Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
100142
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ÞÁTTTAKA fólks í námskeiðinu
er frábær og við erum alsæl hér
fyrir vestan,“ segir Nadia Ashke-
nazy-Jones á Flateyri. Hún er dóttir
hjónanna Þórunnar Jóhannsdóttur
og Vladimirs Ashkenazy píanóleik-
ara og hefur búið lengst af erlendis,
síðustu ár í Bretlandi. Frá því í
fyrra voru þau Martin eiginmaður
hennar, sem er breskur ríkisborg-
ari, hins vegar ákveðin í því að
flytja til Íslands og þá til Flateyrar
en Ashkenazy-fjölskyldan hefur
lengi haft ágæt tengsl við Vestfirði
og fólk þar.
„Í London var allt yfirþyrmandi.
Hér fyrir vestan er hins vegar af-
skaplega streitulaust umhverfi og
mér finnst frábært að vera komin
hingað í návígi við fjöllin og hafið,“
segir Nadia.
Martin er sundþjálfari og saman
standa þau Nadia að námskeiði í
sunderóbikki fyrir vestan. Fyrsti
tíminn var um helgina í sundlaug-
inni á Þingeyri. Nadia leiddi tímann
en afrískur trommuleikur Martins
var undirspil.
„Ég vonast til að við getum hald-
ið fleiri námskeið hér á Vest-
fjörðum á næstunni, til dæmis
kennt krökkum að synda og þjálfa
þau sem íþróttamenn. Svo er það
sundleikfimi sem gerir fólki afar
gott. Hér fyrir vestan eru víða
ágætar sundlaugar, til dæmis hér á
Flateyri, Suðureyri og í Bolung-
arvík. Martin er einnig vanur kaf-
ari og ætlar að þjálfa fólk í fríköf-
un, sem er köfun án súrefnis. Svo
ætlum við okkur að vera með fit-
ness-námskeið. Það er því margt
skemmtilegt framundan hjá okk-
ur,“ segir Nadia, sem ólst upp á Ís-
landi. Á unglingsárunum flutti hún
með foreldrum sínum til Sviss. Und-
anfarin ár hefur hún starfað sem
einkaritari í Bretlandi. „Núna er ég
bara að leita að vinnu hér fyrir
vestan og vona að eitthvað reki á
fjörur mínar,“ segir Nadia sem
sinnir afleysingastörfum við leik-
skólann á Flateyri og einstaka þýð-
ingaverkefnum fyrir Háskólasetur
Vestfjarða á Ísafirði.
Eróbikk í
sundi og
afrískur
undirleikur
.Ljósm Halldór Sveinbjörnsson
Sund Nadia Ashkenazy-Jones við sundþjálfun á Þingeyri um helgina. Hún
og eiginmaður hennar ætla að bjóða Vestfirðingum sitthvað nýstárlegt.
Nadia Ashkenazy og maður hennar flutt til Flateyrar
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
AFAR ólíklegt er að niðurstaða fá-
ist í mál Haga á stjórnarfundi Arion
banka á þriðjudag. Mun stjórnin
ræða fram komið tilboð stjórnenda
Haga, Jóhannesar Jónssonar og er-
lendra fjárfesta um endur-
skipulagningu á 1998 ehf., móð-
urfélagi Haga, en bankinn hefur
tekið til sín nær allt hlutafé í 1998
ehf., eins og áður hefur komið fram.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
einn stjórnarmaður í Arion að það
kæmi sér á óvart ef niðurstaða
fengist í málið á þriðjudag, enda
væri málið ekki komið svo langt á
veg að niðurstöðu væri að vænta.
Annar stjórnarmaður sagði málið
stórt og flókið og að það krefðist ít-
arlegrar skoðunar áður en ákvörð-
un yrði tekin.
Ekki hefur komið fram hvað felst
í áðurnefndu tilboði og óljóst er hve
mikið reiðufé tilboðsgjafar eru til-
búnir að greiða fyrir fyrirtækið. Í
ágúst síðastliðnum sagði Jón Ásgeir
Jóhannesson í viðtali við Viðskipta-
blaðið að breskt félag í eigu þriggja
manna ætlaði að koma með andvirði
sextán milljarða króna inn í Haga
gegnum 1998 ehf. Síðar í ferlinu var
rætt um að tilboðsgjafar ætluðu
leggja um sjö milljarða króna í
reksturinn.
Langur frestur liðinn
Arion, þá Nýja Kaupþing, tók
1998 ehf. yfir hinn 20. október síð-
astliðinn og skipaði nýja stjórn í fé-
lagið. Sex dögum síðar var breyting
gerð á stjórninni og Jóhannes Jóns-
son kom aftur inn í hana eftir að
hafa fengið frest til að koma með
áætlun um endurskipulagningu á
fjármálum félagsins.
