Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið) Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00 Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00 Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt. Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00 Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00 Vinsælasti söngleikur ársins - sýningum lýkur í janúar Jesús litli (Litla svið) Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00 Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar. Harry og Heimir (Litla sviðið) Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00 Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00 Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00 Lau 16/1 kl. 22:00 Sun 24/1 kl. 20:00 Rautt brennur fyrir (Nýja svið) Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des Djúpið (Litla svið/Nýja svið) Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta sýn Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé. Fjölskyldan, stórbrotin leikhúsveisla GJAFAKORT ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Einstakt tilboð til jóla ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Brennuvargarnir (Stóra sviðið) Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Nýjar sýningar komnar í sölu! Oliver! (Stóra sviðið) Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Fös 29/1 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 15:00 Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 30/1 kl. 19:00 Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. Lau 6/2 kl. 19:00 Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. Gjafakort á tilboðsverði til jóla! Sindri silfurfiskur (Kúlan) Þri 29/12 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 15:00 Sun 10/1 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00 Lau 9/1 kl. 15:00 Miðaverð aðeins 1500 kr. Ókyrrð (Kassinn) Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00 Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar! Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k. Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00 Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00 Forsala er hafin Það væri lítilsvirðing við velupplýsta – og vel lesna –lesendur Morgunblaðsinsað byrja þennan leikdóm á því að rekja söguna um Oliver Twist, þann hjartahreina dreng sem Charles Dickens skapaði svo snemma sem árið 1837. Allir vita að Oliver litli lendir munaðarlaus og hrakinn í höndunum á vondu fólki og enn fleira vondu fólki uns skárri persónur koma honum til bjargar og að lokum í heila höfn – en þá hafa líka miklar hörmungar gengið yfir; almenn mannvonska, manndráp og annar voði. En, líka glóir á gim- steina í mannsorpinu – sem betur fer, fyrir Oliver! Það er í mikið ráðist þegar söng- leikurinn Oliver! er sviðsettur og það sýnir svikalausan metnað að ráðast í þetta barnmarga sjónarspil. Sjálfsagt fitja nú einhverjir upp á trýnið enda fjölmargir þannig inn- réttaðir að þeim finnst ekki mikið bragð að barnamenningu (nema í ákveðnum hillum, neðarlega) og allra síst ef hún hefur stimpil frá West End. En sá sem hér hefur orð- ið gefur ekkert fyrir slíkt og hrópar húrra fyrir Oliver! Þjóðleikhússins á jólum árið 2009! Selma Björnsdóttir leikstýrir og sá ég ekki mikla hnökra á hennar vinnu, dansarnir sem Aletta Collins semur renna ljúflega undir öruggri stjórn leikstjórans. Hópatriði eru flott og full af skemmtilegum hug- myndum og aginn og stjórnin á öll- um litlu (mögulegu) senuþjófunum til fyrirmyndar. Það var helst að framsögn rynni til hér og þar en þar getur líka frumsýningarstreitu ver- ið um að kenna og var þetta ekki stórt vandamál. Ég skrifa einnig á frumsýningarspennu að einstaka leikarar voru nokkurn tíma að koma sér í gang. En kannski hefði leik- stjóri mátt vinna betur maður á mann til að skerpa sumar smærri rullurnar. Tónlistarstjórn er í öruggum höndum Jóhanns G. Jóhannssonar, músíkin var flott úr gryfjunni og tónaflóðið sagði manni að hér væru á ferð ekta tónlistarmenn að spila alvöru tónlist. Búningar Maríu Ólafsdóttur eru sögulega réttir, fallegir og negla sviðið niður í tíma. Litir segja sitt: Hörmungar fátæktarheimilisins eru grátóna garmar, Bill Sikes er kald- ur leðurklæddur töffari, á meðan Nansý er rauðleit hlýjan sjálf. Vytautas Narbutas fer létt með að taka okkur til London þessa tíma, sviðið er vel nýtt. Og af því að London er eins og London er, þá er öldungis nóg að hafa múrsteininn kaldan og bogadreginn og múrstein- inn hlýjan og bogadreginn til skiptis – það er London. Og svo þarf auðvit- að smá dekórasjón svo sem bækur og bjórtunnur á réttum stöðum, myndir af Thames og seglskipi frá Onedin