Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
Jón ArnórStefánsson
skoraði 10 stig og
tók 2 fráköst fyrir
lið Granada þeg-
ar liðið tapaði
fyrir Laboral,
85:79, í spænsku
1. deildinni í
körfuknattleik í
gærkvöld. Granada er í 11. sæti
deildarinnar. Laboral er í öðru sæt-
inu en Barcelona trónir í toppsæt-
inu.
Jón Ingi Sigurðsson, fyrirliðiMammúta og íslenska landsliðs-
ins, er krullumaður ársins 2009.
Þetta er í annað sinn sem Jón Ingi er
valinn krullumaður ársins í annað
sinn en hann hlaut einnig þessa út-
nefningu 2005.
Roy Hodgson knattspyrnustjórienska úrvalsdeildarliðsins Ful-
ham hefur skrifað undir nýjan eins
árs samning við Lundúnaliðið.
Hodgson tók við stjórn liðsins í des-
ember 2007 og undir hans stjórn
náði liðið sínum besta árangri í úr-
valsdeildinni á síðustu leiktíð þegar
það endaði í áttunda sæti og
tryggði sér keppniréttinn í Evr-
ópudeild UEFA. Fulham hefur
haldið áfram að gera góða hluti á
yfirstandandi tímabilið en það er í
9. sæti úrvalsdeildarinnar og er
komið áfram í 32-liða úrslit Evr-
ópudeildar UEFA.
Þýskir fjölmiðlar telja öruggt aðþýski landsliðsmaðurinn
Franck Ribery yfirgefi Bayern
München næsta sumar og gangi til
liðs við Real Madrid, ári áður en
samningur hans við Bayern rennur
út. Real Madrid mun greiða 55 millj-
ónir evra fyrir Ribery sem jafngildir
tæplega 10 milljörðum íslenskra
króna. Samningar á milli forráða-
manna félaga um félagaskiptin eru
sagðir hafa verið ákveðnir í ágúst
þegar Bayern München fékk í sínar
raðir hinn hollenska Arjen Robben
frá Real Madrid í sumar.
Glen Johnsonhægri bak-
vörður Liverpool-
liðsins verður frá
keppni næstu vik-
urnar vegna
meiðsla á hné
sem hann varð
fyrir í sigri Liver-
pool gegn Aston
Villa í fyrrakvöld. Við skoðun í gær
kom í ljós rifa í liðbandi í hægra hné
leikmannsins sem þýðir að hann
verður að taka sér frí frá knatt-
spyrnuiðkun næstu misserin.
Gísli Kristjánsson og félagar íNordsjælland töpuðu í gær-
kvöld gegn Skjern, 27:25 á útivelli í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik. Gísli átti fínan leik á línunni og
skoraði 6 mörk og þá var hann fastur
fyrir í vörninni en allt kom fyrir ekki.
Fólk folk@mbl.is
HELENA og liðsfélagar hennar í
TCU hafa sett sér það markmið að
sigra í Mountain West-deildinni en
keppnisfyrirkomulagið í bandaríska
háskólaboltanum er svipað flókið og
Icesave-deilan.
„Jú þetta er nokkuð flókið kerfi en í
stuttu máli þá skipta allir leikir máli
þrátt fyrir að þeir séu ekki í deildar-
keppninni. Í lok febrúar ráðast úrslitin
í deildarkeppninni og ef okkur tekst að
sigra í okkar deild komumst við sjálf-
krafa í NCAA-úrslitakeppnina. Ef ekki
þá er sérstök nefnd sem metur árang-
ur liðanna. Og þá skiptir máli að vera
með gott vinningshlutfall,“ sagði Hel-
ena í gær, nýbúin á morgunæfingu.
Frábær þjálfari
Landsliðskonan er ánægð með lífið
og tilveruna í litla einkaskólanum eins
og hún orðar það. Nemendur í TCU
eru 8.500, en til samanburðar eru íbú-
ar í Árborg um 8.000. „Ég sé ekki eftir
því að hafa valið TCU. Skólinn er góð-
ur og mér líður vel. Þjálfarinn, Brian
Ostermann, er góður og við getum
rætt um hlutina án þess að hann sé að
öskra á mann eins og margir þjálfarar
gera. Mér líður alltaf betur eftir að
hafa rætt við þjálfarann og hann kenn-
ir manni eitthvað nýtt á hverjum ein-
asta degi.“
Helena hefur skorað tæplega 13 stig
að meðaltali í leik það sem af er
keppnistímabilinu. Að venju er hún of-
arlega á flestum sviðum tölfræðinnar.
