Magni - 23.12.1966, Qupperneq 12
12
MAGNI
Föstudagur 23. desember 1966
VINABÆJAMÓT
THcssur um iólin
Einn þáttur hinnar norrœnu
samvinnu eru hin svo nefndu
vinabœjatengsl, sem eru í því
fólgin, að einn bœr e8a borg
í hverju hinna 5 ríkja Norður-
landa mynda vinabœjahóp.
Halda þessir bœir svo mót í
löndunum til skiptis, t.d. á
þriggja ára fresti, og er þá
boSið til sliks móts ákveðnum
fjölda þátttakenda, jafn mörg-
um frá hverjum bœ, er svo
dvelja á heimilum félaga í
Norrœna-félaginu á staðnum,
eða hjá öðrum, sem áhuga hafa
á norrœnni samvinnu. A þenn—
an hátt myndast persónuleg
Jac Lund-Tanaen.
kynni og jafnvel vináttubönd
sem vissulega stuðla að gagn-
kvœmum skilningi á högum
þessara frœndþjóSa.
Vinabæir Akraness eru:
Langesund í Noregi, Vástervik
í Svíþjóð, Nárpes í Finnlandi
og Tönder i Danmörku. Á síð-
astliðnu sumri var haldið vina-
bæjamót í Langesund í Noregi,
er stóð dagana 22.-26. júní.
Héðan frá Akranesi voru að-
eins 4 þátttakendur, Sveinn
Guðmundsson, bankaútibússtj.,
Þorvaldur Þorvaldsson, kenn-
ari, kona hans Ólína Jónsdóttir,
kennari, og Guðmundur Björns
son, kennari. Þátttakendur
hinna bæjanna voru miklu
fleiri, eða 16 frá Vástervik, 15
frá Nárpes og 10 frá Tönder.
Þetta var í annað skipti, sem
ég tók þátt i slíku móti í Lange
sund, hið fyrra sinn sumarið
1951, þá einn héðan frá Akra-
nesi, enda Akurnesingar fyr-
ir skömmu komnir í þennan
félagsskap. Naut ég þar hinn-
ar mestu gestrisni og vinsemd-
ar, sem seint mun fyrnast, enda
hefi ég haft persónulegt sam-
band við nokkra þeirra, er ég
þá kynntist, alla tið síðan.
Ég flaug nú tilóslóar tveim
dögum áður en mótið skyldi
hefjast í Langesund. Á flugvell-
inum tóku á móti mér góðir
vinir, skólastjórahjónin, Anna
og Njáll Guðmundsson, er
stunduðu nám þar í borginni
frá áramótum. Höfðu þau áður
útvegað mér ágætt herbergi í
Studentebyen, sem er rétt utan
við borgina, á fögrum og ró-
egum stað. Er á allan hátt gott
og ódýrt að búa þar, en þessir
stúdentagarðar þar eru hagnýtt
ir til móttöku gesta að sumr-
inu, eins og einnig er gert hér,
en Noregur er eitt eftirsóttasta
ferðamannaland, sem kunnugt
er. — Vilji maður svo komast
inn í borgina, eru strætisvagn-
ar á næstu grösum, og tekur
sú ferð skamman tíma. — Að
sjálfsögðu notaði ég tímann
þarna eftir föngum til að skoða
þessa höfuðborg frænda vorra,
var enda nokkuð kunnugur
þar áður.
Þau skólastjórahjónin höfðu
ætlað að taka þátt í mótinu með
okkur hinum Akurnesingun-
um, en vegna prófa og annarra
anna í skóla þeim, er Njáll
stundaði nám, gat ekki orðið
af því, og þótti okkur það mið-
ur farið.
Frá Osló til Eidanger er 4
tíma ferð með lest, en þaðan
til Langesund eru um 20 km.
Hafði Jac -Lund-Tangen, bæj-
argjaldkeri, sem mest mun
hafa annast undirbúning móts
þessa, sent þangað bíl að sækja
mig, hafði raunar staðið í þeirri
meiningu, að við kæmum allir
Akurnesingarnir með þessari
lest, og voru því bílarnir 2,
sem komu, en það var á mis-
skilningi byggt, því hin þrjú
komu frá Danmörku. Vildi
þannig til, að ég var fyrstur
hinna erlendu gesta á þetta
mót, og hafði því góðan tíma
til að skoða bæinn, sem ekki
virtist hafa mikið breytzt þessi
15 ár, og rifja upp gamlar
minningar, sérstaklega með
hinum óþreytandi áhugamamii
um norræna samvinnu, Jac
Lund-Tangen, sem nú, eins og
fyrir 15 árum, var hinn ágæt-
asti fulltrúi sinnar heimabyggð
Mótsgestir komu allir til
Langesund miðvikudaginn 22.
júní og var opinber móttaka kl.
8 um kvöldið í félagsheimili
bæjarins, þar sem þátttakend-
ur voru boðnir velkomnir og
kynntir fyrir væntanlegum
gestgjöfum. Þar voru einnig
nokkur skemmtiatriði, hljóm-
list, upplestur og kvikmynda-
sýning. Eftir að þar höfðu svo
verið fluttar viðeigandi þakkir,
sem Þorvaldur annaðist fyrir
okkar hönd, fór hver til síns
heima, með sinum gestgjöfum,
enda langt liðið fram á kvöld.
