Morgunblaðið - 18.01.2010, Síða 17
Minningar 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
✝ Halldór Bjarna-son fæddist á Ak-
ureyri 27. október
1959. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu þann 9. jan-
úar 2010.
Foreldrar hans
voru Magnea Katrín
Bjarnadóttir, f. 5.
október 1929, d. 31.
mars 2007, og Bjarni
Benediktsson, f. 13.
ágúst 1901, d. 18.
apríl 1985. Halldór
fór mánaðagamall í
fóstur til móðursystur sinnar,
Hildar Aðalheiðar Bjarnadóttur,
f. 30. apríl 1922, og manns henn-
ar, Brynjólfs Sigmundssonar, f.
11.3. 1902, d. 11.3. 1984. Hann ólst
upp hjá þeim, og bjó í Hvamms-
gerði í Vopnafirði til 10 ára ald-
urs og svo í Reykjavík. Systkini
Halldórs eru: 1) Benedikt Bjarna-
son, f. 1957. Kona hans er Hjördís
og Elín eignuðust fjögur börn.
Þau eru: 1) Hildur, f. 13. apríl
1989, 2) Hannes, f. 3. janúar 1992,
3) Bjarni, f. 26. október 1994, og
4) Kristjana, f. 19. september
1999.
Halldór varð stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
árið 1981, lauk BA-prófi í sagn-
fræði frá Háskóla Íslands 1987 og
cand.mag.-prófi í sömu grein árið
1994. Hann lagði síðan stund á
doktorsnám í Department of
Economic and Social History við
University of Glasgow og lauk
doktorsprófi í hagsögu árið 2001.
Halldór fékkst við sagnfræðirann-
sóknir frá árinu 1987. Hann var
stundakennari í sagnfræði við Há-
skóla Íslands með hléum frá 1990
auk þess sem hann kenndi í Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla 2000-
2001. Halldór tók við starfi sem
aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla
Íslands 1. júlí 2007 og gegndi því
starfi fram á þennan dag.
Halldór verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.
Sigurðardóttir. Börn
með Mekkínu Kjart-
ansdóttur: Snorri
(látinn), Bjarni og
Kjartan. 2) Guðrún
Stefanía Bjarnadótt-
ir, f. 1958. Fóst-
ursystur Halldórs
eru: 1) Kristín
Brynjólfsdóttir, f.
1942. Maður hennar
er Arthúr Pét-
ursson. Börn þeirra:
Ásdís, Svanur, Bryn-
hildur og Margrét.
2) Guðrún Brynjólfs-
dóttir, f. 1948. Maður hennar er
Andrés Magnússon. Dætur þeirra:
Hildur Brynja og Linda Mjöll.
Eiginkona Halldórs er Elín
Hannesdóttir tónlistarkennari.
Þau giftust 17. júní 1989. Elín er
fædd 16. apríl 1962, dóttir
hjónanna Kristjönu Pálsdóttur, f.
8. maí 1934, og Hannesar Flosa-
sonar, f. 12. mars 1931. Halldór
Elsku Halldór minn.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún.)
Þú varst besti vinur minn, mín
stóra ást, yndislegur eiginmaður og
faðir.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín,
Elín.
Elsku besti pabbi minn,
Ég veit þú hefðir sagt mér að herða
huga minn.
Ég hugga mig sem best, til að gera
vilja þinn.
Ég geymi hvert þitt bros í minning
minni.
Ég man og skal ei gleyma samvist
þinni.
(Hannes Hafstein.)
Hjartans þakkir fyrir allt. Ég er
svo heppin að hafa átt þig, elsku
pabbi.
Þar til við sjáumst aftur,
Þín,
Hildur.
Til pabba.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
(Hugrún.)
Þín,
Bjarni og Kristjana.
Pabbi er dáinn. Þessi orð eru svo
óraunveruleg að ég trúi þeim varla
enn. Ég á hálft í hvoru von á að pabbi
komi askvaðandi inn á hverri stundu
og brosi til okkar eins og ekkert hafi í
skorist. Eins og þetta hafi allt saman
verið vondur draumur.