Helena tekur sjö fráköst að meðaltali í
leik og gefur rúmlega fimm stoðsend-
ingar. Og það er mjög sérstakt að Hel-
ena leikur yfirleitt í tveimur mjög ólík-
um stöðum á vellinum í hverjum
einasta leik.
„Ég byrja í stöðu framherja og leik
undir körfunni í svona 30% í hverjum
leik. Í síðari hálfleik tek ég síðan við
leikstjórnandahlutverkinu og klára yf-
irleitt leikina í þeirri stöðu. Mér
finnst þetta gott fyrirkomulag. Í
liðinu er bráðefnilegur leikstjórn-
andi sem er frábær varnarmaður.
Hún byrjar leikina í þessari
stöðu og ég tek síðan við í síð-
ari hálfleik. Það er mun meira
jafnvægi í liðinu í ár en í
fyrra. Við erum með sterkari
hóp og stigaskorunin dreifist
því meira en í fyrra, sem er
gott fyrir okkur sem lið.“
Atvinnumennska
er markmiðið
Eins og áður hefur kom-
ið fram hefur Helena sett
sér það markmið að komast
í atvinnumennsku þegar hún
hefur lokið námi. Þegar Helena
var spurð að því hvaða nám hún
stundaði átti hún erfitt með að út-
skýra það á íslensku. „Ég held að
það sé best að segja að þetta séu fé-
lagsvísindi með stjórnunarívafi. Þetta
er mjög fjölbreytt og skemmtilegt
nám. Ég vona að mér standi til boða
að leika körfubolta þegar náminu lýk-
ur. Lið í Evrópu hafa sýnt mér áhuga
frá því ég var unglingur en ég vona að
WNBA-liðin viti af mér þegar kemur
að háskólavalinu sumarið 2011. Flestir
leikmenn flakka á milli Evrópu og
Bandaríkjana. Deildirnar í Evrópu eru
í gangi yfir veturinn og WNBA tekur
við yfir sumarið. Þannig er hægt að
láta þetta ganga upp en peningarnir
sem eru í boði í atvinnumennskunni
fyrir konur eru ekki eins miklir og hjá
körlunum.“
Atvinnudeild kvenna fer fram yfir
sumartímann í Bandaríkjunum og er
deildin „afurð“ NBA-deildarinnar.
„Þessi deild fær æ meiri athygli og
það eru leikmenn í henni sem flestir
Bandaríkjamenn vita hverjir eru.
Landsþekkt nöfn. Mér finnst einnig
áhuginn á kvennakörfunni í háskól-
unum fara vaxandi. Sjónvarpsstöðv-
arnar sýna marga leiki og t.d. hjá okk-
ur mæta um 4.000 áhorfendur á
heimaleiki. Og þar er meirihlutinn
eldra fólk, sem okkur þykir frekar
fyndið en jafnframt skemmtilegt.“
Heiður að vera á
meðal 10 efstu
Helena er ein af 10 efstu í kjörinu á
Íþróttamanni ársins 2009 og er þetta í
fyrsta sinn sem hún kemst í hóp 10
efstu. „Ég sá þetta þegar ég var heima
á Íslandi um jólin. Mér finnst þetta
mikill heiður og það er gaman að vita
til þess að það skuli einhverjir vera að
spá í það sem maður er að gera hérna
úti,“ sagði landsliðskonan Helena
Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í
körfuknattleik, verður í eldlínunni í dag
þegar lið hennar TCU mætir Houston í
bandarísku háskóladeildinni. Helena seg-
ir að Bandaríkjamenn séu ekki í eins
miklum „áramótaham“ og Íslendingar.
Flugeldasýning verði í boði á háskóla-
svæðinu og allt eins líklegt að leikmenn
TCU verði þreyttir eftir átta tíma ferða-
lag eftir leikinn gegn Houston. Helena er
á þriðja ári sínu hjá TCU þar sem hún er
í aðalhlutverki en markmið hennar er að
komast í atvinnumennsku eftir háskóla-
námið.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Helena Sverrisdóttir kann vel við sig í TCU-háskólanum
Stefnir á atvinnumennsku í Evrópu eða Bandaríkjunum
„Ég sé ekki eftir því að
hafa valið TCU“
FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ Intermarket
hefur staðfest að það muni gera CB Holding
tilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham
og talið er að það nemi um 100 milljónum
punda.
Samkvæmt Daily Telegraph er innifalið í
því að Intermarket metur skuldir West Ham
vera um 48 milljónir punda en CB Holding
hefur haldið því fram að þær séu í kringum 38
milljónir punda. Reiknað er með að tilboðið
verði lagt fram á mánudaginn kemur.
