Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
ENGAN bilbug er að finna á Vals-
konum í N1-deildinni í handknatt-
leik en þær unnu um helgina fjög-
urra marka sigur á Haukum, 31:27.
Þær tróna á toppnum eftir tólf leiki
og hafa enn ekki tapað leik í vetur.
Haukar, sem nú sitja í 4. sæti,
veittu þeim þó verðuga keppni á
laugardaginn og þegar tæpar 15
mínútur voru til leiksloka munaði
aðeins einu marki á liðunum.
„Ég var samt einhvern veginn
aldrei stressuð yfir stöðunni í leikn-
um,“ sagði Hrafnhildur Ósk Skúla-
dóttir sem var markahæst hjá Val
með átta mörk. „Mér fannst við all-
an tímann vera með yfirhöndina en
það er auðvitað þannig að ef að við
leyfum okkur að slaka á þá getum
við lent í vandræðum. Svo bara
keyrðum við þetta í gang aftur og
þá var aldrei spurning hvernig
þetta færi,“ bætti hún við.
Hrafnhildur átti að venju fínan
leik fyrir hið reynda og öfluga lið
Vals sem og Berglind Íris Hans-
dóttir sem varði fimmtán skot í
markinu, oft úr dauðafærum. Þá
steig Ágústa Edda Björnsdóttir upp
þegar mest á reið undir lok leiksins
en hún gerði fimm mörk á þeim
skamma tíma sem hún spilaði.
Hjá Haukum stóð Hanna G. Stef-
ánsdóttir vel fyrir sínu þrátt fyrir
að vera tæplega búin að jafna sig á
handarbroti og Nína Björk Arn-
finnsdóttir var afar drjúg á línunni.
Liðið leið hins vegar fyrir það hve
illa stórskyttan Ramune Pek-
arskyte náði sér á strik gegn góðri
vörn Vals en hún hrökk þó í gang
undir lok leiksins. Þáttur hennar
þarf að vera stærri til að Haukar
geti lagt bestu lið deildarinnar að
velli.
Engin kergja á milli liðanna
Síðasta viðureign Hauka og Vals
dró dilk á eftir sér en liðin mættust
þá í deildabikarnum á milli jóla og
nýárs. Valur vann leikinn af öryggi
en Haukum var síðar dæmdur sigur
vegna þátttöku Nínu K. Björns-
dóttur en hún var þá ekki komin
með leikheimild. Það er reyndar
kaldhæðnislegt að Nína sat svo all-
an tímann á varamannabekknum á
laugardaginn. Hrafnhildur þvertók
fyrir að einhver kergja hefði verið á
milli liðanna vegna þessa máls enda
var prúðmennskan í fyrirrúmi.
„Maður er nógu fullorðinn til að
leggja svona bara á bakvið sig. Mér
fannst við eiginlega frekar vera allt
of góðar við þær, fengum held ég
einu sinni tveggja mínútna brott-
vísun. Miðað við vörnina sem við
höfum spilað í vetur fengu þær allt
of blíðar móttökur,“ sagði Hrafn-
hildur létt í bragði.
Valur hefur sem áður segir ekki
tapað leik á leiktíðinni en gert tvö
jafntefli og því hefur liðið aðeins
eins stigs forskot á Fram fyrir stór-
leik liðanna í Safamýrinni annað
kvöld. Þar er hætt við að fyrsta tap
þeirra rauðklæddu geti litið dagsins
ljós og um það eru Valskonur með-
vitaðar að sögn Hrafnhildar.
„Nú horfum við fram á toppslag-
inn á þriðjudaginn og það verður
náttúrulega gríðarlega erfiður leik-
ur. Þar mun dagsformið bara ráða.
Auðvitað vonast maður til þess að
tapa bara aldrei en einhvern tímann
hlýtur víst að koma að því,“ sagði
Hrafnhildur.
Morgunblaðið/Kristinn
Ákveðin Rebekka Rut Skúladóttir úr Val reynir að brjótast í gegnum vörn Haukanna í leiknum á laugardag.
Ekkert lát á frábæru
gengi Valskvenna
Haukar veittu þó verðuga mótspyrnu Mikill prófsteinn annað kvöld
Vodafonehöllin að Hlíðarenda, úr-
valsdeild kvenna, N1-deildin, laug-
ardaginn 9. janúar 2010.
Gangur leiksins: 2:2, 4:4, 8:8, 10:8,
12:9, 14:10, 15:13, 17:13, 19:14,
19:18, 22:21, 27:23, 28:25, 29:27,
31:27.
Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúla-
dóttir 8/2, Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 6, Hildigunnur Einarsdóttir 5,
Ágústa Edda Björnsdóttir 5, Re-
bekka Rut Skúladóttir 2, Íris Ásta
Pétursdóttir 2, Katrín Andrésdóttir
1, Brynja Dögg Steinsen 1, Kristín
Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir
15 (þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 7,
Nína Björk Arnfinnsdóttir 5, Hanna
G. Stefánsdóttir 5, Erna Þráinsdóttir
3, Ester Óskarsdóttir 3, Tatanja Zu-
kovska 2, Þórunn Friðriksdóttir 1,
Bryndís Jónsdóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 11
(þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson. Góðir.
Áhorfendur: 92.
