Magni - 23.12.1966, Qupperneq 2
2
MAGNl
Föstudagur 23. desember 1966
MAGNI
BlaS Framsóknarfélaganna 6 Akranesi
RITSTJORN:
Daníel Agústínusson, óbm.
Guðmundur Björnsson og
Þorsteinn Ragnarsson
PRENTAÐ I PRENTVERKI AKRANESS H.F.
Við áramól
Árið 1966 verSur senn kvatt og nýju ári heilsáS. Áramótin
eru tími uppgjörs og reikningsskila. Hver einstaklingur á sér
minningar frá liðnu ári og þjóðir hafa margra atburða að
minnast. Vísindi og tœkni fleygir fram, m.a. í þágu atvinnú-
veganna og í þekkingu á himingeimnum. Sé litið til baka um
cinn áratug verður augljóst, hversu tceknin er hraðfara. Árang-
urinn eru stóraukin afköst og batnandi lífskjör. Rannsóknir á
himingeimnum hafa orðið til þess að farið er að nefna ártöl
í sambandi við lendingu á tunglinu.
I nœrri tvo áratugi bjuggu Islendingar við síldarleysi. Þeir
stóðu ráðþrota er síldin hœtti að vaða um yfirborð sjávarins.
Méð fiskileitartœkjum er þetta silfur hafsins elt uppi misk-
unnarlaust, hvernig sem það kann að enda. Síldveiðin hefur
gefið Islendingum auknar þjöðartekjur og að verulegu leyti
staðið undir þeim lífskjörum, sem þeir geta nú veitt sér. Stór-
aukin viðskipti við önnur lönd er afleiðing hins gífurlega síld-
armagns, sem borizt hefur á land í vaxandi mœli undanfarin ár.
Þrátt fyrir þetta einstaka góðœri — bœði til lands og sjáv-
ar — virðist samt skórinn kreppa víða að. Undanfarnar vikur
og mánuði hefur hver samþykktin rekið aðra frá ýmsum
stofnunum og minna þœr á neyðarskeyti. I því sambandi má
minna á hraðfrystihúsaeigendur, sem telja sig standa á barmi
gjaldþrots. Utgerðarmenn, sem segja engan rekstursgrundvöll
fyrir vélbátaútgerð, nema á síldveiðum. Togaraeigendur, sem
margir hafa bundið skip sín. Iðnrekendur kvarta sáran og
ýmsir hafa gefizt upp. Bændur hafa sumarlangt verið á stöðug-
um fundum til varnar hagsmunum sínum. Ekki telja launa-
menn sig of haldna. Þannig mœtti lengi telja. Hér amar
cannarlega eitthvað að. Stefnan er ekki rétt. Hér er ekki um
pólitiskan samblástur að rœða, því hver stétt stendur einhuga
um kröfur sínar og samþykktir. Þjóðin á sannarlega mikið
undir því að þessi mál verði leyst. Ef atvinnuvegirnir stöðv-
ast er mikið í húfi.
Það skiptir Islendinga miklu á nœsta ári að þeir skipi mál-
um sínum þannig, að góðœrið — sem allir vona að haldi
áifram — verði þess megnugt að bœta raunverulega hag þjóð-
arinnar og skapa öllum stéttum viðunandi lífskjör, svo þœr
geti unað hlutskipti sínu og rœkt sem bezt skyldur sínar við
land sitt og samfélag.
I ársbyrjun 1902 ávarpaði Hannes Hafstein Islendinga með
löngu kvœði, er hefst þannig:
„Rís heil, þú sól, sem enn oss fœrir ár,
það ár, sem þjóð vor lengi muna skal!
Rís heil, með sigurmark um bjartar brár
og bjarma róðin upp af tímans val.
Þú Ijóssins drottning! blessa berg og dal
þín birta læsi sig um fólksins hug,
til starfs og þroska vek þú hrund og hal,
á horfins tíma meinum vinn þú bug,
og vektu traust og trú <og forna dáð og dug.“
Þœr óskir og vonir er skáldið ber þarna fram eiga enn við.
Gleðileg jól. — Farsœlt komandi ár.
D. Á.
'Uátið Ijóss og friðar ...
Framhald af bls. 1.
oss í auðmýkt og í lotningu undir vald hans
og vilja. Minnumst þess, áð
„Hann bœtir allt, ef boðskap hans er
hlýtt.
Hann bjargar öllum þeim, sem til hans
kalla.
Ur þyrnigrein er kóróna hans knýtt,
en köllun hans — að frelsa veröld alla.“
Gléðileg jól. — / Jesú nafni — Amen.
Vorvísa
Sóliri yljar má og mel
mönnum léttir sporin.
Svellin gráta sig í hel.
— Sárt er að deyja á vorin.
Bölsýni
(ort fyrir bölsýnismann).
Einskisverðri undir byrði
einn á ferð í veðraskaki.
Allt, sem gerði einhvers virði
œvina, sérðu langt að baki.
Kristján Ölason.
Ort í legu á Sjúkrahúsi
Húsavíkur sumarið 1961
I.
Það er sama og svíkja lit
og setja hlera í Ijóra,
að vera að leggja vit og strit
í vitleysuna áð tóra.
visur
ii.
Töfrar lífsins yngja enn
undur hlýtt í blóði,
þegar guð og mold og menn
mæla einu hljöði.
Karl Sigtryggsson.
Hnignunin
Fúinn bátur, fallin búð,
fœrin sundurskriðin.
— En útifyrir yztu flúð
eru íiskimiðin.
Ástarvísa
Stjörnur eygði ég í kvöld
undir dökkum baugum.
Hugann gæti ég heila öld
helgað slíkum augum.
Grímur Sigurðsson frá Jökulsá.
□ □□
□□□
FJOLIDJAN - ÍSAFIROI
EINANGRUNARGLER
SECURE EINANGRUNARGLER
ÚTSÖLUSTAÐUR
HARALDUR
BÖÐVARSSON & Co
VINSAMLEGAST PANTIÐ
MED GÓÐUM FYRIRVARA
Gleðileg jól!
Farsælt nýár!
Þökkum viðskiptin
á árinu, sem er að líða.
HAFSKIP HF.
Gleðileg jól!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Tryggingomiðstöðin
Eins og ávallt áður höfum við mesta úrvalið af
áramótaflugeldum og skrautljósum.
Þökkum viðskiptin á árinu, sem er að líða.
Gleðileg jól!
AXÍl miHSJÖRHSSON iU