Magni - 21.04.1961, Page 3

Magni - 21.04.1961, Page 3
Föstudagur 21. apríl 1961 M AGNI 3 - Bwjflrútgerð ðkrnness Framhald af í. síðu. nei. En stofnlánadeildin var látin hirða skipið á nauðungar- uppboði fyrir viðgerðarkostnað- inum úti, svo að því þjóðar- hneyksli yrði afstýrt, að skipið yrði Bretanum að bráð. Salan ekki fyrir er- lendum kostnaði. Eftir því sem næst verður komizt er viðgerðarkostnaður- inn c.a. kr. 3.580.000.00 þar við bætist svo olíukaup, vextir af viðgerðarkostnaðinum síðan 4. des. og vaktmenn í skipinu alls að upphæð ca. kr. 250 þús. Nauðungarsalan var hins veg- ar aðeins kr. 3.615.000.00 svo það vantar rúmlega kr. 200 þús. svo salan sé fyrir erlend- um kostnaði. Það hefði verið betra, að G. Sv. hefði hreinlega gefið togarann í haust „óklass- aðan“. Hvernig ráðstöfun hefði það þótt? Bærinn situr nú eftir með þungan skuldabagga. Ef upp- lýsingar G. Sv. á siðasta bæjar- stjórnarfundi eru réttar var rekstrartap togaranna á s.l. ári ca. kr. 6 millj., auk 5,8 millj. kr. viðgerðarkostnaðar. Raun- verulegur halli því alls ca. kr. 11,8 millj. Frá þessu dregst svo það, sem tryggingarfélagið kynni að greiða af viðgerðinni. En samkv. þessu er mjög lík- legt að skuldir togaranna hafi verið komnar í kr. 26—27 millj. um s. 1. áramót, auk þeirra 14 millj., sem bærinn hafði þá greitt til þeirra. Sé skuldinni skipt jafnt á togar- ana verður skuldabyrðin á Bj. Öl. kr. 9—10 millj. þegar sölu- verðið hefur verið dregið frá. H ér er um ískyggilegan skuldabagga aÖ rœSa. Synda- gjöld lánlausra manna, sem leggjast meS ofurþunga á gjald- endur bœjarins. Hvað verður um Akurey? Nauðungarsölunni á Akurey var frestað 29. marz, eftir að stofnlánadeildin hafði fallið frá sölubeiðni sinni. En þá tóku aðrir kröfuhafar við og heimt- uðu að uppboðinu yrði haldið áfram, og það flutt til Reykja- víkur. Stendur nú baráttan um það, hvort salan eigi að fara fram á Akranesi eða í Reykja- vik. Með því fær útgerðarráð nokkurn frest til „umþóttun- ar“. Stofnlánadeildin færði skuld Bjarna Ólafssonar að upphæð kr. 1,6 milljónir yfir á Akur- ey og varð útgerðarráð að skrifa undir það. Nemur nú skuld Akureyjar við hana c.a. kr. 3 millj. Verður ekki næsta stigið að stofnlánadeildin hirð- ir Akurey upp í þá skuld? ' Enginn rekstrar- grundvöllur. Það er staðreynd, að hagur Vestmannaeyja og Keflavíkur batnaði mjög eftir að þeir seldu togara sína á árunum 1953— ’55. Vegna þess hve fljótir þeir voru spöruðu þeir sér milljónir á taprekstri þeirra og hafa því getað snúið sér að ýmsum þörf- um framkvæmdum í rikara mæli en áður. Hér var for- dæmi, sem ég hafði oft bent á og vert var að gefa gaum. Þá er það einnig mjög hættuleg leið að bærinn haldi uppi at- vinnurekstri og láti það verða að venju að gefa með honum milljónir á hverju ári, jafn- framt því sem útsvör eru lögð á annan atvinnurekstur í bæn- um, sem stundum er einnig rekinn með tapi. Það mæla engin skynsamleg rök með því að styrkja beri togaraútgerð umfram annan atvinnurekstur. Ráðamönnum bæjarins bar því tvimælalaust að hætta, þegar útgerðin var komin í fjárþrot og búið að leggja 14 millj. af útsvörum bæjarbúa í togarahit- ina. Höfuð sök H. Sv. og G. Sv. er þessi: 1. Neita að ræða um sölu á togurunum á meðan þeir voru í sæmilegu verði og hægt var að selja þá fyrir skuldum þeim, sem á þeim hvildu. 