Morgunblaðið - 14.01.2010, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Eiður SmáriGuðjohn-
sen sat á bekkn-
um allan tímann í
liði Mónakó þeg-
ar liðið burstaði
Montpellier á
heimavelli, 4:0, í
frönsku 1. deild-
inni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Þetta er fjórði
deildarleikurinn sem Eiður kemur
ekkert við sögu en í þremur síðustu
leikjunum var hann ekki í hópnum.
Knattspyrnumennirnir Guð-mundur Pétursson og Magnús
Már Lúðvíksson eru þessa dagana
til skoðunar hjá norska liðinu Hödd
sem leikur í þriðju efstu deild.
Þeir tvímenningar verða við æf-
ingar hjá Hödd út vikuna. Guð-
mundur er á mála hjá KR en hann
lék sem lánsmaður með Breiðabliki
á síðustu leiktíð. Magnús Már er
samningsbundinn Þrótti en hann
hefur einnig leikið með KR, Val, ÍBV
og Fjölni.
Franska liðið Mónakó, sem EiðurSmári Guðjohnsen leikur með,
hefur fengið Moussa Maazou að láni
frá rússneska liðinu CSKA Moskva.
Maazou er 21 árs gamall framherji
frá Nígeríu sem hefur skorað þrjú
mörk í 15 leikjum með CSKA og þá
skoraði hann 15 mörk í 31 leik með
belgíska liðinu Lokeren.
John Higgins heimsmeistari í snó-ker féll úr leik á Mastersmótinu
sem stendur yfir í Lundúnum þessa
dagana. Skotinn beið lægri hlut fyrir
Norður-Íranum Mark Allen, 6:3, í
annarri umferð mótsins.
Enn urðu óvænt úrslit í Afr-íkukeppninni í gær þegar Ga-
bon gerði sér lítið fyrir og sigraði
Kamerún, 1:0. Daniel Cousin, fram-
herji enska úrvalsdeildarliðsins Hull
City, skoraði eina mark leiksins í
fyrri hálfleik en Kamerúnar, sem
fjórum sinnum hafa orðið Afr-
íkumeistarar og tvisvar í öðru sæti,
voru fyrir leikinn taldir öruggir með
sigur.
RigobertSong, varn-
armaður Kam-
erún, skráði nafn
sitt í sögubækur
Afríku-
keppninnar með
því að verða
fyrsti leikmað-
urinn sem tekur
þátt í átta Afríkukeppnum. Song er
33 ára gamalll og leikur með tyrk-
neska liðinu Trabzonspor.
Liðin sem léku til úrslita í Eim-skipsbikarnum í handknattleik
karla í fyrra, Valur og Grótta, mæt-
ast í undanúrslitum í ár. Í hinni við-
ureigninni Haukar og HK.
Fólk folk@mbl.is
„ÞETTA var virkilega sannfærandi sig-
ur. Um leið og Portúgalarnir nálguðust
okkur gáfu strákarnir bara í og það var
rosalega gaman að sjá gömlu Svíana
liggja hér með tíu mörkum í Höllinni,“
sagði gamla landsliðskempan Sigurður
Bjarnason við Morgunblaðið eftir leikinn
en þjálfari portúgalska landsliðsins er
Mats Olsson, fyrrverandi markvörður
sænska landsliðsins, sem gerði Íslend-
ingum lífið leitt og aðstoðarmaður hans
er Thomas Sivertsson, fyrrverandi línu-
maður sænska landsliðsins.
„Ég verð að segja það að ég er mjög
bjartsýnn fyrir hönd okkar manna á
EM. Ég sé bara beint framhald af Ól-
ympíuleikunum og ég vil bara sjá liðið
stefna á gullið,“ sagði Sigurður.
