn-
ar er á mála hjá, og Reading hafa
náð samkomulagi um lánssamning
sem tekur gildi í janúar en ákvæði
eru í samningnum að Reading geti
keypt Eyjamanninn eftir tímabilið.
,,Ég mun líklega hefja strax æf-
ingar með liðinu. Ég mun skreppa
heim til Íslands í tvo til þrjá daga
yfir jólin en held síðan aftur út ann-
an í jólum og byrja þá á fullu,“
sagði Gunnar Heiðar.
gummih@mbl.is
Gunnar Heiðar stóðst læknisskoðun
BJÖRNINN lagði Skautafélag Reykjavíkur, 9:2, á Ís-
landsmótinu í íshokkí á Skautasvellinu í Laugardal í
gærkvöld. Bjarnarmenn, sem hafa átt erfitt uppdráttar
í vetur, hófu leikinn með krafti. Þeir komust í 1:0 eftir
sjö mínútna leik. SR-ingar jöfnuðu nánast á sömu mín-
útunni en leikmenn Bjarnarsins svöruðu með því að
skora sex mörk í röð og lögðu þar með grunn að örugg-
um sigri sínum. gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barátta Það sáust oft skemmtileg tilþrif í viðureign Bjarnarins og SR-inga í Laugardalnum í gærkvöld.
Björninn lék SR-inga grátt á svellinu