Morgunblaðið - 08.01.2010, Side 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 2010
ÚRVALSLIÐ kvenna og karla í fyrri hluta
Iceland Express deildanna í körfuknattleik
voru tilkynnt í gær. Margrét Kara Sturlu-
dóttir úr KR var valin best kvenna og Justin
Shouse úr Stjörnunni hjá körlum.
Margrét Kara hefur skorað 17 stig að
meðaltali í leik í vetur og tekið 6,5 fráköst og
gefið um 4 stoðsendingar að meðaltali.
Justin Shouse er stigahæsti leikmaður
deildarinnar með 27,4 stig að meðaltali í leik
og það vekur athygli að bakvörðurinn er
með 7,4 fráköst að meðaltali. Shouse gefur
5,6 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Benedikt Guðmundsson, KR, var valinn
besti þjálfarinn í kvennadeildinni og Teitur
Örlygsson, Stjörnunni, í karladeildinni. Sig-
mundur Már Herbertsson var valinn besti
dómarinn. Bestu stuðningsmenn áttu Snæfell
hjá körlum og KR hjá konum.
Úrvalslið kvenna: Heather Ezell, Haukum,
Margrét Kara Sturludóttir og Signý Her-
mannsdóttir, KR, Sigrún Sjöfn Ámundadótt-
ir, Hamri, Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík.
Úrvalslið karla: Justin Shouse og Fannar
Helgason, Stjörnunni, Jóhann Árni Ólafsson,
Njarðvík, Marvin Valdimarsson, Hamri,
Hlynur Bæringsson, Snæfelli.
Semaj Inge, KR, var valinn dugnaðarfork-
ur fyrri hluta tímabilsins í karlaflokki og
Shantrell Moss, Njarðvík, í kvennaflokki.
Margrét Kara og Justin best á fyrri hluta tímabilsins
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
EZELL segir að Haukaliðið stefni
á að komast í hóp fjögurra efstu
liða deildarinnar í úrslitakeppninni
í vor. Hún hefur dregið vagninn
hjá ungu liði Hauka. Ezell, sem er
fædd árið 1987, útskrifaðist úr
hinum virta háskóla Iowa State
vorið 2009 en háskólaliðið er á
meðal þeirra sterkustu í Banda-
ríkjunum.
„Ég geri það sem þjálfarinn
óskar eftir því að ég geri. Liðið
okkar er ungt og efnilegt og ég
þarf því að gera mitt allra besta
til að hjálpa liðinu,“ sagði Ezell
við Morgunblaðið í gær, eftir að
hún hafði verið valin í úrvalslið
fyrri hluta Íslandsmótsins. Ezell
er ekki há í loftinu, en hún kann
að spila körfubolta. Tölfræði henn-
ar segir alla söguna en hún hefur
skorað 31,5 stig að meðaltali, tekið
10,1 fráköst í leik og hún gefur
tæplega 5 stoðsendingar að með-
altali í leik.
Fer á stjá þegar
það fer að birta
Þegar Ezell var spurð að því
hvort hún tæki ekki daginn
snemma á Íslandi brosti hún og
var nokkuð lengi að hugsa sig um.
„Ég fer á stjá þegar það fer að
birta. Það getur reyndar verið
svolítið seint en mér hefur gengið
ágætlega að venjast skammdeginu
en ég reyni að nýta tímann vel
þegar dagsbirtan er. Það er alltaf
myrkur þegar ég fer á æfingar á
kvöldin með liðinu.“
WNBA er draumurinn
Ezell er bjartsýn á framhaldið
með Haukum en hún viðurkennir
að markmið hennar sé að komast í
sterkt atvinnulið á meginlandi
Evrópu. „Ég hef öðlast góða
reynslu hérna á mínu fyrsta ári
sem atvinnumaður. Það er hins-
vegar markmiðið hjá mér að kom-
ast að hjá liðum á meginlandi Evr-
ópu. Þar eru margir valkostir en
ég vona að einhver lið sýni mér
áhuga. Bandaríska atvinnu-
mannadeildin, WNBA, er stóri
draumurinn. Ég er samt sem áður
raunsæ og ég þarf að fá meiri
reynslu til þess að eiga möguleika
á að komast þangað,“ sagði Heat-
her Ezell.
„Hef ekki náð að villast“
Heather Ezell, stigahæsti leikmaður í IE-deild kvenna, kann vel sig hjá Hauk-
um Markmiðið að komast að hjá sterku liði í Evrópu WNBA er draumurinn
Morgunblaðið/Ómar
Góð Bandaríski leikmaðurinn í lið Hauka, Heather Ezell, er stigahæsti leikmaðurinn í úrvalsdeild kvenna.
Í HNOTSKURN
»Heather Ezell er fædd árið1987 og lék hún með Iowa
háskólanum áður en hún kom
til Íslands.
»Ezell er stigahæsti leik-maðurinn í efstu deild
kvenna en hún hefur skorað
31,5 stig að meðaltali.
„Ég kann vel við mig á Íslandi og
körfuboltinn sem er spilaður hérna er
betri en ég átti von á. Það er margt
sem hefur komið á óvart á Íslandi en
liðsfélagar mínir í Haukum eru mest
hissa á því hve vel ég rata þegar ég er
á ferðinni á bílnum mínum. Ég hef
ekki náð að villast í umferðinni,“
sagði Heather Ezell leikmaður Hauka
en hún er stigahæsti leikmaðurinn á
Íslandsmótinu í körfuknattleik
kvenna.
