Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 13
Daglegt líf 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þeir Þórður Bachman ogHafsteinn Hasler látakreppuótta ekki ná tökumá sér og opnuðu galvaskir
nýja verslun, bakarí og lítið kaffi-
hús fyrir mánuði við Aðalstræti í
miðbæ Reykjavíkur, undir nafninu
Kvosin, með vísan í staðsetninguna.
„Við mátum það svo að nú væri
tækifæri fyrir svona verslun hér en
við skynjum miðbæjarlífið ágætlega
í gegnum þá tvo veitingastaði sem
við rekum í miðbænum, Geysi
bistro og Grillhúsið. Hugmynda-
fræðin gengur út á það að vera með
líflega og ferska búð, alhliða mat-
vörubúð sem og bakarí þar sem
fólk getur sest niður og haft það
huggulegt, hvort sem það er í há-
degishléi eða á röltinu um miðbæ-
inn.
Við viljum bjóða fólkinu hér á
miðbæjarsvæðinu, hvort sem það
eru nágrannar sem búa hér, þeir
sem vinna hér í kring eða gestir og
gangandi, að geta gert grunnmat-
arinnkaup á hagstæðu verði. Við
stílum líka inn á erlenda ferða-
menn, en það er mikið af þeim í
miðbænum og við höfum opið frá
klukkan átta á morgnana til ellefu á
kvöldin til að geta þjónustað sem
flesta.“
Góð verslunarsaga á svæðinu
Margir eru ánægðir með að aftur
sé komin matvöruverslun í Aðal-
strætið en Silli og Valdi ráku í um
hálfa öld nýlenduvöruverslun í
næsta húsi við Kvosina.
„Jú, þeir byrjuðu stórveldi sitt
hér, þannig að vonandi á okkur eft-
ir að ganga eins vel og þeim. Þetta
er rótgróinn verslunarstaður og við
gleðjumst yfir því að góð versl-
unarsaga fylgi næsta húsi.“
Þórður segir að þeir félagarnir
leggi mikið upp úr því að vera með
góða ferskvöru og gott úrval af
hinni hefðbundnu dagvöru. Einnig
eru þeir með mánaðartilboð á ein-
stökum vörum.
„Þetta hefur gengið ágætleg og
það er stöðug aukning í sölunni.
Fólk er smám saman farið að taka
eftir versluninni en við opnuðum
frekar hægt og hljótt. Viðskiptavin-
irnir lýsa yfir ánægju og fastakúnn-
um fjölgar með hverjum deginum.
Við erum því mjög sáttir.“
Huggulegt Lagt er upp úr að hafa
umhverfið hlýlegt á kaffihúsinu.
Notalegt Það er gott að setjast niður í bakaríinu í Kvosinni, fá sér eitthvað
gott í gogginn með ilmandi kaffi og rabba við félagana.
Morgunblaðið/Heiddi
Til í slaginn Þeir Þórður og Hafsteinn víla ekki fyrir að sér að skella á sig svuntum og taka til hendinni í Kvosinni.
Kósí í kvosinni
Eftir Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Daglegar reykingar fólks á aldr-
inum 15-89 ára hafa dregist saman
um 3,6% frá árinu 2007. Þetta
kemur fram í könnunum Capacent
Gallup fyrir Lýðheilsustöð á árinu
2009.
Þegar tölur síðustu ára eru
bornar saman kemur í ljós að tíðni
daglegra reykinga fólks lækkaði
um 2,2% á milli áranna 2008 og
2009. Til samanburðar má nefna
að tíðnin lækkaði um 0,8% á tíma-
bilinu 2004-2007. Lækkunin núna
þýðir að tíðni daglegra reykinga
fólks hefur lækkað um 10% á ára-
tug, úr 25% árið 1999 í 15,4% nú.
Viðar Jensson, verkefnastjóri
tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð,
segir að ekki séu til einhlítar skýr-
ingar á lækkuninni og vill ekki
ganga svo langt að segja að hún
tengist efnahagsástandinu beint.
Fremur sé það hluti af skýring-
unni. „Reykingar voru bannaðar
hér á kaffi- og veitingahúsum
þann 1. júní árið 2007. Það hefur
sannað sig að það hefur haft áhrif
á tíðni reykinga í vestrænum ríkj-
um sem hafa sett á samskonar
bann.“
Hátt verð er ástæða
Ágústa Tryggvadóttir, verk-
efnastjóri Reyksímans hjá Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga, segir
að ráðgjafarnir þar taki eftir fjölg-
un símtala. Reyksíminn er síma-
þjónusta sem býður upp á ráðgjöf
fyrir fólk sem vill hætta að reykja
og fagnar hann tíu ára afmæli sínu
í ár. Heilbrigðisstofnun Þingey-
inga rekur Reyksímann og síðuna
Reyklaus.is í samstarfi við Lýð-
heilsustöð, heilbrigðisráðuneytið
og landlæknisembættið.