2. Halda áfram togararekstrin- um í fyrra sumar, — eftir að allt fjármagn var þrotið — með óheiðarlegum slætti, fölskum ávísunum, ósannind um um greiðslur o. s. frv. Skapa bænum þannig var- anlegan álitshnekki og mörg- um lögfræðingum atvinnu við að innheimta hinar fölsku ávísanir bæjarútgerð- arinnar og tóku þeir tugi þúsunda í innheimtulaun. 3. Að senda b.v. Bjarna Ólafs- son í „klössun“, sem vitað var að kostaði kr. 3,3 millj. án samþykktar útgerðarráðs eða bæjarstjómar, banka eða ríkisstjórnar og hafa engin úrræði til greiðslu. Var nær að leggja skipinu, eins og Akurey. Það hefði aldrei selzt ver, þótt „óklassað“ væri, en á nauðungarupp- boðinu nú. Gafst þá einnig meira svigrúm til að ráða fram úr málunum. Segja þeir af sér? Menn, sem valdið hafa bæj- arfélaginu milljónatjóni ættu að sjá sóma sinn í því að segja af sér framkvæmdastjórn og öllum trúnaðarstörfum, og biðja opinberlega afsökunar á verkum sínum. Við sjáum, hvort svo verður? Daníel Ágústínusson. Nýkomið: Fjárgirðingarnet, 2 breiddir. Ennfremur, venjulega fyrirliggjandi: Timbur — Þakjárn — Steypustyrktarjárn — Þakpappi — Kalk í sekkjum — VatnsleiSslupípur — Gúmmíslöngur — MúrhúSunarnet — Gólf- dúkapappi — Gólfdúkar margar gerSir — Saumur, svartur og galv. — Úrval af málningarvörum — Hreinlætistœki, handlaugar, W. C. skálar, skolkassar — Þvotta- balar, galv. — Rafmagnseldavélar — Þvotta- pottar, fl. te. — HurSakrossviSur — LakkhúSaSai þilplötur — Teppaafgangar á góSu verSi o. m. fl. Virðingarfyllst, Haraldur Böðvarsson & Co. Byggingavöruverzlun. — Sími 393. HÚSEIGN TIL SÖLU Neðri hæð húseignarinnar Skagabraut 31 er til sölu. Hæðin er óinnréttuð. — Tilboðum sé skilað fyrir 1. maí n. k. — Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Nánari upplýsingar gefur kaupfélagsstjórinn. Kaupfélag Suður Borgfirðinga. F AC O -f ermingarf öt KLÆÐA DRENGINN TÍZKULITIR OG SNIÐ Shemman h.f. Bez:tg þvdttavélina Uýi tímÍMi'viIl ^Fottavél Ivottavéliia. skílar ' taiiinu fallegustu, M]oegar nota6 er -þvotfca^nft. iUi—* Nr. 5/1961. TILKYNNING Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á smjörlíki: 1 heildsölu pr. kg...... kr. 12,35 1 smásölu pr. kg., m. söluskatti — 18,30 Reykjavík, 8. apríl 1961. VERÐL AGSSTJ ÓRINN. Akurnesingar! Úrvals vörur. — Fjölbreyttar vörur. ★ Fullkomin nýtízku kjörbúð. BIÁturfélng jSuðurlands Vesturgöíu 48. — Símar: 46 og 33.

x

Magni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Magni
https://timarit.is/publication/789

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.