Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 4

Morgunblaðið - 11.01.2010, Page 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2010 Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is ÞAÐ var margt ágætt sem íslenska landsliðið í handknattleik gerði er það vann Þjóðverja 32:28 í vináttuleik þjóðanna í Nürnberg á laugardaginn. Þjóðverjar voru 16:14 yfir í hálfleik, en íslenska liðið gafst ekki upp og tókst með vel skipulögðum leik að vinna upp forystu heimamanna og sigra með fjögurra marka mun. Íslenska liði byrjaði ekki sérlega vel því Þjóðverjar gerðu fyrstu tvö mörkin og Ingimundur Ingimund- arson var rekinn af velli snemma leiks og síðan aftur um miðjan fyrri hálfleik þannig að hann kom ekki meira inná í vörnina. Vignir Svavarsson kom þá í vörnina við hlið Sverre Jakobssonar og náðu þeir ágætlega saman. Íslenska liðið skapaði sér samt fín færi en gekk erfiðlega að koma bolt- anum framhjá Lichtlein í markinu, en hann varði mjög vel í fyrri hálf- leiknum. Það sama má reyndar segja um Björgvin Pál í íslenska markinu, en hann lenti reyndar oft einn á móti einum þar sem Þjóðverjar keyrðu upp hraðann eins og þeir gátu og skoruðu mikið úr hraðaupphlaupum. Þau sáust hins vegar varla hjá íslenska liðinu sem gerði ekki eitt einasta mark í fyrri hálfleik með marki úr hraðaupp- hlaupi í fyrstu bylgju, en ein tvö í svo- kallaðri annarri bylgju. Vænleg staða heimamanna Þjóðverjar komust í vænlega stöðu, 14:9, er þeir gerðu átta mörk gegn einu í fyrri hálfleik. Á þessum kafla gekk ekkert upp hjá íslenska liðinu, sem gafst þó ekki upp og ekki heldur í þeim síðari er Ólafur skaut í stöng úr víti er staðan var 20:16. Með sam- takakrafti og undir forystu fyrirliðans Ólafs Stefánssonar, hélt liðið áfram og náði undirtökunum í leiknum og fagn- aði fjögurra marka sigri í lokin með því að gera 16 mörk gegn átta á síðari hluta síðari hálfleiks. Ólafur fór fyrir íslenska liðinu og virðist bara hafa haft gott af hvíldinni frá liðinu í haust. Hann átti margar stórkostlegar sendingar á félaga sína og tók af skarið er á þurfti að halda. Arnór átti fínan leik sem og Snorri Steinn. Vörnin var lengst af fín og Björgvin Páll góður þar fyrir aftan. Sturla kom sterkur inn fyrir Guðjón Val, sem fann sig ekki alveg að þessu sinni. Ljósmynd/Michael Heuberger Mark Guðjón Valur Sigurðsson skorar fyrir Ísland án þess að Michael Müller fái nokkuð við því gert. Hann skoraði níu mörk í leikjunum tveimur. Ólafur fór fyrir liðinu  Margt gott hjá landsliðinu á laugardag  Vann Þjóðverja með fjórum mörkum Íþróttahöllin í Nürnberg í Þýskalandi, vináttulandsleikur í handknattleik karla, laugardaginn 9. janúar 2010. Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 3:2, 3:4, 5:7, 6:8, 11:8, 14:9, 14:13, 16:14, 19:15, 20:16, 20:19, 22:23, 26:26, 26:28, 27:30, 28:32. Mörk Þýskaland: Kaufmann 6, Kraus 5/2, Müller 4, Späth 3, Flohr 2, Jansen 2/1, Strobel 1, Theuerkauf 1, Glandorf 1, Christophersen 1, Schröder 1, Ha- ass1. Varin skot: Lichtlein 10/1, Heinevetter 9. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Ísland: Ólafur Stefánsson 10/6, Arnór Atlason 5, Snorri Steinn Guð- jónsson 5/1, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Róbert Gunnarsson 2, Alexander Petersson 2, Sturla Ásgeirsson 2, Aron Pálmarsson 1, Vignir Svavarsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 18, Hreiðar Levy Guðmundsson 1/1. Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Lazaar og Reveret frá Frakklandi. Áhorfendur: 8.000 og uppselt. Þýskaland – Ísland 28:32 Lið Austur-ríkis, undir stjórn Dags Sig- urðssonar, mátti þola naumt tap gegn Ungverja- landi, 25:26, í síð- asta leiknum á al- þjóðlegu handknattleiks- móti í Wiener Neustadt í fyrrakvöld. Dagur sagði á vef austurríska sam- bandsins að sigur Ungverja hefði verið verðskuldaður og sitt lið hefði gert sig sekt um of mörg mistök. Konrad Wilczynski, Patrik Fölser og Roland Schlinger skoruðu 4 mörk hver fyrir austurríska liðið.    Austurríki er í riðli með Íslandi áEM en liðin mætast í Linz 21. janúar. Austurríska liðið tapaði öll- um leikjum sínum á mótinu, áður gegn Póllandi, 26:32, og Króatíu, 29:38. Króatía vann Pólland, 25:21, í úrslitaleik mótsins en ef Íslendingar komast í milliriðil á EM verða Kró- atar á meðal andstæðinga þar. Kró- atía fékk 5 stig, Pólland 4, Ungverja- land 3 en Austurríki ekkert stig.    Danmörk sigraði Tékkland nokk-uð örugglega, 29:24, í síðasta leiknum á fjögurra þjóða handknatt- leiksmóti í Álaborg í gær. Danir unnu því alla sína leiki, en þeir lögðu Slóveníu á föstudag, 36:35, og Nor- eg, 33:29, á laugardag. Lasse Svan Hansen var markahæstur hjá Dön- um í gær með 5 mörk.    Ulrik Wilbek,þjálfari Dana, var ánægð- ur eftir leikinn gegn Tékkum í gær. „Ég tel að sóknarleikurinn sem við sýndum á mótinu hafi verið einn sá besti hjá okkur í mörg ár. Ég hlakka til að sjá meira af honum á EM, og ég held að við séum að koma varnarleiknum í rétt horf,“ sagði Wilbek við haand- bold.com í gær.    Allt stefndi í frábæra byrjun Ang-ólamanna þegar þeir tóku á móti Malí í gærkvöldi í opnunarleik Afríkumótsins í knattspyrnu. Ang- óla komst í 4:0 á 74. mínútu en í kjöl- farið fylgdi hreint út sagt ótrúlegur leikkafli sem tryggði Malí 4:4 jafn- tefli. Seydou Keita, miðvall- arleikmaður Barcelona, minnkaði nefnilega muninn í 4:1 á 79. mínútu og Frédéric Kanoute bætti við marki á 88. mínútu, áður en Keita og Mustapha Yatabaré gerðu hvor sitt markið í uppbótartíma.    Búlgarski knattspyrnumaðurinnDimitar Berbatov hjá Man- chester United gæti þurft að gang- ast undir aðgerð á næstu dögum til að losna við þrálát meiðsli í hné sem hann hefur glímt við. Berbatov var ekki í hópi United um helgina. Fólk sport@mbl.is MAGNÚS K. Magnússon og Magnea Ólafs úr Víkingi sigruðu í meistaraflokkum karla og kvenna á stigamóti í borðtennis, Adi- dasmótinu, sem haldið var í TBR-húsinu á laugardaginn. Magnús vann félaga sinn úr Víkingi, Magnús Finn Magnússon, í úrslitaleik í meistaraflokki karla, 3:0. Loturnar enduðu 11:8, 11:7 og 11:8. Bjarni Bjarnason úr HK og Daði F. Guðmundsson úr Víkingi höfnuðu í 3.-4. sæti. Magnea vann Bergrúnu Björgvinsdóttur úr Dímon í úrslitaleik í meistaraflokki kvenna, 3:1. Loturnar enduðu 11:4, 7:11, 11:7 og 11:9. Eyrún Elíasdóttir hafnaði í þriðja sæti. Ólafur Eggertsson úr Víkingi sigraði í 1. flokki karla. Sig- urbjörn Sigfússon, Víkingi, varð annar og þeir Helgi Þór Gunn- arsson úr Akri og Pétur Ó. Stephensen, Víkingi, höfnuðu í 3.-4. sæti. Pétur sigraði síðan í eldri flokki karla. Emil Pálsson úr Víkingi varð annar og í 3.-4. sæti urðu Bjarni Gunnarsson úr KR og Sig- urður Herlufsen úr Víkingi. vs@mbl.is Magnús og Magnea unnu Morgunblaðið/Kristinn Sigraði Magnea Ólafs sigraði í meistaraflokki kvenna. Morgunblaðið/Kristinn Annar Magnús Finnur Magnússon lék til úrslita í meistaraflokki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.