Ísfirðingur - 06.10.1966, Síða 2
2
ÍSFIRÐINGUR
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiaiiiiiitiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiHiiiiiiiiiihiiiini
SIAD WAMSOKNABtlANN/l / MSrrMRMK/OPMMI
= Úlgefandi: |
| Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi. jj
1 Ritstjórar:
| Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb.
1 AfgreiöslumaSur: |
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 332. |
IIÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlBllllllllPlllllllllllllllllinilllllllllllBllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllBltlllllllMltll
ÁhyMjnr VeMfirílintís
l:tvegum með stuttum fyrirvara hin vinsælu
japönsku -YAMAHA ptanó.
Sýnishorn á staðnum. Aflmrgunarskiimálar.
Bókaverzlun Jónasar Tómassonar
Sími 123 - I«>4ifirÓi.
Brúðhjónin Guðmundína Þorláksdóttir og Sverrir Hestnes,
prentari. Þau voru gefin saman 10. september s.I.
Ágæt lýsing hafnarinnar
Ritstjóri Vestfirðings virð-
ist engar áhyggjur bera útaf
smæð og vesaldómi þeirra
stjórnmálasamtaka sem hann
hefur helgað líf sitt og starf.
Hann virðist vera alveg á-
hyggjulaus útaf innbyrðis iH-
deilum og upplausn innan
flokks síns, sem í fyrradag
gat hafa gengið undir nafn-
inu Kommúnistaflokkur, í
gær undir nafninu Sósíalista-
flokkur sameiningarflokkur al
þýðu, en í dag undir nafninu
Alþýðubandalag, og svo veit
auðvitað enginn undir hvaða
nafni þessar stjórnmálaflokks
tætlur ritstjórans og félaga
hans kunna að ganga á morg-
un. Á þetta er minnst hér til
að benda á það, að umrædd
stjórnmálasamtök virðast
raunverulega aldrei hafa
kunnað við sig sjálf í þjóð-
lífinu og því talið sig þurfa
að breyta um nafn og númer
oftar en nokkur annar stjóm
málaflokkur 1 landinu fyrr og
síðar, og þá auðvitað til að
reyna að breiða yfir umkomu-
leysi sitt og tilgangsleysi.
Það er að vísu mannlegt
þó ritstjóri Vestfirðings sé
hæítur að hafa áhyggjur af
því hve stjórmálasamtök hans
eru illa á vegi stödd meðal
þjóðarinnar, því að hann sér
áreiðanlega að úr því verður
ekki bætt.
En allt um þetta virðist rit
stjórinn vera haldinn hinum
mestu áhyggjum. í síðasta
blaði sínu virðist maðurinn
beinlínis þjást af áhyggjum
yfir því hvernig efstu sæti
framboðslista Framsóknar-
flokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi munu verða skipuð í
næstu alþingiskosningum.
Þessar áhyggjur ætti ritstjóri
Vestfirðings að geta sparað
sér. Enginn framsóknarmaður
mun óska eftir leiðbeiningum
frá hans hendi um eitt eða
neitt og ekki heldur fara eftir
þeim leiðbeiningum þó hann
láti þær í té. Leiðsögn hans
í eigin flokki hefur ekki gef-
ist það vel að ástæða sé til
þess fyrir aðra að tiaka leið-
beiningar hans alvarlega.
Köpuryrði ritstjóra Vest-
firðings í garð þeirra manna
sem skipa efstu sætin á lista
Framsóknarflokksis í næstu
kosningum munu ekki koma
ritstjóranum eða flokkstætl-
um hans að neinu gagni, held-
ur þvert á móti. Framsóknar-
menn geta verið ánægðir yfir
því að andstæðingar þeirra
skuli hafa áhyggjur útaf fram
boðslistanum. Það gefur vissu
lega vonir um mjög góðan á-
rangur í kosningunum.
Margnefndum ritstjóra virð
ist ganga eitthvað treglega að
átta sig á því að fnamsóknar-
menn unnu bæjarfulltrúa á
Isafirði í bæjarstjórnarkosn-
ingunum í vor og eiga nú tvo
fulltrúa í bæjarstjórninni.
