Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
KNATTSPYRNA
England
Bikarkeppnin, 64-liða úrslit:
Liverpool – Reading.................................1:2
Brynjar Björn Gunnarsson, Ívar Ingi-
marsson og Gylfi Sigurðsson voru allir í
byrjunarliði Reading. Gylfi skoraði jöfn-
unarmarkið og Brynjar lagði upp sig-
urmarkið í fyrri hálfleik framlengingar.
Newcastle – Plymouth .............................3:0
Kári Árnason var í liði Plymouth.
Ítalía
Bikarkeppnin:
AC Milan – Novara ..................................2:1
Genoa – Catania........................................1:2
Juventus – Napoli.....................................3:0
Spánn
Konungsbikarkeppnin:
Deportivo – Valencia................................2:2
Osasuna – Hercules..................................1:0
Racing Santander – Alcorcon .................0:0
Getafe – Malaga........................................5:1
Sevilla– Barcelona ....................................0:1
Frakkland
Boulogne – Sochaux .................................0:0
Mónakó – Montpellier..............................4:0
Eiður Smári Guðjohnsen var á vara-
mannabekk Mónakó og kom ekki við
sögu.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
KR – Hamar 77:49
DHL-höllin, úrvalsdeild kvenna, Iceland
Express deildin, miðvikudaginn 13. janúar
2009.
Stig KR: Jenny Pfeiffer-Finora 18, Guð-
rún Þorsteinsdóttir 13, Hildur Sigurðar-
dóttir 13, Margrét Kara Sturludóttir 8,
Signý Hermannsdóttir 8, Jóhanna Sveins-
dóttir 6, Heiðrún Kristmundsdóttir 5,
Þorbjörg. Friðriksdóttir 4, Helga Einars-
dóttir 2.
Stig Hamars: Kristrún Sigurjónsdóttir 18,
Guðbjörg Sverrisdóttir 10, Koren Schram
9, Íris Ásgeirsdóttir 5, Hafrún Hálfdán-
ardóttir 3, Fanney Guðmundsdóttir 2, Sig-
rún Ámundadóttir 2.
Haukar – Njarðvík 94:65
Ásvellir:
Stig Hauka: Heather Ezell 40, Kiki Jean
Lund 17, María Lind Sigurðardóttir 6,
Bryndís Hanna Hreinsdóttir 6, Bryndís
Hanna Hreinsdóttir 6, Kristín Fjóla
Reynisdóttir 4.
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 30, Ólöf
Helga Pálsdóttir 17, Heiða Valdimarsdótt-
ir 7, Anna María Ævarsdóttir 6, Helga
Jónasdóttir 3, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2.
Grindavík – Valur 69:59
Grindavík:
Stig Grindavíkur: Petrúnella Skúladóttir
21, Michele DeVault 19, Jovana Stefáns-
dóttir 16, Helga Hallgrímsdóttir 9, Íris
Sverrisdóttir 4.
Stig Valur: Dranadia Roc 28, Berglind
Karen Ingvarsdóttir 14, Þórunn Bjarna-
dóttir 6, Ragnheiður Benónísdóttir 4,
Birna Eiríksdóttir 2, Lovísa Aðalheiður
Guðmundsdóttir 2, Sigríður Viggósdóttir
1.
Snæfell – Keflavík 65:81
Stykkishólmur:
Stig Snæfells: Sherell Hobbs 17, Björg
Guðrún Einarsdóttir 15, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 11, Sara Sædal Andrés-
dóttir 6, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Ell-
en Alfa Högnadóttir 4, Hrafnhildur Sif
Sævarsdóttir 2, Hildur Björg Kjartans-
dóttir 2, María Björnsdóttir 2, Helga
Hjördís Björgvinsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 19,
Bryndís Guðmundsdóttir 18, Kristi Smith
12, Rannveig Randversdóttir 10, Sigrún
Albertsdóttir 7, Marín Rós Karlsdóttir 4,
Hrönn Þorgrímsdóttir 3, Halldóra Andr-
ésdóttir 3, Svava Ósk Stefánsdóttir 3,
Telma Lind Ásgeirsdóttir 2.
