Morgunblaðið - 18.01.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
ný vara
599kr/pk.
verð aðeins
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
Hentar bæði sem tepoki
beint í bollann eða sem
púði í senseo vélarnar.
240 tepokar í pakka
á aðeins 599 kr/pk.
Fairtrade tekassi.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
VOGUNARSJÓÐURINN Boreas
Capital auglýsti í Morgunblaðinu
um helgina eftir konu í stjórn
norska fjarskiptafyrirtækisins
Telio. Fátítt er að óskað sé ein-
göngu eftir umsækjendum af
öðru hvoru kyninu í auglýs-
ingum hér á landi, enda segir í
jafnréttislögum að slíkt sé
óheimilt. Í lögunum er þó sá var-
nagli sleginn að ef tilgangur
auglýsandans er að stuðla að
jafnari kynjaskiptingu innan
starfsgreinarinnar gildi ákvæðið
ekki.
Í Noregi kveða lög á um að hjá
fyrirtækjum yfir ákveðinni stærð
á hlutabréfamarkaði skuli konur
ekki vera færri en 40% stjórn-
armanna. Þetta er ekki fyrsta
dæmið um að norsk fyrirtæki
leiti að konum utan Noregs til að
fylla þann kvóta, því talsvert
hefur verið um það að konur
með reynslu hafi verið fengnar
t.d. frá Danmörku. Kristín Ást-
geirsdóttir, framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu, segist hafa heyrt
það frá fulltrúum atvinnulífsins í
Noregi að löggjöfin þyki almennt
hafa gefist vel, bæði rekstur og
ímynd fyrirtækja hafi batnað.
Leitað að bestu konunni
Ólöglegt er að óska eftir einu kyni umfram annað
Undantekning sé það gert til að rétta af kynjahlutföll
Eftir Unu Sighvatsdóttur
og Sigurð Boga Sævarsson
ENGIR fundir eða viðræður voru
milli ríkisstjórnar og stjórnarand-
stöðu í gær um Icesave-málið og þjóð-
aratkvæðagreiðsluna. Að sögn Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármála-
ráðherra má gera ráð fyrir að hugað
verði að því strax í dag. Steingrímur
segir ekkert nýtt af viðræðum við
Breta og Hollendinga að frétta,
regluleg samskipti séu á milli manna
en enginn formlegur fundur hafi verið
ákveðinn. Hann verst að sama skapi
allra tíðinda um hugsanlegan sátta-
semjara milli landanna. „Menn
myndu nú ekki gala hátt um slíkt fyrr
en það væri eitthvað í höfn,“ segir
ráðherrann.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, seg-
ist gera ráð fyrir því að viðræður um
Icesave haldi áfram strax eftir helgi
en segir óljóst í hvaða átt þær stefni.
„Ég var að vonast til að ráðherrarnir
færu að tjá sig öðruvísi en þeir hafa
gert en Steingrímur heldur bara
áfram að ítreka að það eigi að sam-
þykkja núverandi samninga. Grunn-
forsenda þess að menn fari í viðræður
er að stjórnin vilji fá nýja niðurstöðu.“
Samstarf Íslands og Noregs
Íslendingar hafa góð rök fyrir því
að hafna samkomulagi við Bretland
og Holland í Icesave-málinu. Bretar
og Hollendingar sem lögðu peninga
inn á reikningana gerðu það á eigin
ábyrgð. Væntingar voru um háa vexti
þó að áhættan væri mikil eins og við-
skiptavinir áttu að gera sér grein fyr-
ir. Þá var Landsbanki Íslands í einka-
eigu og ekki með með ríkisábyrgð.
Þetta segir í grein sem Øystein
Noreng prófessor við verslunarhá-
skólann í Osló skrifar í norska blaðið
Dagsavien um helgina. Sú grein og
fleiri endurspegla að staða Íslendinga
í Icesave-málinu nýtur vaxandi skiln-
ings.
