Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 22
22 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER BÚINN AÐ
SKÚRA GÓLFIÐ
VISSIR ÞÚ AÐ ÞAÐ ER
MYNSTUR Á DÚKNUM?
ÞETTA HLÝTUR
AÐ VERA ANSI
GAMALL DÚKUR
Á MORGUN
ER FYRSTI
DAGURINN
LEIKSKÓLI!
BARA ÞRJÁ
METRA... ÞÚ
VARST AÐ ÝKJA
ÉG ER VISS UM AÐ EF EIN-
HVER MINNIST Á LEIKSKÓLA
VIÐ HANA ÞÁ STEKKUR HÚN
TÍU METRA UPP Í LOFTIÐ
EKKI TAKA ÞESSU
PERSÓNULEGA,
SNATI
SUMU FÓLKI
ER BARA ILLA
VIÐ HUNDA
EN HVAÐ ÞAÐ ER
FRÁBÆRT AÐ VERA
FJÁRHUNDUR!
ÉG PASSA
UPP Á ÞESSI
VESALINGS,
MEINLAUSU
DÝR
HVAÐ VARÐ UM
VESKIÐ MITT?!?
LÁTUM
OKKUR
SJÁ...
VERÐIÐ ÞIÐ Í
„LEIKSAL LJÓÐSKÁLDSINS“?
„HERBERGI HERTOGANS“?
„MYNDEFNI MÁLARANS“?
AUÐVITAÐ!
„ELDSTÆÐI
ELSKENDANNA“
ER BEINT UPP
STIGANN
SÆLL, VIÐ ERUM LALLI
OG ADDA. VIÐ EIGUM
PANTAÐ HERBERGI HÉRNA
HJÁ YKKUR NÆSTU
TVO DAGANA
VIÐ BÁÐUM UM
RÓMANTÍSKU
HELGARFERÐINA
ÍBÚAR NEW
YORK ÆTTU AÐ
ÞRÝSTA Á
KÓNGULÓAR-
MANNINN AÐ
MÆTA VULTURE
VIÐ
ÆTTUM AÐ
SETJA UPP
VEFSÍÐU
GÓÐ HUGMYND! ÉG ÆTLA AÐ
NEYÐA KÓNGULÓARMANNINN
TIL AÐ BERJAST VIÐ MIG!
ÉG ÞARF BARA AÐ KOMA
VIÐ Á FLUGVELLINUM
Lýðræðisleg vinnu-
brögð
EFTIR allar hremm-
ingar efnahagshrunsins
og þær mórölsku áskor-
anir sem þeim fylgja er
afar brýnt að fólkið í
landinu hafi á tilfinning-
unni að verið sé að vinna
að djúpstæðum og var-
anlegum breytingum á
þjóðskipulaginu, þ. á m.
sjálfu stjórnskipulaginu.
Stjórnmálamenn munu
ekki komast upp með að
dusta einungis rykið af
stærstu spillingarmálum. Vonbrigði
fólksins yfir því hve hægt gengur að
leiða þau til lykta og um leið að endur-
skoða innviði íslenska stjórn- og fjár-
málakerfisins og koma á lýðræð-
islegum umbótum í landinu eru öllum
augljós.
Þessi vonbrigði kristallast í hinu
umdeilda Icesave-máli. Þó vissulega sé
hægt að færa góð rök fyrir því að Ís-
lendingar taki stórkostlega fjárhags-
lega áhættu með því að tefla í tvísýnu
samningum íslenskra stjórnvalda við
bresk og hollensk stjórnvöld hefur sið-
ferðiskennd heillar þjóðar beðið
hnekki. Fólk er enn í sárum eftir efna-
hagshrunið og það sem verra er; það
sér engin áþreifanleg merki um gagn-
gerar breytingar á hugsunarhætti
æðstu ráðamanna og vinnubrögðum
þeirra, engin augljós teikn um alls-
herjar endurskoðun á því stjórnarfari
sem nú ríkir, einkum er lýtur að stýr-
ingu valds og meðhöndlun þess.
Færa má gild rök fyrir því að þensl-
an sem ýtti undir efnahagshrunið á Ís-
landi, sem þegar hafði birst almenn-
ingi t.d. í stórframkvæmdum eins og
Kárahnjúkastíflu, auk-
inni einkaneyslu og
hröðum vexti íslensku
bankanna, hafi í reynd
verið keyrð áfram í
krafti ofurfram-
kvæmdavilja íslenskra
stjórnvalda og óhóf-
legrar valdasöfnunar
þeirra. Skortur á lýð-
ræðislegum vinnubrögð-
um tryggði þeim völdin
og um leið skjótustu
málsmeðferð á löggjaf-
arþingi landsmanna.
Eftir á að hyggja má
draga þá ályktun að lýð-
ræðisleg vinnubrögð, m.a. í formi tíðra
þjóðaratkvæðagreiðslna, öflugrar
þjóðfélagslegrar umræðu og um leið
gagnrýnnar hugsunar virkra kjós-
enda, hefðu getað komið í veg fyrir
stórslys krísunnar sem við upplifum
nú eða að minnsta kosti dregið veru-
lega úr neikvæðum áhrifum hennar.
