Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
3 1 7
6
5 7 1 6
9 4
5 2 7
2
7 1 3
3 6
9 4 6 3 5 2
3 6
8 9 1 4
2 1
8 2
4 1 7 6
7 3 2 1
3 7
6
2 8 9
6 9
2 5 7
1 9
4
3 7 4 2
7 8
1 6
4 1 2
8 9 2 3
7 1 4 2 9 3 6 8 5
2 5 6 1 8 4 9 7 3
9 3 8 5 6 7 4 1 2
5 9 3 7 2 8 1 6 4
6 4 1 9 3 5 8 2 7
8 7 2 6 4 1 5 3 9
4 2 7 8 5 6 3 9 1
3 8 9 4 1 2 7 5 6
1 6 5 3 7 9 2 4 8
6 9 8 7 5 4 1 3 2
5 3 4 2 8 1 7 6 9
7 2 1 3 9 6 5 8 4
9 6 5 8 4 2 3 1 7
3 1 7 5 6 9 2 4 8
8 4 2 1 3 7 6 9 5
4 7 9 6 1 5 8 2 3
1 5 3 4 2 8 9 7 6
2 8 6 9 7 3 4 5 1
2 7 8 1 9 5 6 4 3
3 5 9 2 4 6 1 7 8
4 6 1 8 3 7 9 2 5
1 9 2 4 5 8 3 6 7
6 4 3 7 1 9 8 5 2
7 8 5 6 2 3 4 1 9
5 3 4 9 7 1 2 8 6
9 2 6 5 8 4 7 3 1
8 1 7 3 6 2 5 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 28. desember,
362. dagur ársins 2009
Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð
þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér
hann og hafið séð hann.“ (Jóh. 14, 7.)
Víkverji er eins og flestir vita af-skaplega þakklátur fyrir allt
sem vel er gert og lítilþægur, kvart-
ar sárasjaldan yfir nokkrum hlut, að
minnsta kosti ekki um jólin. Hann
er hissa á því hvað fáir taka hann til
fyrirmyndar og skilur ekki neitt í
þessu. Oft þakkar hann Skap-
aranum fyrir að vera ekki eins og
þetta fólk.
x x x
Stundum rekst hann á fólk semkvartar yfir jóladagskrá rík-
issjónvarpsins. Það gerðist í gær, en
óneitanlega gladdi það hjarta Vík-
verja að vinkona hans, sem sagðist
ekki hafa fundið neitt sem sig lang-
aði að horfa á, sagðist samt vera
þakklát.
„Í staðinn hef ég haft nægan tíma
til að lesa allar bækurnar sem ég
fékk í jólagjöf. Hver veit, kannski
tekst sjónvarpinu að gera okkur aft-
ur að raunverulegri bókaþjóð,“
sagði hún og var býsna sátt.
x x x
Hvað sem því líður var úr nóguað velja í bókaflóðinu. Saga
Snorra Sturlusonar er þykkt og
mikið rit en áreiðanlega vel unnin.
Höfundinum tekst vonandi að koma
því vel til skila að íslensku höfðing-
arnir á 13. öld voru ekki einhverjir
afdalakarlar með tað í skegginu og
eilífa sultardropa í nefinu. Þetta
voru heimsmenn sem þekktu ágæt-
lega klassískar bókmenntir og
höfðu kynnst straumum samtímans.
Þeir voru margir hirðmenn Nor-
egskonungs og hefðu ekki fengið
þann heiður ef þeir hefðu bara verið
einhverjir óuppdregnir mörlandar.
x x x
Víkverji las nýlega 50 ára gamlarfrásagnir nokkurra afkomenda
þeirra Íslendinga sem fluttu vestur
um haf á seinni hluta 19. aldar. Og
lýsingin á Klettafjallaskáldinu
Stephan G. Stephanssyni kallar
ekki bara fram mynd af fátækum
bónda með litla skólamenntun held-
ur glæstum höfðingja sem réð yfir
jafn miklum ef ekki enn meiri and-
ans auði en Snorri karlinn.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 berja, 4 skipa
fyrir, 7 falla í dropum, 8
mjólkurafurð, 9 brún, 11
umrót, 13 sjávardýrið, 14
gretta sig, 15 himna, 17
úrkoma, 20 púka, 22
skoðunar, 23 stórs nagla,
24 annríki, 25 peningar.
