Morgunblaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00
Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - sýningum lýkur í janúar
Jesús litli (Litla svið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00
Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Lau 16/1 kl. 22:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn
Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta
sýn
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Fjölskyldan, stórbrotin leikhúsveisla
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Fös 29/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 15:00
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 16/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas.
Gjafakort á tilboðsverði til jóla!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Þri 29/12 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 15:00 Sun 10/1 kl. 15:00
Mið 30/12 kl. 15:00 Lau 9/1 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Ókyrrð (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00
Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
Það væri lítilsvirðing við velupplýsta – og vel lesna –lesendur Morgunblaðsinsað byrja þennan leikdóm á
því að rekja söguna um Oliver
Twist, þann hjartahreina dreng sem
Charles Dickens skapaði svo
snemma sem árið 1837. Allir vita að
Oliver litli lendir munaðarlaus og
hrakinn í höndunum á vondu fólki
og enn fleira vondu fólki uns skárri
persónur koma honum til bjargar og
að lokum í heila höfn – en þá hafa
líka miklar hörmungar gengið yfir;
almenn mannvonska, manndráp og
annar voði. En, líka glóir á gim-
steina í mannsorpinu – sem betur
fer, fyrir Oliver!
Það er í mikið ráðist þegar söng-
leikurinn Oliver! er sviðsettur og
það sýnir svikalausan metnað að
ráðast í þetta barnmarga sjónarspil.
Sjálfsagt fitja nú einhverjir upp á
trýnið enda fjölmargir þannig inn-
réttaðir að þeim finnst ekki mikið
bragð að barnamenningu (nema í
ákveðnum hillum, neðarlega) og
allra síst ef hún hefur stimpil frá
West End. En sá sem hér hefur orð-
ið gefur ekkert fyrir slíkt og hrópar
húrra fyrir Oliver! Þjóðleikhússins á
jólum árið 2009!
Selma Björnsdóttir leikstýrir og
sá ég ekki mikla hnökra á hennar
vinnu, dansarnir sem Aletta Collins
semur renna ljúflega undir öruggri
stjórn leikstjórans. Hópatriði eru
flott og full af skemmtilegum hug-
myndum og aginn og stjórnin á öll-
um litlu (mögulegu) senuþjófunum
til fyrirmyndar. Það var helst að
framsögn rynni til hér og þar en þar
getur líka frumsýningarstreitu ver-
ið um að kenna og var þetta ekki
stórt vandamál. Ég skrifa einnig á
frumsýningarspennu að einstaka
leikarar voru nokkurn tíma að koma
sér í gang. En kannski hefði leik-
stjóri mátt vinna betur maður á
mann til að skerpa sumar smærri
rullurnar.
Tónlistarstjórn er í öruggum
höndum Jóhanns G. Jóhannssonar,
músíkin var flott úr gryfjunni og
tónaflóðið sagði manni að hér væru
á ferð ekta tónlistarmenn að spila
alvöru tónlist.
Búningar Maríu Ólafsdóttur eru
sögulega réttir, fallegir og negla
sviðið niður í tíma. Litir segja sitt:
Hörmungar fátæktarheimilisins eru
grátóna garmar, Bill Sikes er kald-
ur leðurklæddur töffari, á meðan
Nansý er rauðleit hlýjan sjálf.
Vytautas Narbutas fer létt með
að taka okkur til London þessa
tíma, sviðið er vel nýtt. Og af því að
London er eins og London er, þá er
öldungis nóg að hafa múrsteininn
kaldan og bogadreginn og múrstein-
inn hlýjan og bogadreginn til skiptis
– það er London. Og svo þarf auðvit-
að smá dekórasjón svo sem bækur
og bjórtunnur á réttum stöðum,
myndir af Thames og seglskipi frá
Onedin skipafélaginu. Narbutas
ætlar sér ekki þá dul að gera Lond-
on flóknari við Hverfisgötuna en
hún er í raun og veru – það er vel.
Lýsing Lárusar Björnssonar og
Ólafs Ágústs er mjög vel heppnuð,
hún fylgir eftir sögunni – hér er ekki
reynt að gera neinar gloríur enda
myndi það ekki passa.
Engar athugasemdir hef ég við
þýðingu Þórarins Eldjárns og Jó-
hanns G. Jóhannssonar, alltént sker
ekkert í eyru; textinn er þýður og ís-
lenskan góð.
Tveir drengir skipta með sér hlut-
verki Olivers, á frumsýningu var
það Ari Ólafsson sem lék. Ari fór
ljómandi vel með sitt og var hrein
unun að hlusta á hann syngja.
Reyndar býður hlutverk Olivers
ekki upp á stórfengleg tilþrif í leik –
hann er góði gæinn, þessi sem lífs-
reyndir leikarar forðast.
Sömuleiðis eru tveir strákar um
að leika Hrapp, Tryggvi Björnsson
var á sviðinu á frumsýningunni.
