Morgunblaðið - 08.01.2010, Side 2
STRÁKARNIR í U20 ára
karla í íshokkí unnu í gærk
Tyrkjum, 8:2, í lokaleiknu
keppni 3. deildar heimsme
ins í íshokkí sem nú stendu
anbúl. Með sigrinum trygg
liðið sér sigur í riðlinum og
morgun í undanúrslitum g
Sjálendingum. Það er hrei
leikur um sæti í 2. deild.
Íslenska liðið skoraði fy
mörkin. Þegar fyrsta mar
að var íslenska liðið mann
var í liðum þegar annað m
í því þriðja voru íslensku s
einum fleiri á ísnum.
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 2010
ÍSHOKKÍ
HM U20 ára karla
3. deild í Tyrklandi:
A-riðill:
Ástralía – Nýja-Sjáland........................... 5:1
Lokastaðan:
Ástralía 2 2 0 16:2 6
N-Sjáland 2 1 1 6:6 3
Búlgaría 2 0 2 2:16 0
B-riðill:
Ísland – Tyrkland..................................... 8:2
Norður-Kórea – Taívan ........................... 7:4
Lokastaðan:
Ísland 3 3 0 25:6 9
Norður-Kórea 3 2 1 18:13 6
Taívan 3 1 2 12:22 3
Tyrkland 3 0 3 9:23 0
Í undanúrslitum á morgun leikur Ísland
við Nýja-Sjáland og Ástralía við Norður-
Kóreu. Sigurliðin vinna sér sæti í 2. deild og
mætast í úrslitaleik á sunnudag en tapliðin
leika um bronsverðlaunin.
KNATTSPYRNA
Spánn
Bikarkeppni, 16 liða úrslit, fyrri leikir:
Hercules – Osasuna.................................. 2:1
Rayo Vallecano – Mallorca ...................... 2:1
Malaga – Getafe........................................ 2:1
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA
Atlanta – New Jersey .........................119:89
Cleveland – Washington.....................121:98
Orlando – Toronto .............................103:108
Miami – Boston..................................106:112
Eftir framlengingu.
Minnesota – Golden State ................101:107
Oklahoma – New Orleans.....................92:97
San Antonio – Detroit .........................112:92
Phoenix – Houston ............................118:110
Utah – Memphis ..................................117:94
LA Clippers – LA Lakers...................102:91
Staðan í Austurdeild:
Boston Celtics 33 25 8 75,8%
Cleveland Cav’s 37 28 9 75,7%
Orlando Magic 35 24 11 72,7%
Atlanta Hawks 34 22 12 64,7%
Miami Heat 33 17 16 51,5%
Toronto Raptors 36 18 18 50,0%
Charlotte Bobcats 33 15 18 45,5%
Milwaukee Bucks 32 14 18 42,8%
Chicago Bulls 33 14 19 42,4%
New York Knicks 34 14 20 41,2%
Washingt. Wizards 33 11 22 33,3%
Detroit Pistons 34 11 23 32,4%
Indiana Pacers 34 11 23 32,3%
Philadelphia 76ers 34 10 24 29,4%
New Jersey Nets 35 3 32 8,6%
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 35 28 7 80,0%
Dallas Mavericks 35 24 11 68,6%
Phoenix Suns 36 23 13 63,9%
Denver Nuggets 35 22 13 62,9%
San Antonio Spurs 33 21 12 63,6%
Portland T-Blazers 37 22 15 59,5%
Houston Rockets 36 20 16 55,6%
Oklahoma Thunder 35 19 16 54,3%
Utah Jazz 35 19 16 54,3%
New Orl. Hornets 33 17 16 51,5%
Memphis Grizzlies 34 17 17 50,0%
LA Clippers 34 16 18 47,1%
Sacramento Kings 34 14 20 41,2%
Golden St.Warriors 34 10 24 29,4%
Minnesota T-wolves 36 7 29 19,4%
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, N1-deildin:
Víkin: Víkingur – FH ............................20.00
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Haukar ....19.15
Flúðir: Hrunamenn – Valur .................19.15
Síðuskóli: Þór Ak. – KFÍ ......................19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – ÍA.......................19.15
KNATTSPYRNA
Norðurlandsmót karla, Soccerade-mótið:
Boginn: Völsungur – Þór ..................... 19.45
Íslandsmótið í Futsal, 8 liða úrslit:
Laugardalshöll: Keflavík – Hvöt......... 18.30
Álftanes: Víkingur Ó. – Höttur ........... 19.30
Laugardalshöll: Leiknir F. – Víðir .......... 20
Álftanes: ÍBV – Fjölnir ........................ 20.50
GUÐMANN Þórisson, knattspyrnumaður, sem
varð bikarmeistari með Breiðabliki á síðustu leiktíð
er orðinn liðsmaður norska 1. deildarliðsins Ny-
bergsund. Guðmann hefur verið til reynslu hjá
norska liðinu síðustu dagana og einnig fyrr í vetur
og hann náði greinilega að heilla forráðamenn þess
því þeir buðu honum samning og skrifaði miðvörð-
urinn stóri og stæðilegi undir tveggja ára samning
við félagið.