skipafélaginu. Narbutas ætlar sér ekki þá dul að gera Lond- on flóknari við Hverfisgötuna en hún er í raun og veru – það er vel. Lýsing Lárusar Björnssonar og Ólafs Ágústs er mjög vel heppnuð, hún fylgir eftir sögunni – hér er ekki reynt að gera neinar gloríur enda myndi það ekki passa. Engar athugasemdir hef ég við þýðingu Þórarins Eldjárns og Jó- hanns G. Jóhannssonar, alltént sker ekkert í eyru; textinn er þýður og ís- lenskan góð. Tveir drengir skipta með sér hlut- verki Olivers, á frumsýningu var það Ari Ólafsson sem lék. Ari fór ljómandi vel með sitt og var hrein unun að hlusta á hann syngja. Reyndar býður hlutverk Olivers ekki upp á stórfengleg tilþrif í leik – hann er góði gæinn, þessi sem lífs- reyndir leikarar forðast. Sömuleiðis eru tveir strákar um að leika Hrapp, Tryggvi Björnsson var á sviðinu á frumsýningunni. Tryggvi var góður, hinn kotroskni bragðarefur lifnaði í meðförum hans – og eitthvað í augunum á leik- aranum unga sagði mér að hann hefði ekki alltaf þurft að grafa djúpt eftir prakkaraskapnum. Eggert Þorleifsson er Fagin. Mér fannst Eggert nokkuð ryðgaður í sinni fyrstu senu en svo liðkaðist það allt og hann sótti jafnt og þétt í sig veðrið og hafði að lokum unnið hug og hjörtu frumsýningargesta. Og ég er svo illa innrættur að mér var farið að þykja vænt um gyðing- inn. Bergþór Pálsson og Þórunn Lár- usdóttir voru líkt og Eggert nokkuð stíf í byrjun en svo lagaðist það, Bergþór er auðvitað frábær söngv- ari og ágætur leikari. Þórunn var best þegar gribbugangurinn var sem mestur og ágirndin tærust. Herra Sowberry útfararstjóri var í góðum höndum Friðriks Friðriks- sonar sem kom mér á óvart með ágætum söng. Eitthvað fannst mér vanta í túlkun Estherar Talíu Casey sem lék eiginkonu útfararstjórans, nógur var pilsaþyturinn en það er enn meiri óþverri í þessari kellingu! Álfrún Örnólfsdóttir lék dóttur þeirra og Nóa Clypole lék Ívar Helgason, tvö smá hlutverk sem fengu þokkalega meðferð. Arnar Jónsson slær á kunnuglega strengi sem Brunlow – átakalaust dregur Arnar upp mynd af traust- um manni úr efri stétt. Ragnheiður Steindórsdóttir leikur þjónustu hans og fer vel með lítið, skapar hlýju úr litlu. Það er list. Aðrir leikarar í smáum hlut- verkum fara vel með sitt, Val Frey Einarssyni brá fyrir sem kráareig- anda og Lilja Guðrún er hér í hlut- verki Sallyar sem geymir svarið um uppruna Olivers, þau voru bæði sannfærandi. Sömuleiðis Edda Arn- ljótsdóttir og Baldur Trausti. Ólöf Jara Skagfjörð er efni, hún leikur Betu vinkonu Nansýar og gerir vel. Í heildina verður þó að segjast að flest allar þessar „smáu“ rullur hefði leikstjórinn mátt fægja betur. Í þeim öllum býr ögn meira. Stjörnur þessarar sýningar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir Sæmundsson. Ég hafði efasemdir þegar ég sá að Þórir átti að leika Bill – en þær efasemdir rak hann öfugar ofan í mig við fyrstu innkomu. Ógn- in og óþverrahátturinn lak af hon- um, hann söng vel og allt hans fas og framganga var með hreinum ágæt- um. Þó verð ég að geta þess að hundleysi hans pirraði mig! En, auðvitað á Þórir ekki sök á því. Vig- dís Hrefna fór á kostum sem Nansý – öfugt við Þóri þá hafði ég engar efasemdir um Vigdísi. Því varð hún að standa sig – ég hafði væntingar (sem er nú alltaf hálf djöfullegt). En, Vigdís Hrefna stóð undir þeim öllum og gott betur – fimm stjörnu frammistaða hjá henni! Ferð á Oliver! er fín byrjun á bók- menntalegu uppeldi; hér er Dickens vissulega klipptur og skorinn. En eftir leikhúsferð má svo kaupa bók- ina í ágætri þýðingu, læsa tölvuna inni í skáp, ná á heimilinu upp her- aganum hennar Selmu og hefja lest- urinn. Það getur bara orðið til góðs. En ef þetta gengur ekki – nú, þá bara aftur á Oliver! Morgunblaðið/Eggert Húrra! Leikarar í helstu hlutverkum í Óliver! í lokin. Stjörnur þessarar sýningar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir Sæmundsson. Fimm stjörnu frammistaða hjá Vigdísi Hrefnu, segir leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins. Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið Oliver!, Lionel Bart, byggt á sögunni Oliver Twist eftir Charles Dickens. bbbbn Frumsýning 26. desember 2009. Þýðing: Þórarinn Eldjárn. Þýðing söngtexta: Jóhann G. Jóhannsson Leikstjórn: Selma Björnsdóttir. Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson. Danshöfundur: Aletta Collins. Búningar: María Ólafsdóttir. Leikmynd og myndvinnsla: Vytautas Narbutas. Lýsing: Lárus Björnsson og Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóðstjórn: Ísleifur Birgisson og Tómas Freyr Hjaltason. Sýningastjóri: Kristín Hauksdóttir. GUÐMUNDUR S. BRYNJÓLFSSON LEIKLIST Oliver! !!!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.