Staðan:
KR 13 13 0 976:668 26
Grindavík 13 9 4 909:852 18
Hamar 13 8 5 911:910 16
Keflavík 13 7 6 908:835 14
Haukar 13 6 7 950:898 12
Njarðvík 13 4 9 871:966 8
Snæfell 13 3 10 755:945 6
Valur 13 2 11 707:913 4
NBA
Úrslitin í fyrrinótt:
Charlotte – Houston...........................102:94
Washington – Detroit...........................90:99
Memphis – LA Clippers ..................104:102
San Antonio – LA Lakers .................105:85
Sacramento – Orlando .......................88:109
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, IE-deildin:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Njarðvík.19.15
Iða: FSu – Hamar ................................19.15
Grindavík: Grindavík – Fjölnir ...........19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Valur – Víkingur .................19.15
Egilshöll: KR – ÍR ...............................21.00
„VIÐ höfum æft vel, æfingarnar verið fínar og við
vel spilandi. Við erum að spila okkur í færin en
það sem vantaði í kvöld var að nýta þau. Á meðan
við spilum okkur í færin erum við að gera eitthvað
rétt,“ sagði Guðjón Valur léttur í bragði.
„Vörnin er ekki eins grimm og hún gæti best
verið en við erum að fikra okkur rétta leið og í
rétta átt.
Mér finnst ánægjulegast af þessu öllu saman að
hafa fengið að leika hér í kvöld fyrir fulla Höllina
– og vonandi skemmt fólki eitthvað – og um leið
þjóðina áður en haldið verður út í alvöruna,“ sagði
Guðjón Valur og var þakklátur fyrir þann mikla
áhuga sem var á leiknum en uppselt var fimm
tímum áður en flautað var til leiks. „Ég reyni að
sjá hlutina á eins jákvæðan hátt og hægt er og
brosi allan hringinn þar sem við erum klárlega á
réttri leið.
Ég ítreka að ég tel að hlutirnir verði í lagi því
nær sem við færumst alvörunni. Stemningin og
eftirvæntingin er þannig í hópnum að það er engin
ástæða til annars en vera bjartsýnn og jákvæður,“
sagði Guðjón Valur Sigurðsson sem nú er á leið á
sitt sjötta Evrópumeistaramót.
Vörnin hefur verið betri
„Vörnin hefur einhvern tímann spilað betur, ég
reyndar man ekki hvenær,“ sagði Hreiðar Guð-
mundsson markvörður, sem lék í 37 mínútur í
marki Íslands og varði 12 skot en fékk á sig 15
mörk. „Varnarleikurinn var betri í Þýskalandi um
síðustu helgi. Þetta var allt í lagi. Hraðinn var
minni í þessum leik en gegn Þýskalandi. En heilt
yfir var þetta bara fínn leikur þar sem allir leik-
menn fengu að spreyta sig,“ sagði Hreiðar enn-
fremur.
Spurður hvort hann væri sáttur við sinn hlut í
leiknum svaraði kappinn: „Já, ég er nokkuð sátt-
ur. Vissulega gerði ég mín mistök, en hvenær ger-
ir maður þau ekki? Ég veit hvað má betur fara og
þá er næsta skref að vinna í því,“ sagði Hreiðar
sem skipti við félaga sinn Björgvin Pál Gústavsson
á 23. mínútu.
„Það var ekkert rætt um það fyrir leikinn að
skipta honum jafnt á milli okkar. Það fer bara eft-
ir því hvernig maður stendur sig hversu mikinn
tíma maður fær í leikjum. Ég var bara klár þegar
Guðmundur gaf mér merki um að koma inn á,“
segir Hreiðar Guðmundsson, landsliðsmarkvörður
í handknattleik, sem er á leið á sitt þriðja Evr-
ópumeistaramót.
Hlutirnir verða í lagi á EM
Morgunblaðið/Kristinn
Markahæstur Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk gegn Portúgal í gær og var hann atkvæðamestur í liði Íslands. Hann er bjartsýnn fyrir EM.
„Það er alveg á hreinu að það var margt sem við átt-
um að gera betur í þessum leik. Ég hef hins vegar þá
trú að hlutirnir verði komnir í lag þegar flautað verð-
ur til leiks og við komnir út í alvöruna,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson, markahæsti leikmaður íslenska
landsliðsins með níu mörk í sigurleiknum á Portúgal í
Laugardalshöll í gærkvöldi, 37:27.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Guðjón Valur telur jákvæð teikn vera á lofti Bjartsýnn og jákvæður
ÍSLENSKIR leikmenn komu mikið við sögu í sögulegum 2:1 sigri
Reading á útivelli gegn Liverpool á Anfield í ensku bikarkeppninni í
gær. Ryan Bertrand varnarmaður Reading skoraði sjálfsmark und-
ir lok fyrri hálfleiks eftir að skot frá Steven Gerrard breytti um
stefnu á Bertrand. Leikmenn Reading gáfust ekki upp. Skoraði
Gylfi Þór Sigurðsson úr vítaspyrnu þegar komið var fram yfir
venjulegan leiktíma.. Vítaspyrnan hjá Gylfa var vel framkvæmd en
hann sendi markvörðinn í vitlaust horn og skaut hnitmiðað neðst í
vinstra markhornið. Brynjar Björn Gunnarsson átti stórkostleg til-
þrif þegar hann lagði upp sigurmarkið sem Shane Long skoraði.
