Morgunblaðið - 10.02.2010, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÉG ER hóflega bjartsýnn en niðri
á jörðinni,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra í gær-
kvöldi um framganginn í Icesave-
málinu. Í eftirmiðdaginn kom til
landsins Donald Johnston, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri OECD.
Hann átti óformlegan fund með
Lee C. Buchheit eftir komuna til
landsins og í dag fundar hann með
Steingrími og öðrum leiðtogum
stjórnmálaflokkanna.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar og
stjórnarandstöðunnar funduðu í
gærmorgun með Buchheit auk ráð-
gjafa frá breskri endurskoðunar-
skrifstofu. Eftir fundinn var það
upplýst að Buchheit yrði í fram-
varðarsveit Íslands kæmi til nýrra
viðræða við bresk og hollensk
stjórnvöld. Steingrímur segir hins
vegar að eftir sé að púsla saman
hvaða hlutverki Johnston muni
gegna.
Segist hafa lært sína lexíu
Buchheit mun hafa viðrað ýmsar
hugmyndir og tillögur á fundinum í
morgun. Ekki fengust hins vegar
nánari upplýsingar um þær. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa fundarmenn sæst á að ræða
ekki efnislega það sem fram fer á
fundum við fjölmiðla, enda fylgist
viðsemjendur með hverju skrefi og
hagsmunum Íslands sé ekki best
borgið með beinni upplýsingagjöf.
Steingrímur segir þó að vel gangi
að ná utan um málið. „Og ég tel að
við séum búin að ná nokkuð góðri
sátt um það hvernig við verðum
nestuð í það sem framundan er.“
Ráðherrann ræddi í gær við
Wouter Bos, fjármálaráðherra Hol-
lands, og Paul Myners, bankamála-
ráðherra Bretlands. Hann segir að
niðurstaða þeirra samtala hafi verið
að halda áfram að ræða um næstu
skref.
Spurður hvort nýfengin sátt með-
al stjórnmálaflokka sé tilefni til
bjartsýni í Icesave-málinu segist
Steingrímur hafa lært sína lexíu.
„Ég er löngu búinn að læra það í
þessu máli að það borgar sig ekki
að taka upp neina sigra fyrirfram.
Við skulum einfaldlega sjá hvað
verður. Það er að minnsta kosti
verið að reyna og það verður þá
ekki sagt að það hafi ekki verið
gert.“
Símafundir ráðherra
Steingrímur J. Sigfússon ræddi við Wouter Bos og Paul Myners í gær
Fjármálaráðherra segist vera hóflega bjartsýnn „en niðri á jörðinni“
» Lee Buchheit og Daniel Johnston funduðu
» Buchheit verður í framvarðarsveit Íslands ef
til þess kemur að viðræður verði teknar upp á ný
SAMTÖKIN Siðbót afhentu lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu „kúlulánasiðbót með alvæpni“ í
gær. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn tók við
poka með „seðlum“ og trésleifum úr hendi Helgu
Bjarkar Grétudóttur. Athöfnin var liður í siðbót-
arleiðangri og um leið var kynnt almanak Sið-
bótar 2010-2011. Siðbót notar gömlu mánaða-
heitin og miðar upphaf ársins við fall Oslóar-
trésins á Austurvelli 22. janúar á síðasta ári.
KÚLULÁNASIÐBÓT MEÐ ALVÆPNI
Morgunblaðið/RAX
KARLMAÐUR sem nauðgaði 15 ára systur sinni með-
an hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum
drunga af völdum fíkniefnaneyslu hlaut í gær þriggja
ára dóm fyrir nauðgunina, sifjaspell og fjölda annarra
afbrota. Hann var á hinn bóginn sýknaður af ákæru
um að hafa nauðgað annarri stúlku við svipaðar kring-
umstæður. Hámarksrefsing fyrir nauðgun er 16 ára
fangelsi.
Af dómnum er augljóst að maðurinn er langt leiddur
fíkill og einnig kemur þar fram að daginn sem nauðg-
unin átti sér stað útvegaði hann systur sinni skammt
af ofskynjunarlyfinu LSD, að hennar beiðni. Maðurinn
játaði brotið gegn systur sinni en sagðist þó ekkert
muna eftir atburðinum sökum fíkniefnavímu.