Með því að eyða meiri orku og tíma í
að fínpússa agnúa íslenska valdakerf-
isins og huga að því hvernig við getum
búið til betra þjóðfélag í stað þess að
karpa endalaust um efnahagslegar
stærðir í framtíðinni má eflaust spara
mikla fjármuni þegar til lengdar lætur.
Þjóðin fer ekki á hausinn hvort sem
hún samþykkir Icesave-samninginn
eða ekki, en hún mun aldrei ná heil-
brigðum efnahagsbata ef hún hugar
ekki að varanlegum lýðræðislegum
umbótum í landinu. Slíkar umbætur
krefjast mikillar undirbúningsvinnu –
við þurfum að hefjast handa strax!
Benedikt S. Lafleur
rithöfundur og myndlistarmaður.
Ást er…
… að hlusta með stolti
þegar barnið æfir sig á
píanóið.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-
16.30, vatnsleikf. Vesturbæjarl. kl.
10.50, postulín kl. 13, leshópur kl. 14.
Skrán. í leikhús 23. jan. og þorrablót 22.
jan.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna/smíði kl. 9, félagsv. kl. 13.30,
myndlist kl. 16. Þorrablót 22. jan. kl. 12.
Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulínsm.
kl. 9, leikf. kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa opin kl.
8-16, bænast. kl. 9.30, leikf. kl. 11.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30, gler- og postulín kl. 9.30, leiðb. í
handav. til hádegis, lomber kl. 13, ca-
nasta kl. 13.15, trésk. kl. 18 og skapandi
skrif kl. 20. Skrán. á þorrablót hafin.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín
kl. 9, ganga kl.10, handav. og brids kl.13,
félagsv.kl. 20.30
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, tréútsk./handav. leikfimi kl. 10.30,
spilasalur e/hád., kóræf. kl. 14.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8, kvennal.f. í
Sjálandi kl. 9.45, 10.30 og 11.15, göngu-
hóp. frá Jónsh. kl. 11, miðar á þorrablót
seldir í dag frá kl. 13 í Jónshúsi.
Félagsstarf eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13, Blásarasveit FEB kl. 19.30.
Háteigskirkja | Félagsv. kl. 13 í Setrinu.
Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, útsk. kl.
10, bænastund kl. 11.45, matur kl. 13,
myndlist kl. 14.30, kaffi.
Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, Gafl-
arakórinn kl. 10.30, trésk. kl. 13, boccia/
félagsvist kl. 13.30, þorrablót 23. jan.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30, vinnust. kl. 9-16, brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50,
Stefánsganga kl. 9, listasmiðja; útsaum-
ur/handverk, félagsv. 13.30, skapandi
skrif kl. 16, ókeypis tölvuleiðbein. kl. 13,
myndlistarsýn. Geirharðs Þorsteinss. kl.
9-16, Mamma Gógó kl. 16.30 á morgun.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30. Uppl. 564-1490, glod.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egilshöll
kl. 10. Sundleikf. í Grafarvogssundl. á
morgun kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hring-
borðið, spjall kvenna kl. 10.30, handv.-
og bókast. opin kl. 11.30, prjónakl. o.fl.
kl. 13, boccia kl. 13.30, söngst. kl. 15.
Norðurbrún 1 | Boccia kl. 10. handav. kl.
9, samv. með djákna kl. 14. smíðast. op-
in e. hádegi.
Vesturgata 7 | Handav. kl. 9, boccia kl.
11, leikfimi kl. 11.30, kóræfing kl. 14, töl-
vuk. kl. 14.30, kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band, postulín, morgunst. kl. 9.30,
boccia, framh.saga kl. 12.30., handav.
og spilað kl. 13, stóladans kl. 13.15.
Árni Jónsson bætir í sarpinn um
Fúsa og Dómhildi, sem hafa verið
aðalpersónur Vísnahornsins und-
anfarna daga:
Óróa vafinn veldur,
vita það kysi heldur,
karlmanna vegna
sem kynbótum gegna,
hvort Fúsi var frjór eða geldur.
Davíð Hjálmar Haraldsson kast-
ar fram limrum og ber sú fyrri yf-
irskriftina „Í sveitinni“:
Kúna, heim komna frá burði,
að kálfinum Jón bóndi spurði
(sá blóðugar hildir).
Hún: „Bóndi, það skildir
ef bærir á bakka á skurði.“
Þá „Freyr á Fenjalæk“:
Freyr sem á Fenjalæk bjó
var frábær að taka upp mó
og í mýrinni að kafa.
Mann til að grafa
þurfti ekki þegar hann dó.
Kristján Eiríksson bætir við:
Í fjósinu vorbæran var
sú vitrasta í sveitinni þar
og hreint enginn álfur
né heimskur var kálfur
og nautið af bóndanum bar.
Birgir Hartmannsson benti á að
vísa hefði verið rangfeðruð í Vísna-
horninu í gær og að höfundur væri
Stefán Stefánsson á Móskógum á
Bökkum. Á Vísnavef Skagfirðinga,
segir jafnframt að hún hafi verið
ort er Stefán datt við fætur stúlku:
Fyrir henni flatur lá ég.
Faldur klæða straukst um kinn.
Upp um hlíðar allar sá ég.
Ó, sú fegurð, Drottinn minn.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af limrum og sveitinni