Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Harry Brown kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
The Road kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Taking Woodstock kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
Alvin and the Chipmunks (enskt tal) kl. 6 LEYFÐ
Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 6 LEYFÐ
Julie and Julia kl. 8 - 10:35 LEYFÐ
Did you hear about the Morgans kl. 10 B.i. 7 ára
Mamma Gógó kl. 8 LEYFÐ
Alvin og Íkornarnir kl. 6 LEYFÐ
Avatar kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
Mamma Gógó kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Avatar 3D kl. 6 - 9:30 B.i.10 ára
Frumgráturinn kl. 6 LEYFÐ
Verndargripurinn kl. 5:50 LEYFÐ
Nikulás litli kl. 8 LEYFÐ
Edrú kl. 10 LEYFÐ
Góð lögga, vond lögga kl. 10:10 B.i.12 ára
Það var ekki ég, ég sver það! kl. 8 LEYFÐ
SÝND MEÐENSKU TALI ÍREGNBOGANUM
HHH
„...hefur sama
sjarma til að bera
og forverinn“
-S.V., MBL
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
FRÁ HÖFUNDI „NO COUNTRY FOR OLD MEN”
KEMUR ÞESSI MAGNAÐA MYND
Á EINU AUGNABLIKI BREYTTIST
heimurinn að eilífu
SÝND Í REGNBOGANUM
HHH
„Myndin er mann-
leg og fyndin“
-S.V., MBL
HANN MUN SJÁ UM RÆTTLÆTIÐ
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND Í ANDA GRAN TORINO
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HHHH
-S.V., MBL
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K
ENSKUR TEX
TI
MEÐ ÖLLUM
MYNDUM
Þjóðsagan um Faust hef-ur verið mörgum lista-mönnum innblástur ígegnum tíðina. Til eru
fjölmargar útgáfur af viðskiptum
Fausts og Mefistós (kölska), sem
finna má í skáldsögum, leik-
gerðum og myndlist, enda er
sagan æði mergjuð. Í henni er
glímt við grundvallarspurningar
um trúna, hið góða og hið illa,
um leit mannsins að hamingju og
síðast en ekki síst um tilgang
lífsins.
Nú hafa félagar Vesturports í
samvinnu við Borgarleikhúsið
glímt við þessa sígildu sögu og
haft verk Johanns Wolfgangs
von Goethe til hliðsjónar þótt
leikgerðin sé þeirra höfund-
arverk. Gísli Örn Garðarsson
leikstjóri hefur með félögum sín-
um fléttað eigin texta saman við
texta Goethes. Árangurinn er
prýðilegur. Textinn verður aldrei
of háfleygur, er stundum ljóð-
rænn og fagur en með nútíma-
brag.
Í þessari leikgerð gerist sagan
á elliheimili. Jóhann (Faust) er
gamall leikari sem efast um að líf
hans hafi haft nokkurn tilgang.
Hann reynir að binda enda á líf
sitt en hættir við á síðustu
stundu og hrópar á hjálp og Mef-
istó svarar kalli hans. Þá fara
hjólin að snúast. Þeir gera með
sér samning um að Mefistó þjóni
Jóhanni í einu og öllu, hjálpi hon-
um að öðlast hamingjuna. Finni
hann hamingjuna undir hand-
leiðslu Mefistós, þá eignast djöf-
ullinn sál hans. Veðmálið verður
þó fyrst tvísýnt þegar Faust
kynnist hinni hreinu, saklausu
Grétu sem er dregin inn í eilífa
baráttu góðs og ills.
Þorsteinn Gunnarsson fer með
hlutverk Jóhanns á efri árum.
Það er mjög ánægjulegt að sjá
Þorstein aftur á leiksviði og fór
hann vel með hlutverkið sem og
hlutverk púkans Asmodeusar.
