Ísfirðingur


Ísfirðingur - 25.09.1965, Síða 1

Ísfirðingur - 25.09.1965, Síða 1
BíAÐ TRAMSÓKNAKmNNA / l/ESTFJARÐAKJÖKMM! 15. árgangur. Jónas frá Drlfln Eins og frá var sagt í síðasta blaði, var Jónas Jónsson, fyrrv. alþingis- . maður og ráðherra, á t ferðalagi um Vestfirði fyrstu daga sept. mánaðar |tlf í hófi sem haldið var - Jónasi til heiðurs á Isa- firði föstudagskvöldið 3. þ.m., flutti Guðmundur lllll Ingi Kristjánsson, skáld, lil honum eftirfarandi kvæði Leiftrandi komstu, þegar öldin imga Islandi bauð að vakna og tygja sig. Penninn var hvass, og hiklaus var þín tunga. Hugsjón og vilji töfrum gæddu þig. Skinfaxi rann um himin, haf og grundu, hugsanir þínar urðu vængir hans. Þúsundir ungra fslendinga fundu atgerfi sitt í ljóma foringjans. Framar var sótt, þótt Filisteum sviði, fár var í lofti, meðan svipan hvein. Hitt var þó mest, hver heill var með því liði, hugsjónabjarmi þinn er yfir skein. Þannig var gæfan Islands fólki fengin, frjálshuga mennt er allur lýður hlaut. Fyrir þinn kraft svo farsæl voru gengin framsóknarspor á tímans réttu braut. Líttu nú yfir allt á góðum degi: Island er ríkt af sigrum þínum enn. Sjá þessa skóla, búðir, brýr og vegi, býli svo góð og frjálsa verkamenn. Samvinnustefnan þakkar þínum anda, þú hefur mótað henni sterka menn. Nú er oss gott að njóta þinna handa, njóta þín bæði vel og lengi enn. Hljómleikar Á vegum Tónlistarfélags ísafjarðar voru haldnir hljóm- leikar í Alþýðuhúsinu á ísa- firði fimmtudagskvöldið 16. þ. m. Þarna komu fram brezka söngkonan R. Little og Jósef Magnússon sem lék á flautu. Undirleik annaðist Guðrún Kristinsdóttir. Söngkonan söng mörg er- lend og innlend lög með undir- leik Guðrúnar og hún söng einnig tvö lög með flautu- og Framhald á 2. síðu isafjörður, 25. sept. 1965. 14. tölublað. Fréttabréf ór írneshreppi 10. sept. Mikið grasár. Hér leit út fyrir lélega sprettu framan af sumri, enda var júnímán. ákaflega kald- ur. Það var fyrst um miðjan júlí, að skipti um tíðarfar með hlýindum og gróðrar- skúrum. Urðu menn þá vitni að örari grasvexti en nokkur mundi dæmi til. Á einni viku urðu tún kafloðin og biðu bændur þá ekki lengur boðanna en tóku til við sláttinn. Var þá þegar orðin síbreiða á töðuvelli. Hey nýttust vel, því að ágætir þurrkar voru um mitt sumarið fram í miðjan úgúst. Töðufengur af fyrra slætti er því meiri að vöxtum og gæðum en nokkru sinni áður í þessu byggðarlagi. Aftur á móti mun háarspretta vera léleg eins og gefur að skilja, þar sem sláttur hófst svo seint á sumri. Síðustu vikumar hefur verið hretviðri og örð- ugt að fást við heyskap nema votheysgerð. Þeirri hey- verkunaraðferð er beitt hér í stöðugt vaxandi mæli. Er það eðlilegt, þar sem þurkar eru hér jafnan af skomum skammti. Vegagerð. Það furðulega hefur gerzt, að þrátt fyrir tilraunir stjómarsinna á alþingi til þess að tefja vegagerðina norður í Árneshrepp, hefur aldrei verið unnið af jafnmiklum krafti að vegagerðinni eins og í sumar. Þrjár stórar ýtur hafa ratt brautina, en í kjölfar þeirra fylgdi ámokstursskófla með 4 vörubílum og veghefli. Era góðar horfur á, að þessum vélakosti takizt að leggja veginn frá Veiðileysu til Djúpuvíkur á þessu sumri og rjúfa þannig aldalanga einan- gran Ámeshrepps. Það mundi þurfa langt mál til þess að skýra hinar auknu fram- kvæmdir í vegamálum byggð- arlagsins og því rétt að láta það bíða a. m. k. þangað til stjórnarsinnar fara að telja þær sér til þakka. Hafnarbætur. Um þessar mundir fer fram viðgerð og lenging á bryggjunni í Norðurf. Vinna við þær framkvæmdir 15 menn þar af 5 aðkomumenn, allir frá Sauðárkróki. Verkstjóri er Jón Bjömsson Sauðárkróki. Á Eyri í Ingólfsfirði er einnig unnið að viðgerð hafnarmann- virkja, er urðu fyrir skakka- falli af völdum íssins s. 1. vetur. Flytja Ar héraðinu Kristján H. Jónsson, forstjóri og fyrrverandi yfirhafnsögu- maður á Isafirði, flutti ásamt fjölskyldu sinni úr bænum til Akraness í þessari viku. Jóhannes Þ. Jónsson, kaup- félagsstjóri, Suðureyri, er einnig að flytja ásamt fjöl- skyldu sinni til Reykjavíkur. Að báðum þessum mætu mönnum er in mesta eftir- sjón. Þeir hafa báðir gegnt þýðingarmiklum störfum hér í héraðinu við ágætan orðstýr. Fulltrúar á Kjördæmisþinginu Hópmynd af fulltrúum á hinu glæsilega og einhuga kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Vestfjarðakjördæmi, sem haldið var að Vogalandi dagana 14. og 15. ágúst s.I. Frá kjör- dæmisþinginu og samþykktum þess var sagt í tveimur síðustu blöðum. Ljósm. Guðm. Sveinsson

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.