Þessi átján ár sem ég hef lifað hef-
ur pabbi alltaf verið besti vinur minn
og samskipti okkar í gegnum tíðina
nánast hnökralaus. Ef það væri ekki
fyrir hann þá væri ég ekki sá sem ég
er í dag.
Pabbi var ávallt mikill bjartsýnis-
maður, hann lét ekkert koma sér úr
jafnvægi og hafði góða og róandi
nærveru. Þeir sem þekktu hann vel
vissu einnig að hann var duglegur,
ósérhlífinn og lét sér ekki standa á
sama um náungann. Oft áttum við
tveir í heimspekilegum samræðum
og brýndi hann oft fyrir mér að mað-
ur ætti að gera hlutina almennilega
eða sleppa þeim.
Í uppeldi mínu var pabbi stór þátt-
ur. Hvort sem það snerist um að elda
hafragraut í morgunmat eða fara í
fótboltaferð til Akureyrar þá var
hann til staðar. Fótboltaáhuganum
deildum við tveir og fórum alltaf öðru
hvoru að sparka bolta.
Pabbi hafði mikla og góða kímni-
gáfu og var nánast ógerningur að
vera í fýlu í kringum hann. Hvað sem
á bjátaði þá náði hann alltaf að koma
manni í gott skap með glettni sinni
og kankvísi. Alveg frá því að hann las
Ástrík og Steinrík fyrir mig og bróð-
ur minn þegar við vorum yngri til
þess að við skeggræddum um Vol-
taire seinasta sumar þá höfum við
skemmt okkur saman.
Á ferðalögum fjölskyldunnar get
ég ennþá séð pabba minn frammí,
grúskandi í kortum og bendandi okk-
ur á nöfn fjallanna sem við keyrum
fram hjá. Svo þegar við gistum í bú-
stöðum þá tókum við oft í spil og spil-
uðum langtímum fram á rauða nótt.
Þetta voru góðar stundir.
Elsku besti pabbi minn, nú ertu
horfinn úr þessum heimi og ég þarf
að sætta mig við það. Ég get ekki
annað en þakkað þér fyrir allar góðu
og skemmtilegu stundirnar. Ég veit
að þú hugsar til okkar og fylgist með
okkur. Við tveir höfum brallað margt
saman í gegnum tíðina og það er mín
bjargföst trú að við hittumst aftur
einhvern tímann. Takk fyrir allt,
pabbi minn.
Þinn,
Hannes.
Ég vil í örfáum orðum minnast
bróður míns Halldórs. Ég man eftir
honum pínulitlum á Bjarnastöðum
og svo aftur heima í Hvammsgerði
standandi við þríhjólið sitt litla.
Nokkrum árum seinna heima á
Bjarnastöðum þegar hann var í sveit
hjá okkur, var það hann sem samein-
aði okkur systkinin og gerði lífið svo
miklu skemmtilegra. Okkur kom vel
saman og eru þetta með mínum
björtustu minningum frá þessum ár-
um.
Alltaf mun ég minnast fallegu
brosanna hans sem komu svo oft og
gátu dimmu í dagsljós breytt, þegar
dimmt var í sálinni hjá mér.
Elsku Elín mín, Hildur, Hannes,
Bjarni og Kristjana, ég votta ykkur
mína dýpstu samúð.
Guð styrki ykkur í þessari miklu
sorg.
Guðrún Bjarnadóttir.
Elsku bróðir og mágur.
Það er svo ótrúlega ósanngjarnt
og sárt að þú skulir vera hrifinn frá
okkur svona ungur. Þetta er óbæt-
anlegt skarð sem þú skilur eftir hjá
okkur öllum, sérstaklega hjá Elínu
og börnunum. Þú sem lagðir mikið á
þig fyrir velferð og gleði þeirra.
Mér hefur svo oft orðið hugsað til
þess tíma er mamma kom með þig
mánaðargamlan í fóstur til okkar, við
vorum öll svo glöð. Þú varst svo ein-
staklega eftirminnilegt og skemmti-
legt barn með þitt ljósa mikla hár.
Það kom fljótt fram hvert hugur þinn
stefndi þótt þú sinntir skepnunum af
alúð og öðrum sveitastörfum sem
þurfti. Sumar eitt var Siggi Manni í
sveit hjá okkur og las fyrir þig
myndasögurnar í Tímanum. Það
sumar ákvaðst þú snögglega að læra
að lesa og varst orðinn fluglæs þegar
að hann fór um haustið. Eftir það last
þú alltaf mikið og fórst fljótt að leita
þér að fræðandi lesefni.
