Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
www.noatun.is
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
779
36%
afsláttur
KJÖTFARS
NÝTT EÐA SALTAÐ
KR./KG498
Ódýrt
og gott
í Nóatúni
VERÐ
FRÁBÆRT
Steingrímur J. Sigfússon, formað-ur Vinstri grænna, sagði í sjón-
varpsviðtali um helgina að flokks-
ráðið hefði ekki talið það
„skynsamlegt innlegg í umræðuna“
að draga til baka umsókn um aðild
að ESB, eins og kveðið hefði verið á
um í ályktanadrögum.
Í ljósi stefnuVinstri grænna
er þetta nokkuð
sérstakt, en látum
það liggja á milli
hluta.
Horfum líkaframhjá því
að Steingrímur
sagði flokkinn ætla að „halda til
haga“ stefnu sinni og telur það sem
sagt betur gert með því að sækja um
aðild en að gera það ekki.
Athyglisverðast var að hann sagðiað flokkurinn mundi tryggja í
gegnum aðstöðu sína í ríkisstjórn að
jafnræðis yrði gætt í kynningu á
ESB-málum og að öll sjónarmið
fengju að komast á framfæri.
Nú er, þrátt fyrir framgönguSteingríms, ekki alveg útilokað
að hann muni reyna að gæta þess að
fleiri sjónarmið en eitt heyrist í
tengslum við ESB-umsóknina.
Á hinn bóginn er vandséð hver þaðverður sem gætir þess að öll
sjónarmið komist að fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna um Icesave-
ánauðina.
Ríkisstjórnin ætlar að útbúa kynn-ingu á því máli fyrir kosn-
inguna, en dettur einhverjum í hug
að sú kynning verði hlutlaus?
Ef Steingrímur J. getur stýrt kynn-ingu á ESB, er þá eitthvað sem
hindrar hann í að stýra kynningu á
Icesave?
Steingrímur J.
Sigfússon.
Mun Steingrímur
stýra umræðunni?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 3 skýjað Lúxemborg 5 skýjað Algarve 17 léttskýjað
Bolungarvík 3 rigning Brussel 6 léttskýjað Madríd 12 skýjað
Akureyri 5 skýjað Dublin 8 léttskýjað Barcelona 12 súld
Egilsstaðir 4 heiðskírt Glasgow 7 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað London 8 léttskýjað Róm 8 skýjað
Nuuk -7 léttskýjað París 9 léttskýjað Aþena 9 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað Amsterdam 4 heiðskírt Winnipeg -3 alskýjað
Ósló -3 snjóél Hamborg -1 þoka Montreal -7 alskýjað
Kaupmannahöfn -1 skýjað Berlín -1 slydda New York 3 heiðskírt
Stokkhólmur -2 skýjað Vín -1 alskýjað Chicago -6 þoka
Helsinki -6 skýjað Moskva -17 þoka Orlando 23 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
18. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.35 1,2 11.46 3,2 17.58 1,2 10:48 16:30
ÍSAFJÖRÐUR 1.35 1,7 7.46 0,6 13.48 1,7 20.08 0,6 11:17 16:10
SIGLUFJÖRÐUR 4.09 1,0 10.02 0,3 16.39 1,0 22.40 0,4 11:01 15:52
DJÚPIVOGUR 2.42 0,5 8.38 1,5 14.51 0,5 21.18 1,6 10:23 15:53
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Sunnan og síðan suðaustan 10-
18 m/s, hvassast suðvestan til
og rigning með köflum um
sunnan- og vestanvert landið,
en annars heldur hægari, þurrt
og bjart að mestu. Hiti 3 til 9
stig.
Á miðvikudag
Stíf sunnan- og suðaustanátt
og rigning, einkum á Suðaust-
urlandi, en bjart að mestu
norðanlands. Milt í veðri.
Á fimmtudag
Suðaustan hvassviðri með rign-
ingu, en þurrt norðanlands.
Áfram milt veður.
Á föstudag og laugardag
Suðlægar áttir með vætu, en
úrkomulítið norðanlands. Held-
ur kólnandi veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sums staðar stöku skúrir eða
él, en léttskýjað norðaustan- og
austanlands. Gengur í suð-
austan 5-10 m/s með rigningu
sunnan til á landinu í kvöld. Hiti
0 til 6 stig, en um eða undir
frostmarki norðaustanlands.
VIÐ járnblendiverksmiðjuna á Grund-
artanga stendur nú gríðarlega stór
timburstafli. Timbrið, sem alls er um
1.000 rúmmetrar, bíður eftir að verða
kurlað og notað sem kolefnisgjafi í
járnblendiverksmiðjunni. Skógrækt
ríkisins skrifaði í sumar undir samn-
ing við verksmiðjuna um 1.000 tonn af
grisjunarviði sem nota á í stað jarð-
efnaeldsneytis í tilraunaskyni, að því
er segir á skogur.is. Í staflanum eru
nú rúmlega 800 tonn af timbri og því
er von á tæplega 200 til viðbótar á
næstu vikum. Timbrið kemur úr
Stálpastaðaskógi í Skorradal þar sem
mikið grisjunarátak hefur staðið yfir í
vetur. Stærsti hluti timbursins er
sitkagreni en auk þess er að finna sta-
fafuru. Eins og sjá má á myndunum
eru bolirnir nokkuð gildir, enda orðin
50 ár síðan trjánum var plantað á
Stálpastöðum.
Nýlega óskaði Skógrækt ríkisins
eftir tilboði í grisjun í Þjórsárdals-
skógi. Um er að ræða sitkagrenireit
sem er 2,9 hektarar að stærð. Í des-
ember voru auglýst útboð í grisjun á
Hafursá við Hallormsstaðarskóg, í
Haukadalsskógi og Þjórsárdalsskógi.
aij@mbl.is
Timburstaflinn stækkar stöðugt
Ljósmynd/Jón Loftsson
Grisjað Þorstein Hannesson og Arne Johnsen við timburstæðu.