Morgunblaðið - 18.01.2010, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 18. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heitast 6°C | Kaldast 0°C
Sums staðar stöku
skúrir eða él, en létt-
skýjað norðaustan- og
austanlands. » 10
Arnar Eggert Thor-
oddsen veltir fyrir
sér hljómsveitunum
í undankeppni
Global Battle of the
Bands. »29
TÓNLIST»
Proggið eða
pönkið?
FLUGAN »
Flugan sótti leikhús og
listasýningar. »24
Tvær ungar konur
stofnuðu FRAFL
sem sér um verk-
efnastjórn og um-
sjón myndlistar-
viðburða. »23
MYNDLIST»
Myndlistar-
viðburðir
FÓLK»
Lady Gaga féll í yfirlið á
tónleikum. »27
KVIKMYNDIR»
Downey Jr. stendur sig
vel sem Holmes. »28
Menning
VEÐUR»
1. Átti aldrei von gegn Frökkum
2. Kvensamur Íslendingur rændur
3. Eins og eftir heimsendi
4. Vogunarsjóður leitar að konu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Gunnlaugur
Júlíusson og
Hólmfríður Vala
Svavarsdóttir
voru valin lang-
hlauparar ársins
2009 í vali sem
hlaup.is stóð fyrir.
Gunnlaugur var valinn fyrir frábær-
an árangur í ofurhlaupum. Þar bar
hæst sigur hans í 48 klst. hlaupi í
Bornholm þegar hann hljóp samtals
334 km. Er það annar besti árangur
Norðurlandabúa á árinu, ellefti besti
árangur karla í heiminum og besti
árangur karla á árinu í flokki 55 ára
og eldri. Hólmfríður var valin lang-
hlaupari kvenna fyrir sigur í Lauga-
vegshlaupinu þegar hún var aðeins
tveimur mínútum frá besta árangri
íslenskrar konu í Laugavegshlaupi.
LANGHLAUP
Gunnlaugur og Hólmfríður
langhlauparar ársins
Freyja Gunn-
laugsdóttir klarí-
nettuleikari hefur
verið útnefnd bæj-
arlistamaður Sel-
tjarnarness fyrir
árið 2010.
Útnefning bæj-
arlistamannsins hefur farið fram ár-
lega frá 1996 og að þessu sinni fór
athöfnin fram á laugardaginn á
Bókasafni Seltjarnarness.
Freyja er borinn og barnfæddur
Seltirningur og hóf tónlistarnám sitt
við Tónlistarskóla Seltjarnarness
aðeins fimm ára gömul og var þá
yngsti nemandi skólans. Við athöfn-
ina spilaði Freyja Rúmenska dansa
eftir Ferenc Farkas og Béla Bartók
við undirleik píanóleikarans Bjarna
Frímanns Bjarnasonar.
TÓNLIST
Bæjarlistamaður Seltjarn-
arness árið 2010 valinn
Skáldsaga
Kristínar Steins-
dóttur, Á eigin
vegum, kemur
brátt út hjá finnska
forlaginu Lurra.
Bók Kristínar hef-
ur víða vakið at-
hygli, hún hlaut á sínum tíma Fjöru-
verðlaunin og var tilnefnd til
Bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Á eigin vegum hefur þegar
komið út í Svíþjóð, Austurríki, Sviss
og Þýskalandi og fengið prýðisgóðar
viðtökur. Von er á annarri þýskri út-
gáfu bókarinnar í kilju með vorinu
frá forlaginu DTV.
Bókin kom út hér á landi fyrir jól-
in 2006. Í henni segir frá Sigþrúði,
ekkju í Reykjavík sem komin er á
efri ár.
BÓKMENNTIR
Skáldsagan Á eigin vegum
kemur brátt út í Finnlandi
SALA á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar myndi
leiða til hækkana á gjaldskrá og hafa keðjuverkun í för
með sér, að sögn Kolbrúnar Jónatansdóttur, fram-
kvæmdastjóra Bílastæðasjóðs.
„Kaupendur þyrftu að hækka gjöld til að greiða fjár-
festinguna niður og myndu ekki sætta sig við að borgin
væri með mun lægra gjald í stöðumæla úti á götunum.