Íslenska liðið hóf leikinn af krafti með
Ólaf Stefánsson og Loga Geirsson í góð-
um gír en þeir bjuggu til hvert markið á
fætur öðru. Þrátt fyrir töluverð mistök í
sóknarleiknum og góð færi sem fóru í
súginn náðu Íslendingar fimm marka
forskoti eftir stundarfjórðung, 12:7. Þá
kom slæmur kafli hjá íslenska liðinu og á
skömmum tíma náðu Portúgalar að
jafna metin, 13:13. Vörnin var ekki góð á
þessum kafla og Björgvin Gústavsson
náði sér ekki á strik á milli stanganna.
Munurinn var tvö mörk eftir fyrri
hálfleikinn, 17:15, en gestirnir skoruðu
tvö fyrstu mörkin og jöfnuðu metin í
17:17. Þessu svaraði íslenska liðið með
sínum besta kafla í leiknum. Vörnin
small saman og Hreiðar Guðmundsson,
sem leysti Björgvin af seint í fyrri hálf-
leik, varði vel. Á augabragði skoraði Ís-
land sex mörk í röð, breytti stöðunni í
23:17, og þar með var eftirleikurinn auð-
veldur.
Það er ekki hægt segja annað en góð-
ur bragur sé á íslenska liðinu, tæpri viku
áður en flautað verður til leiks í Aust-
urríki. Vissulega gerðu leikmenn sig
seka um mistök í sókn sem vörn en
heildarsvipurinn á liðinu er góður og
ekki annað að sjá en Guðmundur Þórður
Guðmundsson landsliðsþjálfari sé tilbú-
inn með liðið á réttum tíma.
Liðsheildin var öflug þar sem Guðjón
Valur Sigurðsson var kannski fremstur
á meðal jafningja. Hann og Logi náðu af-
ar vel saman á vinstri vængnum og Guð-
jón nýtti færi sín vel. Ólafur Stefánsson
er liðinu ómetanlegur og þó svo að hann
hefði hægara um sig í markaskorun en í
síðustu leikjum spilaði hann vel fyrir lið-
ið. Það gerði Logi Geirsson líka þann
tíma sem hann var inná en leikurinn var
nokkurs konar prufa fyrir Loga, hvort
hann geti verið með á EM. Greinilegt er
að Logi gengur ekki alveg heill til skóg-
ar og virkar hálfsmeykur um öxlina en
hann skaut aðeins einu skoti á markið og
það í hraðaupphlaupi. Vonandi verður
ljóshærði Hafnfirðingurinn með en það
ætti að koma endanlega í ljós í dag.
Snorri Steinn stjórnaði spili liðsins af
festu og röggsemi og þá gekk Ingi-
mundur Ingimundarson vasklega fram í
vörninni eins og honum er einum lagið.
Strákarnir fengu góðar kveðjur frá ís-
lensku þjóðinni sem bíður nú með önd-
ina í hálsinum eftir veislunni í Aust-
urríki. Þar tel ég að Ísland hafi alla burði
til að ná langt.
„Strákarnir okkar“
kvöddu landann með stæl
Morgunblaðið/RAX
Góður Ólafur Stefánsson og félagar hans í íslenska landsliðinu lögðu Portúgal í gær í vináttulandsleik í Laugardalshöll.
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu
í handknattleik kvöddu íslensku þjóð-
ina með tíu marka sigri gegn Portúgöl-
um, 37:27, í troðfullri Laugardalshöll í
gærkvöldi þar sem stemningin var
virkilega góð. Þetta var eini leikur
landsliðsins hér á landi fyrir átökin á
EM sem hefst í næstu viku.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Vil sjá liðið stefna á gullið, sagði gamla landsliðskempan Sigurður Bjarnason
HEATHER Ezell leikmaður Hauka lék sér að
Njarðvíkurliðinu í úrvalsdeild kvenna í gær í
94:65 sigri liðsins. Ezell náði þrefaldri tvennu
þar sem hún skoraði 40 stig, tók 10 fráköst og
gaf 13 stoðsendingar. Danski landsliðsmað-
urinn Kiki Jean Lund skoraði 17 stig fyrir
Hauka sem virðast til alls líklegir á lokaspretti
deildarkeppninnar en Haukar hafa titil að
verja. Shantrell Moss var allt í öllu í liði Njarð-
víkur en hún skoraði 30 stig og tók 15 fráköst.