Valur – Haukar 31:27
Helena Sverr-isdóttir var
á laugardaginn
útnefnd íþrótta-
maður desem-
bermánaðar hjá
háskóla sínum í
Bandaríkjunum,
TCU. Helena
þakkaði traustið
og hélt upp á tilnefninguna með
flottum leik í 62:41 sigri TCU á Ut-
ah. Þar lék Helena mest allra í liði
TCU, alls í 34 mínútur, og hún gerði
7 stig, átti langflestar stoðsendingar
eða sex talsins og tók auk þess þrjú
fráköst og stal boltanum í þrígang.
Þess má geta að í TCU er íþróttafólk
í ellefu keppnisgreinum og fékk
karfan viðurkenningu fyrir desem-
bermánuð, bæði í karla- og kvenna-
flokki.
Jón Arnór Stefánsson og félagar íspænska körfuknattleiksliðinu
Granada fögnuðu í gær sigri á
Murcia í hörkuleik þar sem lokatöl-
ur urðu 79:76. Jón Arnór gerði tíu
stig, en hann lék í 18 mínútur í leikn-
um. Hann tók tvö fráköst og átti eina
stoðsendingu. Granada er í 9. til 14.
sæti deildarinnar sem stendur eftir
sautján leiki.
Logi Gunn-arsson átti
flottan leik með
CASE í frönsku
deildinni um
helgina en þá
vann liðið Denain
93:75. Logi var
ekki í byrj-
unarliði CASE en
lék í rúmar 28 mínútur og varð stiga-
hæstur ásamt öðrum leikmanni með
22 stig. Hann tók tvö fráköst og átti
þrjár stoðsendingar. Hann hitti úr
fjórum af fimm tveggja stiga skotum
sem hann tók, þremur af fimm
þriggja stiga og úr öllum fimm víta-
köstum sínum.
Njarðvíkingar hafa gengið frásamningi við bandaríska
körfuknattleiksmanninn Nick Brad-
ford um að leika með liðinu það sem
eftir er keppnistímabilsins. Brad-
ford var nýlega leystur undan samn-
ingi í Finnlandi og er kominn til
landsins og að sögn Sigurðar Ingi-
mundarsonar, þjálfara Njarðvík-
inga, á aðeins eftir að ganga frá fé-
lagaskiptum hans frá Finnlandi.
Bradford lék með Grindvíkingum í
fyrra en hafði áður leikið með Kefla-
víkingum undir stjórn Sigurðar í tvö
tímabil, frá 2003 til 2005.
Fram er áfram stigi á eftir Val íúrvalsdeild kvenna í hand-
knattleik eftir öruggan sigur á HK,
35:27, í Digranesi á laugardaginn.
Staðan var 21:13, Safamýrarliðinu í
hag, í hálfleik. Karen Knútsdóttir
skoraði 9 mörk fyrir Fram og Elísa
Ósk Viðarsdóttir gerði 10 mörk fyrir
HK. Þá vann Stjarnan öruggan sig-
ur á Fylki, 26:20, í Mýrinni og er í
þriðja sæti, fjórum stigum á eftir
Fram.
BjörgólfurTakefusa
skoraði fyrra
mark þýska 2.
deildarliðsins
Ahlen þegar það
vann 3. deildarlið
Wuppertal, 2:1, í
æfingaleik.
Björgólfur er til
reynslu hjá Ahlen
þessa dagana og stóð sig vel, sam-
kvæmt vef félagsins, en hann spilaði
fyrri hálfleikinn í leiknum. Ahlen
mætir Dortmund annað kvöld og
Björgólfur verður væntanlega með í
þeim leik.
Fólk sport@mbl.is
„ÉG tel að þetta hafi verið mjög
sannfærandi sigur gegn sterku liði
Hauka,“ sagði Stefán Arnarson,
þjálfari Vals, eftir sigurinn á
Haukum í N1-deild kvenna í hand-
knattleik á laugardag.
„Ég er fyrst og fremst ánægður
með sigurinn náttúrulega en líka
hvað við náðum að spila leikinn af
svakalegum krafti. Mér fannst við
stjórna leiknum frá upphafi,“ sagði
Stefán sem var ánægður með hve
vel tókst að halda aftur af stór-
skyttu Hauka, Ramune Pek-
arskyte.
„Okkar styrkleiki felst í mjög
öflugum varnarleik en hún er nátt-
úrulega frábær skytta sem er mjög
erfitt að stoppa. Það er því ekkert
óeðlilegt að hún skyldi ná að
minna aðeins á sig í lokin en heilt
yfir gekk vörnin mjög vel,“ sagði
Stefán sem hefur enn ekki upplifað
tap á þessari leiktíð. „Það er auð-
vitað mjög erfitt að fara í gegnum
þetta mót taplaus og næsti leikur
er gegn Fram þar sem ég tel okk-
ur hafa helmingslíkur á sigri.“
Hanna: Ágætis byrjun á árinu
Hanna G. Stefánsdóttir gerði
fimm marka Hauka og var ágæt-
lega sátt við frammistöðu liðsins.
„Ég er alveg ánægð með fyrstu
20 mínúturnar hjá okkur en svo
duttum við aðeins niður og gáfum
þeim fjögurra marka forskot sem
reyndist erfitt að vinna upp. Auð-
vitað vildi maður sigur en þetta
var samt ágætis byrjun á árinu,“
sagði Hanna sem telur Hauka eiga
heima ofar en í fjórða sæti.
„Mér finnst við geta miklu betur
en við höfum verið að sýna. Þetta
var alls ekkert lélegur leikur hjá
okkur en mér finnst að sjálfsögðu
að við ættum að vera að berjast á
toppnum í þessum deild,“ sagði
Hanna. sindris@mbl.is
„Stjórnuðum
leiknum frá
upphafi“