Talsmaður Intermarket sagði að hann gæti
ekki upplýst meira um málið að svo stöddu vegna samkomulags við
Rothschild-bankann, sem CB Holding hefur falið að sjá um sam-
skipti við mögulega kaupendur. Straumur er sem kunnugt er aðal-
hluthafinn í CB Holding.
Tilboð staðfest
Gianfranco
Zola
LEIKIR í forkeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik
sem fram fer í janúar fara fram með örlítið breyttu sniði frá
því sem verið hefur síðustu ár. Áfram verður leikið í riðlum
sem í eru ýmist þrjár eða fjórar þátttökuþjóðir en alls eru riðl-
arnir sjö. Sem fyrr kemst efsta þjóðin áfram í umspilsleiki,
sem fram fara í vor, við sjö aðrar þjóðir og má telja líklegt að
íslenska landsliðið verði í þeim hópi.
Í stað þess að leikir riðlakeppninnar fari fram heima og að
heiman hittast þátttökuþjóðir hvers riðils á einum stað og
ljúka keppninni á þremur til fjórum dögum þar sem leikin
verður einföld umferð. Þessi háttur er tekinn upp nú til þess
að draga úr kostnaði við undankeppnina en hann reyndist
mörgum fjárvana handknattleikssamböndum í einhverjum til-
fellum ofviða eða mjög erfiður.
Sem dæmi má nefna að landslið Portúgals sem kemur hing-
að til lands 13. janúar til eins leiks við íslenska landsliðið held-
ur rakleitt héðan til Lúxemborg hvar það mætir heimamönn-
um og Lettum í riðlakeppni 16. og 17. janúar.
Ein ný þátttökuþjóð er skráð til leiks í forkeppni HM að
þessu sinni. Það eru Bretar. Þeir eru í riðli með Bosníum,
Finnum og Rúmenum. Leikirnir verða háðir í Vantaa í Finn-
landi 15. - 17. janúar. Bretar leggja nú allt kapp á að búa lands-
lið sitt sem best undir þátttöku í Ólympíuleikunum í London
eftir hálft þriðja ár.
Ísland tekur ekki þátt í forkeppninni
Íslenska landsliðið tekur ekki þátt í forkeppninni í næsta
mánuði en að öllum líkindum tekur það þátt í umspilsleikjun-
um við sigurliðin úr riðlakeppninni. Umspilsleikirnir fara að
vanda fram um miðjan júní og gefa þátttökurétt á HM sem
haldið verður í Svíþjóð í ársbyrjun 2011.
iben@mbl.is
Breytt snið á forkeppni HM í handbolta
Helena Sverrisdóttir er
fædd 11. mars árið 1988 og
er því 21 árs gömul.
Hún lék með Haukum í
Hafnarfirði áður en hún hélt
til náms í Bandaríkjunum.
Hún er á þriðja ári sínu
með háskólaliðinu Texas
Christian University sem
skammstafað er TCU.
TCu háskólinn er með um
8.500 nemendur en skólinn
telst ekki vera á meðal
þeirra stóru í Bandaríkjun-
um. Algengt er að nemendur
í bandarískum háskólum séu
20.000 eða fleiri.
Á síðustu leiktíð, 2008-
2009, var Helena í byrjun-
arliðinu í öllum leikjum
TCU. Aðeins tveir leikmenn
náðu þeim áfanga.
Á fyrsta tímabilinu skor-
aði Helena rúmlega 9 stig að
meðaltali í leik og hún tók 6
fráköst í leik.
Á síðustu leiktíð var hún í
aðalhlutverki í sóknarleikn-
um og skoraði íslenski lands-
liðsmaðurinn rétt tæplega 16
stig að meðaltali.
Á þessari leiktíð hefur
Helena skorað 12,8 stig að
meðaltali og er hún stiga-
hæsti leikmaður liðsins.
Stigamet hennar í banda-
rísku háskóladeildinni er 27
stig en það setti hún í leik
gegn Utah í apríl á þessu
ári.
Hún hefur tvívegis náð því
að „rífa“ niður 13 fráköst í
leik.
Að auki hefur hún tvívegis
gefið 10 stoðsendingar í leik.
Á fyrsta ári sínu hjá TCU
var Helena valin besti nýlið-
inn í Mountain West deild-
inni.
Á síðustu leiktíð var hún í
úrvalsliði Mountain West
deildarinnar.
Helena Sverrisdóttir
Góð Helena Sverrisdóttir
er að gera góða hluti
með TCU í bandaríska
háskólakörfuboltanum.