Á föstudag kl. 9 var lagt af
stað í tveim langferðabilum, og
voru karlmenn í öðrum undir
leiðsögn rektors Yngvars Hal-
vorsen, en konur í hinum, og
var fararstjóri þar gestgjafi
minn, frk. Katrine Blikom,
kennari. Skyldu konurnar skoða
Porsgrunns Porselensfabrikh,
og gafst þeim jafnframt kostur
á að eignast þar fagra postulíns
muni með góðu verði. Okkur
körlunum skyldi hinsvegar
sýnd Eidanger Saltpeter-
fabrikh, sem Norsk Hydro hef-
ur reist þar, og er ein af
stærstu áburðarverksmiðjum í
Noregi. Starfsmenn tilheyrandi
þessari verksmiðju eru 5700 og
árlegar launagreiðslur 105
millj. n. kr. enda framleiddir
2 sekkir af áburði á hverjum
3 sekúndum, auk ýmissa ann-
arra efna. Var bæði gaman og
fróðlegt að skoða þetta risa-
vaxna fyrirtæki, og móttökur
allar með sérstökum höfðings-
brag, svo sem frænda vorra er
siður, og sömu sögu höfðu döm-
urnar að segja úr sinni ferð, er
þær komu klyfjaðar hinni fögru
en brothættu framleiðslu er
þeim var sýnd. — Miðhluta
dagsins eyddum við svo við að
skoða ættaróðal Henriks Ibsens
í Venstop í Skien, svo og merki-
legt safn, sem þar hefur verið
komið upp, og hefur að geyma
fjölmargar minjar um skáldið.
Úti fyrri Langesund er und-
ur fögur ey, sem Langey heitir,
og er hún alveg friðuð, nokk-
Akranespresta kall
Akraneskirkja:
Aðfangadag jóla (aftansöngur)
kl. 6.
Jóladag kl. 2.
Annan jóladag (sklmarguðsþjón-
usta kl. 8,30 siðd.
Gamlárskvöld (aftansöngur) kl.
6.
SjúkrahúsiS:
Guðsþjónusta jóladag kl. 4,30
sjðd.
urs konar þjóðgarður. Þar
dvöldum við um kvöldið í dá-
samlegu veðri, sem raunar var
alla mótsdagana, en þessi dag-
ur er svokallaður Sanhte-Hans
dagur, og eru þá kveikt bál víða
á ströndinni og skotið flugeld-
um. Við mötuðumst þar í fögru
skógarrjóðri, einnig var þar stig
inn dans og farið í leiki við
mikinn fögnuð þátttakenda.
Áður höfðum við farið á tveim
bátum í það sem Norðmenn
nefna Skærgárdstur, siglt inn-
an skerja meðfram ströndinni
og að síðustu umhverfis eyna,
en slíkar ferðir eru mjög
skemmtilegar og mikið iðkaðar
bæði í Skandinavíu og Finn-
landi, sérstaklega á hinum svo
nefndu hraðbátum, sem þar eru
svo algengir. -— Heim var ekki
komið fyrr en um miðnætur-
skeið, eftir lærdómsríkan og
ánægjulegan dag.
Föstudaginn 24. júní lögðtnn
við af stað kl. 8,30 í aðal-
ElliheimiliS:
Guðsþjónusta jóladag kl. 8,30
síðd.
Innra-Hólmskirkja:
Annan ■ jóladag kl. 2.
Nýársdag kl. 2.
Saurbœjarprestakall
Hallgrímskirkja i Saurbæ:
Messað á jóladag kl. 2 og gaml-
ársdag kl. 2.
Leirárkirkja:
skemmtiferð mótsins og skyldi
nú ekið upp i Þelamörk, sem
Norðmenn gjarnan nefna
„Ferie og fritidsfylket í hjertet
av Norge“, enda er þar óvið-
Framhald á bls. 7
Falleg mdl-
verkasýning
Hreinn Elíasson listmálari
á Akranesi opnaSi málverka-
sýningu i vinnustofu sinni aS
VíSigerði 3, þann 17. des.
s.l. Stendur sýningin til 30.
des. n.k.
Á sýningunni eru 18 olíu-
málverk og 22 pastel- og
svartlitamyndir. Mörg olíu-
málverkin eru frá nágrenni
Akraness, úr Borgarfirði og
af Snœfeilsnesi. Aðrar mynd-
ir eru ýmist landslagsmyndir
eða skemmtilegar hugmyndir
listamannsins. Eitt olíumál-
verkið er af sjómönnum, og
nefnist þaS: Nótt á sjó. Bjart-
ar og heillandi myndir úr ís-
lenzkri náttúru setja svip sinn
á sýninguna. Hún er falleg
yfirlits og þar er hœgt að
dvelja lengi sér til ánœgju.
Þetta er þriðja sýning
Hreins í eigin sýningarsal.
Áður hélt hann nokkrar
smœrri sýningar. Veruleg
breyting er á listformi hans
frá fyrri sýningum. Abstrakt
myndir eru nœr algerlega
horfnar en myndir úr íslenzkri
náttúru eru mest ráðandi hjá
listamanninum. — Nokkrar
myndir hafa þegar selst. —
Akurnesingar œttu að leggja
leið sína á jólunum að Viði-
gerði 3 og sjá þessa fallegu
sýningu. Það verður ánœgju-
stund.
ar. —
Séð yfir Langesund og Langey.
Messað annan jóladag kl. 2 og
nýársdag kl. 2.