Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
Skömmu fyrir áramót voru gerðar
breytingar á almennum hegning-
arlögum sem m.a. fela í sér að refsi-
vert er að taka þátt í skipulagðri
brotastarfsemi. Ragna Árnadóttir,
dómsmálaráðherra, segir að ákvæð-
inu sé m.a. ætlað að sporna gegn
starfsemi Vítisengla, þótt þeir séu
hvorki nefndir á nafn í lögunum né í
greinargerðinni. Frumvarpið hafi
sem sagt ekki snúist um að banna
samtökin sem slík, heldur skipu-
lagða brotastarfsemi. Ragna segir
að ráðuneytið eigi von á lögfræðiá-
liti fyrir miðjan mars um hvaða úr-
ræði séu fyrir hendi til að banna
skipulögð glæpasamtök. Séu úrræð-
in ekki fyrir hendi mun koma fram í
álitinu hvaða lagabreytingar séu
nauðsynlegar til þess.
Ýmislegt annað bannað
Í ræðu sem Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri flutti sl. haust
sagði hann m.a. að ýmis mótrök
hefðu verið nefnd gegn slíku banni,
s.s. með vísan til mannréttinda. Har-
aldur benti á að margvísleg háttsemi
væri bönnuð samkvæmt íslenskum
lögum, t.d. væri bannað að auglýsa
áfengi og tóbak, svo og læknisþjón-
ustu. „Er ekki eitthvað bogið við það
að banna slíkt þegar um lögmæta
starfsemi er að ræða eins og fram-
leiðslu og sölu áfengis og tóbaks, svo
ég tali nú ekki um heilbrigðisþjón-
ustu, en á hinn bóginn er talið heim-
ilt að stofna hér skipulögð glæpa-
samtök?“ spurði Haraldur.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Á ÞEIM átta árum sem liðin eru frá
því Vítisenglar gerðu fyrst vart við
sig hér á landi hafa áhyggjur lögreglu
af starfsemi þeirra vaxið. Fé-
lagsskapur sem áður hét Fáfnir en
heitir nú MC Iceland hefur lengi sóst
eftir að gerast fullgildur aðili að
heimssamtökum Vítisengla og svo
virðist sem tiltölulega fáir þröskuldar
séu eftir á þeirri vegferð.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, sagði að-
spurð að meðal þess sem breyttist við
að MC Iceland yrði fullgildur aðili,
væri að þá gæti klúbburinn hér á
landi kallað eftir aðstoð að utan. Lög-
regla hefði nú enn hert viðbúnað sinn
en stefnan hefði í sjálfu sér ekki
breyst. Vítisenglum væri oft vísað frá
landinu án þess að það kæmi endilega
fram opinberlega.
Í gær var foringi norsku vítisengl-
anna sendur úr landi en í tilkynningu
frá ríkislögreglustjóra segir að koma
hans tengist „án vafa fyrirhugaðri
inngöngu íslenska vélhjólaklúbbsins
MC Iceland í Hells Angels glæpa-
samtökin.“ Með því að vísa honum frá
landinu vilji lögregla sporna við því
að MC-Iceland verði fullgild deild
innan samtakanna.
Sigríður Björk sagði að svo virtist
sem MC Iceland ætti tiltölulega stutt
í að verða fullgildur aðili að samtök-
unum, að afloknu löngu inntökuferli.
„Ef þeir verða það, þá er það reynsla
annarra þjóða að ekki sé auðvelt að
leggja niður slíka starfsemi.“ Við
bættist að íslenskt samfélag væri
berskjaldaðra en áður fyrir ólög-
mætri starfsemi vegna efnahags-
hrunsins. Auðveldara væri að kaupa
lögleg fyrirtæki til að skýla ólöglegri
starfsemi.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins felast ýmsar skyldur í að-
ild, m.a. þurfi hver fullgildur félagi að
greiða hátt félagsgjald og nemur fjár-
hæðin tugum þúsunda á mánuði. Í
staðinn fá félagar m.a. rétt til að auð-
kenna sig með merki samtakanna.
Mikil átök í Kaupmannahöfn
Í fyrrnefndri tilkynningu ríkislög-
reglustjóra er bent á að í Danmörku
hafi félagar í Vítisenglum látið mjög
til sín taka í blóðugum átökum sem
tengjast skipulagðri glæpastarfsemi
innflytjendagengja og vélhjóla-
manna. Fyrir um ári hafi verið greint
frá því að ákveðið hefði verið að ráða
140 danska lögregluþjóna eingöngu
til að hefta glæpastarfsemi vélhjóla-
og innflytjendagengja. Íslenskir lög-
reglumenn eru nú um 650.
Gætu kallað eftir aðstoð að utan
Lögregla segir fullgildingu MC Iceland í
Vítisengla geta stuðlað að fleiri glæpum
Morgunblaðið/Sverrir
Óvelkomnir Vítisenglum hefur margoft verið vísað úr landi. Stundum kom-
ast þeir í gegn og m.a. kom Kristiansen hingað fyrir nokkrum vikum.
Ríkislögreglustjóri telur að takist
félagsskapnum MC Iceland að
gerast fullgildur meðlimur í Vít-
isenglum skapi það hættu á auk-
inni glæpastarfsemi hér á landi.
Varnir hafa verið hertar.
Von á lögfræðiáliti
um hvernig megi
banna glæpasamtök
Í fréttatilkynningu ríkislög-
reglustjóra vegna brottvísunar
Leifs Ivars Kristiansen, eins af for-
ingjum norsku Vítisenglanna segir
m.a. að inngöngu MC Iceland sé
stjórnað frá Noregi. „Til þess að
hljóta fulla aðild mun íslenski hóp-
urinn þurfa að geta sýnt fram á að
starfsemi og skipulag sé í sam-
ræmi við kröfur Hells Angels.
Þetta eykur hættu á aukinni skipu-
lagðri glæpastarfsemi af hálfu ís-
lensku félaganna.
Minnt er á að mjög algengt er að
félagar í Hells Angels hafi hlotið
refsidóma fyrir alvarleg afbrot og
ljóst er að í röðum þeirra er að
finna marga ofbeldismenn. Þetta á
við um nokkra félaga í MC Iceland
Íslandsdeild samtakanna.“
Kristiansen var í fyrra sýknaður
í yfirrétti af ákæru um þátttöku í
smygli á 346 kílóum af hassi til
Noregs. Fjórir aðrir meðlimir í
samtökunum voru einnig sýknaðir
af þessari ákæru en allir voru þeir
dæmdir fyrir aðild að skipulagðri
glæpastarfsemi í undirrétti.
Ákærður vegna smygls á 346 kílóum af hassi
1.600.0
FUNDIÐ FÉ!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A