Morgunblaðið - 18.01.2010, Side 9
Fréttir 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Fyrir bústaðinn og heimilið
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi efnir til fundar um málefni aldraðra í
aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna hinn 23. janúar.
Fundurinn verður haldinn í dag, mánudaginn 18. janúar, kl. 17:00 á
kosningaskrifstofu Kjartans að Ármúla 18.
Til hvaða aðgerða hefur borgarstjórn gripið til að
tryggja að kreppan komi ekki of hart niður á borgarbúum?
Hvar verður hagrætt til að bregðast við ástandinu?
Hvað hefur áunnist og hver eru verkefnin framundan?
Allir velkomnir!
Kjartan Magnússon
Aldraðir og öryggisnetið
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„VIÐ erum ekki þannig flokkur að við
ætlumst til þess að þetta séu einhverj-
ar hallelújasamkomur. Við viljum
heyra hvernig fólki líður og til þess eru
þessir fundir gerðir,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og
formaður VG.
Á flokksráðsfundi VG sem haldinn
var um helgina á Akureyri kom fram
hörð gagnrýni á forystu flokksins og
tjáðu nokkrir þá skoðun sína að vikið
hefði verið frá stefnu flokksins í rík-
isstjórn. Steingrímur bendir þó á að
þrátt fyrir þetta hafi fundinum lokið í
góðri einingu, tekist hafi samkomulag
um afgreiðslu allra ályktana og m.a.
verið ályktað um afdráttarlausan
stuðning við forystu flokksins og þátt-
töku hennar í ríkisstjórn. Engu að síð-
ur vekur athygli að ekki er minnst einu
orði á Icesave málið í ályktunum
flokkráðsfundarins.
Steingrímur segist hins vegar ekki
telja að klofningur sé innan hreyfing-
arinnar eða staðan sé viðkvæm. „Ég
held að það væri skrýtið á yfir hundrað
manna samkomu ef það heyrðust ekki
einhverjar raddir þar sem forystan
fær á sig gagnrýni.
En þeir fengu líka sinn skammt af
gagnrýni sem ekki hafa fylgt meiri-
hlutanum að málum í ákveðnum til-
vikum. Þannig að þetta var á báða
bóga og þingflokkurinn fékk mjög
sterk skilaboð um að til þess væri ætl-
ast að menn stæðu saman.“
Á fundinum, sem 130 manns sóttu,
var m.a. ályktað um að áframhaldandi
ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar
og Vinstri hreyfingarinnar væri kjöl-
festa fyrir samfélagið í gegnum erfiða
tíma. Stjórnarmeirihlutinn hefði nú
þegar náð miklum árangri á skömm-
um tíma við afar erfiðar aðstæður í
þeim endurreisnarstörfum sem hann
var kosinn til.
Á fundinum voru fordæmdir allir til-
burðir í átt til einkavæðingar í heil-
brigðiskerfinu og undrun lýst vegna
þeirrar ákvörðunar að bjóða út rekst-
ur á nýju hjúkrunarheimili við Suður-
landsbraut. Flokksráðið krefst þess að
fulltrúar VG í ríkisstjórn komi í veg
fyrir útboð og einkarekstur heilbrigð-
isstofnana, en heilbrigðisráðuneytið er
á höndum Vinstri grænna í ríkisstjórn.
Á fundinum var áréttað það stefnu-
mál flokksins að tiltekinn hluti þjóð-
arinnar ætti að geta knúið fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Þá var ítrekuð
andstaða flokksins við aðild að
Evrópusambandinu.
Engar „hallelúja-
samkomur“ hjá VG
Hörð gagnrýni kom fram á stjórn Vinstri grænna á flokks-
ráðsfundi um helgina Ekki einu orði minnst á Icesavemálið
Forystan Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon á fundinum.
Morgunblaðið/Skapti
ÁHUGI landsmanna á hlaupaíþrótt-
um virðist hafa aukist mikið á síð-
ustu misserum. Til marks um þetta
hefur metþátttaka verið í hinum
ýmsu hlaupamótum undanfarið.
