Ísfirðingur - 10.04.1957, Qupperneq 4
Hvað er í f réttum?
Afmæli.
Frú Elín Jónsdóttir, ljósmóðir,
Pólgötu 5 hér í bænum átti sjö-
tugsafmæli 1. þ. m.
Ráðning starísmanna.
Guðmundur Ingibjartsson hefur
verið ráðinn baðvörður við Sund-
höllina. Einnig hefur Konný Gari-
baldadóttir verið ráðin baðvörður
kvenna.
Starf auglýst.
Bjöm Guðmundsson, slökkvi-
liðsstjóri, hefur sagt upp starfi
sínu, og hefur starfið nú þegar ver-
ið auglýst til umsóknar.
„íþróttamaðnr ársins"
heimsækir lsaf jörð.
Á s.l. laugardag kom hingað til
bæjarins hinn kunni íþróttamaður
Vilhjálmur Einarsson, en eins og
allir vita, þá hlaut hann silfurverð-
launin í þrístökki á síðustu Ólym-
píuleikjum, sem fram fóru í Mel-
bourn í Ástralíu. Koma Vilhjálms
hingað er einn liðurinn í heim-
sóknum hans í alla framhaldsskóla
landsins, en hann hefur sem kunn-
ugt er verið á ferðalagi um landið
á vegum bindindissamtaka í skól-
um og flutt erindi um bindindismál
jafnframt því sem hann hefur sýnt
litmyndir og sagt ferðasögu af
Ólympíuferðinni til Melbourne. Hér
heimsótti hann bæði Húsmæðra-
skólann og Gagnfræðaskólann, auk
þess sem hann rabbaði við forráða-
menn íþrótta hér í bæ og mætti á
íundi, sem nemendur Iðnskólans
boðuðu til í tilefni af komu hans.
Skíðavikan
Skíðavika Skíðafélags Isafjarð-
ar verður eins og undanfarin ár í
páskavikunni. 1 sambandi við
Skíðavikuna fer fram firmakeppni
í 3 km. boðgöngu og bruni. Keppt
verður í 3. manna sveitum. Verða
sömumennimir að keppa í báðum
greinum, og verður tími sveitanna
lagður saman og verða veitt verð-
laun fyrir beztu sveitirnar. Keppni
þessi verður mjög létt, gangan að
mestu á sléttu, og brunið frá
Gullhól og niður undir Skíðheima.
Aðalatriðið er að fá sem flesta til
þátttöku. Auk þessa verða svig-
brautir lagðar í Kvennabrekkunni.
Kvöldvökur verða í Skíðheimum á
fimmtudag og laugardag og dans-
leikir á páskadag eftir miðnætti í
Alþýðuhúsinu og Uppsölum.
Skíðaskálinn er nú kominn það
langt að á næsta ári getur skíða-
skólinn haft aðsetur í honum.
Batnar þá öll aðstaða fyrir skíða-
menn hér í bænum. Það sem helzt
mun vanta, og þarf að vinda bráð-
an bug að, er að koma upp drátt-
arbraut fyrir skíðamennina. Þeg-
ar hún er komin, hafa ísfirðingar
„Óæskileg gestrisni“
Að gefnu tilefni vil ég, að bæj-
arbúar fái að vita eftirfarandi:
Þegar hinir tveir nítján ára
unglingar komu í Gagnfræðaskól-
ann þess erindis að biðja um að fá
að hlusta á enskukennslu í skólan-
um, þá var skólastjórinn ekki við-
Hr. ritstjóri!
Viljið þér gera svo vel að birta
eftirfarandi athugasemd í blaði
yðar:
Hinn 5. apríl s.'l. birtist í „Skutli“
grein, er nefnist „Óæskileg gest-
risni“. í grein þessari skrifar ein-
hver S.S. af mikilli vandlætingu
um þann þjóðhættulega viðburð!!,
er tveir bandarískir hermenn komu
í gagnfræðaskólann hér.
Ég hefi lesið yfirlýsingu frú
Hólmfríðar Jónsdóttur, kennara,
vegna þessa máls.
Þar sem málið er mér skylt, og
bæjarbúar gætu fengið ranga hug-
mynd um það, af greininni í Skutli,
tel ég rétt að skýra mitt sjónar-
mið.
Það er rétt, að ég var ekki við-
staddur í augnablikinu, er Hólm-
fríður ætlaði að spyrja mig, hvort
leyfa ætti þessum mönnum að
koma í enskutíma, en ég vil taka
fram, að ég hefði veitt leyfið, ef
þess hefði verið farið á leit við
mig.
Eins og fram kemur í yfirlýs-
ingu enskukennarans, báðu þessir
ungu menn um leyfi til þess að
koma í einn enskutíma. Mín skoð-
un er sú, að það hafi ekki skaðað
fhaldsandúð.
Sjóvarnargarðurinn í Sundunum
virðist vera mikið áhyggjuefni hjá
Matthíasi okkar. Þetta verk þ. e.
bátahöfnin, sem því miður hefur
ekki verið lokið við að fullu, ætti
þó ekki að valda M. Bj. meiri á-
hyggjum en t. d. vatnsþróin fræga
við Stórurð, sem byggð var af
íhaldinu í hans valdatíð og aldrei
var lokið við, enda sjálfsagt öllum
fyrir beztu, þegar staðsetning
öll skilyrði til frekari eflingar
skíðaíþróttarinnar.