Kallar hann það í síðasta leið
ara „frumhlaup" þegar stjóm
málaflokkur býður fram og
bætir við sig bæjarfulltrúa.
Þetta er að vísu dálítill
sérstæður skilningur á úrslit-
um kosninga, og vissulega er
það leitt að það skuli taka
ritstjóra Vestfirðings mánuði
eða ár að átta sig á staðreynd
um.
Eldsvoði
I nótt kl. á fimmta tíman
um varð eldur laus í Vörubíla
stöð ís;af jarðar við Sundstræti
Slökkvilið kaupstaðarins kom
fljótt á brunastað og tókst
greiðlega að slökkva eldinn.
Skemmdir urður töluverðar.
Óvíst er um eldsupptök.
Hjúskapnr
Laugardaginn 1. þ.m. voru
gefin saman í hjónaband Auð-
ur Matthíasdóttir, Bjamason-
ar, alþingismanns, og Vetur-
liði Guðnason, Ingibjarts-
sonar, Isafirði. Þau urðu bæði
stúdentar frá M.A. í vor.
Aðalfundnr Sandfells
Aðalfundur Sandfells hf.,
umboðs- og heildverzlunar,
var haldinn á Isafirði 25. ág.
1966. Fundarstjóri var Einar
Guðfinnsson, Bolungarvík.
Formaður stjómar félagsins,
Bogi Þórðarson, framkvæmda
stjóri, Ratreksfirði, flutti
skýrslu stjómarinnar og
skýrði frá rekstri félagsins
síðastliðið ár, sem var fyrsta
starfsár félagsins.
Flest útgerðarfyrirtæki á Vest
fjörðum eiga nú viðskipti við
félagið og sér Sandfell hf. nú
að miklu leyti um útvegun
veiðarfæra fyrir Vestfirðinga.
Einnig hefur Sandfell hf. nú
nokkur viðskipti í öðmm
landshlutum. Hefur félagið nú
komið sér upp erlendum við-
skiptasamböndum í flestum
tegundum veiðarfæra og
eykst starfsemin nú ört.
Formaður félagsins skýrði frá
því að hlutafé félagsins væri
nú 1.200.000,00 kr. Fram-
kvæmdastjóri félagsins, Bragi
Ragnarsson, las upp og skýrði
reikninga félagsins og voru
þeir samþykktir samhljóða.
Síðan urðu nokkrar umræður
um önnur mál og vom hlut-
hafar ánægðir með árangur
félagsir.s, þann stutta tíma
sem það hefur starfað og
töldu að hér hefði verið fai'-
ið inn á rétta braut.
Stjórn Sandfells hf. var
endurkjórin, en hana skipa:
Bogi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri, Patreksfirði, form.,
Matthías Bjarnason, alþingis-
maður, Isafirði
Rögnvaldur Sigurðsson, kaup-
félagsstjóri, Þingeyri.
Það vekur athygli hve
hafnarsvæðið á Isafirði er
orðið vel lýst. Hafa margir
fullyrt að það sé nú bezt
lýsta hafnarsvæðið á landinu.
Anton Björnsson, rafveitu-
stjóri á ísafirði, teiknaði ljósa
útbúnaðinn og annaðist allann
undirbúning verksins. Ber
vissulega að þakka rafveitu-
stjóranum fyrir hans mikla
þátt í þessum þörfu fram-
kvæmdum. Það er ekki ein-
asta til mikils hagræðis að
hafa hafnarsvæðið vel lýst
heldur skapar það og mikið
öryggi í sambandi við um-
ferð við höfnina.
Rafvíilnfnndnr...
Framhald af 1. síðu
verkfræðingur, Rvík, Garðar
Sigurjónsson, rafveitustjóri,
Vestmannaeyjum, Gísli Jóns-
son, rafveitustjóri, Hafnar-
firði og Guðjón Guðmundsson,
rekstrarstjóri, Reykjavík.