Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
ÓVÍST er hvort af þjóðaratkvæða-
greiðslu um ríkisábyrgð á Icesave
verður, ef íslensk stjórnvöld ná sam-
komulagi við Breta og Hollendinga
sem þau telja hagstæðara en þann
samning, sem lögin sem forsetinn
synjaði staðfestingar byggðust á.
Ef miðað er við fordæmið sem
varð til við afgreiðslu fjölmiðlalaga
sumarið 2004, þar sem stjórnvöld
felldu með nýjum lögum úr gildi lög
sem forsetinn synjaði staðfestingar,
er ljóst að stjórnvöld geta komist hjá
því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu
um Icesave, staðfesti forsetinn ný
lög sem fella hin fyrri úr gildi.
Vill kjósa hvernig sem fer
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segist þó telja eðlilegt að þjóð-
aratkvæðagreiðslan fari fram, jafn-
vel þótt íslensk stjórnvöld nái fram
nýjum og hagstæðari samningi við
Breta og Hollendinga.
Hann segir ýmis rök fyrir því að
rétta leiðin til að fella úr gildi lög,
sem forsetinn hefur synjað staðfest-
ingar, sé að þjóðaratkvæðagreiðsla
um þau fari fram og þjóðin felli þau
þannig úr gildi frekar en Alþingi.
Nái stjórnvöld hagstæðari samningi
muni valið í atkvæðagreiðslunni
standa annars vegar á milli laganna
sem forsetinn synjaði staðfestingar,
og hins vegar laga sem byggjast á
hinum nýja og hagstæðari samningi.
Sigurður Líndal, prófessor em-
erítus, segist hins vegar telja að
lagalega fáist það fullkomlega stað-
ist að stjórnvöld felli lög, sem forset-
inn hefur synjað staðfestingar, úr
gildi með nýjum lögum án þess að
þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram.
Hann bendir á að lög taka gildi
þótt forsetinn synji þeim staðfest-
ingar. „Og Alþingi hlýtur að geta
fellt lög, sem eru í gildi, úr gildi,“
segir Sigurður, en bætir við að ekki
séu allir sammála þessari skoðun.
Óljóst um hvað yrði þá kosið
„Ef menn komast svo langt að það
liggur fyrir nýr og betri samningur,
þá get ég ekki séð um hvað þjóð-
aratkvæðagreiðslan á að vera,“ segir
Guðbjartur Hannesson, þingmaður
Samfylkingarinnar og formaður
fjárlaganefndar.
Hann bendir á að nýr samningur
verði ekki til nema stjórnvöld þeirra
þriggja þjóða sem í hlut eiga ákveði
að fullgilda ekki þann samning sem
liggur fyrir og var grundvöllur lag-
anna sem forsetinn synjaði staðfest-
ingar.
Fer eftir viðbrögðunum
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er einnig þeirr-
ar skoðunar að það hvort af þjóð-
aratkvæðagreiðslu um Icesave verði
fari algjörlega eftir því hvernig
Bretar og Hollendingar bregðast við
nýjum kröfum og hugmyndum Ís-
lendinga.
„Ef við fáum neikvæð viðbrögð, þá
finnst mér einsýnt að við þurfum að
framkvæma þjóðaratkvæðagreiðsl-
una og fá þessi mál þannig á hreint.
En fáum við þau viðbrögð að þeir
séu tilbúnir til að ræða málin á nýj-
um forsendum, þá verðum við að
reyna að leiða þær viðræður til lykta
sem allra fyrst,“ segir Bjarni.
Umdeilt á sínum tíma
Talsvert var um það deilt á sínum
tíma hvort stjórnvöldum væri heim-
ilt að fella með nýjum lögum úr gildi
fjölmiðlalögin sem forsetinn hafði
synjað staðfestingar. Töldu sumir að
stjórnvöldum bæri stjórnarskrár-
bundin skylda til að halda þjóðar-
atkvæðagreiðslu um lög sem forset-
inn neitar að skrifa undir.
Um frumvarp að lögum sem felldu
fjölmiðlalögin úr gildi sagði Stein-
grímur J. Sigfússon í ræðu á Al-
þingi: „Það er fólgin í frumvarpinu
fyrirætlan um að fara á svig við
stjórnarskrána, að hafa af þjóðinni
stjórnarskrárbundinn rétt til að
kjósa um lagafrumvarp sem forseti
hefur synjað staðfestingar og þar
með fært staðfestingarvaldið yfir til
þjóðarinnar.“
Aðrir, t.d. Sigurður Líndal, voru
hins vegar þeirrar skoðunar að fyrst
lög taka gildi þótt forsetinn skrifi
ekki undir þau væri ekkert því til
fyrirstöðu að Alþingi setti ný lög í
stað þess að þjóðin kysi um lögin.
Ekki náðist í Steingrím J. Sigfús-
son við vinnslu fréttarinnar.