„Tölurnar sýna að hringingar í
Reyksímann þrefaldast þegar við
auglýsum eins mikið og við erum
að gera og líka í kringum áramót.
Það er alltaf mest ásókn í aðstoð á
þessum tíma,“ segir Ágústa. „Hins
vegar eru peningar núna aukin
ástæða hjá fólki. Við heyrum það
alveg að fólki finnst tóbak orðið
alltof dýrt.“
Fimm ráð til að
hætta að reykja
Áður en þú hættir að reykja:
Veldu tiltekinn dag til að hætta
á, gjarnan tvær vikur fram í tím-
ann.
Skrifaðu niður allar ástæðurnar
fyrir því að þú vilt hætta að
reykja.
Eftir að þú ert hætt(ur):
Hugsaðu sem svo, að þú ráðir
við þetta. Þú hefur vald yfir
reyknum, en ekki öfugt!
Þiggðu stuðning hjá fjölskyldu,
vinum og vinnufélögum.
Hugsaðu til þess að eftir 2-4
vikur hættirðu að vera líkamlega
háð(ur) sígarettunum.
Enn fækkar
reykingamönnum
Morgunblaðið/Golli
Árið 1926 keyptu hinir þjóðkunnu kaup-
menn Silli og Valdi húsið í Aðalstræti 10
sem er talið eitt elsta hús Reykjavíkur. Það
ráku þeir nýlenduvöruverslun í um hálfa
öld. Þeir Sigurliði Kristjánsson (Silli) og
Valdimar Þórðarsonar (Valdi) byggðu skúr
úr holsteini á lóðinni fyrir rafmagnskaffi-
brennsluvél árið 1933 og settu þeir á stofn
kaffibrennslu í honum.
Þegar síldin kemur,
þá koma þessar vörur
Leifur Sveinsson fyrrum sendisveinn
hjá Silla og Valda rifjar upp í
Morgunblaðinu 2005:
„Foreldrar mínir versluðu mikið hjá þeim
félögum Silla og Valda. Vörur voru venju-
lega pantaðar í síma, en þar stóð Silli sína
vakt, en Valdi sinnti meir heimsending-
arþjónustunni og innkaupum.
Að komast í „Efri-deildina“ í búð þessari
var að komast inn fyrir og éta kandís beint
upp úr kassa.
Einn þekktasti afgreiðslumaðurinn hjá
Silla & Valda var Einar Ingimundarson, lit-
ríkur persónuleiki, sem oftast svaraði hús-
mæðrum á tímum hafta og skömmtunar:
„Þegar síldin kemur, þá koma þessar
vörur“, sem um var spurt.
Árið 1937 fylgdi hverjum kaffipakka frá
Kaffibrennslu O. Johnson & Kaaber hf. ein
litmynd af einhverjum afreksmanni
Ólympíuleikanna, sem haldnir voru í Berlín
sumarið 1936. Þó ég væri aðeins 9 ára
treystu þeir félagar mér til þess að sækja
kaffipöntunina út í Hafnarstræti 1, bakhús.
Aðeins einu sinni hringdu kaffibrennslu-
menn í þá félaga og spurðu Silla og Valda,
hvort það gæti verið að barn væri sendi-
sveinn á vegum þeirra. Þeir spurðu um nafn
barnsins og svöruðu: „Hann Leifur, hann er
hátt settur hjá okkur“.
Þeir félagar höfðu aðeins einn skrifstofu-
mann fyrir verslanir sínar, meðan Kron
hafði um sjö fyrir jafn margar.
Einu sinni bauð Valdi mér upp í sendi-
ferðabíl af Ford Fairline gerð, árgerð 1955.
Svo mikið var ryðið í gólfi framsætis, að ég
var rétt stiginn niður úr því. „Hvernig getur
þú, ríkasti maður landsins, ekið í svona bíl?“
spyr ég. „Ef þú ættir börn á sama aldri og
ég, þá myndir þú líka eiga svona bíl“.
Albert Guðmundsson
aðstoðarsendisveinn
Albert segir svo frá árið 1980:
„Ég var samstarfsmaður Sigurliða Krist-
jánssonar í mörg ár. Vegna þess að Sig-
urliði var einn þekktasti íþróttamaður hér á
yngri árum, síðan íþróttaleiðtogi, formaður
Íþróttafélags Reykjavíkur um langt skeið
og velgerðarmaður ungra manna í borginni,
þá fékk ég það sem kallað var aðstoð-
arsendisveinsstarf hjá honum og þótti mikið
til koma. Það varð upphaf að ævilangri vin-
áttu og samstarfi á mörgum sviðum.
Á þessum 50 ára starfsferli hefur Sig-
urliði hjálpað mörgum, þ. á m. listamönnum.
Hann hefur greitt götu þeirra og hann hef-
ur keypt verk eftir þá til þess að aðstoða
þá.“
Nýlenduvöruverslun Silla og Valda
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hjá Silla og Valda Sigurjón Þóroddsson
(Silli) að störfum í versluninni árið 1950. Sig-
urður Söbeck fær sér bita.