Það var stórt skref hjá okkur,
haustið sem þú varðst tíu ára, þegar
að við fluttum frá Hvammsgerði í
Vopnafirði á Seltjarnarnesið. Ég
man aldrei eftir neinum vandamálum
hjá þér í sambandi við þá miklu
breytingu, þú varst svo duglegur að
aðlaga þig að nýjum aðstæðum. Eftir
að við fluttum í bæinn fórst þú hvert
sumar í sveitina til foreldra þinna
Magneu og Bjarna og systkina á
Bjarnastöðum, sem þú náðir strax
svo góðu og nánu sambandi við.
Þið Andrés náðuð strax mjög vel
saman.
Þú fórst með okkur til Kanaríeyja
ein jól þegar þú varst sextán ára,
sem var mikið ævintýri fyrir okkur
öll. Síðan þegar við giftum okkur á
Þingvöllum, án viðhafnar, þá varst
þú sá eini sem fórst með okkur. Þeg-
ar Hildur Brynja okkar var ungbarn
sýndir þú barnauppeldi mikinn
áhuga. Skyndilega varstu kominn
með bækur um barnauppeldi, enda
varstu orðinn mikill bókamaður, þá
einungis sautján ára. Það er mér svo
minnisstætt þegar það kom viðtal og
mynd af þér í blaðinu og fyrirsögnin
var: „Sautján ára og safnar bókum.“
Ég hef orðið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að hafa listavel gert handverk
eftir þig, sem er holtagrjótshleðslan
kringum garðinn hjá okkur. Hún er
svo vel unnin að það hefur ekki hagg-
ast steinn í henni og allir hafa dáðst
að henni. Enda varstu eftirsóttur í
garðhleðslu, sem var sumarstarf þitt
með námi. Á þessum árum bjugguð
þið mamma saman og hélduð þið
áfram þetta ánægjulega heimili eftir
að pabbi dó. Mamma sagði oft:
„Hann gerir svo litlar kröfur, hann
Halldór minn“, og þótti henni af-
skaplega gott að búa með þér. Þið
voruð tvö í heimili þangað til að þú
fannst hamingjuna með henni Elínu
þinni.
Elsku Elín, Hildur, Hannes,
Bjarni, Kristjana og mamma, harm-
ur ykkar er mikill. Megi Guð styrkja
ykkur áfram en huggun er hversu
góður eiginmaður, faðir og sonur
hann var.
Hvíl þú í friði, elsku bróðir og mág-
ur,
Guðrún og Andrés.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Það er eins og skáldið ókunna hafi
verið að yrkja um mág minn Halldór
Bjarnason í þessum látlausu ljóðlín-
um. Halldór var einstaklega farsæll
maður, bæði í einkalífi sem og starfi.
Framganga hans var alltaf hógvær
og einstaklega vingjarnleg og með
Halldóri kom ætíð einhver óútskýr-
anlegur friður hvar sem hann kom.
Æðruleysi það sem menn vinna oft
að því að öðlast langa ævi var Hall-
dóri eðlislægt, hann virtist hafa allan
tíma í heimi og gaf óskipta athygli
hverjum þeim sem leitaði til hans,
hvort sem það voru börn eða full-
orðnir.
Börnin mín og ég nutum þess að
vera samferða Halldóri, þau frá fæð-
ingu og ég frá því að systir mín og
hann kynntust fyrir u.þ.b. 22 árum.
Börnin okkar ólust upp saman og
saman deildum við fjölskyldurnar
gleði og sorg. Mikill styrkur var að
því fyrir mig og börnin mín að búa í
nábýli við fjölskylduna þar sem við
áttum okkar annað heimili. Skyndi-
legt fráfall Halldórs er algert reið-
arslag, sem skekkir ekki einungis
hina fallegu fjölskyldumynd systur
minnar, heldur einnig eina af und-
irstöðum stórfjölskyldunnar.