Øystein leggur til að Noregur og
Ísland hafi með sér efnahagslegt
samstarf sem hérlendis myndi skila
öruggari gjaldmiðli, meira öryggi
sparifjár og lægri vöxtum. Samstarfið
gæti einnig skilað árangri í hafréttar-
og fiskveiðistjórnunarmálum og opn-
að möguleika á því sviði fyrir Græn-
lendinga og Norðmenn sem einnig
standa utan Evrópustarfsins.
Geta lært af Íslendingum
Bretar höfðu engan lagalegan rétt
til að leggja hald á eignir Icesave í
Bretlandi og þeir sem lögðu fé inn á
Icesave-reikningana höfðu engan rétt
til að fá tap sitt bætt, að mati Marks.
A. Calabria, sem stjórnar rannsókn-
um Cato-stofnunarinnar í Bandarík-
unum á sviði fjármálastjórnunar. „Ef
ensk stjórnvöld vilja bjarga borgur-
um sínum er það þeirra mál. Það
skapar hættulegt fordæmi að biðja
síðan Íslendinga um að greiða reikn-
inginn,“ segir Calabria í bloggi á vef
rannsóknastofnunarinnar.
„Íslendingar fá þó að minnsta kosti
að greiða atkvæði um hvort þeir eiga
að borga eða ekki. Bandarísku fjár-
málaráðherrarnir Paulson og Geit-
hner hafa á hinn bóginn ákveðið að
bandarískir skattgreiðendur eigi að
greiða fyrir erlendar fjárfestingar í
Fannie Mae og Freddie Mac, jafnvel
þótt Bandaríkjastjórn hafi ekki
ábyrgst þær fjárfestingar. Ef til vill
geta Bandaríkin lært af Íslendingum
um lýðræði og ábyrgð,“ skrifar
Calabria.
Góð rök fyrir
því að hafna
samkomulagi
Norðmaður vill samstarf við Íslendinga
Morgunblaðið/Ómar
Í HNOTSKURN
» Engir Icesave-fundir voruhaldnir um helgina og
óvíst um hugsanlegan sátta-
semjara í deilunni.
»Norskur prófessor vill víð-tækt samstarf Íslendinga
og Norðmanna meðal annars í
mynt- og hafréttarmálum.
» Ef til vill geta Bandaríkinlært af Íslendingum um
lýðræði og ábyrgð, segir Mark
A. Calabria, sem stjórnar
rannsóknum Cato-stofnunar-
innar.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
SALA bílastæðahúsa hefur verið til umræðu í borgarkerf-
inu frá því í haust, en tillaga VG um að kanna kosti sölu
húsanna var samþykkt á fundi borgarráðs í september.
Fyrst mun hugmynd um sölu húsanna hafa verið hreyft
skömmu fyrir hrun.
Í greinargerð sem Kolbrún Jónatansdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, hefur tekið saman segir
m.a. að ekkert í rekstri húsanna kalli á nauðsynlega að-
komu hins opinbera og með sölu sé losað um óhagstæðar
einingar. „Hins vegar er ljóst að nýir eigendur munu ekki
geta rekið húsin með sömu gjaldskrá og er í gildi núna og
eru því hækkanir á gjaldskrá óhjákvæmilegar hjá þeim
aðila sem kaupir húsin,“ segir í greinagerðinni.
Borgin rekur nú sjö bílahús og er fasteignamat þeirra
2,9 milljarðar króna. Rekstur húsanna hefur aldrei skilað
hagnaði og telur Kolbrún að sala á húsunum hefði keðju-
verkun í för með sér. „Kaupendur þyrftu að hækka gjöld
til að greiða fjárfestinguna niður og myndu ekki sætta sig
við að borgin væri með mun lægra gjald í stöðumæla úti á
götunum. Til að halda viðskiptum færu kaupendur
húsanna fram á að borgin hækkaði til jafns við þá og stæði
ekki í samkeppni með miklu ódýrari stæði,“ segir Kol-
brún.
