Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
KYLFINGURINN Ernie Els náði ekki að
sigra á atvinnumóti í golfi á árinu 2009 en Suð-
ur-Afríkumaðurinn hefur ávallt unnið a.m.k.
eitt golfmót árlega frá árinu 1990. Els, sem
fagnaði fertugsafmælinu í október, hefur sigr-
að á 60 atvinnumótum frá því hann gerðist at-
vinnumaður fyrir tveimur áratugum. Els hefur
ekki leikið vel á undanförnum misserum og
virðist vera langt frá sínu besta.
Hann hefur unnið 16 mót á bandarísku
PGA-mótaröðinni, 24 mót á Evrópumótaröð-
inni, 1 á japönsku mótaröðinni, 15 á mótaröð-
inni í Suður-Afríku og 13 mót á öðrum móta-
röðum. Els hefur þrívegis landað sigri á
stórmóti, hann vann opna bandaríska meist-
aramótið 1994 og 1997. Hann
sigraði á opna breska meistaramótinu
árið 2002.
Els hefur ávallt verið í hópi 10 efstu á heim-
listanum í golfi undanfarin 18 ár en hann er nú
í 17. sæti
Kóreumaðurinn YE Yang,
sem sigraði á PGA-meist-
aramótinu, tók risastökk á
heimslistanum á árinu 2009.
Hann var í 478. sæti í árs-
byrjun en endaði í 31. sæti.
Ítalinn Edoardo Molinari gerði enn
betur og fór úr 653. sæti og endaði í
48. seth@mbl.is
SVO kann að fara að Englendingar taki
ekki þátt í Samveldisleikunum í
Dehli í október á næsta ári
vegna ótta við að íþróttamenn-
irnir verði fyrir hryðjuverka-
árásum, að því er Daily Tele-
graph greinir frá í gær.
Hætti England við þátttöku
þá verður það í fyrsta sinn í
80 ára sögu Samveldisleikanna
að landið tekur ekki þátt. Bæði
lögreglan og öryggisráðgjafar
óttast að pakistanskir hryðju-
verkamenn muni ráðast á ensku
íþróttamennina. Þeir telja að ekki
sé hægt að tryggja öryggi íþróttafólks-
ins.
Daily Telegraph greinir frá því að Sir
Paul Stephenson lögreglustjóri hafi
heimsótt höfuðborg Indlands fyrr í þess-
um mánuði til að skoða leikvanga leik-
anna. Hann mun hafa lýst yfir „þungum
áhyggjum“ vegna öryggisráðstafana.
Englendingar munu taka ákvörðun
um þátttöku í Samveldisleikunum á
næsta ári.
Háttsettur enskur embættismaður
sagði Daily Telegraph að það væri
nærri útilokað að íþróttalið yrði sent á
leikana.
Englendingar óttast um öryggi sitt
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,ÞETTA Chelsea-lið, fyrir utan
Nicolas Anelka og Branislav Iv-
anovic, er ennþá mitt lið,“ segir
Morinho sem í tvígang stýrði
Chelsea til sigurs í ensku úrvals-
deildinni.
,,Ég held að Chelsea hafi alla
burði til að vinna enska meistaratit-
ilinn í ár. Það er í toppsæti deild-
arinnar og það lítur út fyrir að Liv-
erpool sé úr leik í baráttunni.
Manchester United er auðvitað með
í slagnum en fyrir mér er liðið ekki
það sama án Cristiano Ronaldo.
United með hann og án hans er allt
öðruvísi lið. Arsenal er í toppbarát-
unni en í hvert skipti sem það færist
nær toppsætinu þá gerir það eitt-
hvað rangt. Það kom í ljós þegar það
gerði jafntefli við Burnley á dög-
unum. Ég held því að leiðin sé nokk-
uð greið fyrir Chelsea á ný og ég
vona auðvitað að allt fari vel hjá
því,“ sagði Mourinho. Portúgalinn
sem hefur viðnefnið ,,hinn útvaldi“
var ekki bara í kurteisisheimsókn á
,,Brúnni“. Hann var einnig að kort-
leggja leik Chelsea-liðsins því læri-
sveinar hans í Inter mæta Chelsea í
16 liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar í febrúar á næsta ári.
,,Við verðum tilbúnir í þann slag.
Það megið þið bóka. Þetta var erf-
iður dráttur fyrir okkur en líka fyrir
Chelsea,“ sagði Mourinho.