Samningur Guðmanns við Breiðablik rann út um
áramótin en hann hefur leikið allan sinn feril með
liðinu. Hann kom við sögu í 16 leikjum liðsins í
Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en alls hefur hann
leikið 49 leiki með Kópavogsliðinu í efstu deild og
skorað í þeim 3 mörk.
,,Hann hefur staðið sig vel með okkur á æfing-
um. Hann er öflugur, er vel þjálfaður og með
gott hugarfar,“ sagði Ola Brendan þjálfari Ny-
bergsund við norska blaðið Östlendingen.
Viktor Bjarki Arnarsson lék með Nybergsund
á síðustu leiktíð. Hann missti þó úr stóran hluta
vegna meiðsla en lék 17 leiki af 30 með lið-
inu sem endaði í 9. sæti. Viktor hefur yf-
irgefið liðið og leitar þessa dagana að nýj-
um vinnuveitanda.
Einn annar Íslendingur hefur spilað með
Nybergsund, en Valsmaðurinn Magni Blöndal
Pétursson lék með liðinu árið 1984. Nyberg-
sund-Trysil eins og liðið heitir fullu nafni er frá
smáþorpinu Nybergsund í Trysil-héraði, austast í
Noregi, skammt frá sænsku landamærunum.
gummih@mbl.is
Guðmann samdi við Nybergsund
Guðmann
Þórisson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
ÆFINGAHÓPURINN telur því 19
leikmenn en fyrr í vikunni var Rúnar
Kárason kallaður inn í hópinn en eins
og fram hefur komið eru Logi Geirs-
son og Þórir Ólafsson nýstignir upp úr
meiðslum og óvíst hvort þeir verði
orðnir klárir fyrir EM.
Landsliðið heldur utan árdegis til
Þýskalands en liðið mætir Þjóðverjum
í tveimur æfingaleikjum um helgina.
Sá fyrri verður í Nurnberg á morgun
og síðari í Regensburg á sunnudag.
Guðmundur valdi 16 leikmenn til að
taka þátt í þeim í leikjum en þeir Logi
Geirsson, Þórir Ólafsson og Rúnar
Kárason verða eftir heima við æfing-
ar.
Logi spurningarmerki
,,Ég var búinn að ræða við Ragnar
áður en ég valdi 17 manna hópinn. Það
er ákveðin óvissa varðandi meiðsli og
ég vil bara tryggja okkur gagnvart því
og finnst best að koma mönnum tím-
anlega inn í hlutina. Þórir er allur að
koma til og ég held að hann verði í lagi
en Logi er meira spurningarmerki.
Það er ekki búið að loka neinum dyr-
um varðandi hann. Hann verður eftir
heima og mun æfa ásamt Þóri og
Rúnari. Ég vil taka það skýrt fram að
ég er ekki búinn að velja hópinn sem
fer á EM. Það geta orðið breytingar á
honum,“ sagði Guðmundur við
Morgunblaðið í gær.
Munum fá heilmikið af svörum
Guðmundur segir leikina við Þjóð-
verja mjög mikilvæga í undirbún-
ingnum fyrir Evrópumótið.
,,Þessir leikir verða góður próf-
steinn á getu og stöðu liðsins. Við
munum fá heilmikið af svörum um
stöðu liðsins á þessum tímapunkti og
við erum fullir eftirvæntingar að sjá
hvernig við stöndum. Þjóðverjarnir
eru ógnarsterkir og spila á heimavelli
og þetta verður erfitt verkefni. Ég hef
alltaf lagt á það áherslu að spila alvöru
æfingaleiki og helst við erfiðar að-
stæður og það fáum við,“ sagði Guð-
mundur.
Úrslitin ekki aðalatriði
Spurður út í ástand lykilmanna
landsliðsins sagði landsliðsþjálfarinn;
,,Það er bara nokkuð gott. Það eru
auðvitað alltaf einhver smávandamál
sem menn eru að glíma við en á heild-
ina séð lítur liðið bara vel út. Mæli-
kvarði á stöðu liðsins verður nú um
helgina og eftir þá leiki vitum við hvað
þarf að laga og bæta í leik liðsins. Úr-
slitin eru kannski ekki aðalatriðið
heldur hvernig leikur okkar spilast.