Ólöf Helga Pálsdóttir skoraði 17 stig fyrir
Njarðvík. Haukar eru í harðri baráttu um að
komast í efri hluta deildarinnar áður en byrjað verður að keppa í
tvískiptri deild um miðjan febrúar. Haukar eru með 12 stig í
fimmta sæti en Keflavík er með 14 stig í fjórða sæti og Hamar er í
þriðja með 16 stig. seth@mbl.is
Ezell fór á kostum
Heather
Ezell
SIGURGANGA KR heldur áfram í Iceland
Express-deild kvenna í körfuknattleik en í
gær lagði KR lið Hamars örugglega að velli,
77:49. KR hefur unnið alla 13 leiki sína í
deildarkeppninni en eini tapleikur liðsins á
tímabilinu var í bikarkeppninni gegn Hamri
á heimavelli. Hildur Sigurðardóttir skoraði
13 stig, tók 11 fráköst og gaf 7 stoðsendingar
í liði KR. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir skor-
aði 13 stig fyrir KR og hún tók einnig 7 frá-
köst. Jenny Pfeiffer-Finora var stigahæst í
KR með 18 stig. Margir af lykilmönnum Ham-
ars náðu sér ekki á strik og má þar nefna að landsliðskonan Sig-
rún Ámundadóttir skoraði aðeins 2 stig. Kristrún Sigurjóns-
dóttir var stigahæst í liði Hamars með 18 stig en liðið er í þriðja
sæti deildarinnar. seth@mbl.is
Þrettándi sigur KR í röð
Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir
KEFLAVÍK átti ekki í teljandi vandræðum
með Snæfell á útivelli í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik í gær. Lokatölur 81: 65, en leik-
urinn fór fram í Stykkishólmi. Bryndís Guð-
mundsdóttir fór fyrir liði Keflavíkur en hún
skoraði 20 stig og tók 14 fráköst. Sherell
Hobbs skoraði 17 stig og tók 10 fráköst í liði
Snæfells.
Grindavík í góðri stöðu
Í Grindavík styrki heimaliðið stöðu sína í
öðru sæti deildarinnar með 69:59 sigri gegn
botnliði Vals. Petrúnella Skúladóttir skoraði 21 stig fyrir Grinda-
vík, Michele DeVault skoraði 19 og Jovana Stefánsdóttir 16.
Helga Hallgrímsdóttir tók 19 fráköst í liði Grindavíkur. Dranadia
Roc skoraði 28 stig og tók 8 fráköst í liði Vals. seth@mbl.is
Grindavík í öðru sæti
Bryndís
Guðmundsdóttir
Laugardalshöll, vináttulandsleikur
karla í handknattleik, miðvikudaginn
13. janúar 2009.
Gangur leiksins: 1:0, 4:2, 8:4, 11:6,
13:9, 13:13, 17:15, 17:17, 23:17, 27:21,
31:24, 35:25, 37:27.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðs-
son 9, Snorri Steinn Guðjónsson 7/4,
Róbert Gunnarsson 4, Alexander Pet-
ersson 4, Sturla Ásgeirsson 3, Ólafur
Stefánsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson
2, Vignir Svavarsson 1, Logi Geirsson 1,
Aron Pálmarsson 1, Ólafur Guðmunds-
son 1, Rúnar Kárason 1.
Varin skot: Björgvin Gústavsson 3
(þar af 1 til mótherja), Hreiðar L. Guð-
mundsson 12 (þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Portúgals: Dario Andrande 6/1,
Jose Costa 5, Carlos Carneiro 5, Tiago
Rocha 4, Pedro Solha 3, Fabio Ma-
galhaes 2, David Tavares 1, Nuno Pe-
reira 1.
Varin skot: Hugo Figueira 13 (þar af 2
til mótherja), Hugo Laurentino 6/1
(þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur
Leifsson, stóðu sig vel.
Áhorfendur: 2.500, uppselt.
Ísland – Portúgal 37:27