Gjöldin mun hærri erlendis
Hún segir að algengt sé erlendis að bæjarfélög eigi bíla-
stæðahús og leigi síðan út eða þá að einkaaðilar eigi þau og
reki. Algengt sé að gjöld í stöðumæla og bílastæðahúsum
séu 3-4 sinnum hærri erlendis heldur en er hér á landi,
gjöldin séu alltaf hærri úti á götu. Kolbrún segir að hversu
lágt króna er skrifuð hafi aukið mun á milli landa. Algengt
gjald í stöðumæli í Kaupmannahöfn sé nú 24 danskar
krónur eða hátt í 600 íslenskar og í London kosti klukku-
tíminn fimm pund eða um þúsund krónur. Klukkutími við
stöðumæli á Laugaveginum kostar 150 krónur, og fyrsti
klukkutíminn í stöðumælahúsi er á 80 krónur.
Árið 2008 voru tekjur Bílastæðasjóðs af stöðu- og mið-
agjaldi í stöðumæla 211 milljónir, aukastöðugjöld (eða
stöðumælasektir) gáfu 154 milljónir, stöðubrotagjöld 87
milljónir og tekjur af bílastæðahúsum og lokuðum stæðum
gáfu 84 milljónir. Engar hækkanir voru á þessum þáttum í
fyrra, en hins vegar liggur nú hjá samgönguráðherra til
staðfestingar ákvörðun borgarstjórnar um hækkun.
Fólk láti af þessum ósið
Þar er gert ráð fyrir að sekt fyrir að leggja í stæði ætluð
fötluðum hækki úr 2.500 krónum í 10 þúsund krónur. Gert
er ráð fyrir að aukastöðugjöld hækki úr 1.500 krónum í
2.500 krónur. Stöðubrotsgjöld eiga að hækka úr 2.500
krónum í 5.000 krónur, þegar lagt er í stæði fatlaðra er
sektin mun hærri.
Kolbrún segir að tilgangurinn með þessum hækkunum
sé ekki að auka tekjur heldur að fá fólk til að láta af þeim
ósið að leggja ólöglega eða greiða ekki í mæla.
Ráðherra hefur framselt til Reykjavíkurborgar/Bíla-
stæðasjóðs að hluta það vald að hafa eftirlit með bifreiða-
stæðum í Reykjavík og rukka fyrir notkun á þeim og er
gert ráð fyrir að allur hagnaður fari í uppbyggingu á bíla-
stæðum og bílahúsum. Sjóðurinn er því með eigin reikning
og skilar engu í borgarsjóð. Afraksturinn er allur falinn í
þessum sjö bílahúsum sem eru skuldlaus.
Morgunblaðið/Heiddi
Vitatorg Bílastæðahúsin vel nýtt af langtímanotendum ef undan er skilið Vitatorg en þar er töluvert um laus stæði.
Sala myndi leiða til
hækkana á gjaldskrá
Fasteignamat sjö bílastæðahúsa í borginni 2,9 milljarðar
Nýir eigendur yrðu að hækka gjöldin í húsunum
Í HNOTSKURN
» Sökum eðlis starfseminnar og stöðv-unarbrotagjaldanna er einkarekstur á stöðu-
og miðamælum og innheimtu stöðvunarbrota-
gjalda ógerlegur.
» Líklegt má telja að einhver lán verði tekinvegna aðkomu Bílastæðasjóðs að bílakjallara
Tónlistarhússins.
» Ef verðskrá yrði hækkuð um hundruð pró-senta í bílahúsunum má telja líklegt að við-
skiptavinir hyrfu nær alfarið úr húsunum ef gjald-
skrá úti á götu fylgdi ekki.
Í HNOTSKURN
»Önnur undantekning frálögunum er ef rök mæla
með því að einungis sé auglýst
eftir öðru kyninu, s.s. í tilfelli
sundlaugavarða.