Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 3
Arnór Atlason,landsliðs- maður í hand- knattleik, tekur út leikbann í kvöld þegar FCK mætir Bjerr- ingbro/ Silkeborg í topp- slag dönsku úr- valsdeildarinnar í handknattleik. Arnóri var sýnt rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks í viðureign FCK og AaB um síðustu helgi. Arnór og Magnus Andersson, þjálfari FCK, segja dóminn hafa verið rangan. Andersson bætir við í samtali við danska fjölmiðla að þetta sé í annað sinn á leiktíðinni sem leikmaður úr hans liði fari í leikbann vegna rangs dóms.    Franska liðið Saint-Etienne rak ígær þjálfarann Alain Perrin frá störfum eftir 13 mánaða starf. Perrin, sem um tíma var knatt- spyrnustjóri Portsmouth og þjálfari Lyon, hefur ekki náð að gera það gott hjá liðinu en það er í fjórða neðsta sæti frönsku 1. deildarinnar.    Eiður SmáriGuðjohn- sen og samherjar hans í Mónakó verða í eldlínunni í frönsku 1. deild- inni í knatt- spyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Rennes. Illa hefur gengið hjá Mónakó síðustu vikurnar. Í fimm síðustu leikjum hefur það tapað fjórum sinnum og gert eitt jafntefli en Mónakó fagnaði síðast sigri gegn Boulogne hinn 24. október. Eiður hefur komið við sögu í átta deildarleikjum með Mónakó á tímabilinu og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.    Bills Shankleys, fyrrverandiknattspyrnustjóra Liverpool, verður minnst á Anfield í kvöld þeg- ar Liverpool tekur á móti Wigan í ensku úrvalsdeildinni. Nánast upp á dag eru 50 ár liðin frá því Shankley tók við stjórastarfinu hjá Liverpool. Félagið var þá í næstefstu deild en undir stjórn Shankleys komst liðið í fremstu röð. Shankley var við stjórnvölinn hjá Liverpool í 15 ár og á þeim tíma varð liðið þrívegis ensk- ur meistari, vann ensku bikarkeppn- ina tvisvar og hampaði UEFA- bikarnum.    Fimmtán leikmenn sem léku und-ir stjórn Shankleys á árunum 1960-1970 munu í hálfleik á Anfield í kvöld ganga út á leikvanginn og votta Skotanum virðingu sína. Meðal þeirra leikmanna sem stíga fram á völlinn eru Kevin Keegan, Tommy Smith og Phil Thompson. „Shankley er besti knattspyrnustjórinn sem hefur komið fram í sögunni,“ sagði Smith, fyrrverandi fyrirliði Liver- pool, við enska blaðið Liverpool Echo en Shankley lést árið 1981, sjö árum eftir að hann sagði skilið við Liverpool.    Arsene Wen-ger, knatt- spyrnustjóri Ars- enal, segir að það komi ekki til greina að leyfa Cesc Fabregas að spila með liði Katalóníu þegar það mætir Arg- entínu í vináttuleik 22. desember. Katalónía er sem kunnugt er hérað á Spáni en íbúarnir þar líta flestir á sig sem Katalóníumenn en ekki Spánverja og þeir spila af og til „landsleiki“. Þjálfari liðsins er eng- inn annar en Johan Cruyff, gamla hollenska goðsögnin sem lék lengi með Barcelona, og hann hefur valið Fabregas í sinn hóp. Fólk sport@mbl.is ÍSLANDSMEISTARAR KR í körfuknattleik karla halda í dag upp í ævintýraferð á framandi slóðir í Kína. KR- ingar þáðu boð kínverska atvinnumannaliðsins Beijing Aoshen um að koma og leika tvo góðgerðarleiki gegn lið- inu í borginni Chengdu. Ágóðinn mun renna til þeirra sem eiga um sárt að binda á jarðskjálftasvæðunum í Sichuan-héraði. „Boðið kom til í gegnum bandarískan umboðsmann sem þekkir Benedikt Guðmundsson og vissi að KR hefði orðið Íslandsmeistari. Hann sendi okkur fyrirspurn um hvort við hefðum áhuga á að taka þátt í þessu,“ sagði