Arion barst fyrirliggjandi tilboð
hinn 22. nóvember síðastliðinn og
ákvað bankinn að taka sér frest
fram í miðjan janúar til að skoða
það. Sá frestur er nú liðinn, en eins
og áður segir er ekki við því að bú-
ast að niðurstaða fáist í málið á
þriðjudaginn.
Kæmi á óvart ef
niðurstaða fengist
Stjórn Arion banka fundar á þriðjudag
um tilboð um endurskipulagningu 1998
Morgunblaðið/Heiddi
Eign Bónus er meðal eigna Haga,
dótturfélags 1998 ehf.
Þrátt fyrir að hafa tekið sér tæpa
tvo mánuði til að skoða tilboð um
endurskipulagningu 1998 ehf. er
ólíklegt að Arion banki afgreiði
málið á stjórnarfundi á þriðju-
dag.
ÍSLENSKU björgunarsveitarmennirnir urðu enn á ný
vitni að gríðarlegri eyðileggingu í gær þegar þeir færðu
sig um set til borgarinnar Léogane og slógu þar upp búð-
um til tveggja nátta ásamt nokkrum öðrum björgunar-
sveitum. Ekkert alþjóðlegt hjálparlið hafði áður náð til
borgarinnar sem er nánast algjörlega í rúst.
Það tók bílalestina um 90 mínútur að keyra til borg-
arinnar um 40 kílómetra leið. Gísli Rafn Ólafsson, einn
stjórnenda sveitarinnar, flaug í þyrlu yfir svæðið í gær-
morgun og sá hversu slæmt ástandið er. „Þarna var
margt fólk sem greinilega býr bara undir berum himni og
er með smátjald eða dúk til að skýla sér fyrir sólinni.“
Sé hinsvegar flogið lengra til vesturs sést að þar er
eyðileggingin ekki eins mikil. Gísli segir einnig að farið sé
að rofa ögn til í hinu hörmulega ástandi. „Bæði eru hjálp-
argögn farin að streyma að og samhæfing í starfi björg-
unarsveitanna orðin mjög góð. En að sjálfsögðu rekast
menn á alls konar vandamál sem þarf að takast á við.“
Það sem helst hafi tafið björgunarstarf sé skortur á
flutningstækjum og takmörkuð fjarskipti. una@mbl.is
Gríðarleg eyðilegging
í borginni Léogane
Heimilislausir verjast sólinni í
tjöldum meðfram vegunum
Við störf Íslenska björgunarsveitin hefur ekki fundið
fólk á lífi síðan á fyrsta degi en ekki er öll von úti enn.
TVÆR konur sem lentu í bílveltu skammt frá Grund-
arfirði síðdegis í gær dvöldu á Landspítala í Fossvogi í
nótt, þangað sem þær voru fluttar með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar.
Að sögn læknis á bráðadeild voru konurnar með
meðvitund þegar þær komu á spítalann og hvorug lífs-
hættulega slösuð. Hann sagði að að svo stöddu þyrftu
þær ekki í aðgerð. Önnur konan var á bráðadeild í nótt
og verður sennilega útskrifuð í dag. Hin var á gjör-
gæslu í nótt og þarf sennilega að vera lengur á spítala.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu má rekja orsök
óhappsins til hálku.
Þá urðu í gær þrjú umferðaróhöpp í umdæmi lög-
reglu á Selfossi sem öll má rekja til hálku. Fyrir hádegi
missti ökumaður í Kömbunum stjórn á fólksbifreið og
ók utan í vegrið. Sá var einn í bílnum og slapp án
meiðsla en bíllinn skemmdist.
Um eittleytið valt pallbíll á Þorlákshafnarvegi ofan
við Eyrarbakkaveg. Bíllinn lenti utan vegar á toppnum,
en ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp án meiðsla.
Bíllinn var óökufær eftir óhappið. Þriðja óhappið varð
um klukkustund síðar þegar fólksbíll valt í hálku á Þor-
lákshafnarvegi, skammt frá fyrri slysstað. Ökumaður
var einn í bílnum og slapp með skrekkinn.
Víða óhöpp í umferðinni í gær vegna hálku á vegum
Malcolm Walker, forstjóri bresku
verslanakeðjunnar Iceland, sagði
hér í Morgunblaðinu á föstudag að
ekkert hefði verið ákveðið hvort
hann yrði þátttakandi í tilboði
þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
og félaga í Haga. Hann þyrfti frekari
upplýsingar um stöðu félagsins áð-
ur en hann gerði upp hug sinn.
Jón Ásgeir fullyrti hið gagnstæða
hér í Morgunblaðinu á laugardag og
staðhæfði að Walker væri með í til-
boðinu. Walker sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, þegar blaða-
maður spurði hann hvor þeirra
tveggja væri að segja satt: „Ég tel
satt að segja að málið sé komið á
þvílíkt flækjustig að ég kýs að segja
ekkert frekar um það í fjölmiðlum.“
agnes@mbl.is
Kýs að segja ekkert frekar um málið