Það er með trega og söknuði og
sorg í hjarta sem við kveðjum Hall-
dór Bjarnason, sem svo sannarlega
hefði átt að vera með okkur öllum svo
miklu, miklu lengur. Elsku Elín,
Hildur, Hannes, Bjarni og Kristjana.
Við biðjum algóðan Guð að gefa ykk-
ur styrk í sorg ykkar og leiða ykkur á
lífsins braut.
Elsku Halldór, við þökkum fyrir
með hlýju. Þitt ævistarf var far-
sælt … en hefði mátt vera svo miklu
lengra.
Kær kveðja,
Ingibjörg, Haukur Hannes
og Helena.
Halldór mágur minn var vandaður
maður. Það er ekki oft sem hægt er
að nota orðið vandaður yfir alla þætti
í fari einstaklings, hvort sem þeir
þættir lúta að einkalífi hans eða
starfi. Hér á þetta þó við að öllu leyti.
Sem fræðimaður var Halldór boð-
beri nýrra hugmynda og glöggur
greinandi. Vandvirkni hans í fram-
setningu og áhugi á viðfangsefnum
var annálaður og bar mikilli þekk-
ingu hans og næmni glöggt vitni.
Allt frá því að systir mín og Hall-
dór kynntust var ljóst að hér var
kominn ábyrgur og hlýr maður inn í
fjölskylduna. Farsælt fjölskyldulíf
þeirra og efnileg börn voru honum
gleðiefni og var hann ætíð fjölskyldu-
maðurinn sem sagði frá afrekum
barna sinna með stolti og umhyggju.
Við hið ótímabæra og skyndilega
fráfall hans er stórt skarð höggvið.
Eftir stendur minning um góðan
mann sem gerði líf okkar sem hann
þekktum ríkara.
Haukur F. Hannesson.
Við eigum erfitt með að skilja
hvers vegna Halldór frændi minn var
tekinn svona snemma frá okkur, að-
eins fimmtugur að aldri, í blóma lífs-
ins.
Þegar ég var krakki í sveitinni
minni á Vopnafirði var fátt eins
skemmtilegt eins og að fara til
Reykjavíkur í heimsókn til afa og
ömmu. Labba í mjólkurbúðina með
afa, fara að skúra úti í Háskóla með
ömmu og allt þetta sem var svo nýtt
fyrir mér. Svo ég tali nú ekki um þeg-
ar ég læddist inn í stóra herbergið
hans Halldórs frænda og virti fyrir
mér allar bækurnar hans. Ég hafði
aldrei séð svona mikið af bókum, ekki
einu sinni í bókabúðinni á Vopnafirði.
Hann safnaði nefnilega bókum og
tímaritum og var alltaf að skrifa og
grúska, og að sjálfsögðu fór hann í
sagnfræði í Háskóla Íslands. Ég var
alltaf svo stolt af honum og leit mikið
upp til hans.
Það kom í minn hlut að taka á móti
Halldóri þegar hann kom í fyrsta
skipti, með Elínu sína, í heimsókn í
Syðri-Vík. Það var seint um kvöld, og
sauðburður í fullum gangi og ég var á
vakt úti í húsum þegar Ladan rann í
hlað. Ég gleymi seint þessari heim-
sókn, þau voru lengi með mér í hús-
unum að spjalla, spá og spekúlera.
Það geislaði af þeim gleðin og ham-
ingjan sem var svo einkennandi fyrir
þeirra hjónaband. Alltaf eins og þau
hefðu kynnst í gær. Ekki minnkaði
hamingjan eftir að þau áttu börnin
sín fjögur sem öll eru einstaklega vel
gerð. Við barnauppeldið lagði hann
sig allan fram og fórst það vel úr
hendi eins og annað sem hann tók sér
fyrir hendur. Heimili hans og Elínar
í Fannafoldinni var sérstaklega hlý-
legt og kærleiksríkt, ávallt tekið á
móti manni með bros á vör, í orðsins
fyllstu merkingu því brosið hans
Halldórs var einstakt, það náði svo
sannarlega yfir allt andlitið.
Guð geymi minningu þessa ein-
staka frænda míns, í hjörtum okkar
allra um ókomin ár.
Elsku Elín, Hildur, Hannes,
Bjarni og Kristjana. Guð gefi ykkur
styrk til að takast á við þessa miklu
sorg.