Atli Einarsson, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild KR, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. KR ber engan kostnað af ferð sinni og þar á bæ eru menn fullir tilhlökkunar. „Þetta er frábært tækifæri og einstök lífsreynsla að fá að fara til Kína til þess að keppa fyrir KR. Ég held að það myndu margir þiggja þetta boð,“ sagði Atli en nokk- ur lið hafa þegið slíkt boð í haust og er KR þriðja liðið á Norðurlöndunum sem fer til Chengdu. KR mun spila tvo leiki gegn Aoshen-liðinu um helgina. Leikirnir fara fram klukkan sjö að morgni laugardags og sunnudags að ís- lenskum tíma. KR-ingar eru stórhuga og stefna að því að sjónvarpa leikjunum í gegnum vefsíðu sína, www.kr.is. Atli segir flest benda til þess að andstæðingarnir séu mjög öflugir. „Bakhjarl liðsins er mjög efnaður og hefur fært liðið á milli Kína og Bandaríkjanna en þar leika þeir í deild fyrir neðan NBA. Í liðinu eru þrír Bandaríkja- menn. Þeir unnu dönsku meistarana og sænskt lið frá Uppsala með töluverðum mun á dögunum. Um 2.500 manns sáu þá leiki en þeim var auk þess sjónvarpað,“ sagði Atli ennfremur. kris@mbl.is „Verður einstök lífsreynsla“ FIFA-dómarar: Krist- inn Jakobsson, Magnús Þórisson, Þorvaldur Árnason, Þóroddur Hjal- talín. FIFA-aðstoðardóm- arar, karlar: Áskell Þór Gíslason, Frosti Viðar Gunnarsson, Gunnar Sverrir Gunnarsson, Jó- hann Gunnar Guðmunds- son, Oddbergur Eiríks- Ólafur Ingvar Guðfinnsson, Sigurður órleifsson. FIFA-aðstoðardómari, kon- ryndís Sigurðardóttir. tsaldómari: Andri Vigfússon. sku dómarana nn sson ÍSLENSK félagslið fá alls rúmar 180 milljónir króna í tekjur af þátttöku í Evrópumót- unum í knattspyrnu á þessu ári. Þar af fá Íslandsmeistarar FH þriðjunginn, um 60 millj- ónir króna. Liðin sem tóku þátt í Evrópukeppni fá langmest í sinn hlut en öll lið efstu deildar karla njóta einhvers hluta af þeim mikla hagnaði sem er af Meistaradeild Evrópu og Evrópudeild UEFA. FH-ingar fá 60 milljónirnar enda þótt þeir hafi fallið út á fyrstu hindrun í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, gegn Aktobe frá Kasakstan. Fram og KR fá um 33 milljónir króna hvort félag en bæði komust í gegnum eina um- ferð í forkeppni Evrópudeildar UEFA. Fram sló út The New Saints frá Wales en tapaði fyrir Sigma Olomouc frá Tékklandi og KR-ingar slógu út Larissa frá Grikklandi en féllu síðan út gegn Basel frá Sviss. Keflvíkingar fá 16 milljónir króna í sinn hlut en þeir féllu út í fyrstu umferð í Evrópudeild UEFA, gegn Val- letta frá Möltu. Til viðbótar við þetta leggur KSÍ fram 33 milljónir króna til félaga með barna- og unglingastarf og framlög UEFA og KSÍ til félaganna þetta árið nema því um 213 milljónum króna. Það er umtalsverð hækkun en á árinu 2008 voru þetta 166 milljónir króna. vs@mbl.is Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is Það bar helst til tíðinda í vest- urbænum í gærkvöldi að Bandaríkja- maðurinn Tommy Johnson hrökk í gang hjá KR svo um munaði. Kappinn hefur verið gagnrýndur nokkuð fyrir frammistöðu sína á leiktíðinni en hann var sjóðandi heitur gegn Snæfelli. Skoraði 39 stig og setti niður 10 þriggja stiga skot í 16 tilraunum. „Ég velti gagnrýninni ekki of mikið fyrir mér. Ég reyni að einbeita mér að mínum leik og gera eins vel og ég get. Ég geri mér grein fyrir því að frammi- staða mín hefur ekki verið í takti við þær væntingar sem gerðar voru til mín. Sérstaklega þar sem