Björn Hlynur leikur Jóhann ung-
an og púkann Asmodeus. Hann
er leikari sem virðist geta gengið
inn í hlutverk sín áreynslulaust
og skilar þessum hlutverkum
með ágætum. Mefistó er svo
leikinn af Hilmi Snæ af gríð-
arlegum krafti. Hilmir getur
brugðið sér í allra kvikinda líki
og ekki bregst honum hér boga-
listin og hann fer frábærlega
með hlutverk kölska. Stúlkan
Gréta, táknið fyrir hið góða og
saklausa, er leikin af Unni Ösp
sem túlkar hlutverkið af mikilli
einlægni. Púkinn Lillith er and-
stæða Grétu. Illskan hreinlega
skín í gegn í meðförum Nínu
Daggar á þessu ólíkindatóli.
Rúnar Freyr fer á kostum sem
hinn óþolandi Valentin, bróðir
Grétu, sem reynir af fremsta
megni að koma í veg fyrir ástir
Jóhanns og systur sinnar. Hanna
María Karlsdóttir og Víkingur
Kristjánsson eru stórskemmtileg
í hlutverkum sínum sem íbúar
elliheimilisins og fimleikafólkið
Jóhannes Níels og Svava Björg
setja svip á sýninguna á eft-
irminnilegan hátt. Sýningin er
líkamlega krefjandi fyrir leik-
arana þar sem þeir eru um alla
veggi, fljúgandi í loftinu og
skríðandi á neti fyrir ofan áhorf-
endur.
Leikmynd Axels Hallkels
þjónar verkinu vel. Veggir elli-
heimilisins eru úr neti svo hægt
er að klifra í þeim auk þess sem
þeir eru gegnsæir svo unnt er að
nota rýmið innst á sviðinu. Axel
nýtir rýmið til hins ýtrasta í hólf
og gólf en það er ekki hægt að
segja að leikmyndin sé fögur.
Hún minnir dálítið á fangelsi en
það tengist kannski hug-
myndafræði verksins.
Búningar Filippíu Elísdóttur
eru stílfærðir í hennar anda,
korselett, sokkabönd og jakka-
föt. Búningarnir ásamt leik-
gervum Sigríðar Rósu gefa sýn-
ingunni dálitla sirkusstemningu.
Tónlist Nick Cave er í góðu
samræmi við anda verksins og
spannar allan tilfinningaskalann
allt frá ljúfum tónum til svæsn-
asta rokks.
Faust er ánægjuleg kvöld-
stund í leikhúsinu. Þessi sýning
hefur allt sem þarf til að skapa
vel heppnað og eftirminnilegt
leikhúsverk. Hér er á ferðinni sí-
gild saga um tilgang lífsins, ást
og sakleysi, hið góða og hið illa,
fram koma skemmtilegar per-
sónur og síðast en ekki síst eru
hér á kreiki leikhúsbrellur sem
koma áhorfendum á óvart.
Borgarleikhúsið, stóra sviðið.
Faust bbbbm
Eftir: Björn Hlyn Haraldsson, Gísla
Örn Garðarsson, Nínu Dögg Filipp-
usdóttur, Víking Kristjánsson og
Carl Grose
Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson,
Þorsteinn Gunnarsson, Hilmir
Snær Guðnason, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir, Nína Dögg Filipp-
usdóttir, Hanna María Karlsdóttir,
Rúnar Freyr Gíslason, Víkingur
Kristjánsson, Jóhannes Níels Sig-
urðsson og Svava Björg Örlygs-
dóttir.
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarna-
dóttir
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhann-
esson
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist: Nick Cave og Warren Ellis
Búningar: Filippía Elísdóttir
Hljóðmynd: Thorbjørn Knudsen og
Frank Þórir Hall
Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson
Frumsýnt 15. janúar
INGIBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
LEIKLIST
Magnað verk
Faust „Þessi sýning hefur allt sem
þarf til að skapa vel heppnað og eft-
irminnilegt leikhúsverk.“