Þannig var metþátttaka í Gaml-
árshlaupi ÍR sem og Powerade-
hlaupunum sem er hlauparöð sem
fram fer í Árbæ og Elliðaárdal. Þá
hefur þegar verið lokað fyrir skrán-
ingar í Laugavegshlaupið sem fram
fer um miðjan júlímánuð og hafa yfir
400 keppendur skráð sig til leiks.
Torfi H. Leifsson, umsjónar-
maður heimasíðunnar Hlaup.is, seg-
ir aukinn áhuga greinilegan, ekki
síst á síðunni þar sem aðsókn hefur
stóraukist síðustu ár. „Áhuginn hef-
ur aukist jafnt og þétt undanfarið
sem aftur endurspeglast í auknu
framboði á hlaupum og þá sér-
staklega utanvegahlaupum eins og
t.d. Laugavegshlaupinu.“
Fólk sækir í félagslega þáttinn
Að sögn Örnólfs Oddssonar, leið-
beinanda hjá skokkhópum ÍR, hefur
mikil aðsókn verið í þessa starfsemi
síðasta árið og sífellt fleiri bætast
við. Um hugsanlegar ástæður áhug-
ans segir Örnólfur mikla vakningu
hafa átt sér stað í átt að breyttum
lífsstíl og meiri útivist. Þá gæti efna-
hagsástandið haft sitt að segja. Fólk
sé ef til vill að spara sér líkams-
ræktarstöðvarnar með því að fara
frekar út að hlaupa.
Einnig er félagslegi þátturinn
mikilvægur. „Það er mikið félagslíf í
kringum þessa hópa, árshátíðir og
alls kyns ferðir.“
Að sögn Örnólfs getur hver sem
er skráð sig í skokkhópana. „Þarna
er fólk á öllum getustigum, allt frá
fólki sem hefur aldrei stundað
íþróttir áður til gamalla íþrótta-
manna.“ kjartan@mbl.is
Áhugi á alls kyns
hlaupum hefur
aukist jafnt og þétt
Morgunblaðið/Kristinn
Hlauparar Stöðugt fleira iðka hlaup.
FLOKKSRÁÐSFUNDUR Vinstri
hreyfingarinnar lýsti þungum
áhyggjum af stöðu fjölmiðla á
Íslandi. Í ályktun sem samþykkt
var á fundinum segir að mikill
samdráttur á fjölmiðlamarkaði
hafi leitt til þess að blaðamönnum
sé sniðinn óheyrilega þröngur
stakkur. Álag á fjölmiðlum sé mik-
ið en atvinnuöryggi hinsvegar lítið.
„Fjölmiðlum er nú grímulaust
beitt sem áróðurstækjum eigenda
sinna,“ segir í ályktuninni. „Ráðn-
ing ritstjóra Morgunblaðsins og
sviptingar í mannahaldi þar og á
fleiri miðlum eru skólabókardæmi
um slíkt. Rekstur og tilgangur 365
er illskiljanlegur í ljósi hrunsins og
framtíð allra miðla óviss.“
Flokksráðið er einnig þeirrar
skoðunar að stjórnendur rík-
isútvarpsins skilji ekki hlutverk
stofnunarinnar. „Áherslan er
áfram á ungar, vel launaðar sjón-
varpsstjörnur, forstjóralaun og
jeppa, og niðurskurðartillögur
ganga helst út á tilraunir til að
losna við láglaunaða, reynda út-
varpsmenn, sem ætti að öðrum
ólöstuðum helst að halda í.“
Vinstri græn ályktuðu að mikið
bakslag hefði orðið í jafnréttis-
málum innan fjölmiðlanna. Hæfum
og reyndum konum hefði verið
sagt upp störfum á sama tíma og
karlar með minni reynslu og
menntun væru keyptir milli miðla.
„Þetta eru ekki góð skilaboð til
stéttarinnar og stéttarbaráttu
blaðamanna. Vinstri græn hvetja
fag- og stéttarfélög blaðamanna
til dáða í baráttu fyrir frjálsri fjöl-
miðlun á Íslandi, enda er hún horn-
steinn lýðræðisins og frelsisins.“
Niðurskurður, misbeiting og áhersla á jeppa