Lóðrétt | 1 hörfar, 2 ein-
kennis, 3 mjög, 4 bakki,
5 óglatt, 6 flýtirinn, 10
litlar öldur, 12 ætt, 13
forfeður, 15 batna, 16
spilið, 18 bál, 19 þefar af,
20 hæðir, 21 sálar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 andhverfa, 8 gutla, 9 aflar, 10 lin, 11 spils, 13
staka, 15 hross, 18 spaði, 21 kát, 22 skapa, 23 angur, 24
rauðaldin.
Lóðrétt: 2 nýtni, 3 hvals, 4 efans, 5 falla, 6 agns, 7 hráa,
12 las, 14 tap, 15 hass, 16 okana, 17 skarð, 16 stagl, 19
angri, 20 iðra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 c6 5.
Bg5 dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5 9.
Rxg5 hxg5 10. Bxg5 Rbd7 11. g3 Hg8
12. h4 Hxg5 13. hxg5 Rd5 14. g6 fxg6
15. Dg4 De7 16. Bg2 R7b6 17. Be4 Kd8
18. Dxg6 Bd7 19. Hh7 Db4 20. Hb1
Rxc3 21. bxc3 Dxc3+ 22. Ke2 Da3 23.
Hbh1 Db2+ 24. Kf3 Dc3+ 25. Ke2
Db2+ 26. Kf3 Dxd4 27. Df6+ Kc7 28.
Dxe6 Kb8 29. Df6 Bc5 30. H1h2 c3
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Franski
stórmeistarinn Etienne Bacrot (2700)
hafði hvítt gegn indverska kollega sín-
um Krishnan Sasikiran (2664). 31.
Hxd7! Rxd7 32. Hh8+ Bf8 33. Hxf8+!
Rxf8 34. Dxc6 Rd7 35. Db7 mát.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hávær þögn.
Norður
♠KD1094
♥G6
♦ÁG3
♣G105
Vestur Austur
♠8652 ♠Á7
♥ÁD984 ♥1072
♦8 ♦D964
♣932 ♣D876
Suður
♠G3
♥K53
♦K10752
♣ÁK4
Suður spilar 3G.
Sem gjafari opnar suður á 1♦, fær
svar á 1♠, segir 1G og norður hækkar í
3G. Blátt áfram sagnir og útspilið er
♥8 – fjórða hæsta. Sagnhafi reynir
gosann og hann heldur.
Víst er freistandi að fara strax í
spaðann, enda spilið öruggt ef ♠Á er í
vestur. En þá ber að hafa í huga að
vestur sagði EKKI 1♥ við tígulopn-
uninni. Sú þögn hans er æpandi. Með
♠Á til hliðar við góðan fimmlit í hjarta
hefði vestur vafalítið stungið inn sögn.
Og varla er útspilið frá fjórlit, því
ÁD98 eða ÁD108 eru ekki litir sem
þarf að fría.
Að svo mæltu er vinningsleiðin
næstum þvinguð. Sagnhafi svínar fyrir
♣D og spilar svo ♦G úr borði. Þannig
má ráða við drottningu fjórðu í austur
ef einspil vesturs er ♦8 eða ♦9.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert undir þrýstingi með að taka
ákvörðun í vissum aðstæðum. Þú heillast
af vini um stund, án þess að framhald
verði á.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert í náðinni þessa dagana, en
mátt auðvitað gá að þér, því skjótt skipast
veður í lofti. Reyndu að taka hlutunum
með ró.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Eitthvað á eftir að koma þér svo
á óvart að þú munt undrast þín eigin við-
brögð. Aðrir ganga til liðs við þig við að
lagfæra það sem er augljóslega rangt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert hrókur alls fagnaðar um
þessar mundir og færð hvert heimboðið á
fætur öðru. Njóttu kvöldsins með góðu
fólki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Settu þér ákveðin markmið til að
keppa að bæði í leik og starfi. Ættingjar
reyna á taugarnar en sýndu þolinmæði.
