Morgunblaðið - 16.12.2009, Síða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla
Iceland-Expressdeildin:
KR – Snæfell......................................... 97:91
Staðan:
KR 11 9 2 1020:900 18
Stjarnan 10 8 2 862:786 16
Njarðvík 10 8 2 843:746 16
Keflavík 10 7 3 870:762 14
Snæfell 11 7 4 1010:883 14
Grindavík 10 6 4 890:800 12
ÍR 10 5 5 843:839 10
Hamar 10 4 6 828:845 8
Tindastóll 10 3 7 825:869 6
Breiðablik 10 2 8 755:885 4
Fjölnir 10 2 8 762:886 4
FSu 10 0 10 659:966 0
NBA-deildin
Orlando – Indiana............................... 106:98
Philadelphia – Golden State ............ 117:101
Memphis – Boston ............................105:110
Dallas – New Orleans........................... 94:90
Denver – Oklahoma City ................... 102:93
Utah – Minnesota ............................. 108:110
LA Clippers – Washington.................. 97:95
Bikarkeppni karla
Subwaybikarinn, dregið í 8-liða úrslit:
Snæfell – Fjölnir
Keflavík – Njarðvík
Tindastóll – Grindavík
Breiðablik – ÍR
Bikarkeppni kvenna
Subwaybikarinn, dregið í 8-liða úrslit:
Fjölnir – Laugdælir
Keflavík – Hamar
Njarðvík – Þór Ak.
Snæfell – Haukar
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Sunderland – Aston Villa ....................... 0:2
Emile Heskey 24., James Milner 64.
Birmingham – Blackburn....................... 2:1
Cameron Jarome 12., 48. – Ryan Nelsen 69.
Bolton – West Ham.................................. 3:1
Chung-Yong Lee 64., Ivan Klasnic 77.,
Gary Cahill 88. – Alessandro Diamanti 69.
Grétar Rafn Steinsson lék allan tímann
fyrir Bolton.
Manchester United – Wolves ................. 3:0
Wayne Ronney 30. (víti), Nemanja Vidic
43., Antonio Valencia 66.
Staðan:
Chelsea 16 12 1 3 40:13 37
Man. Utd 17 12 1 4 37:14 37
Aston Villa 17 9 5 3 28:14 32
Arsenal 15 10 1 4 40:19 31
Tottenham 16 8 3 5 35:22 27
Birmingham 17 8 3 6 18:17 27
Man. City 15 6 8 1 29:21 26
Liverpool 16 7 3 6 32:22 24
Fulham 16 6 5 5 20:17 23
Sunderland 17 6 3 8 22:24 21
Stoke City 16 5 6 5 15:19 21
Blackburn 17 5 4 8 17:30 19
Burnley 16 5 3 8 20:34 18
Wigan 16 5 3 8 19:36 18
Everton 16 4 5 7 22:30 17
Hull 17 4 5 8 17:34 17
Bolton 16 4 4 8 23:33 16
Wolves 17 4 4 9 15:31 16
West Ham 17 3 5 9 25:34 14
Portsmouth 16 3 2 11 14:24 11
Frakkland
Valenciennes – Auxerre........................... 0:0
Skotland
Dundee United – Rangers....................... 0:3
HANDKNATTLEIKUR
HM kvenna í Kína
Milliriðill 1 í Yangzhou:
Þýskaland – Angóla.............................. 25:21
Frakkland – Austurríki ....................... 35:20
Danmörk – Rússland ........................... 25:30
Lokastaðan:
Rússland 5 4 0 1 142:111 8
Frakkland 5 4 0 1 137:106 8
Danmörk 5 3 0 2 129:127 6
Þýskaland 5 2 0 3 117:137 2
Austurríki 5 1 0 4 120:147 2
Angóla 5 1 0 43 115:132 2
Milliriðill 2 í Suzhou:
Ungverjaland – Kína............................ 25:21
Noregur – Spánn .................................. 27:24
Rúmenía – Suður-Kórea...................... 34:34
Lokastaðan:
Noregur 5 4 0 1 138:114 8
Spánn 5 3 1 1 126:112 7
Suður-Kórea 5 2 2 1 150:142 6
Rúmenía 5 2 1 2 154:129 4
Ungverjaland 4 0 2 2 118:126 4
Kína 4 0 0 4 96:159 0
Í undanúrslitum mætast:
Noregur – Rússland
Frakkland – Spánn
Þýskaland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Balingen – Hamburg............................ 23:38
Göppipngen – Concordia ..................... 38:23
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Iceland-Express:
Grindavík: Grindavík – Snæfell ...........19.15
Ásvellir: Haukar – Hamar ................... 19.15
Njarðvík: Njarðvík – Valur ................. 19.15
DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15
OLIVER Kahn fyrrum landsliðsmarkvörður Þjóð-
verja í knattspyrnu er þeirrar skoðunar að Jens
Lehmann markvörður Stuttgart ætti þegar í stað að
leggja hanskana á hilluna í stað þess að bíða með að
gera það í lok leiktíðar. Lehmann er samningsbund-
inn Stuttgart fram til 30. júní á næsta ári en þessi
skrautlegi og skapstóri markvörður hefur verið
töluvert í fréttum fyrir misgóða hluti og það ekki í
fyrsta sinn á ferlinum. Um síðustu helgi var honum
vísað af velli fyrir að traðka á framherja Mainz þeg-
ar skammt var til leiksloka og í kjölfarið var honum
vísað af velli.