ég var í meistaraliði með Keflavík. Ég hef skilning á því og reyni bara að leggja hart að mér á milli leikja. Ég vissi að minn leikur myndi smella saman fyrr eða síðar,“ sagði Johnson í samtali við Morgunblaðið að leiknum loknum en hann gerði 29 stig gegn Keflavík á dögunum og virðist vera kominn í gang. Johnson er bjartsýnn fyrir seinni hluta tímabilsins. „Já að sjálf- sögðu. Við höfum unnið tvö mjög sterk lið að undanförnu. Við hikstuðum að- eins snemma á leiktíðinni en höfum verið að sækja í okkur veðrið. Við er- um fullir eftirvæntingar fyrir síðari hluta mótsins og ég er sannfærður um að við verðum sterkir í lok tímabils- ins.“ Snæfell saknaði tveggja reynslu- mikilla leikmanna í gærkvöldi en þeir Sigurður Þorvaldsson og Pálmi Freyr Sigurgeirsson eru hvorugur leikfær vegna meiðsla. Sigurður glímir við hnémeiðsli og Pálmi er með brjósklos. Þeir eru tveir af helstu skyttum liðsins og því var á brattann að sækja fyrir Hólmara að þessu sinni.„Það er bull- andi reynsla í þessum leikmönnum og það vantar kannski líka smá sjálfs- traust í hópinn þegar við getum ekki stillt upp fullmönnuðu liði. Ég hefði viljað sjá mína menn aðeins grimmari og sérstaklega þá sem fengu tækifæri í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells við Morgunblaðið. Ingi Þór er KR-ingur inn að beini og þjálfaði meistaralið félagsins á síðustu leiktíð ásamt Benedikt Guðmundssyni. Ingi hefur væntanlega viljað snúa aft- ur í DHL-höllina með meiri látum en raunin varð? „Já en ég held samt að við höfum sýnt góða baráttu. Úrslitin voru aldrei ráðin fyrr en flautað var af, alla vega ekki í okkar augum. Við viss- um að það skipti líka máli að ná mun- inum niður ef innbyrðisviðureignir telja í lok deildakeppninnar. Þá eru sex stig ekki mikið,“ sagði Ingi og seg- ist þokkalega sáttur við stöðu liðsins á þessum tímapunkti.„Við erum alveg þokkalega sáttir. Við höfum aðeins stillt upp fullmönnuðu liði í einum leik. Við eigum því eftir að slípa okkur sam- an sem lið. Það eru mjög margir ljósir punktar í þessu og Hlynur Bærings- son er að spila alveg frábærlega.“ Morgunblaðið/Ómar Varist Hlynur Bæringsson reynir að verjast háloftafuglinum Semaj Inge.  KR vann Snæfell og fór á toppinn ÍSLANDSMEISTARAR KR í körfuknatt- leik karla tylltu sér í toppsæti Iceland Express deildarinnar með sigri á Snæ- felli í Frostaskjólinu í gærkvöldi 97:91. Leikurinn var sá fyrsti í 11. umferð mótsins og því geta Stjarnan og Njarð- vík náð KR-ingum að stigum. Þau hafa 16 stig en KR-ingar 18. 10 þriggja stiga körfur frá Johnson KR – Snæfell 97:91 DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Iceland Express deildin, þriðjudaginn 15. des 2009. Gangur leiksins: 3:0, 11:8, 17:12, 25:19, 36:22, 50:29, 53:39, 57:47, 61:52, 76:62, 83:66, 90:75, 92:79, 97:91. Stig KR: Tommy Johnson 39, Fannar Ólafsson 14, Brynjar Björnsson 13, Finn- ur Magnússon 13, Semaj Inge 11, Skarp- héðinn Ingason 5, Darri Hilmarsson 2. Fráköst: 21 í vörn – 11 í sókn. Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 27, Sean Burton 22, Jón Ólafur Jónsson 18, Emil Jóhannsson 13, Sveinn Davíðsson 6, Egill Egilsson 3, Páll Helgason 2. Fráköst: 19 í vörn – 8 í sókn. Villur: KR 22 – Snæfell 15. Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Jón Guðmundsson. Ágætir. Áhorfendur: Tæplega 500. FH fær 60 milljónir fyrir að vera með Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.