Brynhildur Arthúrsdóttir.
Þegar við systurnar vorum litlar
kíktum við oft til ömmu, afa og Hall-
dórs í Eskihlíðina. Á þessum tíma
var hugur Halldórs við nám og
dvaldist hann tímunum saman við
lestur í herberginu sínu. Amma Hild-
ur leyfði okkur stundum að fara inn
til Halldórs og þá fengum við að
prófa ritvélina hans, hlusta á plötu
eða fá bók að láni. Halldór byrjaði
ungur að safna bókum og minnti her-
bergið hans á alvöru bókasafn.
Halldór fann hamingjuna með El-
ínu sinni og voru þau mjög samrýmd
og slógu hjörtu þeirra sannarlega í
takt í lífinu. Þau sinntu barnauppeld-
inu með aðdáunarverðum hætti og
munu börnin þeirra ávallt njóta þess.
Það var alltaf gaman að hitta Hall-
dór og tók hann ævinlega vel á móti
okkur með bros á vör. Hann sýndi
áhuga á því sem var að gerast í lífi
okkar og hann samgladdist af heilum
hug. Það er einstaklega erfitt og sárt
að þurfa að kveðja Halldór langt fyr-
ir aldur fram. En Halldór var ein-
staklega ljúfur og góður maður sem
var okkur einstaklega kær og þannig
munum við minnast hans.
Elsku Elín, Hildur, Hannes,
Bjarni og Kristjana, ykkar missir er
mikill. Megi Guð vera með ykkur.
Hildur Brynja og Linda Mjöll.
Kveðja frá Háskóla Íslands
Í stofnunum eins og Háskóla Ís-
lands er hugtakið „mannauður“
gjarnan haft á orði í ræðu og riti. Við
fráfall einstaklinga eins og Halldórs
Bjarnasonar öðlast þetta hugtak sér-
staka skerpu og skýra merkingu.
Háskólinn varð auðugri fyrir verk
hans og stúdentar í sagnfræði áttu í
honum fræðara og vin. Í einni svipan
missir skólinn öflugan kennara í
blóma lífsins og jafnframt einstak-
ling sem auðgaði starfsumhverfi sitt
á marga lund.
Halldór stundaði nám til BA-prófs
og meistaraprófs í sagnfræði við Há-
skóla Íslands. Hann tók snemma að
sér stundakennslu við skólann og eft-
ir að hann lauk doktorsprófi í hag-
sögu frá Glasgow-háskóla 2001 var
Háskóli Íslands hans helsti vinnu-
staður og hann fékk þar fullt starf við
kennslu og rannsóknir árið 2007.
Hann varð strax einn af lykilmönn-
um í sagnfræðikennslu og sá um stór
skyldunámskeið, ýmist einn eða með
öðrum, auk þess sem hann kenndi
valnámskeið á sérsviðum sínum.
Kennslusvið Halldórs var breitt því
að hann kenndi Íslandssögu, heims-
sögu og aðferðafræði. Hann var vin-
sæll kennari, áhugasamur um
kennslufræði og lagði sig eftir nýj-
ungum í kennsluháttum. Rannsókna-
svið hans var einkum á sviði hagsögu
og félagssögu. Halldór var í senn
dugnaðarforkur og mikill nákvæmn-
ismaður í öllum vinnubrögðum. En
jafnframt fylgdi honum sérlega já-
kvæður starfsandi; þetta var maður
sem gekk glaður til sinna verka.
Halldórs er því sárt saknað af sam-
kennurum og öðru samstarfsfólki.
Nú er óvænt skarð höggvið í raðir
hugvísindamanna við Háskóla Ís-
lands, en vitaskuld er mestur missir
og harmur Elínar, eiginkonu Hall-
dórs, og fjögurra barna þeirra. Við
sendum þeim hugheilar samúðar-
kveðjur á þessari sorgarstund.
Starfsfólk og stúdentar við Háskóla
Íslands minnast Halldórs með þakk-
læti og virðingu.
Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands.
Ástráður Eysteinsson,
forseti Hugvísindasviðs Há-
skóla Íslands.
Halldór Bjarnason
Fleiri minningargreinar um Hall-
dór Bjarnason bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.