Morgunblaðið - 10.02.2010, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SÓLEY Tómasdóttir fékk flest at-
kvæði í fyrsta sætið. Hún upplýsti um
það á vefsvæði sínu í gær að hringt
hefði verið í tæplega þrjú hundruð
einstaklinga heiman frá henni á kjör-
dag. Þar af voru fimmtán sem ekki
áttu heimangengt. Var þá farið með
kjörseðil til þeirra og honum svo skil-
að á kjörstað.
Þorleifur Gunnlaugsson, sem hafn-
aði í öðru sæti forvalsins, kvartaði yf-
ir því kl. 16.40 á kjördag að stuðnings-
menn Sóleyjar hefðu þann háttinn á
að keyra með kjörseðla fólks á kjör-
stað. Sjálfur hefði kosningastjóri
hans – og sonur – áttað sig á þessari
glufu í ákvæðnum og spurt Stefán
Pálsson, formann kjörstjórnar,
óformlega út í málið. Svör Stefáns
voru á þá leið að slíkt væri óheimilt.
Í forvalsreglum VG segir að á
hverjum kjörstað skuli heimilt að
kjósa utan kjörfundar samkvæmt
ákvæðum kjörstjórnar. Í forvals-
bæklingi eru þau ákvæði skýrð á eft-
irfarandi hátt: „Félagsmenn geta
fengið sendan kjörseðil í tölvupósti ef
þeir óska þess. Hann skal lagður í
ómerkt umslag sem aftur er lagt í
annað umslag. [...] Kjósandi skal rita
nafn sitt og kennitölu utan á um-
slagið. Til að atkvæði teljist gilt þarf
það að hafa borist [...] til kjörstjórnar
fyrir kl. 18 á kjördag.“
„Mistök og dómgreindarleysi“
Á vefsvæði sínu viðurkennir Stefán
að hann hafi túlkað reglurnar mun
þrengra en bókstafurinn gaf tilefni til
og lýst þeirri skoðun sinni að hlutir
væru bannaðir sem ekki voru bann-
aðir. „Þetta voru mistök og dóm-
greindarleysi af minni hálfu,“ segir
Stefán og bætti við í samtali við
blaðamann í gærkvöldi að þeir kosn-
ingastjórinn hefðu átt langar umræð-
ur í gegnum MSN-spjallforritið. „Þar
svaraði ég frekar glannalega af því að
ég taldi mig vera að ræða við félaga
minn. Ég átti ekki von á því að verða
settur í þá stöðu að þetta yrði túlkað
sem kjörstjórnarúrskurður.“
Þorleifur fór eftir því sem Stefán
sagði og kvartaði þegar hann sá Sól-
eyju leika annan leik. Hann fór fram
á að kjörstjórn tæki kvörtun sína fyr-
ir áður en utankjörfundaratkvæði
yrðu talin en fékk ekkert svar.
Kjörstjórn komst svo að þeirri nið-
urstöðu á mánudag að reglur hefðu
ekki verið brotnar.
Meðal þeirra sem sömdu forvals-
reglurnar var einmitt téður Þorleifur.
Hann segir að aldrei hafi verið gert
ráð fyrir að þær yrðu túlkaðar á
þennan veg, og að það sem ekki er
bannað talið leyfilegt. Reglurnar
hefðu verið notaðar áður og engum
dottið í hug að sveigja þær svona.
Femínisti lagði miðaldra karl
Ýmsar sögur hafa borist af vinnu-
brögðum stuðningsmanna Sóleyjar
og segir hún sjálf að um alvarlegar
ávirðingar sé að ræða. Ein þeirra lýt-
ur að Silju Báru Ómarsdóttur, stjórn-
málafræðingi og kennara við Háskóla
Íslands. Sagt var að hún hefði hringt í
nemendur sína og beðið þá um að
greiða atkvæði.
Silja Bára segir á vefsvæði sínu að
umræðan sé að sínu mati „lítið annað
en moldviðri til að draga úr því að ung
kona, Sóley Tómasdóttir, alkunnur
róttækur femínisti, hafi lagt miðaldra
mann að velli í keppni um odd-
vitasætið“. Hún segir reyndar einnig
að eitt af þeim símtölum sem hún
hringdi „var í konu sem svo vill til að
var í námskeiðum hjá mér fyrir 3-4
árum. Hún byrjaði að skrifa hjá mér
MA ritgerð en ég hef ekki séð hana í
ca ár.“
Þorleifur segist telja að þarna sé
um að ræða mjög ákaft hugsjónafólk
sem trúi svo ofboðslega á sinn mál-
stað að „þegar þeir sáu fram á að
frambjóðandi þeirra næði hugsanlega
ekki í gegn voru þau tilbúin að fara í
þann leiðangur að láta tilganginn
helga meðalið“.
Stefán segir að hugsanlega geti
Þorleifur farið lengra með málið og
kært það til stjórnar flokksins. Þó svo
hann telji ríkar ástæður til þess að
endurtaka forvalið mun Þorleifur þó
ekki fara fram á það.
Ágreiningur eftir forval VG
Stuðningsmenn Sóleyjar skiluðu kjörseðlum fyrir fimmtán manns Öðrum
frambjóðanda sagt að ekki mætti skila atkvæðum annarra Úrskurður á aðra leið
Fjörutíu og fjórum atkvæðum
munaði á fyrsta og öðru sætinu í
forvali Vinstri grænna fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor.
Þykir sem verðandi oddviti hafi
haft rangt við. Kjörstjórn er því
ósammála.
Morgunblaðið/Kristinn
Forval VG Meðal þeirra sem kusu í forvalinu voru tveir alþingismenn.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær ökumann sjúkrabíls til
að greiða 60.000 krónur í sekt fyrir
að hafa brotið umferðarlög og reglur
um neyðarakstur. Dómurinn taldi
hann hafa ekið sjúkrabíl í forgangs-
akstri of hratt og án nægilegrar var-
úðar inn á gatnamót Njarðargötu og
Hringbrautar í Reykjavík með þeim
afleiðingum að árekstur varð.
Kveikt var á sírenum og blikk-
ljósum sjúkrabílsins en í dómnum er
vísað til þess að í reglum dómsmála-
ráðuneytisins um neyðarakstur segi
m.a. að þegar ekið er gegn gulu eða
rauðu ljósi skuli ökumaður draga
svo mikið úr hraða að hann geti
stansað tafarlaust fyrir umferð úr
þverstæðri átt. Þetta hafi ökumað-
urinn ekki gert. Fram kemur í
dómnum að bílnum var ekið á 60 km
hraða inn á gatnamótin.
Í málinu krafðist saksóknari lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
þess að ökumaðurinn greiddi sam-
tals 425.000 krónur vegna bíltækni-
rannsókna á sjúkrabílnum en því
hafnaði dómurinn. runarp@mbl.is
Bílstjóri
sjúkrabíls
sakfelldur
Slys Áreksturinn var harður.
Morgunblaðið/Júlíus
000.000
500.000.000
+1.100.000.000
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fimm í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Þrefaldur fyrsti vinningur stefnir
í 500 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 1.100 milljónir.
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 10. FEBRÚAR 2010
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
Þrefaldu
r
1. vinnin
gur