Fram kemur í dómnum að sálfræðingur hjá Barna-
húsi hitti stúlkuna tvisvar en hún vildi ekki frekari við-
töl. „Gaf hún þá skýringu að hún vildi ekki rifja málið
upp, enda ýfði það upp gömul sár vegna misnotkunar
ákærða á henni þegar hún var barn og hann nýkominn
á unglingsaldurinn,“ eins og segir í dómnum. Auk refs-
ingar var hann dæmdur til að greiða henni eina milljón
í skaðabætur.
Um leið dæmdur fyrir 17 önnur afbrot
Hluti af refsingunni sem manninum var dæmd er
vegna 17 annarra afbrota, s.s. þjófnaðar, innbrota, um-
ferðarlagabrota o.fl. sem töldust sönnuð á manninn.
Þá var hann ákærður fyrir að hafa nauðgað annarri
stúlku sem ekki hefði heldur getað spornað við verkn-
aðinum sökum svefndrunga af völdum þunglyndislyfja.
Sú niðurstaða byggðist einkum á framburði fyrrver-
andi kærasta stúlkunnar sem kom að þeim meðan
meint brot átti sér stað og lýsti hann atvikum á þann
veg að ekki hefði verið um nauðung að ræða.
Þrjú ár fyrir nauðgun og
fjölda annarra afbrota
Kvaðst ekkert muna eftir atburðum sökum fíkniefnavímu
SETJA þyrfti
sérstök lög um
spilavíti áður en
hægt yrði að
setja upp slíka
sali hér á landi
segir Ragna
Árnadóttir dóms-
mála- og mann-
réttindaráðherra.
Ráðuneyti henn-
ar hefur, ásamt
iðnaðarráðuneytinu, til umfjöllunar
erindi vegna slíkrar starfsemi.
Ragna segir ýmislegt þurfa að skoða
í þessum efnum, svo sem hvort rétt
sé, eins og haldið hefur verið fram,
að það að leyfa starfsemina hefði
þau áhrif að fækka ólöglegum spila-
sölum. Iðnaðarráðuneytið hefur ósk-
að eftir umsögn frá lögreglunni um
þetta álitaefni.
Einnig þarf að skoða málið út frá
happdrættislöggjöfinni og fyrir-
komulagi happdrætta, spilakassa og
talnagetrauna. „Hingað til hefur lög-
gjafinn veitt heimildir til varan-
legrar starfsemi af þessu tagi, en
ágóðinn hefur þá runnið til ákveð-
inna málefna. Þarna eru einkaaðilar
að sækja um varanlega starfsemi, og
gert er þá ráð fyrir að ágóðinn renni
til þeirra,“ segir Ragna. Ráðuneytið
muni óska umsagna frá þeim sem
hafa staðið í slíkri starfsemi.
Hún segir málið í raun á frumstigi
hjá dómsmálaráðuneytinu. „En það
er fínt að þessi umræða fari fram.“
hlynurorri@mbl.is
Sérstök lög
þyrfti um
spilavíti
Ragna
Árnadóttir
Mikilvægt að ræða
málið vandlega
LOÐNAN gæti orðið hæf til hrogna-
töku um helgina, að mati Sturlu Ein-
arssonar, skipstjóra á Guðmundi
VE. Loðnan er stór og falleg og er
mikið fryst fyrir Rússlandsmarkað.
Hrognafyllingin er að nálgast 20%
og vantar fáein prósent upp á að hún
henti til hrognatöku.
Aðeins fjögur skip voru að veiðum
síðdegis í gær, flestar útgerðir bíða
eftir hrognatökunni. Gangan var á
Eyrarbakkabugi og hafa skipin veitt
hana á töluverðu dýpi.
„Það er skrítinn bragur á þessu
núna, að vera fremst í loðnugöngu
og sólarhringum saman er enginn að
veiðum,“ segir Sturla. helgi@mbl.is
Hrognataka
um helgina?
Ólöf Nordal alþingis-
maður heldur fund
með Samtökum eldri
Sjálfstæðismanna í
Valhöll kl. 12 fimmtu-
daginn 11. febrúar.
Fundarefni: Orkunýting í skugga
atvinnuleysis.
Allir velkomnir!