Tilþrif hjá Brynjari Birni
Það voru síðan mögnuð tilþrif frá Brynjari Birni Gunn-
arssyni sem gerðu út um leikinn. Brynjar, sem lék geysi-
lega vel í stöðu hægri bakvarðar, lék Yossi Benayoun og
Emiliano Insua grátt á hægri kantinum og átti síðan frá-
bæra fyrirgjöf inn að markteig þar sem Long kom á ferðinni
og skoraði með skalla, 1:2. Íslendingarnir þrír, Gylfi, Brynjar
og Ívar Ingimarsson, léku allir allar 120 mínúturnar með
Reading sem er komið í 4. umferð og fær þar heimaleik gegn
úrvalsdeildarliði Burnley, liði Jóhannesar Karls Guðjóns-
sonar. Fernando Torres og Steven Gerrard fóru báðir meiddir
af velli. Torres í fyrri hálfleiknum og Gerrard kom ekki aftur til
leiks eftir leikhlé.
„Strákarnir voru stórkostlegir,“ sagði Brian McDermott sem
gegnir tímabundið starfi knattspyrnustjóra hjá Reading. „Fyrir
utan mörkin tvö fengum við þrjú eða fjögur góð færi sem ekki
nýttust. En frammistaða minna manna var hreint út sagt mögn-
uð. Formaðurinn er afar ánægður en ég er ekkert áhyggju-
fullur vegna starfsins. Ég er bara svo ánægður fyrir hans
hönd og leikmannanna,“ sagði McDermott. Ekki náðist í ís-
lensku leikmennina i gærkvöld þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Gylfi skoraði í sigurleik Reading á Anfield
„ÞEGAR maður er nýliði í landslið-
inu getur maður ekki gert kröfu um
að fá tækifæri í æfingaleik, en að
sjálfsögðu vonaðist ég til þess að fá
tækifæri til að láta ljós mitt aðeins
skína,“ sagði Ólafur Guðmundsson,
handknattleiksmaður úr FH, sem lék
síðustu tíu mínúturnar í leiknum við
Portúgal í gærkvöldi. Hann átti tvö
skot á markið og skoraði eitt mark.
„Ég var tilbúinn í slaginn frá fyrstu
mínútu ef Guðmundur þjálfari myndi
kalla á mig, þannig að það var frá-
bært að fá tækifæri undir lokin.
Stemningin var frábær í Laugar-
dalshöllinni og alls ekki hægt að
biðja um betri aðstæður til þess að
koma inn á í landsleik,“ sagði Ólafur
en í dag kemur í
ljós hvort hann fer
með á EM í Aust-
urríki eða bíður á
varamannabekkn-
um heima á Íslandi
en bætt verður inn
í landsliðið ef það
kemst í milliriðla.
„Ég hef gert allt
sem er í mínu valdi
bæði á æfingum og
leiknum í dag. Nú er valdið komið í
hendur þjálfarans hvort ég fer með
eða ekki. Ég get ekkert gert til við-
bótar í þeim efnum,“ sagði Ólafur
Guðmundsson.
iben@mbl.is
Var tilbúinn frá fyrstu mínútu
Ólafur
Guðmundsson
„VIÐ erum ekki eins ferskir og við
viljum vera í varnarleiknum. Það
slitnar of mikið á milli manna,“ sagði
varnarjaxlinn sterki Ingimundur
Ingimundarson, landsliðsmaður í
handknattleik, eftir viðureignina við
Portúgal í gærkvöldi.
„Við viljum leika grimman varn-
arleik og það alveg ljóst að sú aðferð
gengur ekki gegn liði eins og Portú-
gal sem þrífst svolítið á því að hlaup-
ið sé út í þá, þeir hafa ekki neitt sér-
stakar skyttur. Stærri þjóðirnar eins
og þær sem við mætum á EM hafa
fleiri og betri skyttur sem verður að
sækja svolítið út í.
Samt sem áður þá er ég ekki nógu
ánægður með stöðu mála. En það
gefast nokkrar æf-
ingar til viðbótar
og tveir æfinga-
leikir um helgina
til þess að vinna
áfram í þeim atrið-
um sem við verð-
um að laga og hafa
á hreinu áður en
flautað verður til
leiks á EM.
Ég lofa því hér
og nú að allt verður tipp topp þegar
flautað verður til leiks gegn Serbum
í fyrsta leik EM á þriðjudaginn,“
sagði Ingimundur Ingimundarson í
gærkvöldi.
iben@mbl.is
Erum ekki nógu ferskir
Ingimundur
Ingimundarson