Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 1
íþróttir
Óvænt úrslit Leeds sló Manchester United út úr ensku bikarkeppninni með 1:0 sigri
á Old Trafford. Fyrsti sigur Leeds á Old Trafford í 29 ár. Arsenal lagði West Ham 2-3
Íþróttir
mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
„ÞAÐ eiga allir að skila sér á æf-
ingu á morgun (í dag) og ég hlakka
bara mikið til. Það hafa engin for-
föll verið boðuð og það er ánægju-
legt að Arnór Atlason kemur með í
farteskinu frá Danmörku bik-
armeistaratitil. Hann stóð sig frá-
bærlega í úrslitaleiknum,“ sagði
landsliðsþjálfarinn Guðmundur
Þórður Guðmundsson, við Morg-
unblaðið í gær en í dag hefst
lokaundirbúningur landsliðsins í
handknattleik fyrir Evrópumótið í
Austurríki sem hefst 19. þessa
mánaðar.
Guðmundur valdi fyrir áramótin
17 manna landsliðshóp en sextán
leikmenn verða svo valdir til að
spila á EM þar sem Íslendingar
eru í riðli með Serbum, gestgjöf-
unum Austurríkismönnum og Evr-
ópumeisturum Dana.
,,Þetta verður stuttur og snarpur
undirbúningur. Við fáum góða æf-
ingaleik til að undirbúa okkur eins
og leiki á móti Þjóðverjum í Þýska-
landi. Það eru engin alvarleg
meiðsli í hópnum. Það eru menn
eins og Þórir Ólafsson og Logi
Geirsson sem eru að koma upp úr
meiðslum og við verðum bara að
sjá hver staðan er á þeim næstu
dagana,“ sagði Guðmundur Þórður.
Landsliðið leikur fimm vináttu-
leiki áður en flautað verður til leiks
í Austurríki. Liðið mætir Þjóð-
verjum í tveimur leikjum í Nürn-
berg um næstu helgi. Portúgalar
leika í Laugardalshöll þann 13. jan-
úar og lokaleikirnir fyrir EM verða
gegn Spánverjum 16. janúar og
gegn Frökkum eða Argent-
ínumönnum þann 17. janúar. Sama
dag heldur svo liðið til Linz þar
sem riðill Íslands verður spilaður.
Stuttur en snarpur undirbúningur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Undirbúningur Snorri Steinn Guðjónsson og samherjar hans í landsliðinu
hefja í dag lokaundirbúninginn fyrir Evrópumótið í handknattleik.
GUÐMUNDUR Þórður Guð-
mundsson landsliðsþjálfari í hand-
knattleik og þjálfari danska liðs-
ins GOG segist vera áhyggjufullur
með stöðu félagsins en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um málið í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Fjárhagsstaða GOG er gífurlega
erfið og danskir fjölmiðlar
greindu frá því að svo gæti farið
að félagið yrði tekið til gjald-
þrotaskipta. Staðan er mjög tví-
sýn hjá félaginu og hlutirnir geta
skýrst í dag hvert framhaldið
verður hjá því en það hefur glímt
við mikinn fjárhagsvanda und-
anfarna mánuði.
Guðmundur tók við þjálfun
GOG fyrir tímabilið og hefur gert
það gott en þrátt fyrir mikla erf-
iðleika utan vallar er liðið í þriðja
sæti, er stigi á eftir FCK sem er í
öðru sæti deildarinnar. Með GOG
leikur landsliðsmaðurinn Ásgeir
Örn Hallgrímsson.
gummih@mbl.is
Tvísýn staða
hjá GOG
GUÐMUNDUR
E. Stephensen,
margfaldur Ís-
landsmeistari í
borðtennis, byrj-
aði vel með sínu
nýja liði, BTK
Warta frá Gauta-
borg í Svíþjóð.
Guðmundur og
félagar hans öttu
kappi við Sparv-
agen og höfðu betur, 3:2. Guð-
mundur hafði betur gegn Mikael
Zöögling í einliðaleiknum 2:0, (11:8
og 11:7), og í tvíliðaleiknum fögn-
uðu Guðmundur og Robert Nilsson
sigri á mótherjum sínum, 2:0 (11:8
og 14:12).
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Guðmundur leikur með sænsku liði.
Síðast spilaði hann í Svíþjóð árið
2008, og varð þá sænskur meistari
með Eslövs. gummih@mbl.is
Góð byrjun hjá
Guðmundi
með Warta
Guðmundur E.
Stephensen
BRESKA blaðið News of the World
heldur því fram að Sam Allardyce
knattspyrnustjóri Blackburn Rov-
ers horfi hýrum augum til Eiðs
Smára Guðjohnsen og vilji fá hann
til liðs við Blackburn nú í jan-
úarglugganum.
Allardyce þekkir ágætlega til
Eiðs sem lék undir stjórn hans hjá
Bolton fyrir áratug. Knattspyrnu-
stjóri Blackburn er meðvitaður um
að hann þarf að efla sóknarleik liðs-
ins en lið hans hefur aðeins náð að
skora 20 mörk í 20 leikjum í úrvals-
deildinni á tímabilinu.
Enska blaðið greinir fá því að
Blackburn sé reiðubúið að selja
Suður-Afríkumanninn Benni
McCarthy og fjámagna með þeim
kaupin á Eiði Smára sem hefur ekki
náð sér á strik með Mónakó og
hann hefur ekki verið valinn í 18
manna hópinn í síðustu þremur
leikjum liðsins. gummih@mbl.is
Eiður Smári
orðaður við
Blackburn
MEISTARAMÓT TBR fór fram um helgina og
þar fögnuðu Helgi Jóhannesson og Tinna Helga-
dóttir sigri í einliðaleik. Helgi sigraði
Rasmus Mangor frá Danmörku í úrslitaleik.
Tinna og Rakel Jóhannesdóttir léku til úrslita í
einliðaleik kvenna. Þær sigruðu í tvíliðaleik þar
sem þessi mynd var tekin. Gegn þeim léku til úr-
slita Brynja Pétursdóttir og Erla Björg Haf-
steinsdóttir. Í tvíliðaleik karla sigruðu þeir
Rasmus Mangor og hinn þaulreyndi Broddi
Kristjánsson. Þeir léku til úrslita gegn Atla Jó-
hannessyni og Kára Gunnarssyni.
Einbeittir badmintonspilarar í TBR
Morgunblaðið/Ómar
Meistarar Tinna Helgadóttir og Rakel Jóhannesdóttir sigruðu í tvíliðaleik. Tinna er þrefaldur Íslandsmeistari í badminton frá síðasta Íslandsmóti.
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010