Hún borgar sig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Notaðu tækifærið og gakktu frá
samningum, biddu um launahækkun eða
aukna ábyrgð í vinnunni. Reyndu að
hugsa áður en þú talar, sérstaklega í sam-
skiptum við systkini þín og nágranna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það eru margar hliðar á sama máli og
þú kemst ekki hjá því að kynna þér þær ef
þú vilt komast að réttlátri niðurstöðu.
Mundu að gera líka kröfur til annarra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Taktu fram listann yfir stað-
ina sem þig langar að heimsækja „ein-
hvern tímann í framtíðinni“. Leyfðu þér
að slaka á og eiga ánægjulega kvöldstund
með þínum nánustu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Kannaðu verð og gæði áður en
þú festir kaup á nýjum hlut. Haltu ótrauð/
ur áfram, þú finnur lykilinn að hamingj-
unni á ólíklegustu stöðum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Samtöl við nána vini gætu tekið
óvænta stefnu í dag. Vinur tekur spor í
rétta átt. Óvænt kveðja berst í pósti.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nýjar aðstæður laða það besta
fram í þér en magna upp viðkvæmni þína
að sama skapi. Sanngirni er lykilorðið.
Hugsaðu málið vandlega.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Nú verður ekki lengur undan því
vikist að setja sér markmið til framtíð-
arinnar. Reyndu bara að hafa þau
raunsæ. Fjólublár kemur sterkur inn.
Stjörnuspá
28. desember 1871
Skólapiltar í Reykjavík sýndu
leikritið Nýársnóttina eftir
Indriða Einarsson í fyrsta
sinn. Leikritið var síðar sýnt
við vígslu Þjóðleikhússins.
28. desember 1894
Ofsaveður gerði af vestri með
allmiklum skaða. Mikið sjáv-
arflóð og hafrót var í Reykja-
vík, sjór gekk upp í Hafn-
arstræti og skemmdir urðu á
húsum og skipum. Loftþrýst-
ingur féll um meira en 60
millibör á einum sólarhring,
sem er sjaldgæft.
28. desember 1964
Samgöngutruflanir urðu á
höfuðborgarsvæðinu vegna
snjókomu og hvassviðris. Lög-
reglan taldi þetta versta
ástandið í mörg ár. Daginn
eftir urðu sextíu ökumenn að
yfirgefa bíla sína á leiðinni
milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar.
28. desember 1967
Borgarspítalinn í Fossvogi var
tekinn í notkun þegar fyrsti
sjúklingurinn var lagður inn á
lyfjadeildina. Skurðdeild var
opnuð árið eftir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Dagmar Árna-
dóttir, Skiphóli í
Garði, verður
áttatíu og fimm
ára 30. desember
næstkomandi. Af
því tilefni tekur
hún á móti gest-
um á heimili sínu
eftir kl. 17 á af-
mælisdaginn.
85 ára
STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMINN Birta Aradóttir
fagnar tvítugsafmæli sínu með því að snæða í
kvöld á góðu veitingahúsi með fjölskyldunni. Birta
segir það hafa sína kosti og galla að eiga afmæli
svo stuttu eftir jólahátíðina. Það getur til dæmis
verið nokkuð vandasamt að blása til veislu enda
margir bundnir við mannamót tengd jólum, en
hins vegar geti verið afskaplega gaman að sjá
hugmyndauðgina í gjafavali, sem á stundum eru í
formi handskrifaðra gjafabréfa. „Ég hef oft feng-
ið gjafakort um hvað ég muni fá. Eitt sinn fékk ég
kort sem á stóð að ég fengi skauta þegar búðir
yrðu opnaðar að nýju,“ segir Birta.
Fjölskylda Birtu hefur einnig gjarnan skroppið í jólafrí til útlanda
yfir hátíðirnar og því fylgir að sjálfsögðu að halda upp á afmælið á
framandi slóðum. Einna eftirminnilegastur var afmælisdagurinn fyr-
ir þremur árum þegar Birta varð sautján ára. „Fjölskyldan fór þá í
jólafrí til Ítalíu og á afmælisdaginn skoðuðum við Péturskirkjuna,
dómkirkju páfans, auk safna Vatíkansins.“
Eins og fyrr segir nemur Birta stjórnmálafræði, og lauk hún fyrstu
önn við Háskóla Íslands í desember með glans. andri@mbl.is
Birta Aradóttir er tvítug í dag
Fær handskrifuð gjafabréf
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is