Allur ágóði af skíðavikunni
rennur til þess að koma þessum
málum í framkvæmd.
staddur, og leyfði ég piltunum að
koma í tíma til mín.
Ef nemendur mínir hafa beðið
tjón á sálu sinni af þessum sökum,
þá er mér einni um að kenna.
Hólmfríður Jónsdóttir.
skólann á neinn hátt, þó að það
væri leyft. Miklu fremur hefði það
verjð óæskileg ókurteisi að meina
þeim það.
í þessu sambandi má minna á
það, að Háskóli Islands veitti, á
stríðsárunum, hermönnum leyfi til
að vera í kennslustundum og veit
ég ekki til, að athugasemd hafi
verið gerð við það.
Tilgangur kennarans var góður,
sem sé sá, að veita nemendum
tækifæri til tilbreytni í ensku-
kennslunni. Ungu mennirnir sögðu
frá skólum þeim, er þeir höfðu ver-
ið í í heimalandi sínu og einnig
sögðu þeir frá heimkynnum sínum.
Ég fullyrði, að heimsókn þeirra
hefir ekki haft spillandi áhrif á
nemendur þessarar deildar.
Annars finnst mér, að sá góði
maður S. S., sem svo mjög virðist
bera heill unglinganna fyrir
brjósti, hefði ekki átt að fela sig
bak við dulnefni, heldur koma til
dyranna eins og hann er klæddur.
Það er freistandi að álykta, að hann
hafi ekki skrifað grein sína af ein-
lægri sannfæringu, þegar hann vill
ekki láta nafns síns getið.
Með þökk fyrir birtinguna.
Guðjón Kristinsson.
hennar er höfð í huga. Sjóvarnar-
garðurinn hefur þó komið að þeim
notum að feikimikið land hefur
myndast utan við hann, og garð-
urinn er traustur og vandlega
byggður. Mun garðurinn koma að
fullum notum þegar hafist verður
handa um frekari framkvæmdir.
Ef til vill er of lítið gert að
byggingu sjóvarnargarða hér við
Sundin og utanverða eyrina. Hef-
ur Bárður G. Tómasson bent á
gagnsemi þeirra í Vesturlandi
1943.
Um kostnaðinn við byggingu
garðsins hlýtur eitthvað að hafa
skolast til hjá M. Bj. því þeir sem
byggðu hann fengu kr. 200 þús.
fyrir verkið. Z.
Skíðamót Vestfjarða.
15. km. ganga fór fram s.l.
sunnudag í Dagverðardal og voru
keppendur 8. Úrslit urðu þessi:
1. Ámi Höskuldsson, Sl, 56,18
mín. 2. Oddur Pétursson, Á, á
56,42 mín. 3. Gunnar Pétursson, Á,
á 57,40 mín.
Sigurvegari í Norrænni tvíkeppni
göngu og stökki, varð Oddur
Pétursson, hlaut 277,9 stig. 2.
Gunnar Pétursson, 275,4 stig og 3.
Haukur Ó. Sigurðsson, H, 270 stig.
ÚtbreiOslufnndur.
Isafjarðardeild Norrænafélags-
ins hélt skemmti- og útbreiðslu-
fund að Uppsölum fimmtudags-
kvöldið 4. þ. m.
Mag. Hólmfríður Jónsdóttir,
form. deildarinnar, flutti ávarp og
hvatti til starfa og þátttöku í fé-
laginu. Kristján Jónsson frá Garð-
stöðum, flutti ræðu og drap á
helstu þætti úr starfssögu deild-
arinnar, og Björn H. Jónsson,
skólastjóri, flutti erindi um Sví-
þjóð. Þá var sýnd litkvikmynd frá
Svíþjóð. Á milli atriða var al-
mennur söngur. Kaffi og kökur
var fram borið og að lokum var
dansað. Milli 40 og 50 manns sóttu
fundinn og 16 nýir meðlimir
gengur í deildina á fundinum.
—oOo—
Skiðamót íslands.
Landsmót skíðamanna hefst á
Akureyri 17. þ. m. Héðan úr bæn-
um munu sækja mótið 12—15
keppendur, sem taka þátt í öllum
greinum mótsins.
—oOo—
Sumarfagnaður.
Eins og undanfarin ár efnir
Framsóknarfélag ísafjarðar til
sumarfagnaðar á síðasta vetrar-
dag. Þessar samkomur hafa jafn-
an verið vel sóttar og fólk skemmt
sér mjög vel. Þessi samkoma verð-
ur nánar auglýst síðar, en hún
mun vafalaust verða vel sótt eins
og hinar fyrri.
Ákveðið er að erindreki Fram-
sóknarflokksins, Guttormur Sigur-
björnsson mæti á umræddum
fagnaði.
—oOo—
Til sölu
D O D G E
fólksbifreið 5 manna, eldri gerð.
Upplýsingar veita:
Sigmundur Guðmundsson,
fiskimjölsverksm., og
Guðmundur Þorvaldsson,
Vélsmiðjunni Þór.
Gestir í Gagnfræðaskólanum