Verður kosið um Icesave?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þungir kassar Óvíst er hvort flytja þurfi kjörkassa á kjörstaði fyrir 6. mars. Stjórn og stjórnarnandstæða þykjast
sjá tækifæri til að ná betri samningi við Breta og Hollendinga, og ekki víst að þjóðaratkvæðagreiðslan fari þá fram.
Sigmundur Davíð vill þjóðaratkvæðagreiðslu þótt betri samningur náist við Breta og Hollendinga
Því eru ekki allir þingmenn sammála Lagaprófessor segir að setja megi ný lög án kosninga
Bæði stjórn og stjórnarandstaða
telja nú mögulegt að ná betri
samningum við Breta og Hol-
lendinga. Spurningin er hvað
verður þá um lög sem byggjast á
fyrri samningi þjóðanna.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„Í FRAMHALDINU hljóta fram-
kvæmdastjórn Heilbrigðisstofnun-
arinnar og ráðuneytið að geta fund-
ið einhverja leið til að koma HSS
inn í ramma fjárlaga á þessu ári, án
þess að skerða öryggi íbúa,“ sagði
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráð-
herra í gærkvöldi, eftir að hafa setið
fyrir svörum á borgarafundi í
Reykjanesbæ um málefni Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja.
Álfheiður sagði að fundurinn
hefði verið gagnlegur og vonaðist til
að málin hefðu skýrst á báða bóga.
„Ég skynja það að fólk þarna er
kvíðið. Það hefur verið óvissa um
hvert stefnir í sjúkrahúsþjónust-
unni síðastliðið ár.“
Fækkað á skurðstofum
Fram hefur komið að útlit er fyr-
ir lokun skurðstofa HSS og upp-
sagnir starfsfólks vegna liðlega 5%
niðurskurðar fjárveitinga. Álfheiður
segir að framkvæmdastjórn HSS
hafi lagt áætlanir fyrir heilbrigð-
isráðuneytið í gærmorgun, um það
hvernig rekstrin-
um í ár yrði kom-
ið inn í ramma
fjárlaga. Hún
segist ekki hafa
farið yfir áætlan-
irnar sjálf en viti
þó að gert sé ráð
fyrir fækkun um
7,6 stöðugildi,
fyrst og fremst á
skurðstofum.
Hún hvetur til þess að skurð-
stofum verði haldið opnum á dag-
vinnutíma, eins og hjá Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands á Selfossi.
Hins vegar verði allar áhættufæð-
ingar á Landspítalanum í Reykja-
vík.
Á fundinum kom fram mikil
óánægja með þjónustu heilsugæsl-
unnar, meðal annars vegna langrar
biðar og erfiðra aðstæðna. „Ég tel
að leggja þurfi meiri áherslu á
heilsugæsluna og minni á sjúkra-
húsið,“ segir ráðherra og bætir síð-
an við: „Ég tel reyndar að það þurfi
að endurræsa heilsugæslukerfið,
þannig að það virki betur,“ segir
Álfheiður.
Þarf að endur-
ræsa heilsugæslu
Heilbrigðisráðherra vonast til að hægt
verði að halda skurðstofum HSS opnum
Álfheiður
Ingadóttir
Ekki er mikill tími til stefnu fyrir
undirbúning þjóðaratkvæða-
greiðslunnar, enda er kjördagur 6.
mars. Samkvæmt upplýsingum frá
Rögnu Árnadóttur dómsmála- og
mannréttindaráðherra vinna ut-
anaðkomandi sérfræðingar um
þessar mundir að gerð kynning-
arefnis um Icesave. Hún segir að
vonast sé eftir niðurstöðum í þeim
efnum í næstu viku, en ekki sé
tímabært að gefa upp hvaða sér-
fræðinga um ræðir.
Í nefndaráliti með frumvarpi um
þjóðaratkvæðagreiðsluna kom
fram að æskilegt þætti að hlut-
laust kynning-
arefni yrði
útbúið.
Ragna segir
ennfremur að
undirbúningur
kjördags gangi
vel og sam-
kvæmt áætlun,
en fram hefur
komið að skól-
ar sem kosið verður í þurfa óvenju-
mikinn tíma til undirbúnings, enda
ekki áður verið haldnar kosningar
um miðjan vetur meðan kennsla
stendur yfir.
Sérfræðingar vinna að kynningarefni
Ragna Árnadóttir
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Auglýst er eftir listum vegna kosningar 4 stjórnarmanna og 82 fulltrúa í
trúnaðarráð skv. 3. tölulið 20. gr. laga VR. Framboðslistum skal skilað á
skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 1. hæð, eigi síðar en
kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 24. febrúar nk.
Berist fleiri listar en listi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna sem þegar liggur
fyrir skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla í félaginu um framkomna lista.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VR. Þá má fá frekari upplýsingar
hjá kjörstjórn með því að hringja í síma VR 5101700 eða senda tölvupóst á
kjorstjorn@vr.is.
Kjörstjórn VR
Framboð lista við kjör
stjórnar og trúnaðarráðs VR