Við unnum svo sem ekki marga æf-
ingaleiki fyrir Ólympíuleikana en aðal-
atriðið er að við séum á réttri leið.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vörn? Hvort Sverre Jakobsson sé að ræða við Vigni Svavarsson um hvernig best sé að spila vörnina gegn Þjóðverjum
skal ósagt látið en þeir kannast vel við sig í Þýskalandi. Sverre leikur með Grosswallstadt og Vignir með Lemgo.
Guðmundur Þórður Guðmundsson
þjálfari karlalandsliðsins í handknatt-
leik bætti í gær Ragnari Óskarssyni inn
í landsliðshópinn sem undirbýr sig af
krafti fyrir Evrópumótið sem hefst í
Austurríki þann 19. janúar.
Leikirnir prófsteinn
á stöðu liðsins
Íslenska landsliðið mætir Þjóðverjum í tveimur leikjum um
helgina Ragnar Óskarsson kallaður inn í hópinn í gær
Dagur Sig-urðsson
varð að sætta sig
við að horfa á upp
á lærisveina sína í
landsliði Austur-
ríkis í handknatt-
leik tapa fyrir
Pólverjum, 32:26,
á fjögurra þjóða
æfingarmóti á heimavelli í gær-
kvöldi. Austurríkismenn sem eru
með Íslandi í riðli á væntanlegu Evr-
ópumeistaramóti áttu aldrei mögu-
leika í gær og voru m.a. þremur
mörkum undir í hálfleik, 14:11. Í hin-
um leik mótsins skildu Ungverjar og
Króatar jafnir, 30:30.
Danski auðmaðurinn Jesper Niel-sen sem í gær keypti karla
handknattleiksliðið FCK í Kaup-
mannahöfn, eins og greint er frá
annars staðar í blaðinu, afþakkaði
kaup á kvennaliði FCK. „Ég hef
engan áhuga á kvennahandknattleik
og vil því ekki kaupa eitthvað sem ég
hef enga ástríðu fyrir,“ sagði Niel-
sen í samtali við vefútgáfu TV2.
Gunnar Steinn Jónsson, fyrrver-andi leikmaður handknattleiks-
liðs HK, hefur leikið vel með sænska
úrvalsdeildarliðinu Drott. Hann hef-
ur skorað 47 mörk í 16 leikjum liðs-
ins í deildinni til þessa, auk þess að
vera með bestu nýtingu liðsmanna
úr vítaköstum, 79%. Þá hefur Gunn-
ar Steinn gefið flestar stoðsendingar
leikmanna Drott, alls 58 meira en
tvöfalt fleiri en sá sem næst flestar
stoðsendingar hafa gefið.
Gunnar HeiðarÞorvalds-
son nær ekki að
spila sinn fyrsta
leik með Reading
í ensku 1. deild-
inni í knattspyrnu
á morgun. Leik
liðsins við New-
castle hefur þeg-
ar verið frestað
vegna vetrarhörkunnar á Bretlands-
eyjum.
Hermann Hreiðarsson og félagarhans hjá enska úrvalsdeild-
arliðinu í Portsmouth, fengu í gær
útborguð laun sína en þau skiluðu
sér ekki á tilsettum tíma í byrjun
þessa mánaðar. Þrátt fyrir fjárhags-
þrengingar sögðu forráðamenn
Portsmouth það fjarri öllum sanni að
félagið væri svo illa statt fjárhags-
lega að það yrði að efna til bruna-
útsölu á knattspyrnumönnum á
næstu vikum til að forðast gjaldþrot.
Franski knattspyrnumaðurinnPatrick Vieira stóðst lækn-
isskoðun hjá enska úrvalsdeildarlið-
inu Manchester City í gærkvöld og
mun í kjölfarið skrifa undir eins og
hálfs árs samning við félagið. Hann
kemur frá Inter Mílanó en Vieira lék
með Arsenal um árabil við góðan
orðstír.
Fólk sport@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Viðbót Ragnar Óskarsson fer með
landsliðinu til Þýskalands.
KÁRI Árnason framlengdi í gær
samning sinn við enska 1. deildar fé-
lagið Plymouth Argyle um tvö ár.
Hann gekk til liðs við það síðasta
sumar frá AGF í Danmörku og
samdi þá til eins árs, en er nú samn-
ingsbundinn félaginu til vorsins 2012.
„Ég er gífurlega ánægður því Kári
hefur verið í lykilhlutverki í upp-
byggingu okkar. Kári hefur marga
góða kosti, hann er vinnusamur,
samviskusamur, vill verða betri fót-
boltamaður og er frábær náungi,“
sagði Paul Mariner, knattspyrnu-
stjóri Plymouth, á vef félagsins.
vs@mbl.is
Kári samdi
við Plymouth
Sannfæra