,,Ég held að það væri best fyrir hann að hætta
núna,“ sagði Kahn í viðtali við þýska blaðið AZ en
þeir Kahn og Lehmann elduðu oftar en ekki grátt
silfur saman þegar þeir kepptu um landsliðs-
markvarðarstöðuna.
Lehmann komst í fyrirsagnir
blaðanna á dögunum þegar han
gagnrýndi forráðamenn Stutt-
gart fyrir að reka þjálfarann
Marcus Babbel og þá sást til
markvarðarins lauma sér bakvið
auglýsingaskilti og kasta af sér
vatni í miðjum leik í Meistara-
deildinni í síðustu viku. ,,Jens er
góður markvörður en hann er
ekki hjálpa til í því ástandi sem
ríkir hjá Stuttgart og forráðamenn liðsins verða að
velta því fyrir sér hvort það sé hagur fyrir félagið að
hafa hann áfram eða hvort þeir vilji að hann skemmi
enn frekar fyrir því,“ sagði Kahn. gummih@mbl.is
Kahn segir að Lehmann eigi að hætta
Jens
Lehmann
Manchester United sýndi enga meist-
aratakta gegn nýliðum Úlfanna þrátt
fyrir öruggan sigur. United-menn
voru nánast í fyrsta gír og virkuðu
hálfáhugalausir en Mick McCarthy,
knattspyrnustjóri Wolves, gerði sér
lítið fyrir og gerði tíu breytingar á liði
sínu frá sigurleiknum gegn Totten-
ham um síðustu helgi. Aðeins mark-
vörðurinn Marcus Hahnemann hélt
sæti sínu. Það tók meistarana 30 mín-
útur að ná forystunni þegar Wayne
Rooney skoraði úr vítaspyrnu, hans
12. mark í úrvalsdeildinni og 20. á leik-
tíðinni. Nemanja Vidic bætti við öðru
með skalla eftir hornspyrnu undir lok
fyrri hálfleiks og Antonio Valencia
skoraði þriðja markið með þrumuskoti
um miðjan seinni hálfleik eftir góðan
undirbúning frá Dimitar Berbatov.
Þetta var 900. leikurinn sem sir Alex
Ferguson stjórnaði Manchester Unit-
ed í deildarleik og víst er að hann hef-
ur oftast séð sína menn spila betur en
þeir gerðu í gær.
Gerðu okkur erfitt fyrir
„Þetta var erfitt kvöld. Leikmenn
Wolves gerðu okkur erfitt fyrir. Þeir
börðust vel og tækluðu okkur út um
allan völl. Það kom mér ekki á óvart að
Úlfarnir tefldu fram veikara liði þar
sem liðið var með hugann við leikinn á
móti Burnley um næstu helgi. Um leið
og fyrsta markið kom hjá okkur var
þetta í okkar höndum,“ sagði Fergu-
son eftir leikinn en hans menn sækja
Fulham heim um næstu helgi.
Bolton úr fallsæti
Grétar Rafn Steinsson lék allan tím-
ann í liði Bolton sem vann góðan 3:1-
sigur á West Ham á Rebook-vellinum í
Bolton. Með sigrinum komst Bolton
upp úr fallsæti en West Ham er í
vandræðum og er í næstneðsta sæti
deildarinnar. Chung-Yong Lee Lee,
Ivan Klasnic og Gary Cahill gerðu
mörkin fyrir Bolton en Ítalinn Aless-
andro Diamanti gerði eina mark West
Ham sem hefur ekki unnið útileik síð-
an í fyrstu umferðinni í ágúst.
Aston Villa í þriðja sætið
Aston Villa fylgdi eftir góðum sigri
á Manchester United á Old Trafford
um síðustu helgi og lagði Sunderland á
Leikvangi ljóssins, 2:0. Emile Heskey
skoraði fyrra markið og það síðara
gerði James Milner með glæsilegu
skoti. Með sigrinum komst Aston Villa
upp fyrir Arsenal í þriðja sætið.
Fimmti sigur Birmingham í röð
Birmingham er komið upp í 7. sætið
eftir 2:1-sigur á Blackburn á heima-
velli. Þetta var fimmti sigur Birm-
ingham í röð og það er í fyrsta sinn
sem liðið afrekar það í efstu deild.
Bæði mörk liðsins skoraði Cameron
Jarome. Nýsjálendingurinn Ryan
Nelsen minnkaði muninn fyrir Black-
burn.