Vill snúa aftur til Englands
Mourinho, sem er 46 ára gamall,
segist vilja snúa aftur til Englands
en margir spá því að hann verði ráð-
inn eftirmaður Sir Alex Ferguson
hjá Manchester United þegar hann
ákveður að setjast í helgan stein.
,,Ég vil snúa aftur til Englands.
Ég hef alltaf sagt að ég elska það að
starfa á Englandi. Ég vann tvo
meistaratitla á þremur árum og
fleiri titla. Ég náði mjög góðum ár-
angri svo það er eðlilegt að önnur lið
vilji fá mig. Ég vann tvo meist-
aratitla með Porto, tvo með Chelsea
og nú vil ég leika sama leik með Int-
er. Það yrði mjög sérstakt,“ sagði
Mourinho en Inter varð ítalskur
meistari undir hans stjórn á síðustu
leiktíð og með átta stiga forskot á
erkifjendur sína í AC Milan á yf-
irstandandi tímabili.
Elska að starfa á Englandi
Leiðin nokkuð greið fyrir Chelsea segir sá „útvaldi“ Mourinho spáir sínu
gamla liði meistaratitlinum Portúgalinn segist vilja snúa aftur til Englands
Reuters
Góður Jose Mourinho hefur áhuga á því að starfa aftur á Englandi.
Jose Mourinho, þjálfari ítalska knatt-
spyrnuliðsins Inter og fyrrum knatt-
spyrnustjóri Chelsea, spáir því að
fyrrverandi lærisveinar sínir muni
standa uppi sem enskir meistarar í
vor en Mourinho var á meðal áhorf-
enda á Stamford Bridge í vikunni og
sá Chelsea leggja Fulham að velli.
Gary Megson,knatt-
spyrnustjóra
Bolton, var sagt
upp starfi sínu í
gærmorgun í
kjölfar slaks ár-
angurs liðsins á
yfirstandandi
leiktíð en það er í
þriðja neðsta sæti ensku úrvalsdeild-
arinnar.
Síðasti leikur Bolton undir stjórnMegson var í fyrrakvöld gegn
Hull. Þá misstu leikmenn liðsins
tveggja marka forskot niður í jafn-
tefli, 2:2, á heimavelli. Í leikslok var
baulað á leikmennina og Megson og
veifað var spjöldum með áletruninni:
„Megson must go“, eða „Megson
verður að fara.“ Á meðan forsvars-
menn Bolton leita að eftirmanni
Megson munu Christ Evans, aðstoð-
arknattspyrnustjóri og aðalþjálf-
arinn Steve Wigley halda um stjórn-
völinn.
Hreiðar levyGuðmunds-
son, landsliðs-
markvörður í
handknattleik,
átti stórleik þegar
lið hans, TV Ems-
detten, vann VfL
Edewecht, 33.26,
á útivelli í norð-
urriðli þýsku 2. deildarinnar í hand-
knattleik. Hreiðar Levy lék í mark-
inu í 58 mínútur og varði 17 skot, þar
af eitt vítakast. TV Emsdetten situr í
öðru sæti riðilsins með 28 stig eftir
17 leiki, er fjórum stigum á eftir
Hamm sem trónir á toppnum.
Eftir 14 áraveru hjá
þýska stórliðinu
Flensburg hefur
danski hand-
knattleiksmað-
urinn Lars
Christiansen
ákveðið að snúa
heim til Dan-
merkur í vor þegar samningur hans
við Flensburg rennur út. Christian-
sen segist ætla að ljúka ferlinum í
dönsku úrvalsdeildinni og sé um
þessar mundir að skoða tilboð frá
fjórum félögum, Skjern Håndbold,
Århus GF, KIF Kolding og Bjerr-
ingbro-Silkeborg. Christiansen er
næstmarkahæsti leikmaður þýsku 1.
deildarinnar frá upphafi.
Ítölsku bræðurnir Francesco ogEdoardo Molinari tryggðu sér
keppnisrétt á Mastersmótinu í golfi á
næsta ári með því að vera í einu af 50
efstu sætunum á heimslistanum í lok
ársins. Aðeins einu sinni áður hefur
það gerst að bræður taka þátt á
Mastersmótinu en það var árið 2000
þegar Jumbo og Joe Ozaki frá Japan
voru báðir í hópi 50 efstu á heimslist-
anum. Edoardo hóf árið í 653. sæti á
heimslistanum en hann endaði í
fjórða sæti á Evrópumótaröðinni í
Suður-Afríku á dögunum.
