Ísfirðingur - 21.09.1949, Qupperneq 4
4
ÍSFIRÐINGUR
Kosningarnar
í N.-ísafjarðarsýslu.
Framsóknarmenn í N-Isa-
fjarðarsýslu hafn nú ákveðið
að bjóða fram Þórð Hjaltason,
símstjóra í Bolungarvík við i
höndfarandi kosningar.
Það er óþarfi að fjölyrða um
Þóx-ð Hjaltason, hann er Norð-
ur-Isfirðingum svo kunnur,
fyrst sem bóndi, en nú síðasta
ár, sem símstjóri i Bolungai'-
vik. Við síðustu kosningar
huðu framsóknarmenn elcki
fram í Norðui’-Isafjax-ðarsýslu.
Mest fyrir áeggjan Hannihals
Valdimarssonar og fullyrðing-
ar hans um að honum tækist
að losa sýsluna við Sigurð
Bjarnason og vissulega hefði
það vex-ið mikill greiði við
héraðshúa.
En það kom franx við kosn-
inguna að Hannibal hafði ekki
tekizt að hópa mönnum það
fast saman, að hann næði settu
marki.
Hannibal koixxst þó á þing,
sem uppbótai’þingmaðui’, enda
mun kjördæmið hafa verið
þurfandi fyrir slíka uppbót.
En við nánai’i athugun kemur
í ljós, að til þess að ná þessu
xippbótarsæti, þurfti Hannibal
ekki á þessxun framsóknarat-
kvæðurn að halda, heldxir
korna þau á næsta uppbótar-
þingnxann Alþýðuflokksins.
En það er hlutur sein franx-
sóknannexxn í N.-Isaf j arðai’-
sýslu ætla ekki að láta konxa
fyrir aftm*, að þeir séu að
fleyta föllnum Alþýðuflokks-
mönnum í Reykjavík eða amx-
ars staðar inn á Alþing íxxeð
sínunx atkvæðuixx. Þessvegna
munu þeir og aðrir frjálslynd-
ir kjósendur í sýslunni flykkj-
ast unx Þórð Hjaltason við
þessar kosixingar.
------O------
Bæjarkeppni
Siglfirðinga og Isfirðinga í
frjálsunx íþróttunx fór fram á
Isafirði fyrir skömmu. Orslitin
urðu þau, að Isfirðingar unnu
nxjög glæsilega nxeð 11320 stig-
um gegn 10645.
Árangur mótsins var mjög
góður. Sett voru fjögur ný
Vestfjarðamet og tvö Siglu-
fj arðai’met.
Ritnefnd:
Guttormur Sigurbjörnsson.
Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum.
Þorleifur Guðmundsson.
Afgreiðslu annast:
Guðmundur Sveinsson,
Engjaveg 24.
FJÖRUSTEINAR.
Framhald af 3. síðu.
1 eftirmælagrein, i léleguin lík-
ræðustíl, um Sigurð Bjarnasön í
næst síðasta Vesturlandi, segir sá
lofsæli höfundur, að Sigurður
Bjarnason hafi hin síðari ár, jafn-
framl þingstörfum verið stjórn-
málaritstjóri Morgunbl. Ég leitaði
og leitaði í Morgunblaðinu, en fann
hvergi nafn Sigurðar Bjarnasonar.
Aftur blasir við nafn Jóns Pálma
sonar í Isafold, svona til punts, á
borð við falskan postulinslnind eða
öllu heldur gylltan leirhund á gam-
alli kommóðu.
Valtýr mun hins vegar nota rit-
smíðar Sigurðar í Moggann, eink-
um þær sem vindgangur Sigurðar
er inikill því hinir ritarar Morg-
unblaðsins eru lognliattslegir og
kauðalegt orðbragð þeirra, og á
fjaðrafok Sigurðar að bæta upp
þann brest þeirra.
Þetta er nú vegtyllan, sem Sig-
urði Bjarnasyni hefir hlotnast
þarna. Menn fáir svo aumir að þeir
öfundi hann af lilutskiptinu, nema
máske vesalings Ásberg.
Vegagerðii’ á Vestfjörðuin.
Allmikið hefir verið unnið að
vegabótuin á Vestfjörðum í sumar,
en seint sækist róðurinn víða og
ýmsum vegum, sem áttu að vera
fullgerðir í fyrra, er enn ólokið.
Bolungarvíkurvegur er nú orðinn
fær út að svonefndum Sporhamri,
yzt á Óshlíð, og mun um það lokið
að ryðja Óshólana, ineð jarðýtu
sem Ræktunarsamband Hóls,-Eyr-
ar- og Súðavíkurhreppa eignaðist
í sumar.
Súðavíkurvegur er nú kominn
alllangl inn á Súðavíkurhlíð. Er
um 2 km. vegar inn í Súðavíkur-
þorp, og torfærulaust að kalla.
Flestir bjuggust við, að Súðavíkur-
vegur opnaðist snemma í fyrra-
sumar. — Hefði það að líkindum
tekizt, ef ekki hefði svo miklum
tíma og fé verið eytt í hamarsgatið.
Annars má gera sér vonir um að
vegurinn þarna standi og verði
ekki ýkja viðlialdsfrekur. Verra er,
að ekkert hefir verið unnið að veg-
inum út Langadalsströnd í suinar.
Er nú ekki bílfært með góðu lengra
en að Nauteyri eða Hafnardal.
