Magni - 23.12.1966, Qupperneq 1

Magni - 23.12.1966, Qupperneq 1
9.-10. tölublað Akranesi, föstudaginn 23. desember 1966 6. órgangur | Séra >)ón 8, Einarsson, Saurbœ, „Yður er í dag frelsari fæddur.“ (Lúk. 2:11) Enn einu sinni eru jólin til vor komin. Vonandi skynjum vér návist þeirra og finn- um frið þeirra, þrátt fyrir allar auglýsing- arnar og áróðurinn, glingrið og falsskrautið, sem á þau hefur verið hlaðið. — Hvað eru jólin annars orðin? Eru þau nokkuð annað en kaupvertíð fáeinna kaupmanna, sem vant- ar fleiri fallandi krónur í kassana sína? Já, og svo er gott að gera sér dagamun um jólin, skemmta sér dálítið, borða sig saddan af veglegum veizlumat og fá góðar gjafir. — Einhvern veginn þannig komst kunningi minn að orði við mig, þegar við rœddum um jólin, og þannig munu margir hugsa. Og satt er það, að allar auglýsingarnar og árcðurinn, sem yfir oss dynur, bœði í blöð- um og útvarpi, varpa skugga á hina sönnu jólagjöf og jólagleði. Jólin eru hrapalega mis- notuð og virkjuð í þágu mammonar, svo að við liggur, að sjálft jólabarnið týnist í öllum umbúðunum, sem um það er hlaðið. Vér mættum gjarnan leiða hugann að því, hversu allt þetta umstang, glingur og háváði, er fjar- lægt jólabarninu, sem í jötuna var lagt, já, fjarlægt konungi hógvœrðarinnar, sem kem- ur til vor sem lítið barn og bróðir og birtir Guðs náð og kærleika til vor mannanna. Jólin mega aldrei verða að veraldlegri há- tíð, þar sem skemmtanir, skraut og fánýtt glingur er í miðdepli hátíðahaldsins. Hin sönnu jól eru oss gefin, til þess að vér fögn- um og gleðjumst yfir þeirri ráðstöfun Guðs, „að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Já, jólin eru oss af Guði gefin, og þau flytja oss þann frið, sem er œðri öllum skilningi. „Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður.“ Þetta er bóð- skapur frelsarans til vor breyskra og reikulla manna. Og þrátt fyrir allar styrjaldir, blóð- bað og glæpi þessarar aldar, þá er það stað- reynd, áð í hvert skipti sem jólin nálgast, er eins og óvild og öfund, hatur og hefndar- þorsti dragi sig í hlé. Með boðskap jólanna er eins og blítt Ijós falli niður í táradal mann- lífsins, — yfir hvers konar böl þess og vanda. Og vissulega væri heimur vor fátœkari af sannri mannást og kærleika, ef jólin œttu ekki eins langa sögu meðal kristinna manna og þau eiga. Jólin eru þvi ævinlega kœr- komin öllum kristnum og friðarunnandi mönnum. Og vér bjóðum þau velkomin með orðum skáldsins. serri segir: Kveikt er Ijós við Ijós, burt er sortans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Niður stjörnum stráð, engill fram hjá fer. Drottins nœgð og náð boðin alþjóð er. „Kom blessuð, Ijóssins hátíð, — helgi þín minn hug og vilja göfgi, vermi, fylli, svo máttug verði og heilög hugsun mín og hörpu mína Drottins andi stilli.“ — „Yður er í dag frelsari fœddur.“ Þetta er fagnaðarboðskapur jólanna, bóðskapur jólanna, boðskapur himinsins. Sá boðskapur er enn þái í fullu gildi og á erindi til vor enn í dag, þrátt fyrir allar framfarir atómald- arinnar. Fátœkum hirðum var fyrstum flutt- ur þessi fagnaðarbóðskapur fyrir nœr 20 öld- um. I dag er hann fluttur oss. öllum er oss boðið að verða samferða hirðunum að jöt- unni, bar sem lausnari heimsins liggur. Og vér megum treysta því, að jólabarnið, Jesús Kristur, er IMMANÚEL: Guð með oss. Hann er konungurinn eini og sanni, frelsari og lausnari lýðs og þjóða. Hann birtir oss veru Guðs og vilja, er sannur Guð af Guði sönn- um. I honum hefur Guð vitjáð lýðs síns og gjörzt bróðir hinna „bjargarlausu og snauðu, hinna breysku, særðu, föllnu, týndu og dauðu.“ Jesús Kristur er bróðir vor allra, hver sem vér erum og hvað sem vér gerum. Hann er til vor kominn til þess að frelsa oss frá villu vors vegar, leysa oss úr viðjum vanmáttar og Guð er eilíf ást, engu hiarta er hœtt. Rikir eilíf ást, sérhvert böl skal bœtt. Lofið Guð, sem gaf, þakkið hjálp og hlif. Tœmt er húmsins haf, allt er Ijós og líf. Stefán frá Hvítadal. syndar, bjarga oss frá böli og dauða og gefa oss þrek til að lifa. Hann er kominn í heim- in til þess áð gefa líf og huggun, kominn til að lækna og líkna, blessa og frelsa. Þetta vilja jólin minna oss á. Þau minna oss á það, að máttur Guðs er méðal mannanna i og með Jesú Kristi. Líknandi máittur hans nœr inn í tilveru vora sem endurleysandi og frels- andi afl. -— Miti í veraldarglamri og glysi hátíða- haldanna skulum vér nema staðar og hlusta á fagnaðarboðskap jólanna: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Minnumst þess, að þrátt fyrir allar jólagjafirnar, sem í sífellu eru auglýstar í blöðum og útvarpi og vér getum fengið keyptar fyrir peninga, þá er aðeins ein jólagjöf, sem er sönn og eilíflega gild, og þá jólagjöf fáum vér ekki keypta fyrir pen- inga. Sú jólagjöf er konungurinn Iiristur, sem Guð gefur oss að frelsara, leiðtoga og bróður. IJann er jólagjöfin eina og sanna og færir oss hina fullkomnu jólagleði, — gefur oss eilift líf, lífið í Guði. Þeirri jölagjöf skulum vér veita viðtöku og ganga frelsara vorum á hönd sem lítillát, hógvær og þiggjandi börn. Vér skulum hlýða boðskap hans og beygja FramhalcL á bls. 2.

x

Magni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Magni
https://timarit.is/publication/789

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.