ÍÞRÓTTA- og afreksnefnd Frjáls-
íþróttasambands Íslands hefur valið
landsliðshóp með hliðsjón af árangri
keppenda á árinu 2009. Valið verður
endurskoðað að loknu innan-
hússtímabili en fyrsta stórmót tím-
bilsins verður um aðra helgi þegar
Reykjavík International Games fer
fram.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður:
Karlar:
Spretthlaup:
Arnór Jónsson
Björgvin Víkingsson
Einar Daði Lárusson
Guðmundur Heiðar Guðmundsson
Kristinn Torfason
Magnús Valgeir Gíslason
Óli Tómas Freysson
Ragnar Frosti Frostason
Trausti Stefánsson
Millivega og langhlaup:
Björn Margeirsson
Kári Steinn Karlsson
Ólafur Konráð Albertsson
Sigurbjörn Árni Arngrímsson
Snorri Sigurðsson
Stefán Guðmundsson
Þorbergur Ingi Jónsson
Stökkhópur:
Bjarki Gíslason
Bjarni Malmquist Jónsson
Einar Daði Lárusson
Einar Karl Hjartarson
Kristinn Torfason
Þorsteinn Ingvarsson
Kasthópur:
Bergur Ingi Pétursson
Guðmundur Hólmar Jónsson
Jón Ásgrímsson
Jón Bjarni Bragason
Óðinn Björn Þorsteinsson
Örn Davíðsson
Tugþraut:
Börkur Smári Kristinsson
Einar Daði Lárusson
Konur:
Spretthlaup:
Dóróthea Jóhannesdóttir
Fjóla Signý Hannesdóttir
Hafdís Sigurðardóttir
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
Hrafnhildur Eir Hermóðsdóttir
Kristín Birna Ólafsdóttir
Linda Björk Lárusdóttir
Millivega og langhlaup:
Arndís Ýr Hafþórsdóttir
Björg Gunnarsdóttir
Fríða Rún Þórðardóttir
Íris Anna Skúladóttir
Stefanía Valdimarsdóttir
Stökkhópur:
Ágústa Tryggvadóttir
Hafdís Sigurðardóttir
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
Hulda Þorsteinsdóttir
Jóhanna Ingadóttir
Þórey Edda Elísdóttir
Kasthópur:
Aðalheiður María Vigfúsdóttir
Ásdís Hjálmsdóttir
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir
Ragnheiður Anna Þórsdóttir
Sandra Pétursdóttir
Sjöþrautahópur:
Ágústa Tryggvadóttir
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
FRÍ velur
landsliðshóp
DAVID Stern framkvæmdastjóri NBA deild-
arinnar úrskurðaði Gilbert Arenas leikmann
Washington Wizards í ótímabundið keppnisbann.
Arenas hefur viðurkennt að hafa geymt allt að
fjórar skammbyssur í búningsklefa sínum. Og
miðað einni þeirra á liðsfélaga sinn eftir æfingu
liðsins á jóladag.
Arenas fær ekki laun meðan keppnisbannið
stendur yfir en hann verður af um 19 milljónum
kr. fyrir hvern leik sem hann missir af. Það gæti
farið svo að Arenas fengi keppnisbann út tímabilið
og þá missir hann af um 50 leikjum og fær því ekki
um 950 milljónir kr. í laun á þeim tíma.
Arenas gerði létt grín að byssumálinu fyrir leik
Washington gegn Philadelphia 76‘ers þar sem
hann þóttist skjóta liðsfélaga
sína með „fingrunum“ þegar
liðið safnaðist saman í hring
rétt fyrir leik. Sú uppákoma fór
illa í framkvæmdastjórann sem
hefur miklar áhyggjur af ímynd
deildarinnar. „Ég var einfald-
lega að taka þátt í losa um
spennuna hjá okkur fyrir leik-
inn. Liðsfélagarnir skoruðu á
mig að gera þetta og ég tók
þátt,“ sagði Arenas.
Stern sagði að Arenas yrði í keppnisbanni þar
til að alríkislögreglan hefði lokið rannsókn sinni á
byssumálinu. Arenas hefur sagt að um grín hafi
verið að ræða og hann hefur beðist afsökunar á
slæmri dómgreind.
Talið er að Arenas hafi geymt allt að fjórar
skammbyssur í búningsklefa Washington þann
21. desember s.l. Arenas lenti í deilum við Javaris
Crittenton liðsfélaga sinn í einkaþotu liðsins þeg-
ar liðið var á leið til Washington frá Phoenix þann
19. desember s.l. Deilan er rakin til veðmála en
þeir félagar lögðu háar upphæðir undir í pen-
ingaspili um borð í flugvélinni. Þann 21. desember
hélt deila þeirra áfram í búningsklefa liðsins og
þar eiga þeir að hafa miðað byssu hvor á annan í
hita leiksins. Arenas hefur sagt að þar hafi verið
um „grín“ að ræða sem farið hafi úr böndunum.
seth@mbl.is
Arenas í keppnisbann
Framkvæmdastjóri NBA er mjög ósáttur við „skopskyn“ Gilbert Arenas
„Byssumálið“ gæti kostað bakvörðinn tæplega einn milljarð króna
Gilbert Arenas