Tryggvi var góður, hinn kotroskni
bragðarefur lifnaði í meðförum hans
– og eitthvað í augunum á leik-
aranum unga sagði mér að hann
hefði ekki alltaf þurft að grafa djúpt
eftir prakkaraskapnum.
Eggert Þorleifsson er Fagin. Mér
fannst Eggert nokkuð ryðgaður í
sinni fyrstu senu en svo liðkaðist
það allt og hann sótti jafnt og þétt í
sig veðrið og hafði að lokum unnið
hug og hjörtu frumsýningargesta.
Og ég er svo illa innrættur að mér
var farið að þykja vænt um gyðing-
inn.
Bergþór Pálsson og Þórunn Lár-
usdóttir voru líkt og Eggert nokkuð
stíf í byrjun en svo lagaðist það,
Bergþór er auðvitað frábær söngv-
ari og ágætur leikari. Þórunn var
best þegar gribbugangurinn var
sem mestur og ágirndin tærust.
Herra Sowberry útfararstjóri var
í góðum höndum Friðriks Friðriks-
sonar sem kom mér á óvart með
ágætum söng. Eitthvað fannst mér
vanta í túlkun Estherar Talíu Casey
sem lék eiginkonu útfararstjórans,
nógur var pilsaþyturinn en það er
enn meiri óþverri í þessari kellingu!
Álfrún Örnólfsdóttir lék dóttur
þeirra og Nóa Clypole lék Ívar
Helgason, tvö smá hlutverk sem
fengu þokkalega meðferð.
Arnar Jónsson slær á kunnuglega
strengi sem Brunlow – átakalaust
dregur Arnar upp mynd af traust-
um manni úr efri stétt. Ragnheiður
Steindórsdóttir leikur þjónustu
hans og fer vel með lítið, skapar
hlýju úr litlu. Það er list.
Aðrir leikarar í smáum hlut-
verkum fara vel með sitt, Val Frey
Einarssyni brá fyrir sem kráareig-
anda og Lilja Guðrún er hér í hlut-
verki Sallyar sem geymir svarið um
uppruna Olivers, þau voru bæði
sannfærandi. Sömuleiðis Edda Arn-
ljótsdóttir og Baldur Trausti. Ólöf
Jara Skagfjörð er efni, hún leikur
Betu vinkonu Nansýar og gerir vel.
Í heildina verður þó að segjast að
flest allar þessar „smáu“ rullur
hefði leikstjórinn mátt fægja betur.
Í þeim öllum býr ögn meira.
Stjörnur þessarar sýningar eru
Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir
Sæmundsson. Ég hafði efasemdir
þegar ég sá að Þórir átti að leika Bill
– en þær efasemdir rak hann öfugar
ofan í mig við fyrstu innkomu. Ógn-
in og óþverrahátturinn lak af hon-
um, hann söng vel og allt hans fas og
framganga var með hreinum ágæt-
um. Þó verð ég að geta þess að
hundleysi hans pirraði mig! En,
auðvitað á Þórir ekki sök á því. Vig-
dís Hrefna fór á kostum sem Nansý
– öfugt við Þóri þá hafði ég engar
efasemdir um Vigdísi. Því varð hún
að standa sig – ég hafði væntingar
(sem er nú alltaf hálf djöfullegt).
En, Vigdís Hrefna stóð undir þeim
öllum og gott betur – fimm stjörnu
frammistaða hjá henni!
Ferð á Oliver! er fín byrjun á bók-
menntalegu uppeldi; hér er Dickens
vissulega klipptur og skorinn. En
eftir leikhúsferð má svo kaupa bók-
ina í ágætri þýðingu, læsa tölvuna
inni í skáp, ná á heimilinu upp her-
aganum hennar Selmu og hefja lest-
urinn. Það getur bara orðið til góðs.
En ef þetta gengur ekki – nú, þá
bara aftur á Oliver!
Morgunblaðið/Eggert
Húrra! Leikarar í helstu hlutverkum í Óliver! í lokin. Stjörnur þessarar sýningar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir og
Þórir Sæmundsson. Fimm stjörnu frammistaða hjá Vigdísi Hrefnu, segir leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins.
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið
Oliver!, Lionel Bart, byggt á sögunni
Oliver Twist eftir Charles Dickens.
bbbbn
Frumsýning 26. desember 2009.
Þýðing: Þórarinn Eldjárn.
Þýðing söngtexta: Jóhann G. Jóhannsson
Leikstjórn: Selma Björnsdóttir.
Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson.
Danshöfundur: Aletta Collins.
Búningar: María Ólafsdóttir.
Leikmynd og myndvinnsla: Vytautas
Narbutas.
Lýsing: Lárus Björnsson og Ólafur Ágúst
Stefánsson.
Hljóðstjórn: Ísleifur Birgisson og Tómas
Freyr Hjaltason.
Sýningastjóri: Kristín Hauksdóttir.
GUÐMUNDUR S.
BRYNJÓLFSSON
LEIKLIST
Oliver! !!!!