I Vestur-lsafjarðarsýslu hefir
verið unnið að vegarlagningu yfir
Rafnseyrarheiði. Er nú korninn all-
góður vegur yfir heiðina, og niður
úr heiðartungunum að vestan, en
neðri hluti Rafnseyrardals, að
Rafnseyri og Auðkúlu einungis fær
jeppum.
Með Dýrafirði að vestan liafa
verið gerð myndarleg átök í vega-
málunum, mest fyrir forgöngu odd-
vitans í Þingeyrarhreppi, Eiríks
Þorsteinssonar, kaupfélagsstjóra.
Fyrir alllöngu er ágætur vegur kom
inn í Haukadal og ár brúaðar á
þeirri leið. Vegur er líka fær fram
í Kirkjubólsdal. Inn með Dýra-
firði að vestan er fullgerður vegur
inn fyfir Kjaransstaði, og verið að
ljúka við brúargerð á þá á. Búið
er að forma fyrir veginum að
Botni. Til þessara vegagerða hefir
Þingeyrarhreppur lagt tiltölulega
rnikið fé.
Norðan Dýrafjarðar er vegurinn
kominn nokkuð inn fyrir Höfða,
og lauslega rutt að Næfranesi, en
verið að ryðja lilíðina milli Lamba
dals og Botns.
1 önundarfirði er fyrir skömmu
kominn góður akvegur að Holti, og
vel bílfært út að Hjarðardal.
Vegagerð með Súgandafirði mið-
ar seint áfram, og ennþá er ólagður
vegur að mestu milli Botns og Suð-
ureyrar. Aftur er nú orðið bílfært
út í Staðardal.
1 vesturhluta Barðastrandarsýslu
er nú loks langþráðu marki náð
með að fullgera veginn inn á Barða
strönd, svo nú verður komizt frá
Patreksfirði að Brjánslæk. Sömu
leiðis milli Patreksfjarðar og Bíldu-
dals, en vegurinn í Hálfdán Bíldu-
dalsmegin er mjög ósléttur ennþá
og aðeins fær jeppabílum.
Á þessum vegum var byrjað í
þingmannatíð Bergs Jónssonar, og
mörg ár eru síðan Barðastrandar-
vegurinn var kominn að Kleifa-
heiði, og bílfært var til Tálkna-
fjarðar.
■■ ■ ■ -.O-----
Krukkspár...
Framhald af 2. síðu.
Bjanxa á Laugai’vatni ei' úr
sögunni.
1 Vestur-Skaftafellssýslu er
ekki unnt að segja hver sigur
muni bera úr hýtunx, en Jón
Gíslason hefir reynzt nýtur
þingniaður og öruggur fulltrúi
sýslu sinnar, svo kjósendur
hans liafa síður en svo orðið
fyrir vonbrigðum.
Síðast er svo Austui’-Skafta-
fellssýsla. — Þar er talið ör-
uggt að Páll Þoi’steinsson verði
endurkjörinn, að líkindum við
vaxandi fylgi. Gunnar Bjarna-
son, sá er Alþýðuflokkurinn
taldi sér einu sinni, og síðar
gekk í Framsóknarflokkinn,
en hafnaði að lokunx hjá iliald
inu (gruggið setzt á botninn),
er nú orðinn vonlítill sjálfur
— hvað þá aðrii*.
Þá er það höfuðstaðurinn. —
Fréttum og kunnugum mönn-
uxxx ber yfirleitt sanxan unx það
að Reykjavík sé óútreiknan-
leg. Flokkarnir hafa sína föstu
stofna af kjósendaliði, en ó-
nxögulegt að segja hvar stórir
hópar kjósenda kunni að
lenda. — Alþýðuflokkux’inn er
þó alli’a flokka þai*, snxeikast-
ur við hrörnandi fylgi. —-
Hvort kommúnistum tekst enn
þá að villa fjölnxöi’gum kjós-
endunx sýn, svo þeir verji at-
kvæðunx sínunx á Sósíalista-
flokkinn, er gáta, senx líklega
verður ekki ráðin fyrr en að
kosningum loknum.
Þetta er nú það, senx sagt
vei’ður í fáúm ox’ðunx unx kosn-
ingahorfurnar.
Eitt verður sagt nxeð fulli’i
vissu! Enginn stjórnnxálaflokk
ur fær meii’ihluta í kosningun-
um, og ekkert nálægt því. —
En mestar líkur eru til að
Franisóknarflokkurinn eflist
verulega.
Allt
ber að tryggja.
Innbúið — verzlunarvörur og efnisvörur — vélarnar —
bílinn í vetraigeymslunni — heyfenginn — búpeninginn.
Munið að eldurinn gerir ekki boð á undan sér.
S AMVINNUTRY GGIN G AR.
Tilkynning
írá Brunabótafélagi íslands.
Bæjai’fógeti hefir úi’skurðað lögtak á ógi-eidd brunabótagjöld
og dráttarvextir fyrir síðasta gjaldár. Lögtök hefjast 1. október
án frekai’i aðvörunar. Þess er vænst að þeir, senx eiga eftir að
greiða gjöld sín geri skil fyrir þann tínxa svo konxist verði hjá
kostnaði og fyrirhöfn senx af lögtaki leiðir.
Brunabótafélag Islands.
Hrefna Bjarnadóttir,
umboðsmaður, tsafirði.
Prentstofan ísrxin h. f. 1949.