Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 1
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
íþróttir
Taplausar Sigurganga KR heldur áfram í kvennakörfunni. Þrettán sigurleikir í röð. Heather
Ezell skoraði 40 stig í stórsigri Hauka. Keflavík lagði Snæfell og Grindavík vann Val. 3
Íþróttir
mbl.is
BJÖRGVIN Páll Gústavsson er markvörður í ís-
lenska landsliðinu í handknattleik sem leikur í
úrslitakeppni EM í Austurríki dagana 19.-31. jan-
úar.
Björgvin Páll er 24 ára gamall, fæddur 24. maí
1985. Hann lék fyrst með A-landsliði Íslands árið
2003 og hefur frá þeim tíma leikið 66 A-
landsleiki og skorað í þeim 4 mörk. Hann þreytir
nú frumraun sína í úrslitakeppni EM en var í
landsliðinu sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Pek-
ing 2008.
Björgvin er uppalinn HK-ingur og lék með meistaraflokki frá 2002
til 2005. Hann spilaði með ÍBV veturinn 2006-07 og varði síðan
mark Framara í tvö ár. Tímabilið 2008-09 lék hann með Bittenfeld í
þýsku 2. deildinni og gekk síðasta sumar til liðs við Kadetten
Schaffhausen í Sviss. Þar trónir hann nú í toppsætinu með liði sínu.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR 5 DAGA
Björgvin Páll Gústavsson
EINS og venjulega er leikmönnum
sænska, danska og norska landsliðs-
ins heitið verulegum peninga-
greiðslum takist þeim að vinna til
verðlauna á Evrópumeistaramótinu
í handknattleik sem hefst í næstu
viku í Austurríki.
Að sögn norskra fjölmiðla fær
hver leikmaður landsins 110.000
norskar krónur, jafnvirði 2,4 millj.
ísl. króna, takist þeim að vinna gull-
verðlaun. Fyrir silfurverðlaun verða
greiddar um 65.000 nkr. á hvern
leikmann, jafnvirði 1,4 millj. króna
og vinni norska liðið brons fær hver
leikmaður 50.000 nkr, jafnvirði 1,1
milljónar króna.
Einar hló
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri, hló að blaðamanni í
gær þegar hann var spurður hvað
leikmenn íslenska landsliðsins
fengju í sinn hlut fyrir tækist þeim
að vinna til verðlauna á mótinu.
„HSÍ hefur ekkert að bjóða og það
hefur ekki einu sinni verið rætt,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins fá leik-
menn íslenska liðsins 20 evrur á dag
í dagpeninga á EM. Það gerir um
3.600 kr. á dag.
HSÍ hefur ekkert að bjóða og
þetta hefur ekki verið rætt
Norðmaður fær 2,4 millj. fyrir EM gull – Íslendingur ekkert
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÉG held að ég hafi fengið svör við þeim spurn-
ingum sem ég vildi fá svör við fyrir leikinn. Nú er
bara komið að því að velja og hafna og ljóst er að
valið verður erfitt,“ sagði Guðmundur Þórður
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik
karla, eftir tíu marka sigur, 37:27, á Portúgal í
gærkvöldi í Laugardalshöll.
Fyrir leikinn sagði Guðmundur m.a. að hann
myndi leita eftir svörum við því hvort Logi Geirs-
son væri klár í slaginn fyrir EM eða ekki, en hann
hefur glímt við meiðsli í öxl. Spurður hvort hann
hefði fengið þau svör frá Loga sem hann vildi
svaraði Guðmundur stutt og laggott; „Já og nei.
Ég ætla að sofa á því í nótt áður en ég svara því
hverjir fara með.
Spurður um varnarleikinn í gær sagði Guð-
mundur að hann hefði verið óánægður með hann í
fyrri hálfleik. „Ég held að við höfum náð meiri yf-
irvegun í vörnina í síðari hálfleik. Nú höfum við
tvo leiki til viðbótar í Frakklandi á laugardag og
sunnudag til þess að vinna í varnarleiknum sem
verður að vera betri þegar á hólminn verður kom-
ið í Linz. Ég hef trú á að þessi atriði komi, sem
vantar upp á,“ sagði Guðmundur Þórður Guð-
mundsson sem fer með 16 leikmenn til Frakk-
lands í fyrramálið til tveggja æfingaleikja þar um
næstu helgi áður en haldið verður til Austurríkis.
Logi eða Ólafur?
Ljóst er að baráttan um sextánda sætið í EM-
hópnum stendur á milli Loga Geirssonar og Ólafs
Guðmundssonar eins og málið leit út í leiknum í
gærkvöldi. Þórir Ólafsson er úr leik, vegna
meiðsla, úr 19 manna æfingahópnum og Rúnar
Kárason situr eflaust einnig eftir en verður til
taks.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ákefð Guðmundur Guðmundsson lét til sín taka á hliðarlínunni í gær. Valdimar Örnólfsson læknir og Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari fylgjast með.
EM valið verður erfitt
Guðmundur Þórður fékk svör við spurningum sínum í gærkvöldi Tilkynnt
kl. 11 í dag hvaða 16 leikmenn fara á EM Valið stendur á milli Loga og Ólafs
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
GUÐRÚN Sóley
Gunnarsdóttir,
landsliðskona í
knattspyrnu,
hefur ákveðið
að taka ekki til-
boði bandaríska
atvinnuliðsins
Chicago Red
Stars. Hún er í
samninga-
viðræðum við
Djurgården um að leika áfram
með liðinu í sænsku úrvalsdeild-
inni á komandi keppnistímabili,
með fyrirvara um að hún verði
búin að jafna sig af höfuðhögginu
slæma sem hún hlaut í leik Ís-
lands og Frakklands í Evr-
ópukeppninni í Finnlandi síðasta
sumar.
„Ég er enn með einkenni eftir
höfuðhöggið og sé því fram á að
geta ekki byrjað að æfa fótbolta
fyrr en í fyrsta lagi einhvern
tíma í mars. Þess vegna ákvað ég
að taka ekki tilboðinu frá Chi-
cago þó það hafi verið virkilega
gott,“ sagði Guðrún Sóley við
Morgunblaðið í gær.
„Það er enn óvissa um hvenær
ég verð leikfær og það getur
hreinlega verið hættulegt að
byrja of snemma. Þess vegna
ákvað ég að vera um kyrrt í Sví-
þjóð og halda áfram að vinna í
Seðlabankanum í Stokkhólmi, því
það hlýtur að vera forgangsmál
hjá mér ef þannig færi að ég gæti
ekki haldið áfram í fótboltanum,“
sagði Guðrún.
Hún var í lykilhlutverki í varn-
arleik Djurgården á síðasta tíma-
bili og spilar þar áfram ef allt fer
samkvæmt áætlun þetta árið. „Já,
viðræðurnar eru í gangi og mið-
ast við að ég nái mér í tæka tíð,
sem ég vonast að sjálfsögðu eft-
ir,“ sagði Guðrún Sóley Gunn-
arsdóttir.
Guðrún hafn-
aði tilboði
Chicago
Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir