Morgunblaðið - 15.01.2010, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2010
ÞAÐ er mikill vandræðagangur hjá Ports-
mouth, innan sem utan vallar. Liðið situr á botni
ensku úrvalsdeildarinnar og félagið á í mikum
fjárhagserfiðleikum sem ekki sér fyrir endann
á. Í gær ákvað nefnilega stjórn ensku úrvals-
deildarinnar að Portsmouth fái ekki greiðslur
sem það átti að fá vegna sjónvarpsútsendingar
en í stað verða peningarnir notaðir til að greiða
skuldir Portsmouth við önnur félög.
Upphæðin sem Portsmouth átti að fá fyrir
sjónvarpsútsendingarnar er sjö milljónir punda,
sem jafngildir 1,4 milljörðum króna, en suður-
strandarliðið skuldar félögunum í ensku úrvals-
deildinni og félögum úti í heimi 10 milljónir
punda, rúma tvo milljarða íslenska króna. Þá
má Portsmouth ekki kaupa
leikmenn vegna skulda við
félögin eftir leikmannakaup
og ekki er það til að bæta
stöðu liðsins á stigatöflunni.
Samtals nema skuldir
Portsmouth 60 milljónum
punda en félagið á yfir höfði
sér kröfu um gjaldþrota-
skipti í næsta mánuði.
Hermann Hreiðarsson og
félagar hans í Portsmouth
taka á móti Birmingham í ensku úrvalsdeildinni
á morgun.
gummih@mbl.is
Portsmouth missir sjónvarpspeninga
Hermann Hreið-
arsson
EVRÓPU- og Spánarmeistarar Barcelona ná
ekki að verja titil sinn í spænsku bikarkeppn-
inni þetta árið en Börsungar féllu í fyrra-
kvöld úr leik í bikarnum þrátt fyrir 1:0 úti-
sigur á Sevilla. Það var Xavi sem skoraði
sigurmarkið en Sevilla komst áfram á úti-
markareglunni þar sem liðið hafði betur á
Camp Nou, 2:1. Liðin mætast að nýju í deild-
arkeppninni á Nou Camp í Barcelona á laug-
ardaginn. „Við horfum fram á veginn. Það
eru tveir titlar í boði og við gerum okkar
besta til þess að verja þá,“ sagði markaskor-
arinn Xavi í leikslok.
Þetta er í fyrsta sinn sem Pep Guardiola
þjálfari Barcelona upplifir það að lið hans
fellur úr keppni, en hann
stýrði liðinu til sigurs í öll-
um keppnum sem liðið tók
þátt í á síðasta tímabili.
Titlarnir urðu alls sex.
„Við verðum að bíða eft-
ir því hvernig leikmenn-
irnir bregðast við í næsta
leik. Það var ég sem brást
að þessu sinni, leikmenn-
irnir lögðu sig fram og
gerðu allt sitt besta,“ sagði
Guardiola. Barcelona er í efsta sæti deild-
arinnar með 43 stig eftir 17 leiki, tveimur
stigum fyrir ofan Real Madrid.
Guardiola tekur á sig ábyrgðina
Pep Guardiola
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Gylfi var á sjúkrahúsinu nýkominn
úr myndatöku þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gær en tvítugi
Hafnfirðingurinn gat varla stigið í
fótinn þegar hann steig fram úr
rúminu í gær.
,,Ég hélt að ég væri ristarbrotinn
en sem betur fer reyndist svo ekki
vera. Ég er marinn á ristinni og er
aumur en ég vonast til að ná leikn-
um á móti Nottingham Forest á
laugardaginn,“ sagði Gylfi, sem
hefur svo sannarlega slegið í gegn
með Reading-liðinu í vetur og er
farinn að banka hressilega á dyr A-
landsliðsins.
Mikilvægasta markið og
eftirminnilegasti leikurinn
Gylfi segist hafa verið farinn að
sætta sig við tap þegar klukkan á
Anfield sýndi 90 mínútur. ,,Ég var
farinn að halda að þetta yrði ekki
okkar kvöld. Ég náði ágætu skoti
undir lokin og ég hélt að þar hefði
farið síðasti möguleikinn en síðan
fengum við vítið og að skora úr því
gaf okkur aukakraft,“ sagði Gylfi.
Það þarf varla að spyrja þig
hvort þetta hafi ekki verið mik-
ilvægasta markið sem þú hefur
skorað á ferlinum.
,,Það er ekki spurning og fyrir
mig sem hef haldið með Manchest-
er United alla mína tíð var rosalega
sætt að skora á móti Liverpool og
það á Anfield. Þetta er klárlega eft-
irminnilegasti leikurinn sem ég hef
spilað. Maður spilar ekki á hverjum
degi á þessum fræga velli og ég
kem aldrei til með að gleyma þess-
um leik, sérstaklega þar sem ég
skoraði mark í uppbótartíma og við
náðum svo að gera út um leikinn í
framlengingu. Það var rosaleg gleði
í klefanum eftir leikinn en við vor-
um svo þreyttir að fögnuðurinn
stóð stutt yfir,“ sagði Gylfi.
Strax eftir leikinn tók við fjög-
urra og hálfs tíma rútuferð og
sjálfur eigandi félagsins, John Ma-
dejski, ákvað að skella sér með.
,,Þetta er í fyrsta skipti sem hann
ferðast með okkur og það var gam-
an að fá karlinn með okkur. Hann
var alveg í sæluvímu,“ sagði Gylfi.
Gylfi sagði í viðtali við undirrit-
aðan eftir fyrri leikinn á Madejski
Stadium, sem endaði 1:1, að hann
ætti sér þann draum að skemma
tímabilið fyrir Liverpool, en sjö-
faldir bikarmeistarar Liverpool
eiga nú aðeins raunhæfa möguleika
á að vinna einn titil á tímabilinu
með því að vinna Evrópudeild
UEFA.
,,Þetta voru stór orð hjá mér en
mér tókst að standa við þau. Liver-
pool ætlaði sér alla leið í bikarnum
í ár og nú held ég að það sé alveg
ljóst að það vinnur engan titil þetta
tímabilið. Mitt lið er Manchester
United og mér leiðist ekki að sjá
þegar Liverpool gengur illa. Leik-
menn Liverpool tóku tapinu vel.
Carragher tók í hönd okkar allra
eins og sönnum atvinnumanni
sæmir en ég býst örugglega við því
að það hafi verið jarðarfararstemn-
ing í klefanum þeirra eftir leikinn.“
Gylfi hrósaði löndum sínum, Ív-
ari Ingimarssyni og Brynjari Birni
Gunnarssyni, en þeir áttu báðir frá-
bæran leik í vörninni. Ívar var til
að mynda útnefndur maður leiksins
á ITV-sjónvarpsstöðinni og Brynjar
Björn sýndi mögnuð tilþrif þegar
hann lagði upp sigurmarkið.
Vonar að Ívar og
Brynjar haldi áfram
,,Þetta var algjör snilld hjá
Brilla. Hann sólaði tvo leikmenn
Liverpool gjörsamlega upp úr
skónum og átti svo þessa frábæru
fyrirgjöf. Ég hef séð þetta áður hjá
honum á æfingu. Brilli var virki-
lega góður í bakvarðarstöðunni og
Ívar eins og klettur í miðvarð-
arstöðunni. Þeir eru liðinu mjög
mikilvægir og ég vona að þeir verði
hjá okkur áfram. Við þurfum á
þeim að halda en maður veit aldrei
hvað gerist í fótboltanum,“ sagði
Gylfi, en samningaviðræður Ívars
við félagið hafa ekki skilað neinum
árangri og Brynjar hefur að und-
anförnu verið sagður á förum frá
liðinu. Samningar þeirra beggja
renna út í sumar.
Eigum góða möguleika
gegn Burnley
Reading leikur á móti Jóhannesi
Karli Guðjónssyni og félögum hans
í Burnley í 4. umferð bikarkeppn-
innar. ,,Er ekki bara best að taka
stefnuna á Wembley,“ sagði Gylfi
og hló við. ,,Ég tel okkur eiga góða
möguleika á að slá Burnley út og
ég tala nú ekki um ef við spilum af
sama krafti og við gerðum í leikj-
unum á móti Liverpool. En núna
þurfum við að fara að fikra okkur
upp stigatöfluna í deildinni. Við eig-
um erfiðan leik á laugardaginn á
móti Nottingham Forest og nú
þurfum við bara að fylgja þessum
góða sigri á Liverpool eftir og ná í
þrjú stig í þeim leik,“ sagði Gylfi,
sem er markahæsti leikmaður
Reading á tímabilinu með átta
mörk, sex í deildinni, eitt í bik-
arnum og eitt í deildabikarnum.
Fjórði Íslendingurinn mun bæt-
ast í leikmannahóp Reading fyrir
leikinn á móti Forest en Gunnar
Heiðar Þorvaldsson hefur fengið
keppnisleyfi og er klár í slaginn.
,,Hjartað sló ansi hratt“
Ákvað að bíða eftir hreyfingu frá markverðinum, sagði Gylfi Þór Sigurðsson
Átti sér þann draum að ná að skemma tímabilið fyrir Liverpool
AP
Stoltur Gylfi Þór Sigurðsson var rosalega ánægður þegar hann sá boltann í
netinu hjá Liverpool á Anfield. Gylfi skoraði úr vítaspyrnu fyrir Reading.
Í HNOTSKURN
»Gylfi Þór er 20 ára gamallHafnfirðingur sem er upp-
alinn hjá FH en gekk í raðir
Breiðabliks í 3. flokki.
»Gylfi kom inn í aðalliðshópReading í fyrra eftir að
hafa spilað í þrjú ár með ung-
lingaliðinu.
»Gylfi hefur spilað átta leikimeð U21árs landsliðinu og
hefur skorað þrjú mörk í
þeim.
,,Það var rosalega mikill léttir að sjá
boltann í netinu. Ég neita því ekki að
ég fann fyrir smá taugaveiklun og
hjartað sló ansi hratt en ég ákvað að
bíða eftir hreyfingu frá markverð-
inum og lagði svo bara boltann í
hornið. Ég er varla búinn að ná því að
við höfum unnið,“ sagði Gylfi Þór
Sigurðsson, leikmaður Reading, við
Morgunblaðið en Gylfi skoraði fyrra
mark Reading úr víti í uppbótartíma í
venjulegum leiktíma þegar Reading
gerði sér lítið fyrir og sló Liverpool út
úr bikarkeppninni og það á Anfield.
KylfingurinnErnie Els,
sem hefur þríveg-
is sigrað á stór-
móti á ferlinum,
ætlar að draga úr
keppnisferðalög-
um sínum á þessu
ári.
Suður-Afríku-
maðurinn hefur á undanförnum ár-
um þvælst út um allan heim og
keppt á mótum í mörgum heims-
álfum á hverju ári. Ferðalögin hafa
ekki skilað árangri og á árinu 2010
ætlar Els aðeins að keppa á mótum í
Bandaríkjunum auk opna breska
meistaramótsins. Els, sem er fertug-
ur, hefur flutt heimili sitt frá London
og býr með fjölskyldu sinni á Flór-
ída.
Ósigurinngegn Read-
ing í fyrrakvöld
tók sinn toll hjá
Liverpool. Þrír
leikmanna liðsins
eru nú komnir á
sjúkralistann og
verða ekki með
liðinu næstu vikurnar. Það þykir
vart tíðundum sæta lengur að fram-
herjinn Fernando Torres er meiddur
en Spánverjinn fékk högg á hnéð og
verður hann frá keppni næstu sex
vikurnar. Fyrirliðinn Steven Gerr-
ard spilar ekki næstu tvær vikurnar
og Ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun
er úr leik næstu tvær til þrjár vikur.
Tyrkneska knattspyrnufélagiðGalatasaray tilkynnti á vef sín-
um í gær að það hefði keypt ástr-
alska varnarmanninn Lucas Neill,
fyrrverandi fyrirliða West Ham og
Blackburn, af Everton fyrir 750 þús-
und pund.
Ennfremur að samið hefði verið
við hann til hálfs annars árs. Neill,
sem er 31 árs, kom til liðs við Ever-
ton í september og samdi þar til eins
árs en hann hafði þá verið með laus-
an samning frá því hann yfirgaf
West Ham um vorið og hafnaði nýju
samningstilboði.
Brittney Grin-er er ekki
þekktasta körfu-
knattleikskona
heims en hún
náði að troða
boltanum ofan í
körfuna í leik
með háskólalið-
inu Baylor í
Bandaríkjunum. Griner, sem er rétt
rúmlega tveir metrar á hæð, er að-
eins sjöunda konan sem nær að
troða boltanum ofan í körfuna í
háskólakeppni. Þess má geta að
karfan er í 3,05 m hæð. Georgeann
Wells var sú fyrsta sem náði þessum
áfanga í leik með West Virginia árið
1984 en á þeim tíma var notaður
stærri bolti en þekkist í kvennabolt-
anum í dag. Met Wells stóð í sjö ár. Í
bandarísku atvinnumannadeildinni
eru ekki margar sem hafa troðið, en
alls eru sex „troðslur“ skrásettar í
sögu WNBA. Lisa Leslie braut ísinn
árið 2002 í leik með LA Sparks.
Fólk sport@mbl.is
JAMIE Carragher, varafyrirliði Liverpool, bað í
gær stuðningsmenn félagsins afsökunar á slakri
frammistöðu liðsins í fyrrakvöld þegar það tap-
aði á heimavelli, 1:2, fyrir Íslendingaliðinu Read-
ing í 64 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu.
„Þetta var mjög slæmt kvöld fyrir Liverpool
og við verðum að horfast í augu við að þetta var
ekki boðleg frammistaða gegn liði úr neðri
deild. Við verðum að biðjast afsökunar á
frammistöðu okkar. Reading á hinsvegar allt
hrós skilið – auðvitað vilja allir vinna en við
verðum að taka því með sæmd. Við verðum að
viðurkenna að þetta voru sanngjörn úrslit. Um
leið verðum við að líta í eigin barm og við-
urkenna að spilamennska okkar var ekki við-
unandi,“ sagði Carragher við Liverpool Echo.
„Við eigum heldur betur erfiðan leik fyrir
höndum gegn Stoke. Framlengingin tók sinn toll
og nú verðum við að sýna mikinn karakter og
vinna okkur til baka,“ sagði Carragher.
Liverpool hefur nú tapað 10 af síðustu 20 leikj-
um sínum og stóll knattspyrnustjórans Rafaels
Benítez hitnar með hverjum deginum.
Jamie Carragher bað stuðningsmenn afsökunar