„Ég er svo stoltur af leikmönnum
mínum. Að vinna fimm leiki í röð er
mjög tilkomumikið og ég er virkilega
ánægður með liðið og þann kraft sem
er í því um þessar mundir,“ sagði Alex
McLeish, knattspyrnustjóri Birm-
ingham.
gummih@mbl.is
Reuters
Víti Boltinn fer í hönd varnarmanns Wolves í vítateignum eftir skalla frá Nemanja Vidic á Old Trafford í gær.
MANCHESTER United er komið upp að
hlið Chelsea í toppsæti ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu eftir 3:0-
sigur á varaliði Wolves á Old Trafford í
gær. Grétar Rafn Steinsson og félagar
hans í Bolton komust upp úr fallsætinu
með því að leggja West Ham að velli,
3:1, og grannaliðin Aston Villa og Birm-
ingham eru á góðu skriði. Bæði fögn-
uðu góðum sigrum í gær.
Sigur hjá Sir Alex í
900. deildarleiknum
Meistararnir í fyrsta gír gegn varaliði Wolves á Old Trafford
ALÞJÓÐA knattspyrnusambandið, FIFA,
hefur staðfest íslensku tilnefningarnar á
FIFA-listann yfir dómara og aðstoðardóm-
ara fyrir árið 2010. Þá hefur íslenskur dóm-
ari í fyrsta skipti fengið réttindi til að
dæma í Futsal, innanhússknattspyrnu, á al-
þjóðavettvangi.
Tvær breytingar eru á hópi FIFA-
dómara Íslands en þeir Þorvaldur Árnason
og Þóroddur Hjaltalín koma í staðinn fyrir
Garðar Örn Hinriksson og Jóhannes Val-
geirsson. Gunnar Sverrir Gunnarsson kem-
ur á ný inn á lista yfir FIFA-aðstoðardóm-
ara og nýr Futsaldómari Íslands er Andri
Vigfússon.
Dómaralistinn í heild er þannig:
son, Ó
Óli Þó
ur: Br
Fut
FIFA staðfestir íslens
Kristin
Jakobs
Erkifjendurnir á Suðurnesjum,grannarnir Keflavík og Njarð-
vík, mætast í átta liða úrslitunum í
bikarkeppni karla í körfuknattleik,
Subwaybikarnum, en dregið var í
karla- og kvennaflokki í gær.
Stórleikurinn í kvennaflokki verð-
ur viðureign Keflavíkur og Hamars.
Bæði bikarmeistaraliðin eru þegar
fallin úr keppni, karlalið Stjörn-
unnar og kvennalið KR.
Stefanía Aradóttir setti Íslands-met í 13-14 ára flokki með
kvennasleggju (4 kg) á vetrar-
kastmóti UMSE/UFA sem haldið
var á Hrafnagili. Stefanía kastaði
34,73 m og bætti gamla metið sem
var í eigu Eirar Starradóttur um
tæpa fimm metra.
Allen Iversonog félagar
hans í Phila-
delphia 76’ers
náðu að stöðva 12
leikja taphrinu
liðsins í NBA-
deildinni í fyrri-
nótt. Iverson
skoraði 20 stig í
117:101-sigri liðsins gegn Golden
State Warriors. Boston Celtics hélt
áfram sigurgöngu með því að leggja
Memphis Grizzlies á útivelli,
110:105. Þriggja stiga karfa frá Ray
Allen undir lokin tryggði liðinu sigur
í hörkuleik. Memphis hefur verið á
góðri siglingu undanfarið og hafði
unnið fjóra af síðustu fimm leikjum
sínum. Boston hefur nú unnið 20
leiki af 24 í deildinni á tímabilinu.
Fjárfestingafélag frá Michigan íBandaríkjunum hefur selt 15%
hlut í NBA-liðinu Cleveland Caval-
iers. Kenny Huang er forsvars-
maður hópsins sem keypti hlutinn
en eigendurnir eru frá Asíu og er
þetta í fyrsta sinn sem fjárfestar frá
Asíu eignast stóran hlut í NBA-liði.
Didier Drogbaframherji
Chelsea meiddist
á æfingu í gær og
ríkir óvissa með
þátttöku hans í
leiknum gegn
Portsmouth í
kvöld. Fílabeins-
strendingurinn
fékk þungt högg á bakið. Hermann
Hreiðarsson og samherjar hans
sækja toppliðið heim á Stamford
Bridge og um næstu helgi tekur
Portsmouth á móti Liverpool.
Hinn hálfíslenski Hans Lindberg,landsliðsmaður Dana, skoraði
fjögur af mörkum Hamburg þegar
liðið burstaði Balingen-Weilstetten,
38:23, í 16-liða úrslitum þýsku bik-
arkeppninnar í handbolta í gær-
kvöldi. Sömu úrslit urðu í viðureign
Göppingen og Concordia Delitzsch
þar sem fyrrnefnda liðið fagnaði
sigri.
Fólk sport@mbl.is