Til að halda viðskiptum færu kaupendur húsanna fram
á að borgin hækkaði til jafns við þá og stæði ekki í sam-
keppni með miklu ódýrari stæði,“ segir Kolbrún í
greinargerð.
Sala á bílastæðahúsunum hefur verið til umræðu í
borgarkerfinu frá því í haust.| 4
Sala myndi leiða
til hærri gjalda
Morgunblaðið/Heiddi
Til sölu? Borgin rekur nú sjö bílahús og er fast-
eignamat þeirra 2,9 milljarðar króna.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÞAÐ er allt klárt hjá okkur til að
hefja keppnina,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, í samtali við
Morgunblaðið þegar síðasta æfinga-
leik íslenska landsliðsins fyrir
Evrópumeistaramótið var lokið í
París í gær. Íslenska landsliðið hélt
þaðan í gærkvöldi og var áætlað að
það kæmi til Linz í Austurríki á öðr-
um tímanum í nótt. Annað kvöld,
klukkan 19.15, verða tjöldin dregin
frá í fyrsta hluta þríleiksins í Linz
þegar sviðsljósið beinist að leik-
mönnum Íslands og Serbíu. Síðari
tveir þættirnir í Linz snúast um
glímur við Austurríkismenn og
frændur vora Dani. Hvort íslenska
landsliðið verður klappað upp til
þriggja leikja til viðbótar hið
minnsta, og þá á stóra sviðinu í Vín-
arborg, ræðst af árangrinum í Linz.
Það er mál manna að Evrópu-
meistarakeppnin sé sterkasta og
erfiðasta handboltamót sem haldið
er í heiminum.
Í tilefni af Evrópumeistara-
keppninni gefur Morgunblaðið í dag
út veglegt 24 síðna blað um keppn-
ina. Þar er fjallað ítarlega um þátt-
töku Íslands nú sem fyrr, rætt við
leikmenn, þjálfara, aðstoðarmenn og
aðra sem skoðanir hafa. Rifjaður er
upp árangur íslenska landsliðsins á
fyrri Evrópumótum og leikmenn ís-
lenska landsliðsins kynntir ásamt
dagskrá mótsins í heild. Þá er birtur
listi yfir alla þá leikmenn sem leikið
hafa fyrir Íslands hönd í lokakeppni
EM og skorað mörkin 802 sem ís-
lenska landsliðið hefur gert í 29
leikjum síðan það var fyrst með fyrir
10 árum.
Einnig eru rifjuð upp fyrri stór-
mót sem íslenska landsliðið hefur
tekið þátt í á austurrískri grund.
Meðal annars er sagt frá skemmti-
legri hártísku sem ruddi sér til rúms
meðal leikmanna landsliðsins í
b-heimsmeistarakeppninni í Austur-
ríki fyrir 33 árum. Þess er freistað
að varpa ljósi á „stóra fjarstýring-
armálið“ með Ólafi Stefánssyni og
rætt við einn úr íslenska hópnum
sem tekur aldrei minna en 50 kg af
farangri í hvert sinn sem hann fer
með landsliðinu á stórmót.
Íslenska landsliðið í handknattleik var væntanlegt til Austurríkis í nótt
Styttist í frum-
sýningu á þrí-
leiknum í Linz
Morgunblaðið/Eggert
Reyndur Guðmundur Þórður Guðmundsson var afslappaður við brottför
frá landinu. Hann stýrir landsliðinu í þriðja sinn í lokakeppni Evrópumóts.
Týnd fjarstýring og hárkrullutíska
í bland við hágæðahandknattleik
Hressir Snorri Steinn og Róbert
Gunnarsson eru klárir í slaginn.
Reykingamenn á Íslandi eru sagðir
tegund í útrýmingarhættu og nú er
svo komið að aðeins 15,4% lands-
manna reykja daglega. Nýjustu
tölur sýna að þeim fækki stöðugt
hraðar.
Ágústa Tryggvadóttir, verkefna-
stjóri Reyksímans og Reyklaus.is
hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga,
segir að hringingum hafi fjölgað
og að fólk sem vilji hætta að reykja
nefni hátt tóbaksverð síðustu árin
sem ástæðu til að drepa í. | 13
Hátt verð
ein ástæðan