Fólk sport@mbl.is
HVERNIG má það vera að tvítugur bandarískur
körfuboltamaður sem var varaskeifa hjá ítalska úr-
valsdeildarliðinu Lottomatica Róma fyrir ári er í
hópi bestu leikmanna NBA-deildarinnar ári síðar?
Brandon Jennings var helsta fréttaefnið í NBA-
deildinni þegar hann skoraði 55 stig gegn Golden
State Warriors 14. nóvember sl. Jennings var einu
stigi frá því að jafna „nýliðametið“ sem er í eigu
Earl „The Pearl“ Monroe en hann skoraði 56 stig á
fyrsta ári sínu í NBA-deildinni árið 1968 með Balti-
more Bullets. Þess ber að geta að Jennings skoraði
ekki stig í fyrsta leikhlutanum gegn Warriors,
hann lét sér nægja að skora 29 stig í þriðja leik-
hluta. „Ef ég á að vera heiðarlegur þá var ég eig-
inlega hálfskelkaður þegar ég áttaði mig á því hve
vel ég lék,“ sagði Jennings í byrjun desember á
þessu ári en hann hefur ekki skorað yfir 30 stig frá
þeim tíma. Ég fann að það var mikil pressa á mér
að skora 50 stig í hverjum leik eftir þetta. Aðal-
atriðið er að halda sínu striki og mér er alveg sama
um stigaskorið,“ bætti hann við. Á þessari leiktíð
hefur nýliðinn skorað rétt tæplega 20 stig í leik og
hann gefur 6 stoðsendingar í leik.
Skipti oft um skoðun
Jennings lét mikið að sér kveða í framhalds-
skólaliði sínu þar sem hann skoraði rúmlega 32 stig
að meðaltali í leik auk þess sem hann gaf um 8
stoðsendingar í leik. Lið hans Oak Hill vann 41 leik
og tapaði aðeins einum veturinn 2006-2007. Hann
vakti áhuga margra háskólaliða og hann ákvað að
taka boði frá háskóliði Suður-Karólínu í ágúst
2006, en í maí 2007 hafði hann skipt um skoðun og
var á leiðinni í Arizona-háskólann. Jennings skipti
síðan enn og aftur um skoðun og ákvað að verða
fyrsti bandaríski leikmaðurinn sem sleppir því að
fara í háskólalið og beint í atvinnumennsku í Evr-
ópu eftir að reglum um aðgengi ungra leik-
manna að NBA var breytt. Það fylgir ekki sög-
unni að Jennings er vog og gæti því átt erfitt
með að taka ákvarðanir yfirleitt.
Hann samdi við Rómverja þar
sem reglur NBA-deildarinnar
eru með þeim hætti að leik-
menn sem vilja gefa kost á
sér í nýliðavalið verða að
vera 19 ára gamlir. Hann
nýtti því tækifærið. Fór til
Evrópu í eitt ár þar sem hann
skoraði „aðeins“ 5,5 stig að með-
altali í leik þar sem hann lék aðeins í 17 mínútur í
hverjum leik. Til samanburðar lék Jón Arnór Stef-
ánsson með Lottomatica Róma veturinn 2007-2008
þar sem hann skoraði tæplega 9 stig í leik þar sem
hann lék í 23 mínútur að meðaltali af alls 40.
Brandon Jennings er smár en knár leikstjórn-
andi sem forráðamenn Milwaukee Bucks völdu nr.
10 í fyrstu umferð háskólavalsins. Örvhenti bak-
vörðurinn er ekki nema 1,85 m á hæð og í mikilli
fokhættu á Kjalarnesinu, aðeins 77 kg að þyngd.
Margir sérfræðingar um körfuboltaíþróttina áttu
ekki von á því að Jennings myndi spjara sig í NBA
en hann hefur byrjað ferilinn með látum og það er
aldrei að vita nema leikir með Milwaukee Bucks
verði áhugavert sjónvarpsefni.
seth@mbl.is
Leikstjórnandinn Brandon Jennings var varaskeifa
hjá Lottomatica Róma fyrir ári en er með þeim betri í
NBA-deildinni ári síðar Skoraði 55 stig í einum leik
Jennings er smár en knár
Versta árið hjá Els frá árinu 1990