Ísfirðingur - 21.09.1949, Qupperneq 1
I
ÍSFIRÐINGUR
BLAÐ FRAMSÓKNARMANNA Á VESTFJÖRÐUM
I. árgangur.
Isafjörður, 21. september 1949.
1. tölublað.
Miltil fjármálatíðindi.
Bretar fella gengi sterlingspundsins
ÁVAPSORÐ.
Þegar kosningar fara í hönd, þykir öllum flokkum og
aðstandendum frambjóðandanna brýn þörf á að eiga að-
gang að blaði um lengri eða skemmri tíma til að túlka
skoðanir sínar, og uiðhorf til helztu dagskrármálanna, —
vísa ranghermum og afflutningi á stefnumálum flokks-
ins á bug, og bernla á hin jákuæðu. Fyrir flokka, sem
ekki eiga aðgang að blaði, er það sama og að uera meinað
máls á almennum kjósendafundi. Þótt Framsóknarmenn
eigi þuí láini að fagna, að aðalblað þeirra, Tíminn, er
bæði stórvinsælt og að allra dómi bezt skrifaða blað
landsins, þá fer ýmislegt framhjá almenningi, einkum
þeim sem fjær búa, er vert væri að festa sér í minni.
Þetta blað býst að uísu ekki uið að geta sinnt verkefni
sínu, suo sem vert væri, og biður menn í því efni að taka
viljann fyrir verkið. En yæti því auðnast að leiðrétta mis-
skitning þótt eigi væri nema nokkurra einstaklinga, sem
sluðst hafa við einhliða áróður og ranga túlkun á málstað
Framsóknarflokksins, þykist blaðið eigi til einskis hafa
vaknað til lífsins.
Isfirðingur fulltreystir því, að allir Framsóknarmenn,
leggi frambjóðendum flokksins, ulltþaðliðsem þeirmega.
Blaðið heitir líka á alla þá mörgu, sem nú eiga samstöðu
með Framsóknarflokknum, en kjósa ýmsir að svo stöddu
að standa utan flokka, að stuðla fast að atkvæðaaukningu
flokksins við þessar kosningar. Með sameiginlegri sókn
og skörpum átökum er vissulega unnt að nema ný lönd
og vinna aftur gömul.
Þau tíðindi gerðust síðastlið-
inn sunnudag, að breska stj órn
in framkvæmdi stórfelda geng-
islækkun, feldi sterlingspundið
í verði miðað við dollara, um
ca. 30%. Ráðstöfun þessi mun
bafa komið öllum á óvart,
nema ef til vill nánustu sam-
starfsmönnum stj órnarinnar.
Ástæður fyrir ráðstöfun þess
ari, segir Stafford Cripps,
fjármálaráðherra vera þær,
að brezka stjórnin hafi séð
fram á það, að ef gengi punds-
ins gagnvart dollara yrði hald-
ið óbreyttu, myndi óhjákvæmi
legt, að samdráttur atvinnulífs
ins, og þar af leiðandi atvinnu-
leysi hafa haldið innreið í
Bretland, og ennfremur að
óbreyttu gengi myndi hafa
reynst ókleift að halda hinu
brezka alþýðutryggingakerfi ó-
breyttu. Brezka stjórnin hefði
þvi séð sig til neydda að fella
sterlingspundið i verði, í því
skyni að koma i veg fyrir at-
vinnuleysi og vernda trygginga
kerfið. Síðan hafa 16 ríki farið
að dæmi Breta, þar á meðal
allar Norðurlandaþ j óðirnar.
Þessi ráðstöfun hefir alheims-
þýðingu, og er yfirleitt ekki á
færi annara þjóða að dæma
um ákvarðanir Breta í þessu
efni.
Viðhorf Islendinga.
Hvað sögðu Fram-
sóknarmenn?
Málið er athyglisvert fyrir
Islendinga, og einkum hvernig
við höfum snúizt við þessu
vandamáli, þveröfugt því sem
hinir reyndu brezku stjórn-
málamenn. — Brezka stjórnin
og þing brezka verkalýðsfélag-
anna, sem háð var fvrir stutt-
um tíma fordæmdi allar kaup-
hækkanir, taldi þ j óðarnauð-
sjm að halda kaupgíaldi og
verðlagi óbreyttu í því skyni
að koma i veg fyrir atvinnu-
levsi, og forða frá gengisfalh-
Þótt Bretar hafi þannig hald
ið launum og verðlagi niðri,
hefir það þó ekki getað forðað
gengisfallinu.
Alþýðublaðið hefir í suniar
verið síjórtrandi á því að
Framsóknarmenn ætli að
koma á gehgisfalli íslenzku
krónunnar eftir kosningar. Nú
hefir farið svo að Alþýðuflokk-
urinn hefir ásamt hinum flokk
unum orðið að standa a,ð geng-
isfalli íslenzku krónunnar
gagnvart dollara fyrir kosning-
ar.
Framsóknarflokkurinn vill
ekki gengislækkun, — en for-
mælendur flokksins hafa hald-
ið því fram, sem öllum er aug-
ljóst, að Alþýðufl. og Sjálf-
stæðisfl. væru þegar búnir að
fella krónuna í verði. Hér yrði
því að veita viðnám með því
að taka upp heilbrigða stjórn-
arhætti. — Tillögur Fram-
sóknarmanna þar að lútandi i
ríkisstjórn og á Alþingi hafa
allar verið felldar af spyrðu-
bandi Alþýðufl. og íhalds, —
einmitt þær tillögur sem mið-
uðu að lækkun dýrtíðar. Og
rétt er að láta þess getið í
þessu sambandi fyrir, þá, sem
ekki lesa fundargerðir, en láta
sér nægja afskræmdar frásagn
ir andstöðublaðanna, að aðal-
fundur miðstjórnar Framsókn
arflokksins í vetur, sem taldi
að vart yrði komizt hj á gengis-
lækkun eða verðhjöðnun, og
máske yrði að reyna hvoru-
tveggja, lagði svo til, orðrétt:
„að leitað yrði álits og samráðs
stéttasamtakanna, hvor leiðin
skuli farin, og að hve miklu
leyti, áður en endanleg ákbörð-
un yrði tekin“.
Framsóknarmenn töldu að
betra væri að viðurkcnna
hreinskilnislega gengisfall
krónunnar, en að fela það. Og
þeim var líka Ijóst, að gengis-
fall eða opinber lækkun á
verði krónunnar gat komið
líkt og skriða úr fjalli, án þess
þing eða. stjórn æskti þess,
jafnvel þótt þingflokkarnir
væru gengisfalli mótfallnir. —
Þetta hefir nú rætzt.
Gengislækkunarraus Alþýðu-
blaðsins er nú oltið um sjálft
sig.
Gera verður ráð fyrir, að
annars konar gengislækkun is-
lenzku krónunnar komi ekki
III greina. Gengismálið verður
því ekki þrætuepli í þessum
kosningum. -—
Það verða annai's konar ráð-
stafanir til lækkunar dýrtíð-
inni, sem glímt verður um.
Að svo stöðnu verður ekkert
sagt um hvort og að hve miklu
leyti dýrtíð hér á landi kann
að aukazt við hækkun á gengi
dollai'ans. Vörur frá Banda-
ríkjunum hækka vitanlega,
svo sem vélar, ef til vill mat-
vörur, en aftur fæst hærra
verð fyrir afurðir okkai', sem
þangað sendast — þær sem
ekki eru seldar í sterlinspund-
um.
-------O------
Frambjóðendur
Framsóknarflokksins i Isa-
fjarðarsýslum við næstu al-
þingiskosningar eru:
Jón Á. Jóhannsson, yfirlög-
regluþjónn, Isafirði, í Isafjarð-
arkaupstað. Þórður Hjaltason,
símstöðvai’stjóri í Bolungar-
vík, I N.-Isafjai’ðarsýslu og
séra Eii'íkur J. Eiríksson,
skólastjói'i að Núpi, i Vestur-
Isafjarðarsýslu. I næstu blöð-
um verur nánar sagt um fram-
boð þessara manna.
Áttræður.
Þann 16. þ.m. átti Magnús
Guðmundsson, hér í bæ, átt-
ræðisafmæli.
Heilla óskir.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína:
Ungfrú Sigríður Sigurðar-
dóttir og Gunnar Pétursson
(Péturssonar), Grænagarði.
Ungfrú Inga Bjarnadóttir
frá Akureyri og Jens Sumar-
liðason, Isafirði.
Ungfrú Jóna Júlíusdóttir
frá Vestm.eyjum og Tryggvi
Jónasson, Isafirði.
Ungrfú Arndís Stefánsdóttir,
Hnífsdal og Ásgrimur Bene-
diktsson, Isafirði.
ísfirðingur ái’nar þessum
hjónaefnum alh-a heilla.
í vnzi